Morgunblaðið - 24.08.2019, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 24.08.2019, Qupperneq 53
klassíska tónlistarheiminum og því fengur fyrir okkur að hún, sem er staðartónskáld okkar, kemur með í seinni ferðina og tekur virkan þátt í tónleikakynningum og kennir mast- erklassa við tónlistarháskóla.“ Fyrri ferðin verður farin til Þýska- lands og Austurríkis 12.-17. nóv- ember undir stjórn Daníels Bjarna- sonar en sú seinni til Bretlands 8.-16. febrúar undir stjórn Yans Pascals Tortelier. „Þetta er í fyrsta skiptið sem við höldum röð tónleika í Bret- landi og lengsta tónleikaferð okkar í Evrópu síðan árið 1980. Stórar tón- leikaferðir okkar síðan þá hafa verið til Bandaríkjanna í tvígang og síðan Japans á síðasta ári,“ segir Árni Heimir og bendir á að það hafi mikla þýðingu fyrir SÍ að fá tækifæri til að spila í Bretlandi og þýskumælandi löndum. „Í Englandi og þýskumælandi löndum er miðpunktur tónlistar- umfjöllunar á Vesturlöndum. Stærstu klassísku tónlistartímarit heimsins eru gefin út í Bretlandi og í Þýskalandi er umræðan og saman- burðurinn á mjög háu plani. Þannig að öll gagnrýni sem við fáum þaðan er mjög marktæk. Þegar við staðsetjum okkur í heiminum skiptir máli að þessi lönd viti af okkur og viti hvað við getum,“ segir Árni Heimir og tek- ur fram að tónleikaferðin til Þýska- lands og Austurríkis komi til vegna þess að Víkingur Heiðar Ólafsson er staðarlistamaður Konzerthaus í Berl- ín starfsárið 2019-2020. Á efnisskrá tónleikanna er meðal annars píanó- konsertinn Processions eftir Daníel Bjarnason sem Víkingur frumflutti fyrir um áratug. „Við finnum fyrir miklum og sterk- um áhuga á íslenskri tónlist og íslenskri nýsköpun. Það er í raun um- boðsmaður Vladimirs Ashkenazy, sem einnig er umboðsmaður Daníels og Víkings, sem skipuleggur þessa tónleikaferð að eigin frumkvæði. Eins og hann orðaði það þá ætti heimurinn að fá að heyra þessa frábæru hljóm- sveit leika verk eftir framúrskarandi tónskáld. Við erum mjög stolt af þess- ari ferð og stolt af því að geta nýtt þetta sem vettvang til að kynna nýja íslenska tónlist,“ segir Árni Heimir og bendir á að íslenskt tónlist skipi líka veglegan sess á tónleikum hljóm- sveitarinnar hér heima á yfirstand- andi starfsári. Sannfærð um að veki lukku „Í apríl frumflytjum við í samstarfi við Íslenska dansflokkinn Aiõn eftir Önnu Þorvaldsdóttur sem hún vann með Ernu Ómarsdóttur, en verkið var pantað í sameiningu af okkur og Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar þar sem það var frumflutt síðasta vor. Við frumflytjum Glerhjalla eftir Svein Lúðvík Björnsson á tónleikum í maí, konsert fyrir hljómsveit eftir Snorra Sigfús Birgisson og Harmóníkukons- ert eftir Huga Guðmundsson í janúar. Í júní flytjum við Yfirráðandi kyrrð eftir Pál Ragnar Pálsson sem við höf- um ekki leikið áður,“ segir Árni Heimir og tekur fram að markmið verkefnavalsnefndar sé að finna jafn- vægi „milli verka sem allir þekkja og öllum finnst gaman að heyra og verka sem fólk þekkir kannski ekki fyrir- fram en við erum sannfærð um að muni vekja lukku“, segir Árni Heimir og bendir á að þar leiki verk kven- tónskálda sífellt stærra hlutverk. Tónlistarsagan skakkt skrifuð „Markmiði okkar um að auka hlut kvenna á efnisskránni miðar vel. Þeir tónleikar þar sem ekki er ýmist verk eftir kventónskáld, kona að stýra tón- leikunum eða leika einleik eru telj- andi á fingrum annarrar handar,“ segir Árni Heimir og tekur fram að það kalli á nokkra vinnu af sinni hálfu að finna tónsmíðar kvenna frá fyrri tímum. „Það felur í sér töluverða rannsóknarvinnu að finna út – ekki bara hvaða tónlist er til heldur hvað er af þeim gæðum að okkur finnist það eiga heima á okkar tónleikum. Auk þess erum við háð því að nót- urnar séu til á prenti. Mér hefur þótt þetta mjög áhuga- verður hluti af mínu starfi, að leita langt aftur í aldur og finna bitastæðar sinfóníur og önnur hljómsveitarverk eftir konur fyrr á öldum. Þá uppgötv- ar maður hvað tónlistarsagan hefur í raun verið skakkt skrifuð og mjög frambærileg kventónskáld aldrei ver- ið nefnd á nafn,“ segir Árni Heimir og tekur fram að gaman sé að geta boðið upp á verk eftir Lili Boulanger í febr- úar og fiðlukonsert eftir Jennifer Higdon í september sem hún hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir árið 2010. „Við verðum með verk eftir tvær kon- ur, Mariu Antoniu Walpurgis og Önnu Amaliu af Braunschweig-- Wolfenbüttel, á barokktónleikum í október sem mér finnst einstaklega skemmtilegt. Gaman er einnig að geta í fyrsta skiptið boðið upp á tvö verk eftir kventónskáld á vínartón- leikum sveitarinnar í janúar, en þar er um að ræða verk eftir Mélanie Bonis og Amy Beach. „Þar þurfti ég virkilega að hafa fyrir því að leita, því hafi konur einhvers staðar verið jaðarsettar sem tónskáld gegnum aldirnar er það í hinu íhaldssama Austurríki. Konur létu því ekki að sér kveða sem vínarvalsatónskáld.“ Þar sem starfsemi SÍ er afar um- fangsmikil er eðlilega ekki hægt að telja upp öll þau verk sem í boði verða, flytjendur eða hljómsveitar- stjóra í umfjöllun á borð við þessa. Í ár verður boðið upp á sjö tónleika í rauðu tónleikaröðinni sem ætluð er þeim sem vilja hlusta á stóra sinfón- íuhljómsveit í öllu sínu veldi leika kröftuga og áhrifamikla tónlist, sjö tónleika í gulu röðinni sem ætluð er þeim sem vilja heyra fjölbreytilega tónlist frá ýmsum tímum og fimm tónleika í grænu röðinni þar sem boð- ið er upp á vinsæla klassík af léttara taginu. Undir merkjum Litla tón- sprotans er boðið upp á ferna tón- leika, m.a. Dimmalinn og tónleika með lögum úr leikritum Thorbjørns Egner, og föstudagsröðin inniheldur þrenna tónleika. Þess utan býður SÍ upp á barnastund, unga einleikara, þematónleika, leikur á Myrkum músíkdögum og kynnir uppskeru- tónleika Yrkju svo fátt eitt sé nefnt. Inntur eftir því hvaða listafólk hann sé ánægðastur með að fá til landsins í vetur svarar Árni Heimir: „Ég er mjög ánægður með að fá Hadelich, sem kemur fram á afmælis- tónleikum hljómsveitarinnar. Hann er einn færasti fiðluleikari heims í dag og hefur náð ótrúlega miklu flugi síðustu árin. Einnig er afar spenn- andi að fá píanóleikarann Stephen Hough til landsins, en hann leikur á tónleikum í október. Loks verð ég að nefna fiðluleikarann Vadim Gluzman sem spilar fiðlukonsert Gubaidulinu. Margir fiðluleikarar hafa þetta verk á efnisskrá sinni nú til dags, enda allir sammála um að þetta sé einn merki- legasti fiðlukonsert síðustu 40 ára. En ég held að það séu líka allir sam- mála um að það flytji hann enginn betur en Gluzman. Hann hefur gert þennan konsert að sinni sérgrein.“ MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019 Líkt og greint var frá fyrr í sumar hefur finnski hljómsveitarstjórinn Eva Ollikainen verið ráðin í stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ) til fjögurra ára frá og með hausti 2020. Á yfirstandandi starfsári stjórnar hún tvennum tón- leikum með hljómsveitinni, annars vegar í nóvember og hins vegar í mars en seinni tónleikarnir eru 70 ára afmælistónleikar SÍ. „Við erum afar ánægð með að hafa fengið hana til liðs við okkur,“ segir Árni Heimir og heldur áfram: „Hún er frábær hljómsveitarstjóri, bæði tæknilega og músíkalskt. Hún sameinar það að hafa breiða nálgun í stíl, alveg frá 18. öld og yfir í krefj- andi nútímaverk, á sama tíma og hún er mjög forvitin að kanna óþekktari slóðir í sambandi við verkefnaval sem okkur finnst mjög spennandi,“ segir Árni Heimir og rifjar upp hversu gott samstarfið við Ollikainen hefur verið á umliðn- um árum, en hún hefur stjórnað hljómsveitinni reglulega frá árinu 2005. „Þegar við báðum hana að stýra „Okkar áheyrendur eru forvitnir“  Fengur að ráða Evu Ollikainen sem aðalhljómsveitarstjóra Stjórnandi Eva Ollikainen. tónleikum í febrúar 2019 þar sem Andreas Brantelid lék sellókonsert eftir Elgar spurðum við hana hverju öðru hana langaði að stjórna á þeim tónleikum. Hún bað um að fá að stjórna sinfóníu nr. 3 eftir Lutoslawski, sem er kröfuhart nú- tímaverk fyrir bæði hljómsveitina og tónleikagesti. Mig hafði lengi langað til að setja þetta verk á dag- skrá en ekki fundið því stað né stund áður, svo við slógum bara til. Hún upplýsti okkur þá um það að hún hefði lengi beðið atvinnu- hljómsveitir um að fá að stjórna þessu verki og við værum fyrsta hljómsveitin sem tæki jákvætt í það. Ástæða annarra hljómsveita fyrir því að vilja ekki setja þetta verk á dagskrá var yfirleitt að menn ótt- uðust að geta ekki selt nógu marga miða,“ segir Árni Heimir og rifjar upp að Ollikainen hafi hrifist af við- tökum íslenskra áheyrenda. „Selló- konsertinn var fyrir hlé og Ollikai- nen var hissa á því að enginn tónleikagesta hefði farið heim í hléi, eins og víða þekkist erlendis,“ segir Árni Heimir og tekur fram að hann sé sannfærður um að þetta hafi ráðið úrslitum við ráðningu hennar. „Henni finnst okkar sýn á verk- efnaval og uppbyggingu efnisskráa áhugaverð og henni finnst ánægju- legt hvað áheyrendur okkar eru í eðli sínu forvitnir. Þeir vilja ekki bara heyra alltaf sömu fáeinu verk- in í nýjum uppröðunum. Það dýr- mætasta sem hljómsveitir eiga er traust tónleikagesta og það ávinnur maður sér yfir langan tíma. Ég held að við höfum sýnt það í gegnum ár- in að við bjóðum upp á vandaðan flutning, áhugaverð prógrömm og leggjum okkur fram við að gera hlutina vel. Fyrir vikið eru tónleika- gestir okkar opnir fyrir nýjungum, sem er alls ekki sjálfgefið.“ Menningarnótt verður haldin hátíðleg í Reykjavík og að vanda er dagskráin þéttskipuð og boðið upp á viðburði sem heyra undir allar listgreinar og hönnun. Hér verða nokkrir viðburðir af dagskránni nefndir. Tvennir tónleikar verða í Leynigarðinum, Skólavörðu- stíg 4 c, kl. 14 og 16. Á þeim fyrri verða fluttar þýðingar Benónýs Ægissonar á erlendum úrvals dægurlagatextum og söngkvæðum en á þeim seinni ræður sveiflan í anda Djangos Reinhardts ríkjum. Skammt frá, í Ásmundarsal, verður útgáfufögnuður vegna tímaritsins Upp í hæstu hæðir en í því eru sögu Skólavörðuholtsins gerð skil. Hljómsveitin Bjartar sveiflur leikur fyrir gesti hressileg tökulög og í salnum stendur yfir sýningin Varðað. Fjörið hefst kl. 17. Í Listasafni Reykjavíkur verður mikið um að vera, frítt inn á sýningar og boðið upp á leiðsagnir, smiðj- ur, leiki og fleiri viðburði fyrir fjölskylduna. Í Þjóðminja- safni og Safnahúsi verður einnig dagskrá og samtökin STEF bjóða til STEFnumóts við fjögur söngvaskáld í bakgarði höfuðstöðva sinna á Laufásvegi 40 kl. 16-18. Fram koma Jóhann Helgason, Una Stef., Auður og Krist- ín Þóra Haraldsdóttir og boðið verður upp á kaffi. Ilmandi sýning og tónleikar á svölum í heimahúsi Fischer gallerí og ilmvatnsbúð í Fischersundi tekur líka þátt í Menningarnótt en systurnar Lilja og Sigurrós og bróðir þeirra Jónsi, þekktastur sem söngvari Sigur Rósar, hafa unnið með ilmolíur síðustu sex ár og selt í búðinni. Þau hafa síðasta árið verið að vinna að ilmsögusýningu sem verður opnuð í dag á Menningarnótt. Fá gestir að þefa af Íslandssögunni, t.d. brunanum í Eden og búsá- haldabyltingunni. Ilmir eru eftir Fischer, tónlist eftir Kjartan Holm og texti saminn fyrir sýninguna eftir Vil- borgu Bjarkadóttur. Í Bíó Paradís við Hverfisgötu verður haldin sýning á öll- um veggspjöldum sem gerð hafa verið vegna sýninga Svartra sunnudaga og verða einnig eintök af þeim til sölu. Í grafíksalnum í Hafnarhúsi verður opin sýning Mar- grétar Jónsdóttur, Forkostulegt og fagurt, frá kl. 14 og á Hard Rock verður dansteiti og ýmsir dansar stignir og kenndir, m.a. zumba og magadans. Tónlistarhátíðin Rauðagerðisbrekkan 2019 verður haldin á svölunum á Rauðagerði 16 kl. 15 og koma þar fram fimm hljómsveitir sem allar eiga það sameiginlegt að tengjast Ármanni Guð- mundssyni, sem þekktastur er fyrir að vera meðlimur Ljótu hálfvitanna. Kaupmaðurinn á horninu nefnist sýn- ing sem Sigríður Marrow opnar í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur kl. 18 og fjallar um hverfandi menning- arheim kaupmannana á horninu. Una útgáfuhús og Blekfjelagið efna til bókmenntahátíðar í Gröndalshúsi kl. 13- 22.30 þar sem fagnað er mikilli grósku í bókmenntum og sjálfstæðri bókaútgáfu og fjöldi höfunda verður með upplestur. Hér hafa aðeins fáir viðburðir verið nefndir og dagskrá Menningarnætur má finna á menningarnott.is/dagskra. Menningarveisla í borginni Stuðboltar Hljómsveitin Bjartar sveiflur. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.