Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 46

Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019 SAMSTARFSAÐILI HVAR SEM ÞÚ ERT Hringdu í 580 7000 eða farðu á sumarhusavorn.is Mánudaginn 19.8. sl. ritar Stefán Arn- órsson grein í Morg- unblaðið undir yfir- skriftinni „ESB og íslenskar orkulindir“. Í greininni gætir víða alvarlegs misskilnings um eðli raforku- viðskipta, raforku- markaða og um 3. orkupakka Evrópu- sambandsins (ESB). Þennan misskilning finn ég mig knúinn til að leiðrétta og útskýra jafnframt ýmislegt í viðskiptum með rafmagn, sbr. 3. orkupakkann sem nefndur verður hér O3. Í fyrsta lagi segir Stefán að eftir- litsstofnunin ACER „geti tekið lagalega bindandi ákvarðanir um nýtingu orkulinda“. Þetta er mis- skilningur, ACER stjórnar ekki orkunýtingu né viðskiptum með orkuna sjálfa, hvorki vatnsorku né jarðvarma til raforkuvinnslu. Eig- endur orkulindanna hafa bæði með eða án O3 ávallt full yfirráð um nýt- ingu sinna eigna. Þegar orkurétt- indin eru í eigu ríkisins geta stjórn- völd alltaf lagt á auðlindagjald, líka þegar virkjunin sjálf er einkarekin. Slíkt gjald er nú lagt á í Noregi og er tæp 40% af mismuni tekna í raf- orkukauphöll og gjalda skv. bók- haldi. Einkaeigandi orkuréttinda getur líka ávallt ráðið hvort hann virkjar sjálfur eða selur eða leigir réttindin til virkjunaraðila, nema auðvitað þau hafi verið tekin eign- anámi. Margir hafa misskilið þetta hlut- verk ACER, sem er lýst í skjali 713/2009 úr O3. Það liggur líklega aðallega í að gera ekki greinarmun, annars vegar á vettvangi við- skiptanna, þ.e. raforkuflutnings- og dreifikerfinu og síðan viðskiptunum með vöruna sem er keypt og seld. Það er ekki sama rafleiðslur og raf- magnið sem um þær fer. Hlutverk ACER lýtur einkum að hinu fyrr- nefnda, háspennta flutningskerfinu, bæði innan landa og milli landa, en ekki viðskiptunum með vöruna sem er flutt. Það eykur líka á vandann að átta sig á viðskiptunum að raf- magn er einstök, ósýnileg vara sem ferðast milli seljanda og kaupanda á ljós- hraða. Rafmagnið er ekki hægt að geyma nema í litlum mæli og því er það afhent um leið og það er fram- leitt. Slík viðskipti kalla á þétt regluverk til að tryggja okkur, t.d. fyrir byrjendamis- tökum eins og gerð voru í Kali- forníu í kringum árið 2000 eins og frægt varð í gjaldþroti Enron. En þetta grundvallaratriði á öll- um raforkumörkuðum, ekki síst innan ESB/EES, aðskilnaður rafmagnsins frá rafleiðslunum sem flytja það, tryggir að aðili sem hugsanlega mundi vilja leggja sæ- streng til Íslands verður að vera al- gjörlega óháður bæði íslenskum seljanda orkunnar og erlendum kaupanda hennar. Sæstrengsfyr- irtækið getur því ekki komið hér og keypt orku, sameiginleg eignarhald flutnings-, vinnslu- og sölufyrir- tækja er algerlega óheimilt. Skoðum nánar áðurnefndan vett- vang og viðskiptin á honum. Þá er gott að hafa í huga dæmi sem við skiljum betur úr annarri dálítið sambærilegri starfsemi. T.d. setur Alþjóða flugmálastofnunin sam- ræmdar reglur og staðla um áætl- unarflug víðs vegar um heiminn til að tryggja öryggi og virkni í al- þjóðaflugi. Undir þessar reglur verðum við að beygja okkur ef flug- ið á að virka. Stofnunin er hins veg- ar ekkert með puttana í vörunni sem verið er að flytja (farþegum, fragt) né samkeppni um hvernig nýrra markaða er aflað eða verð- lagningu flugsæta. Þetta sýnir því að sameiginlegt regluverk um inn- viði er ekki hið sama og þau frjálsu viðskipti sem innviðirnir gera möguleg. Kannski er enn betra dæmi vega- kerfið og síðan þær vörur sem flutt- ar eru um það í innbyrðis sam- keppni flutningafyrirtækja. Þótt t.d. Vegagerðin hafi eftirlit með gæðum vega og tryggi innviðina er hún ekki með puttann í viðskiptum með vörur sem ganga kaupum og sölum og fluttar eru með flutn- ingabílum. Að halda slíku fram er svipað og segja að ACER sé að ásælast orkulindir eða orkuna sjálfa. Í öðru lagi heldur Stefán því fram í grein sinni að skv. O3 megi ekki gera tvíhliða samninga um við- skipti með rafmagn. Það er alrangt, tvíhliða samningar eru algengir innan orkusamstarfs ESB, eins og best sést í ársfjórðungslegum skýrslum ESB um raforkumarkaði í Evrópu. Í þriðja lagi furðar Stefán sig á skilgreiningu rafmagns sem vöru. Ég spyr: Hvað annað getur raf- magn verið? T.d. á Íslandi þar sem um 83% þess eru seld til erlendra fjárfesta er reka hér stóriðjufyr- irtæki. Varla mundi slíkt teljast op- inber þjónusta. Sannleikurinn er sá að rafmagn hefur verið meðhöndlað sem vara á samkeppnismarkaði í flestum heimshlutum árum og ára- tugum saman. Yfir 30 ár eru síðan sú þróun hófst m.a. í Noregi þar sem Norðmenn settu sér þá það markmið að gera sem mest verð- mæti úr norskum vatnsorkulindum. Hér á landi er hins vegar haldið fram fullum fetum þeirri furðulegu skoðun að gera sem minnst verð- mæti úr orkulindunum og að „ork- an okkar“ sé selt á sem lægstu verði. Flestir sjá vonandi að slíkt getur ekki staðist sem þáttur í ís- lenskri orkustefnu. Raforkumarkaðir og íslenskar orkulindir Eftir Egil Benedikt Hreinsson »Rafmagn hefur verið meðhöndlað sem vara á samkeppnis- markaði í flestum heimshlutum árum og áratugum saman. Egill Benedikt Hreinsson Höfundur er rekstrar- og rafmagns- verkfræðingur og prófessor emeritus í raforkuverkfræði og raforku- hagfræði. egill@hi.is Ég kom til Seyðis- fjarðar sumarið 1984 til að undirbúa tölvu- námskeið með Apple IIE-vélum og kynna heimafólki þá bylt- ingu sem þá var í uppsiglingu. Að koma úr rigningunni úr Reykjavík og á þenn- ann dýrðarstað var ógleymanleg upplifun. Stafalogn og suðrænt veður og fólkið tók á móti okkur eins og hér væru þjóðhöfðingjar á ferð. Síðan hefur Seyðisfjörður með sín- um háu fjöllum og fallegu húsum skipað viðhafnarsess í mínum huga. Einangrun Seyðisfjarðar hefur lengi verið Gordíonshnútur sem þarf að leysa. Einar Þorvarðarson, fyrrver- andi yfirmaður Vegagerðarinnar á Austurlandi, skrifaði nýlega í Morgunblaðið afar athyglisverða grein um fyrirhuguð jarðgöng á Mið-Austurlandi. Hann gagnrýnir skýrslu nefndar samgönguráð- herra og alþjóðlega fyrirtækisins KPMG um jarðgöng á Mið-Aust- urlandi en nefndin leggur til að grafin verði jarðgöng undir Fjarð- arheiði og seinna tvenn göng frá Seyðisfirði til Norðfjarðar. Einar bendir á ódýrari og miklu betri lausn sem hentar öllu svæðinu. Einar er vel menntaður heima- maður og gjörkunnugur stað- háttum og menningu svæðisins. Hann bendir réttilega á að ólík- legt er að rándýr risagöng undir Fjarðarheiði fái framgang vegna annarra brýnna verkefna í vega- gerð. Reikningurinn hljóðar uppá 64 milljarða. 13 km löng göng undir Fjarð- arheiði kosta 35 milljarða króna og leysa aðeins eitt vandamál þ.e. útrýmir árlegum 17 heilum eða hálfum ófærðardögum um heiðina um háveturinn þegar umferð er lítil. Ráðlegging hins alþjóðlega bók- haldsfyrirtækis ber vott um tak- markað samráð við heimamenn og litla virðingu fyrir fjármunum rík- issjóðs. Einar vill setja göngin frá Seyð- isfirði til Norðfjarðar í forgang því sú framkvæmd tekur miklu styttri tíma og skapar frábær sóknar- tækifæri fyrir íbúana svo sem í ferðaþjónustu og fiskirækt og bætir samgöngur milli byggða- kjarnanna. Ennfremur opnar þessi lausn fyrir fullkomið ferðaöryggi milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða. Þá verður til nýr túristahringa- vegur um firðina sem er kærkom- ið tækifæri fyrir ís- lenska sem erlenda ferðamenn. Uppbygg- ing ferðaþjónustu og laxeldis í fjörðunum verða framtíðar- atvinnuvegir Aust- firðinga og greiðar samgöngur eru lyk- ilatriði í þeirri fram- farasókn. Myndin sýnir vænt- anlegan hringveg milli austfirsku fjarðanna. Rauðu punktarnir eru byggðakjarnar sem tengjast hringveginum. Hringurinn er 90 km langur og margt forvitnilegt í náttúrunni ber fyrir augu. Tilvalið er að heimsækja kaupstaðina og skoða ýmsa merkisstaði í ferðinni. Ferð um austfirska túrista- hringinn sem gæti tekið 6-7 klukkustundir er vafalaust kær- komið tækifæri fyrir ferðafólk og gesti sem koma með Norrænu. Kostir við að byrja ganga- gerðina með tvennum göngum milli Seyðisfjarðar og Norð- fjarðar: 1) Helmingi ódýrari og fljótvirkari lausn en tillaga KPMG. 2) Nýr spennandi ferðahringvegur verður til um austfirsku firðina. 3) Mjóifjörður verður í kallfæri og nýtist vel til búsetu, fiskeldis og ferðamennsku. 4) Örstutt er fyrir Seyðfirðinga að sækja læknisþjónustu til Norð- fjarðar. 5) Gefur góð fyrirheit um sam- vinnu og samruna sveitarfélaga á Austfjörðum. 6) Opnar heilsársveg frá Seyðis- firði til annarra byggðakjarna. 7) Síðar mætti tengja Firðina bet- ur við Héraðið og það er ódýr- ast með göngum undir Mjóa- fjarðarheiði. Líklegt verður að telja að ríkis- sjóður sjái sér ekki fært að setja nema hámark 30 milljarða í þetta verkefni á næstu áratugum og þá fer best á því að heimamenn ráði för og velji á milli hringtenging- unnar milli fjarðanna og Fjarðar- heiðarganga. Ný jarðgöng á Mið-Austurlandi skipta miklu máli Eftir Ellert Ólafsson »Ráðlegging hins alþjóðlega bókhalds- fyrirtækis ber vott um takmarkað samráð við heimamenn og litla virðingu fyrir fjár- munum ríkissjóðs. Ellert Ólafsson Höfundur er verkfræðingur og áhugamaður um blómlegt mannlíf á landsbyggðinni. Eskifjörður Seyðisfjörður Egilsstaðir Reyðarfjörður Hringvegur á Mið-Austurlandi Göng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar, 5,5 km Göng milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar, 6,8 km Síðar: Vegur og göng undir Mjóa- fjarðarheiði, 9 km Vegur um Fjarðarheiði ófær hluta dags að meðaltali 17 daga á ári Hringvegur Um 90 km Neskaupstaður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.