Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 32
Þórey Einarsdóttir er nýkomin frá Helsinki, þar sem hún leitaði sér innblásturs og kynnti sér aðferðir Finna við að setja upp hönnunar- viku, Helsinki Design Week. Hún er tiltölulega nýtekin við nýju starfi sem stjórnandi HönnunarMars sem fer fram í tólfta sinn á Íslandi á næsta ári. „Helsinki er frábær borg og Finnar standa framarlega í skipu- lagningu á sinni hönnunarviku. Við erum í samstarfi við Helsinki Design Week og það er mikilvægt að fara út til að læra og fá hugmyndir. Þetta er nýr starfsvettvangur fyrir mig, þannig að það var gott fyrir mig að fá tækifæri strax til að spyrja og læra.“ Þórey hefur víðtæka og alþjóð- lega reynslu af stýringu stærri verkefna sem tengjast hönnun og menningu. Síðustu árin hefur hún verið búsett á Íslandi og starfaði nú síðast sem framkvæmdastjóri kvikmyndahátíðarinnar RIFF og þar áður sem framkvæmdastjóri Reykjavik Fashion Festival. Hún útskrifaðist með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík síðasta vor. Lærði á styrkleika og veikleika „Ég öðlaðist betri skilning á eigin styrkleikum og veikleikum í nám- inu auk þess að fá fulla verkfæra- kistu af kröftugum verkfærum sem hægt er að nota til breytinga, svo ekki sé minnst á öflugt tengslanet. Það fylgir því ákveðin ábyrgð að öðlast þekkingu og nýta hana til góðra verka. Við á Hönnunarmið- stöð vinnum í teymi og hæfileikar starfsfólks mynda góða heild.“ Hvaða kosti hefur þú og hvaða galla? Hvernig vinnur maður með galla sína í teymisvinnu? „Minn helsti kostur er þrautseigja og óþolinmæðin hefur verið minn helsti galli. Heilt yfir myndi ég segja að það væri lykilatriði að gera sér grein fyrir göllunum og hafa hugrekki til að geta rætt um þá, þá er hægt að meta hvort það sé vilji til að vinna í þeim. Það er sjaldan auðvelt því egóið er svo andskoti lúmskt. Þar sem það getur reynst erfitt að breyta eigin hegðun þá er ráðlagt að einblína á styrkleika sína og efla þá enn frekar í teymisvinn- unni. Það stuðlar að samvinnu en ekki samkeppni. Og að forðast að koma sér í aðstæður sem kalla fram þessa galla. Það skemmtilega við að vinna í teymi og fara í þessa sjálfs- vinnu, er að einstaklingar innan teymisins geta upplifað þig á annan máta en þú gerir sjálfur, þannig að það sem þú persónulega álítur sem galla, getur öðrum fundist hinn besti kostur. Það fer þó mikið eftir verkefninu og teyminu,“ segir Þórey. Mikilvægt kynningarafl „Hátíðin verður núna haldin í tólfta sinn og það er mikilvægt að byggja ofan á það góða starf sem hefur verið unnið síðastliðin ár. Hönn- unarMars hefur sannað sig sem mikilvægt kynningarafl íslenskrar hönnunar innanlands og utan. Mínar helstu áherslur eru að gera hátíðina enn faglegri og aðgengi- legri fyrir almenning. Liður í því að vera faglegri og ná árangri í að skala eða stækka, eru oft leiðinlegu og óaðlaðandi ferlarnir. Til dæmis var umsóknarfrestur þeirra sem vildu taka þátt kominn of nærri hátíð- inni sjálfri. Nú hefur umsóknar- ferlið verið stytt til 10. nóvember. Þá lokum við alveg fyrir umsóknir. Og við höfum sett inn hvata til að skrá sig enn fyrr, þeir sem skrá sig fyrir 10. október fá afslátt. Þetta er gert til þess að við getum betur vandað til verka og gæðin verða meiri fyrir alla sem koma að hátíðinni. Til að gera hátíðina aðgengilegri fyrir almenn- ingi erum við að skoða þá leið að skapa f leiri fasta dagskrárliði auk þess að leita leiða til að finna hús- næði sem myndi sinna hlutverki „heimilis HönnunarMars“ á meðan hátíð stendur yfir. Við höfum líka bætt degi við hátíðina og þá viljum við draga fram það ferskasta í hönn- un og nýsköpun úr fyrirtækjum og stofnunum. Lykilatriðið er þó að vera í virku samtali við hönnuðina, því ég er að vinna fyrir þá, og þegar allt kemur til alls þá hef ég óbilandi trú á samvinnu.“ Tíminn læknar ekki öll sár Hvað finnst þér sjálfri áhugaverðast í hönnunarsenunni á Íslandi? „Það er virkilega áhugavert að sjá hversu stórt hlutverk samfélags- og umhverfisvitund er að spila í íslensku hönnunarsenunni. Vitund- arvakningin varðandi sjálfbærni og mikilvægi hringrásarhagkerfisins er höfð að leiðarljósi. Hönnunin er að skapa raunveruleg verðmæti fjár- hagslega, samfélagslega og menn- ingarlega. Við stöndum frammi fyrir gríðarlegum áskorunum í dag varðandi sjálf bærni og við erum umvafin hönnun alla daga og því áhugavert að sjá hvernig hönnuðir munu breyta framtíðinni,“ segir Þórey sem eru þessi mál hugleikin. Þórey er fædd og uppalin í Bústaðahverfinu í Reykjavík. Hún var aðeins fjórtán ára gömul þegar hún missti föður sinn og það hafði djúpstæð áhrif á hana. „Ég var hepp- in og ólst upp með báðum foreldr- um mínum með þrem systkinum og ömmu Þóreyju á neðri hæðinni. Pabbi minn varð bráðkvaddur, aðeins 41 árs, það var ákveðið rot- högg fyrir alla fjölskylduna, sér- staklega fyrir mömmu, sem stóð ein eftir með fjögur börn. Á þeim tíma var litla aðstoð að fá til að vinna úr áföllum. Erfiðast var að átta sig á því að að lífið yrði aldrei aftur eins. Tíminn læknar ekki öll sár. Hins vegar lít ég svo á að ég hafi val hvort og hvernig ákveðin lífsreynsla skil- greini mann. Ég hef verið heppin að fá að kynnast fólki alls staðar að úr heiminum og hefur það gefið mér innsýn inn í marga raunveruleika og gert mér kleift að setja hlutina í ákveðið samhengi. Í dag er þakk- lætið mér efst í huga,“ segir Þórey. Ævintýri um allan heim Að loknu stúdentsprófi sótti Þórey um nám víða um heim. „Ég sótti um háskólanám á Íslandi, Barcelona, London, Kaup- mannahöfn og New York en annað hvort bauðst mér spennandi vinna á sama tíma eða þá að ég komst ekki inn í námið eða það kostaði of mikið. Ég tók kúrsa í verkefna- stjórnun í New York-háskóla þegar ég var búsett þar í 6 ár og hef alla tíð verið dugleg að sækja mér þekkingu. Það var því langþráður draumur um skólagöngu sem rætt- ist þegar ég settist á skólabekk í Háskólanum í Reykjavík og útskrif- aðist með MBA-gráðuna í vor.“ Þórey var aðeins tvítug þegar henni bauðst að ferðast með fjöl- leikahópnum Stomp um Skand- inavíu og Eystrasaltslöndin. Í kjölfarið fór hún að starfa fyrir fyrirtækið Leikhúsmógúl við upp- setningu á Hellisbúanum í Suður- og Mið-Ameríku og Asíu. Hún bjó ytra samtals í tólf ár og starfaði ötullega í verkefnum sem tengdust menningu, leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum. Hvað dreif þig áfram? „Það að kynnast því ung að árum hversu hverfult lífið getur verið þá hafði það djúpstæð áhrif á mig, lík- lega meir en ég hef gert mér grein fyrir. Það kom ákveðið sjálfstraust og hugrekki samhliða því að kynn- ast dauðanum, þannig að viðhorfið mitt litaðist af því að hvað sem ég myndi taka mér fyrir hendur þá yrði það aldrei jafn erfitt eins og að missa pabba,“ segir Þórey. Þótt ævintýrin hafi leitt hana út um allan heim í spennandi verk- efni kann hún enn frekar að meta hversdagslífið heima á Íslandi með fjölskyldunni. Eiginmaður hennar er Gunnar Páll Ólafsson og þau ala saman upp þrjár dætur á aldrinum 4 ára til 15 ára. Áttu þér fyrirmynd? Ég get ekki sagt að ég hafi átt neina eina sérstaka fyrirmynd. Það er meira sambland af einstakling- um sem ég hef verið svo gæfurík að kynnast í gegnum lífið, sem hafa deilt með mér sínum sigrum og ósigrum, sem hefur verið dýrmætt veganesti. Í dag er maðurinn minn, Gunnar Páll Ólafsson, fyrirmynd mín að vissu leyti, með sitt jafnaðargeð og stóra hjarta. Eftir að lesa ævisöguna henn- ar Vigdísar Finnbogadóttur fyrir 10 árum, þá hef ég tekið mér hennar þrautseigju til fyrirmyndar. Það er svo oft sem við gleymum hversu mannleg við erum öll.“ PABBI MINN VARÐ BRÁÐ- KVADDUR, AÐEINS 41 ÁRS, ÞAÐ VAR ÁKVEÐIÐ ROT- HÖGG FYRIR ALLA FJÖL- SKYLDUNA, SÉRSTAKLEGA FYRIR MÖMMU, SEM STÓÐ EIN EFTIR MEÐ FJÖGUR BÖRN. Hugrekki og sjálfstæði „Það að kynnast því ung að árum hversu hverfult lífið getur verið hafði djúpstæð áhrif á mig,“ segir Þórey Einarsdóttir, nýr framkvæmdastjóri HönnunarMars, sem segir frá lífi sínu og verkefnum fram undan. Í uppáhaldi hjá Þóreyju og bækurnar á náttborðinu Jony Ive n iðnhönnuður Zaha Hadid n arkitekt og skó­ hönnuður Frank Gehry n arkitekt, það var virkilega gaman að koma í heimsókn í höfuðstöðvar Facebook í Paulo Alto sem hann hannaði. Ilse Crawford n innanhússhönn­ uður, hannaði m.a. Ett Hem og Soho House hótel Factfulness, Ten Rea sons We're Wrong About the World – and Why Things Are Better Than You Think eftir Hans Ros l ing n Kennir mik­ il vægi þess að hafa staðreyndir á hreinu. Vigdís – kona verður forseti n Af mikilvægi þrautseigj­ unnar og sjálfs­ traustsins. Long walk to freedom n Ævisaga Nel­ son Mandela gefur innsýn inn í ótrúlega getu eins manns til að fyrirgefa. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 1 0 4 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 E 6 -A C 9 0 2 3 E 6 -A B 5 4 2 3 E 6 -A A 1 8 2 3 E 6 -A 8 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 0 4 s _ 2 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.