Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 37
Wound – nýr
Omega sáraúði
frá Kerecis
Ég var þrettán ára þegar sóríasis fór fyrst að láta á sér kræla. Þessi hvimleiði sjúk-
dómur kom svo og fór næstu árin
en þegar ég nálgaðist þrítugt fór
ástandið að versna til muna,“ segir
Einar Örn Grettisson sem gekk
lækna á milli til að fá bót meina
sinna og prófaði alls kyns smyrsl
og stera sem ekkert bitu á sárin.
„Svo gerðist það að ég fór utan
til Svíþjóðar í nám og lifði á dósa-
mat og óhollustu sem fátækur
námsmaður. Það gerði allt verra
enda hefur lélegt mataræði bein
áhrif á sóríasis og þegar verst
lét var ég undirlagður af stórum
sárum og hrúðri á handleggjum
og fótleggjum og hættur að geta
sofið á nóttunni fyrir viðstöðu-
lausum kláða. Þá upplifði ég í
fyrsta skipti örvæntingu og að
sjúkdómurinn olli mér verulegu
hugarangri,“ segir Einar sem hóf
aftur göngu á milli húðlækna
og meltingarlækna í von um lækn-
ingu, en hjálpin kom frá móður
Einars sem starfar í heilbrigðis-
geiranum.
„Mamma hafði heyrt um
árangur Psoria-kremsins frá
Kerecis og þá var ekki eftir neinu
að bíða. Ég dreif mig í að kaupa
kremið, bar það á sárin í þrjá daga
og fann f ljótlega mun. Kremið sló
strax á kláðann og í dag finn ég
ekki fyrir neinu og sef vært allar
nætur,“ segir Einar.
„Sóríasis lýsir sér með slæmum
sárum sem líta út fyrir að vera
að gróa en gera það ekki. Mann
klæjar mikið í þau og hjá mér var
þetta komið upp að öxlum og í
hársvörðinn líka. Í dag sést ekki á
mér að ég sé með sóríasis og það
háir mér ekkert. Ef ég finn fyrir
einkennum ber ég strax á mig
MariCell™ Psoria og finn að allt
lagast f ljótt og vel. Fyrir mig var
MariCell™ Psoria lausnin en það
er eina kremið sem hefur virkað á
mig alla leið.“
Kremið sló strax á kláðann.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Kerecis kynnir MariCell™, íslensk húðkrem sem inni-halda mOmega-3™ fjöl-
ómettaðar fitusýrur, ávaxtasýrur
og karbamíð. Kremin eru CE-merkt
og flokkast því ekki sem
snyrtivörur heldur
lækningavörur. Þau
innihalda hvorki stera
né parabena og með
ávísun læknis greiða
Sjúkratryggingar
Íslands hluta kostnaðar-
ins.
MariCell™kremin
eru þróuð af dr. Baldri
Tuma Baldurssyni
húðsjúkdómalækni og
eru framleidd á Ísafirði.
Kremin eru notuð til að
meðhöndla ýmis húðvandamál,
en á markaði eru fjórar tegundir af
MariCell™ kremum sem gefið hafa
góða raun.
MariCell™ PSORIA er einstak-
lega virkt krem sem er sérþróað
til meðhöndlunar á þykkri
og hreistraðri húð og
einkennum sóríasis. Það
meðhöndlar hreistraða húð
og einkenni sóríasis, dregur
úr kláða, losar húðflögur,
er rakagefandi og eykur
vatnsbindigetu húðar-
innar. Kremið inniheldur
mOmega-3™ fjölómett-
aðar fitusýrur og byggir á
íslenskri einkaleyfa varinni
tækni
Sölustaðir: Apótek.
MariCell™ PSORIA
meðhöndlar einkenni sóríasis
Wound sáraúðinn er einfaldur og
þægilegur í notkun
n Hreinsið sárið vel með hreinu
vatni og hristið brúsann vel.
n Úðið úr fimm til tíu sentimetra
fjarlægð á húð og umhverfis
sárið.
n Hyljið með sáraumbúðum sem
henta hverju sinni.
Wound sáraúðinn inni-heldur bæði Jóhannesar-jurtarolíu og Neemolíu,
en báðar þessar olíur eru þekktar
fyrir græðandi eiginleika og inni-
halda fjöl ómettaðar fitusýrur.
Úðinn er til dæmis hentugur til að
meðhöndla núningssár, hruflsár,
væg brunasár, sár eftir blöðrur, sár
eftir inngróna nögl, litla skurði og
skrámur.
Úðinn er 100 prósent náttúru-
legur og án rotvarnarefna. Hann
hefur bakteríuhemjandi eiginleika
og samverkandi áhrif olíanna
flýtir fyrir sáragræðslunni.
Sáraúðinn er CE merkt lækn-
ingavara og er nú þegar fáanlegur í
apótekum.
Kerecis kynnir
Wound sáraúð-
ann sem inni-
heldur Omega
olíur úr jurtarík-
inu og flýtir fyrir
náttúrulegri sára-
græðslu.
Varð eins og nýr
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
2
8
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
E
7
-1
9
3
0
2
3
E
7
-1
7
F
4
2
3
E
7
-1
6
B
8
2
3
E
7
-1
5
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K