Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 38
Hægt er að gera mismunandi útgáfur af lasagna og um að gera að prófa sig áfram.
Hér eru nokkrar hugmyndir að
mjög góðu lasagna fyrir alla fjöl-
skylduna. Afgangur af lasagna er
upplagður matur til að hafa með
sér í nesti.
Grænmetislasagna
Fyrir 4-6
2 stórir laukar, smátt saxaðir
4 stórar gulrætur, sneiddar
6-8 stórir sveppir, sneiddir
1 búnt spergilkál, skorið í bita
1 lítið blómkálshöfuð, skorið í
bita
1 dós hakkaðir tómatar
1 dós tómatkraftur
1 dós kotasæla
2 hvítlauksrif, pressuð
4 tsk. óreganó
3 tsk. basil
1 tsk. timian
salt og pipar eftir smekk
2 dl vatn
1 tsk. rauðvínsedik
1 grænmetissúputeningur
Laukur, gulrætur, brokkólí,
sveppir og blómkál svissað aðeins
í ólífuolíu á pönnu með kryddinu.
Allt hitt sett út í og látið krauma í
hálfa klukkustund.
Ostasósa
30 g smjör
3 msk. hveiti
5-6 dl mjólk
200 g rjómaostur
Sósan er bökuð upp eins og
jafningur og rjómaosturinn síðan
bræddur út í. Þá er allt sett í stórt
eldfast mót, fyrst ostasósan, þá
lasagnablöð, grænmetissósan og
svo koll af kolli. Efst er gott að strá
rifnum osti. Bakað í ofni við 200
gráður eftir leiðbeiningum með
pastanu. Það er gott að hafa hvít-
lauksbrauð með þessum rétti.
Lasagna með spínati,
sætum kartöflum og
ricotta
Fyrir 6
2 sætkartöflur
2 msk. olía
2 dósir tómatar í bitum
1 msk. hunang
5 hvítlauksrif
500 g ricotta
20 g parmesan ostur
½ tsk. chilli-duft eða flögur
1 msk. fersk salvía
¼ tsk. múskat
2 tsk. salt
3 tsk. pipar
500 g ferskt spínat
1 kúrbítur
100 g rifinn mozzarella
Hitið ofninn í 180°C. Skrælið
sætu kartöflurnar og skerið í bita.
Sjóðið þar til þær verða mjúkar.
Takið vatnið frá og músið bitana.
Setjið chilli-duft saman við
kartöflumúsina, múskat, pipar og
niðurskorna salvíu.
Á meðan kartöflurnar sjóða
er hægt að útbúa tómatsósu.
Setjið olíu á pönnu og steikið hvít-
laukinn. Bætið tómötum við en
maukið síðan með töfrasprota. Þá
er hunangi bætt saman við, salti og
pipar. Blandið ricotta með rifnum
parmesan, salti og pipar. Notið
ostaskera og skerið kúrbítinn í
lengjur.
Lasagna á nokkra vegu
Lasagna er alltaf vinsæll réttur. Það er hægt að gera ýmsar útgáfur af lasagna og breyta frá hinu
venjulega þar sem notað er nautahakk. Grænmetislasagna er til dæmis mjög gott og bragðmikið.
Lasagna er alltaf gott, hvort sem maður velur að hafa kjöt í því eða bara grænmeti.
Setjið tómatsósu í botninn á eld-
föstu móti, síðan spínat, kúrbíts-
lengjur, sætkartöflumús og loks
ricotta. Kúrbíturinn kemur raunar
í staðinn fyrir pastablöðin en
auðvitað má nota þau líka ef fólk
vill. Endið á ricotta í efsta lagi og
stráið mozzarella yfir. Bakast í ofni
í 20-30 mínútur.
Lasagna með
kjúklingahakki
Fyrir 8
400 g kjúklingahakk
1 laukur
2 hvítlauksrif
2 msk. olía
1 dós tómatar í bitum
1 dl vatn
½ kjúklingateningur
1 tsk. óreganó
1 tsk. sykur
Salt og pipar
Lasagnaplötur
Rifinn ostur
Steikið kjúklingahakkið á heitri
pönnu og takið síðan til hliðar.
Steikið því næst lauk og hvítlauk.
Hellið tómötunum yfir og vatninu.
Þá er kjúklingateningurinn settur
út í ásamt óreganó, salti, pipar og
sykri. Bætið kjötinu við og látið allt
malla í tíu mínútur.
Leggið lasagnaplötur á milli
kjötsósunnar, lag fyrir lag og stráið
rifnum osti yfir.
Bakið í ofni eins og segir á leið-
beiningum á pastaumbúðum.
Tómatsósa fyrir lasagna
Ef þið viljið gera lasagna með
nautahakki er hér mjög góð
lasagnasósa.
2 dósir tómatar í bitum
2 msk. tómatpuré
2 laukar, smátt skornir
4 hvítlauksrif, smátt skorin
6 sveppir, skornir í sneiðar
2 rifnar gulrætur
1 sellerírót, rifin
1 chilli-pipar án fræja
2 tsk. chilli-duft
1 tsk. cumin
2 msk. ferskt óreganó, smátt
skorið
¼ tsk. kanill
Salt og pipar
Hvít sósa með lasagna
2 msk. hveiti
4 dl mjólk
1 tsk. múskat
½ tsk. salt
½ tsk. pipar, hvítur
1 dl rifinn ostur
Hitið ofninn í 200°C. Steikið lauk
og hvítlauk. Bætið síðan gulrót-
um, sveppum, sellerírót og chilli-
pipar á pönnuna og steikið allt
saman. Bætið kryddum saman
við, tómöt um og tómatpuré.
Látið sósuna malla í um það bil
15 mínútur. Bragðbætið með salti
og pipar. Ef notað er nautahakk er
það steikt á annarri pönnu og sett
saman við á eftir tómötunum.
Búið til hvíta sósu með því að
hita 2 dl af mjólk. Notið hina 2
dl til að hrista upp í hveitinu svo
það þykkist. Hrærið blönduna
út í heitu mjólkina og látið sjóða
í tvær mínútur. Hrærið stöðugt
á meðan sósan þykknar svo hún
verði jöfn og fín. Bætið múskati,
salti og hvítum pipar út í.
Setjið fyrst hvíta sósu, síðan
lasagnablöð og loks kjötblönd-
una lag fyrir lag. Endið á hvítri
sósu og rifnum osti. Ef nota skal
grænmeti í staðinn fyrir kjötið
er gott að nota kúrbít, sellerí og
eggaldin. Þá er sósan kjötlaus
en niðurskornu grænmetinu er
raðað á milli. Bakið í um það bil
30 mínútur.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Lasagna með spínati og ricotta er mjög góð uppskrift.
Vítamíndagar
í Apótekaranum
20–40% afsláttur af öllum vítamínum og bætiefnum
Tilboð gilda til 24. október
Kakó Collagen Latte
1 bolli heitt kaffi eða soðið vatn
skvetta af möndlumjólk
½ msk kakóduft
½ tsk kanill
1 msk Collagen Peptides frá Now
½ msk chia-fræ
3 dropar English Toffee Stevia frá Now
½ msk MCT Oil Mocha Chocolate
eða Vanilla Hazelnut frá Now Uppskrift eftir Ásdísi grasalækni.
grasalaeknir.is
- lægra verð
apotekarinn.is
nowfoods.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
8
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
E
7
-1
E
2
0
2
3
E
7
-1
C
E
4
2
3
E
7
-1
B
A
8
2
3
E
7
-1
A
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K