Fréttablaðið - 28.09.2019, Page 38

Fréttablaðið - 28.09.2019, Page 38
Hægt er að gera mismunandi útgáfur af lasagna og um að gera að prófa sig áfram. Hér eru nokkrar hugmyndir að mjög góðu lasagna fyrir alla fjöl- skylduna. Afgangur af lasagna er upplagður matur til að hafa með sér í nesti. Grænmetislasagna Fyrir 4-6 2 stórir laukar, smátt saxaðir 4 stórar gulrætur, sneiddar 6-8 stórir sveppir, sneiddir 1 búnt spergilkál, skorið í bita 1 lítið blómkálshöfuð, skorið í bita 1 dós hakkaðir tómatar 1 dós tómatkraftur 1 dós kotasæla 2 hvítlauksrif, pressuð 4 tsk. óreganó 3 tsk. basil 1 tsk. timian salt og pipar eftir smekk 2 dl vatn 1 tsk. rauðvínsedik 1 grænmetissúputeningur Laukur, gulrætur, brokkólí, sveppir og blómkál svissað aðeins í ólífuolíu á pönnu með kryddinu. Allt hitt sett út í og látið krauma í hálfa klukkustund. Ostasósa 30 g smjör 3 msk. hveiti 5-6 dl mjólk 200 g rjómaostur Sósan er bökuð upp eins og jafningur og rjómaosturinn síðan bræddur út í. Þá er allt sett í stórt eldfast mót, fyrst ostasósan, þá lasagnablöð, grænmetissósan og svo koll af kolli. Efst er gott að strá rifnum osti. Bakað í ofni við 200 gráður eftir leiðbeiningum með pastanu. Það er gott að hafa hvít- lauksbrauð með þessum rétti. Lasagna með spínati, sætum kartöflum og ricotta Fyrir 6 2 sætkartöflur 2 msk. olía 2 dósir tómatar í bitum 1 msk. hunang 5 hvítlauksrif 500 g ricotta 20 g parmesan ostur ½ tsk. chilli-duft eða flögur 1 msk. fersk salvía ¼ tsk. múskat 2 tsk. salt 3 tsk. pipar 500 g ferskt spínat 1 kúrbítur 100 g rifinn mozzarella Hitið ofninn í 180°C. Skrælið sætu kartöflurnar og skerið í bita. Sjóðið þar til þær verða mjúkar. Takið vatnið frá og músið bitana. Setjið chilli-duft saman við kartöflumúsina, múskat, pipar og niðurskorna salvíu. Á meðan kartöflurnar sjóða er hægt að útbúa tómatsósu. Setjið olíu á pönnu og steikið hvít- laukinn. Bætið tómötum við en maukið síðan með töfrasprota. Þá er hunangi bætt saman við, salti og pipar. Blandið ricotta með rifnum parmesan, salti og pipar. Notið ostaskera og skerið kúrbítinn í lengjur. Lasagna á nokkra vegu Lasagna er alltaf vinsæll réttur. Það er hægt að gera ýmsar útgáfur af lasagna og breyta frá hinu venjulega þar sem notað er nautahakk. Grænmetislasagna er til dæmis mjög gott og bragðmikið. Lasagna er alltaf gott, hvort sem maður velur að hafa kjöt í því eða bara grænmeti. Setjið tómatsósu í botninn á eld- föstu móti, síðan spínat, kúrbíts- lengjur, sætkartöflumús og loks ricotta. Kúrbíturinn kemur raunar í staðinn fyrir pastablöðin en auðvitað má nota þau líka ef fólk vill. Endið á ricotta í efsta lagi og stráið mozzarella yfir. Bakast í ofni í 20-30 mínútur. Lasagna með kjúklingahakki Fyrir 8 400 g kjúklingahakk 1 laukur 2 hvítlauksrif 2 msk. olía 1 dós tómatar í bitum 1 dl vatn ½ kjúklingateningur 1 tsk. óreganó 1 tsk. sykur Salt og pipar Lasagnaplötur Rifinn ostur Steikið kjúklingahakkið á heitri pönnu og takið síðan til hliðar. Steikið því næst lauk og hvítlauk. Hellið tómötunum yfir og vatninu. Þá er kjúklingateningurinn settur út í ásamt óreganó, salti, pipar og sykri. Bætið kjötinu við og látið allt malla í tíu mínútur. Leggið lasagnaplötur á milli kjötsósunnar, lag fyrir lag og stráið rifnum osti yfir. Bakið í ofni eins og segir á leið- beiningum á pastaumbúðum. Tómatsósa fyrir lasagna Ef þið viljið gera lasagna með nautahakki er hér mjög góð lasagnasósa. 2 dósir tómatar í bitum 2 msk. tómatpuré 2 laukar, smátt skornir 4 hvítlauksrif, smátt skorin 6 sveppir, skornir í sneiðar 2 rifnar gulrætur 1 sellerírót, rifin 1 chilli-pipar án fræja 2 tsk. chilli-duft 1 tsk. cumin 2 msk. ferskt óreganó, smátt skorið ¼ tsk. kanill Salt og pipar Hvít sósa með lasagna 2 msk. hveiti 4 dl mjólk 1 tsk. múskat ½ tsk. salt ½ tsk. pipar, hvítur 1 dl rifinn ostur Hitið ofninn í 200°C. Steikið lauk og hvítlauk. Bætið síðan gulrót- um, sveppum, sellerírót og chilli- pipar á pönnuna og steikið allt saman. Bætið kryddum saman við, tómöt um og tómatpuré. Látið sósuna malla í um það bil 15 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar. Ef notað er nautahakk er það steikt á annarri pönnu og sett saman við á eftir tómötunum. Búið til hvíta sósu með því að hita 2 dl af mjólk. Notið hina 2 dl til að hrista upp í hveitinu svo það þykkist. Hrærið blönduna út í heitu mjólkina og látið sjóða í tvær mínútur. Hrærið stöðugt á meðan sósan þykknar svo hún verði jöfn og fín. Bætið múskati, salti og hvítum pipar út í. Setjið fyrst hvíta sósu, síðan lasagnablöð og loks kjötblönd- una lag fyrir lag. Endið á hvítri sósu og rifnum osti. Ef nota skal grænmeti í staðinn fyrir kjötið er gott að nota kúrbít, sellerí og eggaldin. Þá er sósan kjötlaus en niðurskornu grænmetinu er raðað á milli. Bakið í um það bil 30 mínútur. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Lasagna með spínati og ricotta er mjög góð uppskrift. Vítamíndagar í Apótekaranum 20–40% afsláttur af öllum vítamínum og bætiefnum Tilboð gilda til 24. október Kakó Collagen Latte 1 bolli heitt kaffi eða soðið vatn skvetta af möndlumjólk ½ msk kakóduft ½ tsk kanill 1 msk Collagen Peptides frá Now ½ msk chia-fræ 3 dropar English Toffee Stevia frá Now ½ msk MCT Oil Mocha Chocolate eða Vanilla Hazelnut frá Now Uppskrift eftir Ásdísi grasalækni. grasalaeknir.is - lægra verð apotekarinn.is nowfoods.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 2 8 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 1 0 4 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 E 7 -1 E 2 0 2 3 E 7 -1 C E 4 2 3 E 7 -1 B A 8 2 3 E 7 -1 A 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 0 4 s _ 2 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.