Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 34
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550
5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Ég ólst upp við rosalega fátækt og mamma mín var ótrúlega flink í að búa til naglasúpur og
mat úr nánast engu. Því var ég oft
banhungruð og ekki nema fimm
ára þegar ég stal mér mat úr búð í
fyrsta sinn. Innra með mér þróað-
ist nagandi tilfinning um skort og
að ekki væri til nóg að borða heima
og í langan tíma bjó ég til öryggis-
og vellíðunartilfinningu með því
að eiga nægan mat, fylla alla skápa
og borða. Í dag veit ég að ástæðan
var þetta óöryggi í æsku minni að
aldrei var til nægur matur. Ég hef
líka átt tímana tvenna á fullorðins-
árum, ekki alltaf haft nóg á milli
handanna og verið blönk einstæð
móðir sem þurfti að telja hverja
krónu. Þá bjó ég til öryggistilfinn-
ingu með mat og fannst ég örugg ef
ég hafði nóg að borða og var södd,
en í dag hef ég verið mjög andlega
sterk lengi og unnið úr þessum
æskuminningum og reynslu.
Þetta segir Thelma Ásdísardóttir
um ástæður þess að hún safnaði
holdum á fullorðinsárum og veitti
sér huggun með mat. Á hálfu öðru
ári hefur hún lést um 75 kíló með
einörðum viljastyrk, keppnisskapi
og skynsemi í átt að breyttum
lífsstíl.
„Ég vissi lengi að ég vildi takast
á við þetta verkefni en hafði ekki
sett orkuna í það fyrr en einn dag-
inn að ég stóð mig að því að skipu-
leggja skemmtiferð með vinnufé-
lögum á þann veg að ég þyrfti
að hreyfa mig sem minnst. Það
var árið 2017 sem var mér erfitt
heilsufarslega. Ég var komin með
alls kyns kvilla vegna ofþyngdar;
kæfisvefn, bakflæði, sykuróþol
sem stefndi hraðbyri í áunna
sykursýki, orku- og einbeitingar-
leysi, fjöldann allan af óþoli og leið
almennt illa,“ útskýrir Thelma sem
tók málin föstum tökum og hefur
með léttari líkamsþyngd bætt
heilsu sína til mikilla muna.
„Allt hefur gengið til baka. Ég hef
nú losnað við öll lyf nema lítinn
skammt við lötum skjaldkirtli og
í nýlegum blóðprufum kom fram
að blóðsykur, kólesteról, víta-
mín og steinefni eru í fullkomnu
jafnvægi. Blóðþrýstingur er eins
og hjá unglingi, fituprósentan nú
22 prósent og öll kviðfita og fita af
innyflum er horfin. Vöðvamassi er
langt fyrir ofan hærra viðmið míns
aldurshóps og ég er nú flokkuð
sem vel vöðvastælt. Ég er sumsé
orðin sterk, lítil og fitulaus kona,“
segir Thelma og hlær af hamingju.
Kollagen hafði mikil áhrif
Thelma segist vera nörd að upp-
lagi.
„Þegar ég fæ áhuga á einhverju
gúggla ég og rannsaka í gríð og
erg. Ég vildi vita hvað ég gæti gert
fyrir liðina því ég var með mikla
verki í liðum. Grúskið leiddi í ljós
að það allra besta fyrir liðina væri
kollagen úr fiski og af því ég vil
eingöngu innbyrða hreina fæðu
vildi ég helst finna hreint íslenskt
kollagen,“ upplýsir Thelma sem
uppgötvaði sér til ánægju kollagen
frá Feel Iceland, hreina náttúruaf-
urð unna úr íslenskum þorski.
„Ég mundi aldrei mæla með
vöru nema ég tryði á hana og hefði
sannreynt hana sjálf. Ég get ekki
hugsað mér að fólk fari af stað til
að prófa vörur vegna mín nema
af því að ég veit að hún virkar og
mér hlýnar um hjartarætur við
að finna á eigin skinni hvað Feel
Iceland vandar sig við að búa til
geggjaða, skaðlausa og hreina nátt-
úruvöru sem svoleiðis svínvirkar,“
segir Thelma sem fann fljótt hvað
henni leið betur í liðum eftir að
hún fór að taka inn Feel Iceland-
kollagen á degi hverjum.
„Ég tók kollagen upphaflega
fyrir liðina en komst fljótt að því
hve áhrifin voru líka góð á bein og
vöðva sem styrktust. Ég lærði líka
Thelma segir
marga eiga bágt
með að þekkja
sig í útliti eftir
að aukakílóin
hurfu en að
viðmótið sé
það sama, utan
hvað karlmenn
gefI henni nú
meiri gaum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
að akkúrat þetta kollagen gerir
stórkostlega hluti fyrir húð, hár
og meltingu, en það hafði ég ekki
hugmynd um þegar ég byrjaði
að taka það. Einn morguninn
var meltingin komin í fullkomið
stand og hefur verið stabíl síðan.
Húðin á mér er orðin þvílíkt fín og
vinkonur spyrja í hrönnum hvað
ég sé að gera við húðina. Hár mitt
hefur alltaf verið þykkt og gott en
hárgreiðslukonan mín til margra
ára spurði mig um daginn hvað ég
væri eiginlega að gera fyrir hárið á
mér. Ég þuldi upp vítamín en hún
hristi kollinn og spurði hvort verið
gæti að ég tæki inn kollagen. Ég
játti því og hún sagðist ekki eiga
aukatekið orð því ég væri orðin
52 ára og komin með nýja hárlínu
í stað þess að hárið væri farið að
þynnast aðeins,“ segir Thelma sæl
og þakklát fyrir undur kollagens á
heilsu sína og útlit.
„Ég gerði líka ráð fyrir að sitja
uppi með helling af aukahúð
þegar ég léttist svo mikið og hratt
á skömmum tíma en það hefur
verið mun minna en ég hef séð
hjá öðrum sem misst hafa mörg
aukakíló. Ég er með mjög lítið
aukaskinn miðað við átökin sem
hafa átt sér stað í líkama mínum
síðustu misseri og það skrifa ég að
miklu leyti á kollagenið frá Feel
Iceland sem fer svo vel með húðina
og ég efast ekki um að hefur gert
sitt gagn.“
Fékk göngulagið sitt aftur
Thelma segir kollagenið frá Feel
Iceland vera kraftmikla heilsubót.
„Ég set tvær mæliskeiðar út í
vatn á hverjum degi því þannig
finnst mér virknin vera best,“ segir
Thelma, sem fastar í 17 til 20 tíma á
hverjum sólarhring.
„Ég vissi á fyrsta degi, þegar
ég bretti upp ermar og fékk mitt
innra frekjukast, að ég mundi
klára þetta. Auðvitað var það
stundum rosalega erfitt og ég
þurfti að kreppa hnefa og öskra
innra með mér en ég efaðist aldrei
um að ég næði takmarkinu. Ég fór
meira að segja fram úr mér þegar
kom að skjótum árangri. Ég hafði
sett mér markmið um að komast í
buxur sem ég keypti árið 1999 og
fannst þær litlar eins og Barbie-
buxur þegar ég handfjatlaði þær
í upphafi átaksins en nú eru þær
fyrir löngu orðnar alltof stórar
og ég nota þær sem hlífðarbuxur.
Nú í fyrsta sinn á ævinni tengi ég
við það þegar fólk fer í búðir til að
máta föt og velja sér klæðnað fyrir
tilefni, en þar til nú þótti mér það
niðurdrepandi og leiðinlegt,“ segir
Thelma og hlær að öllu saman.
Hún segir dásamlega tilfinningu
að hafa náð aftur í sjálfa sig og vera
laus við aukamanneskjuna sem
hún bar á sér áður.
„Lífið hefur gjörbreyst. Ég fékk
sjálfa mig og heilsuna aftur. Allt
í einu get ég túlkað sjálfa mig
eins og ég vil og ég endurheimti
meira að segja göngulagið mitt
aftur. Lélegt heilsufar stoppar mig
ekki í neinu, ég get allt sem mig
langar og hef endalausa orku. Um
daginn hafði ég gert heilmargt
með vinkonu minni og vildi gera
meira. Þá horfði hún á mig og sagði
í einlægni: „Thelma, eftir að þú
fékkst heilsuna aftur hef ég verið
að hugsa hvort það geti verið að
þú sért ofvirk?“ Ég hafði reyndar
aldrei hugsað út í það en kannski
er ég bara ofvirk eftir allt saman?
Það hefur bara ekki sést á mér
síðustu áratugi vegna þess að ég
var alltaf svo orkulaus og slöpp,“
segir Thelma og skellihlær.
Feit er ekki skammaryrði
Breytingin á Thelmu er sláandi.
„Margir eiga í sýnilegum vand-
ræðum með að þekkja mig aftur
en öllum þykir gaman að sjá
breytinguna. Ég finn annars ekki
mikinn mun á viðmóti annarra
í minn garð eftir að ég grenntist,
nema hvað karlmenn horfa pínu
meira á mig,“ segir Thelma og hlær.
„Í gegnum tíðina hef ég oft verið
spurð hvort ég hafi upplifað fitu-
fordóma en ég hef aldrei verið góð
í að greina það, kannski vegna þess
að mér er voða sama um hvað fólki
finnst um mig og hef verið lengi.
Ég hef heldur aldrei verið feimin
við að segja að ég hafi verið feit né
hlotið skömm fyrir að hafa verið
feit. Ég veit að margir eru feimnir
við þetta orð og þykir skömm að
því að tala um að fólk sé feitt en
mér finnst enginn munur á því
og að tala um að fólk sé grannt.
Því fylgir nefnilega engin skömm
og því ætti ekki að vera meira
skammarlegt að vera feitur,“ segir
Thelma.
Hún hafði áður prófað flestalla
kúra og töfralausnir til að leggja
af en segir skyndilausnir og kúra
ekki virka til frambúðar þótt það
geti sýnt árangur í skamma stund.
„Í þetta sinn undirbjó ég mig vel
andlega, útbjó plan og setti mér
markmið. Ég var ákveðin í að gera
ekkert nema það sem yrði komið
til að vera og veitti mér verðlaun
fyrir hvert markmið sem ég náði,
þó ekki matarkyns. Ég fór snemma
að borða eingöngu hreinan mat,
minnkaði sykurneyslu og tók
svo sykurinn alveg út. Ég ákvað
líka að búa ekki til staðgengla
fyrir sætindi eins og hrákökur
heldur breyta viðhorfum mínum
til sætinda. Svo tók ég inn Feel
Iceland-kollagen sem ég er viss um
að átti gríðarlegan þátt í árangri
mínum,“ segir Thelma sem í átt að
breyttum lífsstíl fór út að ganga.
„Fyrsta daginn gekk ég 400
metra og leið eins og ég hefði
klifið sjálft Everest. Ég bjó mér til
innri rödd sem ég kalla þjálfarann
minn og er í senn strangur en líka
hvetjandi og lofsamur enda er
mikilvægt að rífa sig aldrei niður
þótt eitthvað hafi ekki gengið
vel. Svo lánaði yndislegur maður
mér boxpúða sem ég setti upp
í stofunni og kýldi og kýli enn
heima því ég var of feimin til að
láta sjá mig í líkamsræktarstöðv-
unum þótt ég sé komin í ræktina
nú,“ segir Thelma og kímir.
Hún borðar engan morgunmat
en rýfur föstuna með Feel Iceland-
kollageni síðdegis og borðar ávexti
fyrsta kastið.
„Svo borða ég eina stóra máltíð
sem er alls konar því ég er alæta á
kjöt, fisk, egg, ávexti og grænmeti.
Allt þarf að vera hreint og óunnið
og ég elda minn mat sjálf. Síðan fæ
ég mér létta máltíð fyrir föstuna;
gjarnan ávexti og ber með rjóma
því ég borða heilmikla fitu en er
þó ekki á ketó. Ég borða kolvetni
og hef aldrei talið hitaeiningar
né vigtað matinn. Ég borða bara
þar til ég verð södd og oft heilan
helling, kraftmikinn og hitaein-
ingaríkan mat og drekk alltaf einn
góðan lattebolla á dag. Ég er heldur
ekkert heilög í þessu mataræði og
nýt lífsins með vinum þegar tilefni
gefst þótt ég sé pínu ströng við
sjálfa mig alla jafna því ef maður
ætlar alltaf að gefa sér slaka er
hætta á að fara aftur í gamla farið.“
Sjá nánar um Feel Iceland-kolla-
gen á feeliceland.com
Thelma tekur inn Amino Marine kollagen.
Ég ólst upp við
rosalega fátækt.
Því var ég oft banhungr-
uð og ekki nema fimm
ára þegar ég stal mér mat
úr búð í fyrsta sinn.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
8
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
E
6
-F
6
A
0
2
3
E
6
-F
5
6
4
2
3
E
6
-F
4
2
8
2
3
E
6
-F
2
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K