Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 86
Listaverkið
Tvíburasystkinin Ida Karólína
Harris og Elís Frank Stephen Elís eru
nýorðin 14 ára og hafa tekið þátt í
loftslagsverkföllunum í miðborg
Reykjavíkur síðan í mars.
„Við reynum að fara eins oft og við
getum því málefnið er svo mikil-
vægt,“ segir Ida.
Farið þið alltaf saman? Elís: „Alltaf
nema þegar ég var veikur, þá leið
mér illa því mér fannst ég vera að
svíkja málstaðinn.“
Hverju finnst ykkur þið breyta
með því að mæta? Ida: „Fyrst og
fremst umræðunni. Nú er farið að
tala um vandann og umhverfið
skiptir meira og meira máli. Við
pældum ekkert í plastpokum áður
en hugsum öðruvísi núna. Síminn
minn eyðilagðist og ég get ekki
keypt mér nýjan, mér liði svo illa
með það, svo ég nota bara takka-
símann sem ég var með þegar ég
var átta ára.“
Þegar verkföllin byrjuðu voruð
þið þá strax ákveðin í að vera
með? Elís: „Já, en við héldum fyrst
að þetta yrði bara í eitt skipti og
fengum fullt af krökkum með okkur
úr skólanum okkar, Laugalækjar-
skóla. “
Ida: „Ég fór í alla bekkina sagði
krökkunum hvað væri að gerast
og 150 krakkar komu með okkur
þann dag, 30. mars. Mér fannst það
æðislegt. Svo byrjaði fólkið að tala
uppi á sviði og allt sem við heyrðum
hreyfði við okkur systkinunum og
opnaði augu okkar. Eftir það gátum
við ekki bakkað út úr þessum verk-
föllum.“
Elís: „Fy rstu mótmælin voru
alheimsmótmæli og þá voru um
2000 manns. Síðan komu oft um
150 en nú eru bara örfáir. Það koma
sjaldan aðrir krakkar með okkur úr
skólanum en það kemur samt fyrir.“
Ida: „Við fáum leyfi frá foreldrum
okkar en skróp í skólanum þótt
f lestir kennarar séu bara ánægðir
með okkur, enda skilum við öllu.
Það sem við náum ekki að gera í
skólanum gerum við heima.“
Hafið þið líka tekið þátt í lista-
smiðjunum í Ráðhúsinu í vik-
unni? Elís: „Já, við fórum þangað
og prentuðum á boli og bjuggum til
nælur og skilti.“
Allt sem við
heyrðum
hreyfði við okkur
SÍMINN MINN EYÐI-
LAGÐIST OG ÉG GET
EKKI KEYPT MÉR NÝJAN, MÉR
LIÐI SVO ILLA MEÐ ÞAÐ, SVO ÉG
NOTA BARA TAKKASÍMANN SEM
ÉG VAR MEÐ ÞEGAR ÉG VAR
ÁTTA ÁRA.
Hér er mynd sem Soffía Ram
ona Devaney, fimm ára, gerði
úr laufum úr garðinum. Myndin
heitir: Haust á Hagamel.
Ef maður skrifar ýsa með ufsi-
loni, skrifar maður þá ufsi með
ýsuloni?
Spurðu mig hvort að ég sé krókó-
díll.
Ertu krókódíll?
Já, ég er krókódíll. Spurðu mig
núna hvort ég sé kanína.
Ertu kanína?
Nei, kjáni! Ég var að segja að ég
væri krókódíll!
Kennari: Stafaðu orðið rúm.
Drengur: Rúmm.
Kennari: Slepptu öðru m-inu.
Drengur: Hvoru?
Brandarar
Elís og Ida með fána og skilti sem þau gerðu í listasmiðju. Þau sækja inn-
blástur í bókartitil Gretu Thunberg, Húsið okkar brennur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
371
„Jæja þá, tvær nýjar sudoku
gátur,“ sagði Kata glottandi.
„Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku gátur að við
skulum koma í kapp um hver
verður fyrstur til að leysa
þær,“ bætti hún við. „Allt í
lagi,“ sagði Konráð. „Til er ég.“
Lísaloppa var líka góð í að
leysa sudoku gátur svo hún
var alveg til í keppni. „Við
glímum öll við þær báðar
og þá kemur í ljós hversu
klár þú ert orðin,“ sagði hún.
„En ég vara ykkur við, ég er
orðin mjög klár,“ sagði Kata
montin. “Við getum byrjað
á þessari léttari,“ sagði
Lísaloppa. „Þeirri léttari
fyrst,“ sagði Kata hneyksluð.
„Ekki ég, ég byrja á þeirri
erfiðari fyrst,“ sagði hún og
glotti. „Ég yrði fljótari en þið
bæði til samans þótt þær
væru báðar þungar.“ Kata var
orðin ansi klár. En skildi hún
vera svona klár?
Heldur
þú
að þú g
etir ley
st
þessar
sudoku
gátur h
raðar e
n
Kata?
?
?
?
8
4 6 8 7
5 6 2 1 7
6 7
3 4 2
2 7 9 5 3 1
1 4 3 8 9 2
6 3 8
9 7 1
5 3 8
1 9 4
7 9 4 6 8
6 1 9 7
8 7 4 3
4 6 3
1 9
9 6 8 1 4
5 8
2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R46 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR
2
8
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
E
6
-C
0
5
0
2
3
E
6
-B
F
1
4
2
3
E
6
-B
D
D
8
2
3
E
6
-B
C
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K