Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 32
Þórey Einarsdóttir er nýkomin frá Helsinki, þar sem hún leitaði sér innblásturs og kynnti sér aðferðir Finna við að setja upp hönnunar-
viku, Helsinki Design Week. Hún er
tiltölulega nýtekin við nýju starfi
sem stjórnandi HönnunarMars
sem fer fram í tólfta sinn á Íslandi á
næsta ári. „Helsinki er frábær borg
og Finnar standa framarlega í skipu-
lagningu á sinni hönnunarviku.
Við erum í samstarfi við Helsinki
Design Week og það er mikilvægt að
fara út til að læra og fá hugmyndir.
Þetta er nýr starfsvettvangur fyrir
mig, þannig að það var gott fyrir
mig að fá tækifæri strax til að spyrja
og læra.“
Þórey hefur víðtæka og alþjóð-
lega reynslu af stýringu stærri
verkefna sem tengjast hönnun og
menningu. Síðustu árin hefur hún
verið búsett á Íslandi og starfaði
nú síðast sem framkvæmdastjóri
kvikmyndahátíðarinnar RIFF og
þar áður sem framkvæmdastjóri
Reykjavik Fashion Festival. Hún
útskrifaðist með MBA-gráðu frá
Háskólanum í Reykjavík síðasta vor.
Lærði á styrkleika og veikleika
„Ég öðlaðist betri skilning á eigin
styrkleikum og veikleikum í nám-
inu auk þess að fá fulla verkfæra-
kistu af kröftugum verkfærum sem
hægt er að nota til breytinga, svo
ekki sé minnst á öflugt tengslanet.
Það fylgir því ákveðin ábyrgð að
öðlast þekkingu og nýta hana til
góðra verka. Við á Hönnunarmið-
stöð vinnum í teymi og hæfileikar
starfsfólks mynda góða heild.“
Hvaða kosti hefur þú og hvaða
galla? Hvernig vinnur maður með
galla sína í teymisvinnu? „Minn
helsti kostur er þrautseigja og
óþolinmæðin hefur verið minn
helsti galli. Heilt yfir myndi ég
segja að það væri lykilatriði að gera
sér grein fyrir göllunum og hafa
hugrekki til að geta rætt um þá, þá
er hægt að meta hvort það sé vilji
til að vinna í þeim. Það er sjaldan
auðvelt því egóið er svo andskoti
lúmskt. Þar sem það getur reynst
erfitt að breyta eigin hegðun þá er
ráðlagt að einblína á styrkleika sína
og efla þá enn frekar í teymisvinn-
unni. Það stuðlar að samvinnu en
ekki samkeppni. Og að forðast að
koma sér í aðstæður sem kalla fram
þessa galla. Það skemmtilega við að
vinna í teymi og fara í þessa sjálfs-
vinnu, er að einstaklingar innan
teymisins geta upplifað þig á annan
máta en þú gerir sjálfur, þannig að
það sem þú persónulega álítur sem
galla, getur öðrum fundist hinn
besti kostur. Það fer þó mikið eftir
verkefninu og teyminu,“ segir Þórey.
Mikilvægt kynningarafl
„Hátíðin verður núna haldin í tólfta
sinn og það er mikilvægt að byggja
ofan á það góða starf sem hefur
verið unnið síðastliðin ár. Hönn-
unarMars hefur sannað sig sem
mikilvægt kynningarafl íslenskrar
hönnunar innanlands og utan.
Mínar helstu áherslur eru að gera
hátíðina enn faglegri og aðgengi-
legri fyrir almenning. Liður í því að
vera faglegri og ná árangri í að skala
eða stækka, eru oft leiðinlegu og
óaðlaðandi ferlarnir. Til dæmis var
umsóknarfrestur þeirra sem vildu
taka þátt kominn of nærri hátíð-
inni sjálfri. Nú hefur umsóknar-
ferlið verið stytt til 10. nóvember. Þá
lokum við alveg fyrir umsóknir. Og
við höfum sett inn hvata til að skrá
sig enn fyrr, þeir sem skrá sig fyrir
10. október fá afslátt. Þetta er gert til
þess að við getum betur vandað til
verka og gæðin verða meiri fyrir alla
sem koma að hátíðinni. Til að gera
hátíðina aðgengilegri fyrir almenn-
ingi erum við að skoða þá leið að
skapa f leiri fasta dagskrárliði auk
þess að leita leiða til að finna hús-
næði sem myndi sinna hlutverki
„heimilis HönnunarMars“ á meðan
hátíð stendur yfir. Við höfum líka
bætt degi við hátíðina og þá viljum
við draga fram það ferskasta í hönn-
un og nýsköpun úr fyrirtækjum og
stofnunum. Lykilatriðið er þó að
vera í virku samtali við hönnuðina,
því ég er að vinna fyrir þá, og þegar
allt kemur til alls þá hef ég óbilandi
trú á samvinnu.“
Tíminn læknar ekki öll sár
Hvað finnst þér sjálfri áhugaverðast
í hönnunarsenunni á Íslandi?
„Það er virkilega áhugavert að sjá
hversu stórt hlutverk samfélags-
og umhverfisvitund er að spila í
íslensku hönnunarsenunni. Vitund-
arvakningin varðandi sjálfbærni og
mikilvægi hringrásarhagkerfisins
er höfð að leiðarljósi. Hönnunin er
að skapa raunveruleg verðmæti fjár-
hagslega, samfélagslega og menn-
ingarlega. Við stöndum frammi
fyrir gríðarlegum áskorunum í dag
varðandi sjálf bærni og við erum
umvafin hönnun alla daga og því
áhugavert að sjá hvernig hönnuðir
munu breyta framtíðinni,“ segir
Þórey sem eru þessi mál hugleikin.
Þórey er fædd og uppalin í
Bústaðahverfinu í Reykjavík. Hún
var aðeins fjórtán ára gömul þegar
hún missti föður sinn og það hafði
djúpstæð áhrif á hana. „Ég var hepp-
in og ólst upp með báðum foreldr-
um mínum með þrem systkinum
og ömmu Þóreyju á neðri hæðinni.
Pabbi minn varð bráðkvaddur,
aðeins 41 árs, það var ákveðið rot-
högg fyrir alla fjölskylduna, sér-
staklega fyrir mömmu, sem stóð ein
eftir með fjögur börn. Á þeim tíma
var litla aðstoð að fá til að vinna úr
áföllum. Erfiðast var að átta sig á
því að að lífið yrði aldrei aftur eins.
Tíminn læknar ekki öll sár. Hins
vegar lít ég svo á að ég hafi val hvort
og hvernig ákveðin lífsreynsla skil-
greini mann. Ég hef verið heppin að
fá að kynnast fólki alls staðar að úr
heiminum og hefur það gefið mér
innsýn inn í marga raunveruleika
og gert mér kleift að setja hlutina í
ákveðið samhengi. Í dag er þakk-
lætið mér efst í huga,“ segir Þórey.
Ævintýri um allan heim
Að loknu stúdentsprófi sótti Þórey
um nám víða um heim.
„Ég sótti um háskólanám á
Íslandi, Barcelona, London, Kaup-
mannahöfn og New York en annað
hvort bauðst mér spennandi vinna
á sama tíma eða þá að ég komst
ekki inn í námið eða það kostaði
of mikið. Ég tók kúrsa í verkefna-
stjórnun í New York-háskóla
þegar ég var búsett þar í 6 ár og hef
alla tíð verið dugleg að sækja mér
þekkingu. Það var því langþráður
draumur um skólagöngu sem rætt-
ist þegar ég settist á skólabekk í
Háskólanum í Reykjavík og útskrif-
aðist með MBA-gráðuna í vor.“
Þórey var aðeins tvítug þegar
henni bauðst að ferðast með fjöl-
leikahópnum Stomp um Skand-
inavíu og Eystrasaltslöndin. Í
kjölfarið fór hún að starfa fyrir
fyrirtækið Leikhúsmógúl við upp-
setningu á Hellisbúanum í Suður-
og Mið-Ameríku og Asíu. Hún bjó
ytra samtals í tólf ár og starfaði
ötullega í verkefnum sem tengdust
menningu, leikhúsi, sjónvarpi og
kvikmyndum.
Hvað dreif þig áfram?
„Það að kynnast því ung að árum
hversu hverfult lífið getur verið þá
hafði það djúpstæð áhrif á mig, lík-
lega meir en ég hef gert mér grein
fyrir. Það kom ákveðið sjálfstraust
og hugrekki samhliða því að kynn-
ast dauðanum, þannig að viðhorfið
mitt litaðist af því að hvað sem ég
myndi taka mér fyrir hendur þá yrði
það aldrei jafn erfitt eins og að missa
pabba,“ segir Þórey.
Þótt ævintýrin hafi leitt hana út
um allan heim í spennandi verk-
efni kann hún enn frekar að meta
hversdagslífið heima á Íslandi með
fjölskyldunni. Eiginmaður hennar
er Gunnar Páll Ólafsson og þau ala
saman upp þrjár dætur á aldrinum
4 ára til 15 ára.
Áttu þér fyrirmynd?
Ég get ekki sagt að ég hafi átt
neina eina sérstaka fyrirmynd. Það
er meira sambland af einstakling-
um sem ég hef verið svo gæfurík að
kynnast í gegnum lífið, sem hafa deilt
með mér sínum sigrum og ósigrum,
sem hefur verið dýrmætt veganesti. Í
dag er maðurinn minn, Gunnar Páll
Ólafsson, fyrirmynd mín að vissu
leyti, með sitt jafnaðargeð og stóra
hjarta. Eftir að lesa ævisöguna henn-
ar Vigdísar Finnbogadóttur fyrir 10
árum, þá hef ég tekið mér hennar
þrautseigju til fyrirmyndar. Það er
svo oft sem við gleymum hversu
mannleg við erum öll.“
PABBI MINN VARÐ BRÁÐ-
KVADDUR, AÐEINS 41 ÁRS,
ÞAÐ VAR ÁKVEÐIÐ ROT-
HÖGG FYRIR ALLA FJÖL-
SKYLDUNA, SÉRSTAKLEGA
FYRIR MÖMMU, SEM STÓÐ
EIN EFTIR MEÐ FJÖGUR
BÖRN.
Hugrekki
og sjálfstæði
„Það að kynnast því ung að árum hversu
hverfult lífið getur verið hafði djúpstæð
áhrif á mig,“ segir Þórey Einarsdóttir, nýr
framkvæmdastjóri HönnunarMars, sem
segir frá lífi sínu og verkefnum fram undan.
Í uppáhaldi hjá Þóreyju og bækurnar á náttborðinu
Jony Ive
n iðnhönnuður
Zaha Hadid
n arkitekt og skó
hönnuður
Frank Gehry
n arkitekt, það
var virkilega
gaman að
koma í
heimsókn í
höfuðstöðvar Facebook
í Paulo Alto sem hann
hannaði.
Ilse Crawford
n innanhússhönn
uður, hannaði m.a. Ett
Hem og Soho House
hótel
Factfulness, Ten
Rea sons We're
Wrong About
the World – and
Why Things
Are Better Than
You Think eftir
Hans Ros l ing
n Kennir mik
il vægi þess að
hafa staðreyndir
á hreinu.
Vigdís – kona
verður forseti
n Af mikilvægi
þrautseigj
unnar og sjálfs
traustsins.
Long walk to
freedom
n Ævisaga Nel
son Mandela
gefur innsýn
inn í ótrúlega
getu eins
manns til að
fyrirgefa.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
E
6
-A
C
9
0
2
3
E
6
-A
B
5
4
2
3
E
6
-A
A
1
8
2
3
E
6
-A
8
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K