Fréttablaðið - 28.09.2019, Qupperneq 68
Það er óskaplega mikið mál að flytja og á öllum stigum ferlisins þarf að leggja á sig
mikla vinnu og taka ýmsar erfiðar
ákvarðanir. Þá er ekki verra að
hafa nokkrar ágætar reglur til hlið-
sjónar sem geta hjálpað manni,
f lýtt fyrir og sparað erfiði. Vefur-
inn freshome.com birti nokkrar
góðar ráðleggingar sem er vert að
hafa í huga þegar kemur að því að
flytja og skreyta nýja slotið.
Þú þarft ekki að taka allt með
Þegar maður flytur áttar maður
sig á því að maður á miklu meira
af dóti en maður hélt og að mikið
af því hefur ekki verið notað lengi,
jafnvel árum saman. Það kostar
tíma, orku og peninga að flytja allt
þetta dót, þannig að það borgar sig
að hreinsa vel út áður en hafist er
handa við flutningana.
Það er of mikil vinna að losa
sig við allt aukadótið og pakka
því sem er eftir í einum rykk. Það
borgar sig að nálgast þetta sem tvö
ólík verkefni og byrja að taka til og
hreinsa út nokkrum vikum áður
en flutningar hefjast. Þá verður
miklu minna mál að pakka niður.
Húsgögn passa misvel
í ólíkar íbúðir
Margir lenda í vandræðum með að
láta gömlu húsgögnin passa í nýju
íbúðina. Þess vegna borgar sig að
kaupa húsgögn sem eru í klass-
ískum stíl, hlutlausum litum og
skiptast í einingar, svo þau passi í
ólík herbergi. Svo er hægt að nota
áberandi eða litsterka skrautmuni
til að gefa húsgögnunum smá fútt.
Það er mun ódýrara að kaupa
litríka aukahluti en að þurfa að
kaupa nýjan sófa af því að sá gamli
hentar ekki stílnum í nýrri íbúð.
Þung húsgögn
eru ekki vinur þinn
Hér áður fyrr voru bein tengsl milli
þyngdar og gæða þegar kom að
húsgögnum, en það hefur breyst
vegna framfara í framleiðslu og
hráefnanotkun. Það er líka eigin-
lega sama hversu fallegur hann er,
níðþungur sófi verður fljótt miklu
minna spennandi þegar maður
neyðist til að burðast með hann
upp og niður stiga.
Fimm ráð fyrir flutninga
Það finnst engum auðvelt eða skemmtilegt að flytja og yfirleitt gerir fólk það með svo löngu milli-
bili að margar góðar lexíur gleymast á milli skipta. Hér eru fimm ráð sem er gott að hafa í huga.
Það getur verið flókið verkefni að flytja þannig að rétt
vinnubrögð geta sparað mikla vinnu.
Það finnst fáum
gaman að burðast
með þung hús-
gögn, svo það
er gott að reyna
að kaupa létta
og meðfærilega
muni.
MYNDIR/GETTY
Það borgar sig að ganga sem best frá sem allra fyrst, svo
maður endi ekki með að garfast í hálfuppsettri íbúð.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Í stað þess að þurfa að velta fyrir
þér hvort þú viljir frekar henda
stóru húsgögnunum en að flytja
þau er best að hafa þetta í huga
þegar húsgögnin eru keypt. Lífið
verður auðveldara ef maður reynir
að kaupa vönduð húsgögn úr
léttum efnum, líka þegar þú þrífur
eða breytir skipulaginu heima hjá
þér.
Settu allt upp með besta móti
Það kemur stundum fyrir þegar
fólk er að selja heimilið að það fellur
fyrir því upp á nýtt. Þegar búið er
að laga til og heimilið skartar sínu
fegursta til að sýna það kemur oft í
ljós að það er fallegra en fólk hafði
vanist. Með tímanum getur viðhald
farið forgörðum og ýmsir ósiðir
myndast í umgengni.
Þegar maður raðar og setur upp
nýtt heimili er engin ástæða til að
reyna ekki að láta það líta út eins
og fyrirmyndarheimili, í stað þess
að láta hlutina bara ganga upp og
ætla svo að hugsa um þetta síðar.
Það borgar sig að ganga vel frá
öllum hlutum og skreyta hvert
einasta heimili með réttri blöndu af
aukahlutum og litasamsetningum.
Þá þarf bara að viðhalda því. Svo
er hægt að kveikja á ilmkertum
og njóta heimilisins í sinni bestu
mynd í stað þess að vera að vand-
ræðast í hálfuppsettu húsnæði
vikum eða jafnvel mánuðum
saman.
Sinntu viðhaldsvinnu strax
Þessi ábending rímar við þessa hér
á undan. Það er algengt að fólk klári
seint að opna síðustu kassana eða
sé með einhver ókláruð viðhalds-
verkefni löngu eftir að það flytur
inn í nýja íbúð.
Það borgar sig að ráðast strax
í öll þessi verkefni og afgreiða
þau áður en lífið fer aftur í fastar
skorður. Helst ætti vinna við heim-
ilið að klárast áður en flutt er inn,
en þegar það er ekki í boði borgar
sig samt að ganga í þessi mál sem
allra fyrst, áður en húsgögn og dót
eru um allt og aðrar skyldur byrja
að kalla.
Takið allt upp úr kössunum eins
fljótt og hægt er og ef ykkur langar
endilega að mála eitthvað herbergi
en hafið ekki orku eða tækifæri til
að klára það allt er hægt að stytta
sér leið með því að mála bara einn
áberandi vegg, það eitt getur gert
rosalega mikið fyrir herbergi.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Arnar Magnússon markaðsfulltrúi Fréttablaðsins
Sími: 550-5652 /arnarm@frettabladid.is
ENDURSKOÐUN
OG BÓKHALD
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um Endurskoðun
og bókhald kemur út föst daginn 4. október
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
8
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
E
7
-1
9
3
0
2
3
E
7
-1
7
F
4
2
3
E
7
-1
6
B
8
2
3
E
7
-1
5
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K