Fréttablaðið - 28.09.2019, Síða 76

Fréttablaðið - 28.09.2019, Síða 76
Vala og Snorri sonur hennar í fjöllunum í Ikaria. Snorri með góðri vinkonu á Sardiníu. Á japönsku eyjunni Okinawa. Samara í Kosta Ríka. matarkörfur til krakkanna sinna sem voru í háskóla í San Jose, hitti foreldra sína og gamla frænku. Tengslin á milli fólks skipta miklu máli. Að vera til staðar og vita hvað er að gerast í lífi fólks. Þetta stóð upp úr í Kosta Ríka.“ Eftir dvöl í Kosta Ríka lagði fjöl- skyldan í ferðalag til Japan. „Okinawa er falleg eyja og þar hafði fólk sterkan tilgang. Það bar ríka virðingu fyrir því starfi sem það sinnti. Sama hvað það var. Afgreiðslustarf, vegavinna eða að stýra umferð á fjölfarinni götu. Hvert einasta starf var álitið mikilvægt og virðingin gagnkvæm. Þetta fannst okkur áhugavert enda á atvinna ekki bara að vera til þess að greiða reikninga. Að finna að lífið hafi tilgang og að þú skiptir máli er mikilvægt.“ Íslensku fjölskyldunni fannst einnig mjög áhugavert að heim- sækja Ikaríu, pínulitla gríska eyju þar sem tíminn virðist standa í stað. „Þar virðist ekki skipta máli hvort eitthvað tiltekið verk sé unnið í dag eða á morgun. Þar er enginn asi og fólk vinnur hægt en örugglega að verkum sínum. Ég get nefnt dæmi um það hvernig fólk á eyjunni byggir sér hús. Úti um alla eyjuna má sjá hálf byggð hús, ástæðan er sú að fólk tekur sér mörg ár í að byggja. Það er eng- inn að fara fram úr sér eins og við eigum til hér heima.“ Ítalska eyjan Sardinía var sú síðasta sem fjölskyldan dvaldi á. Hún er önnur stærsta eyja Mið- jarðarhafsins á eftir Sikiley. „Við dvöldum mikið í Cagliari sem var kosin heilsuborg Evrópu fyrir fáeinum árum siðan. Eyjan er þannig uppbyggð að möguleikar fólks á hreyfingu og samveru eru mjög miklir. Gleði borgarbúa var áberandi mikil og stóð uppúr. Íbúar komu saman á torgum þar sem þeir sátu lengi og spjölluðu, lífsviðhorf þeirra var smitandi. Að hafa gaman af lífinu er það sem samfélag þeirra snýst um.“ Þau komu heim til Íslands í sum- arbyrjun. Og að sjálfsögðu voru það viðbrigði. „Asinn er svo mikill, við þurfum að hægja á okkur. Við þurfum að finna okkur leiðir til þess að búa í samfélagi þar sem við getum hreyft okkur en verið örugg. Þú sendir til dæmis ekki barnið þitt gangandi eða á hjóli í skólann ef það þarf að fara yfir stórar umferðargötur. Þá ertu kominn í skutlið og mögu- leikarnir á hreyfingu stórminnka. Þetta er bara lítið dæmi og ég held að fólk sé að átta sig á því að þetta skiptir miklu máli fyrir lífsham- ingju og góða heilsu. Að samfélagið styðji við íbúa sína með því að laga umhverfið að góðum lífsháttum. Mér fannst það líka góðs viti þegar ríkisstjórnin efndi til samstarfs við Nýja Sjáland og Skotland um áherslur við uppbyggingu vel- sældarhagkerfa. Við getum breytt lífi okkar ef við vitum hverju við viljum breyta og hvernig samfélagi við viljum búa í.“ ASINN ER SVO MIKILL, VIÐ ÞURFUM AÐ HÆGJA Á OKKUR. VIÐ ÞURFUM AÐ FINNA OKKUR LEIÐIR TIL ÞESS AÐ BÚA Í SAMFÉLAGI ÞAR SEM VIÐ GETUM HREYFT OKKUR EN VERIÐ ÖRUGG. 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 1 0 4 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 E 6 -C 5 4 0 2 3 E 6 -C 4 0 4 2 3 E 6 -C 2 C 8 2 3 E 6 -C 1 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 2 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.