Fréttablaðið - 28.09.2019, Page 82

Fréttablaðið - 28.09.2019, Page 82
Kær móðir, tengdamóðir, amma og langamma Pálína Margrét Stefánsdóttir Kópavogsbraut 1b, Kópavogi, Lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 20. september. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeir sem vilja minnast hennar er bent á söfnunarreikning Kópavogskirkju: 0130-15-375312 kt:691272-0529 Guðný Kristín Harðardóttir Bjarni Hermann Halldórsson Eggert Þór Jóhannsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Sigríður Anna Jóhannsdóttir (áður Gullsmára 9) Lést á Grund dvalar- og hjúkrunarheimili 14. september. Útför fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 3. október kl. 13:00. Starfsfólk Grundar fær þakkir fyrir einstaka alúð og umhyggju. Hrönn Pálmadóttir Sævar Guðbjörnsson Rögnvaldur Pálmason Ágústa G. Sigurbjörnsdóttir Örn Pálmason Anna Karen Káradóttir ömmu- og langömmubörn. Bóndi minn, faðir okkar og tengdafaðir Heiðar Kristjánsson frá Hæli, Austur-Húnavatnssýslu lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi mánudaginn 23. september síðastliðinn. Útförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 5. október kl. 14:00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Austur-Húnavatnssýslu. Kristín Jónsdóttir Bryndís Þorbjörg Heiðarsdóttir Axel Gígjar Ásgeirsson Jón Þorvaldur Heiðarsson Jóhanna Hjartardóttir Berglind Salvör Heiðarsdóttir Borgar Guðjónsson Kristján Björn Heiðarsson Ingunn Þorkelsdóttir og afkomendur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, Gunnlaugur Úlfar Gunnlaugsson pípulagningameistari, Norðurhópi 28, Grindavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðis stofnun Suðurnesja sunnudaginn 22. september. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 2. október klukkan 13. Jarðsett verður í Landakirkju, Vestmannaeyjum, föstudaginn 4. október klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarsjóð Lionsklúbbs Grindavíkur, kt. 490776-0369, rkn. 0143-26-001199. Kristín Gísladóttir Eva Rut Gunnlaugsdóttir Þorbjörn Hrannar Sigfússon Gunný Gunnlaugsdóttir Þorfinnur Gunnlaugsson Ágústa Jóna Heiðdal Sunna Sigurósk Gísladóttir Gylfi Gígja Geirsson Valur, Ágústa, Mikael Máni og Matthildur Lilja Þökkum auðsýna samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, Karitasar Jensdóttur, bókasafnsfræðings. Innilegar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir alúð og góða umönnun. Axel Viðar Egilsson Katherine Anne Brenner Pétur Már Egilsson Guðrún Helga Guðmundsdóttir og barnabörn. Jón Valur Jensson Kolbrún Jensdóttir Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, sonar og bróður, Sveinbjarnar Jónssonar Eyjaholti 7, Garði, Sérstakar þakkir færum við þeim sem hafa gefið í styrktarsjóð barna hans, starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og öllum þeim sem hafa veitt fjölskyldunni aðstoð á þessum erfiðu tímum. Marcosa Medico Carter Don Medico Óskar Nikulás Sveinbjarnarson Erna Marsibil Sveinbjarnardóttir Jón Sverrir Garðarsson Sigrún Eugenio Jónsdóttir Ásta Björg Jónsdóttir og fjölskyldur þeirra Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Ingunn Ólafsdóttir (Unna) Dalbraut 20, Reykjavík, lést mánudaginn 19. ágúst. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 1. október kl. 13. Eggert Ketilsson Jónas I. Ketilsson Sigríður H. Helgadóttir Haraldur Á. Bjarnason Hrafn A. Ágústsson Joy C. Ágústsson Ólafur Á. Haraldsson Lísa Einarsdóttir Silja Unnarsdóttir Valdimar Ómarsson Margrét I. Jónasdóttir Michel Hinders Davíð G. Jónasson Ann Peters Katla M. Jónasdóttir og barnabarnabörn Safnar heiðurssummum Anna Gréta Sigurðardóttir djasspíanisti veitir viðtöku styrk úr Minningarsjóði Monicu Zetterlund á morgun við hátíðlega athöfn í Konserthöllinni í Stokkhólmi. Það er mikil búbót að fá svona styrk – og mikill heiður líka.  Monika Zetterlund var ein-mitt sú söngkona sem ég hlustaði mikið á áður en ég f lutti til Svíþjóðar svo það er mjög gaman að fá styrk í hennar nafni,“ segir Anna Gréta Sigurðardóttir, djasspíanisti og tónskáld. Minningarsjóður Monicu Zetterlund úthlutar styrkjum ár hvert til tón- listarmanna og listamanna sem starfa í anda  hinnar sænsku söngkonu  og Anna Gréta hlýtur á morgun, sunnu- dag, 40.000 s.kr. námsstyrk úr honum. Í rökstuðningi segir að píanótækni Önnu Grétu sé meitluð, hún hafi gott innsæi þannig að þó tjáning hennar sé persónu- leg þá viðhaldi hún hefðum. Þar kemur líka fram að með jákvæðni og útgeislun hafi hún hrífandi áhrif á umhverfi sitt. „Þetta kemur allt á óvart,“ segir Anna Gréta. Hún  segir að svona heiðurs- summur í nafni Zetterlund séu veittar einum ungum og efnilegum og hún sé víst í þeim f lokki. „Svo fær einn eldri og reyndari úthlutað líka og í ár er það Nisse Sandström saxófónleikari sem var góður vinur Monicu og  hefð er fyrir  hátíðatónleikum og húllumhæi í Berwaldhallen, stórum  tónleikasal hér í Stokkhólmi, þegar styrkjunum er úthlutað.“ Anna Gréta hefur búið í sænska höf- uðstaðnum í nokkur ár en skrapp heim í sumar á djasshátíðina og spilaði með Silfu á útgáfutónleikum nýrrar plötu sem hún tók líka þátt í. En hún kann vel við sig úti. „Svíar hafa tekið mér mjög vel, ég get ekki sagt annað,“ segir hún. Spurð hvort hún sé alltaf að brillera svarar hún: „Ég bara geri mitt besta. Oft er ég að hoppa inn í hin og þessi verk- efni, bæði með stórsveitum og minni grúppum. Svo var að koma út plata sem er samstarfsverkefni mitt og gítarleikara sem heitir Max Schultz og við fengum f leiri til liðs við okkur. Fram undan er spilerí í kringum þá útgáfu. Það er alls ekki ólíklegt að við skreppum til Íslands og höldum tónleika.“ Þegar forvitnast er um einkalífið kveðst Anna Gréta vera einhleyp og búa í pínulítilli stúdíóíbúð í stórborginni. Þar sem hún er dóttir Sigurðar Flosa- sonar tónlistarmanns spyr ég hvort það sé þá ekkert pláss fyrir hann þegar hann komi út til að spila. „Nei, en hann getur gist hjá stóru systur minni, hún er graf- ískur hönnuður og býr hér úti líka. Það er ótrúlega gott.“ Þetta eru önnur verðlaunin sem Anna Gréta  fær í Svíþjóð. Hin verðlaun- in voru frá Djassklúbbnum Fasching og hún fékk þau í mars í fyrra. „Það eru góð- vinasamtök klúbbsins sem gefa einum á ári svona heiðurssummu,“ segir þessi snjalla tónlistarkona til skýringar. Hún er greinilega að gera eitthvað rétt. Ætlar hún ekkert að fara að f lytja heim? „Ég flutti út haustið 2014, er búin að vera hér í fimm ár núna – vá, hvað þetta líður f ljótt. Ég er ekki að f lytja heim í bráð en það er alltaf gaman að koma í heim- sókn.“ gunfrettabladid.is Anna Gréta hefur unnið með mörgum topptónlistarmönnum í Svíþjóð, bæði sem píanóleikari og tónskáld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hefð er fyrir hátíðatónleikum og húllumhæi í Berwaldhallen, stórum tónleikasal hér í Stokk- hólmi, þegar styrkjunum er úthlutað. 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 E 6 -E 7 D 0 2 3 E 6 -E 6 9 4 2 3 E 6 -E 5 5 8 2 3 E 6 -E 4 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 2 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.