Fréttablaðið - 28.09.2019, Síða 90

Fréttablaðið - 28.09.2019, Síða 90
Yf i rl it s s ý n i ng me ð verk u m Mag nú sa r P á l s s o n a r   my n d -listarmanns  verður opnuð klukkan 16 í dag í Hafnarhúsi af Hjálmari Sveinssyni borgarfulltrúa. Verkin eru í öllum sýningarsölum safnsins, teygja sig inn á ganga og út undir bert loft.  Magnús verður níræður á jólunum og á langan og fjölþættan feril í myndlistinni, hann hefur  gert höggmyndir, grafík, bókverk, teikningar, gjörn- inga, hljóðverk og vídeó. Meðal verka á sýningunni eru Í minningu Njálsbrennu, Sekúndurnar þar til Sikorskyþyrlan snertir og Gengið á vatni. Magnús er staddur í Hafnarhús- inu og tyllir sér niður í kaffispjall, ásamt Tuma syni sínum og Sigurði Trausta Traustasyni, sem er sýning- arstjóri ásamt Markúsi Þór Andrés- syni. Fyrsta spurning sem Magnús fær er: Ertu enn að? „Nei, ég er að reyna að halda mig frá öllu brasi, held það sé komið nóg,“ svarar hann en Tumi grípur boltann. „Þetta ertu nú búinn að segja í tuttugu ár, svo hefur alltaf komið meira!“   Magnús rekur  upphaf list- iðju sinnar til leikhússins. „Ég byrj- aði í  leikmyndahönnun. Fór að læra hana í Birmingham í Englandi í ársbyrjun 1949. Var þá búinn að vera þátttakandi í Herranótt í Menntaskólanum tvö ár í röð og þannig smitast ég af þessari bakt- eríu.“ Tumi bætir við að faðir hans hafi verið  fyrstur Íslendinga til að  fara í  það fag sérstaklega. Þar sem Þjóðleikhúsið var að verða til- búið á þessum tíma giska ég á að hann hafi séð fyrir sér atvinnu þar. Magnús dregur það í efa.  „Mér fannst þetta bara skemmtilegt. Ég var afar ópraktískur.“ „Já, hefur það verið þannig semsagt?“ segir Tumi sposkur. Sigurður tekur fram að leikhúskaflanum verði gerð skil í sýningunni með búningahönnun, leikmyndum, teikningum og ýmsu efni. „En ég varð fyrir svolitlum von- brigðum með leikhús, held ég. Fannst ég ekki fá fyllilega það sem ég var að leita að, hélt ég fyndi það frekar í hreinni myndlist og dembdi mér í hana. Á 6. áratugnum fór ég til Vínar og var þar við akademíu í einn vetur,“ upplýsir Magnús.  Hverju skyldi hann svo vera stoltastur af á sínum ferli? „Þetta er erfið spurning. Sko, ég get ekki sagt að ég sé mjög stoltur af neinu.“ Sigurður kveðst hafa unnið með mörgum ungum listamönnum að uppsetningu sýningarinnar og þeim þætti merkilegt hvað Magn- ús væri jafnvígur á alla miðla og hversu  víða hann væri búinn að koma við. „Þeir eru kannski aðal- lega að fókusera á einn þátt mynd- listar en Magnús verður meistari í öllu sem hann tekur sér fyrir hend- ur.“ Snýr sér að Magnúsi  –  „Ef ég má aðeins hæla þér.“ „Það er óþarfi, montið er nóg samt,“ segir lista- maðurinn með glettni í auga. Inntur eftir áhrifavöldum svarar hann: „Ég veit það ekki. Það eru einhverjir sem kunna að spá í það – hverju maður stelur!“ Sigurður bendir á að Magnús hafi sjálfur verið mikill áhrifavaldur, ekki aðeins gegnum eigin verk held- ur líka kennslu, því henni hafi hann sinnt um áratuga skeið í Myndlista- og handíðaskólanum. Auk þess hafi hann komið að stofnun listahópsins Grímunnar og Nýlistasafnsins. „Já og náttúrlega stofnun nýlistadeildar í Myndlista- og handíðaskólanum,“ bætir Kári við. Magnús gengst við því. „Ég bjó hana til og Hildur Hákonardóttir, þá var hún nýorðin skólastjóri.“   Sigurður segir ekki hafa verið einfalt verkefni að velja úr verkum Magnúsar á sýninguna, enda hafi hann verið starfandi myndlistar- maður hátt í sjö áratugi. „Við ákváð- um að fókusera á efnislegu verkin því fyrir nokkrum árum var sýning með gjörningum Magnúsar. Auk þess varðveitir Listasafn Reykja- víkur skjalasafn hans sem geymir merkar heimildir um ferilinn. Það var mikil skemmtun að grúska í því.“  Sýningin skiptist eftir tímabilum og miðlum að sögn Sigurðar. „Í A- salnum eru verk frá síðustu 30 árum og á efri hæðinni eldri verk  sem skiptast í bókverk og gifsverk. Svo  teygir sýningin sig  inn á alla ganga og öll skot og meira að segja upp á þak. Verkið Óður til bílsins verður niðri í f jölnotasalnum, fyrstu þrjár vikurnar, þar eru tveir stórir bílar og nokkur hundruð litlir bílar.“ Hvað segir Hjálmar Sveinsson um það, á hann ekki að opna sýn- inguna? spyr ég og Tumi svarar: „Jú, Hjálmar þekkir nú verkin hans pabba.“ Ég var afar ópraktískur Þótt sýningin sem opnuð er í dag í Lista- safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, nefnist EITTHVAÐ úr ENGU: Myndheimur Magn- úsar Pálssonar fer því fjarri að hún sé úr engu því margt ber þar fyrir augu. „Ég get ekki sagt að ég sé mjög stoltur af neinu,“ segir myndlistarmaðurinn og kennarinn Magnús Pálsson hógvær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Sýningarstjórarnir Markús Þór og Sigurður Trausti við vel skreyttan vegg. Tveir magnaðir píanókvin-tettar verða f luttir á tónleik-um Kammermúsíkklúbbsins í Norðurljósasal Hörpu á morgun, su nnudag inn 29. september, klukkan 16. Annar er krúnu djásn úr smiðju Brahms og er í f-moll op. 34. Hinn er eftir Rússann Sergei Taneyev og þykir tilkomumikill. Var f luttur á tónleikum Kammer- músíkklúbbsins fyrir tólf árum og vakti hrifingu gesta. Flytjendur eru Trio Nordica, ásamt strengjaleikur- unum Helgu Þóru Björgvinsdóttur og Þórunni Ósk Marinósdóttur. Bryndís Halla Gylfadóttir selló- leikari er í Trio Nordica, auk Auðar Hafsteinsdóttur fiðluleikara og hinni sænsku Monu Kontra píanó- leikara sem er í stóru hlutverki á tónleikunum á morgun.  Bryndís Halla segir Tríó Nordica hafa spilað bæði verkin áður. „Það eru ofsalega krefjandi píanókonsertar í báðum verkunum og ég veit að  Taneyev var lengi vel lítið spilaður því hann þótti svo erfiður.“ -gun Krefjandi píanókonsertar hjá Kammermúsíkklúbbnum í Norðurljósasal Hörpu Mona Kontra, Auður Hafsteins- dóttir, Þórunn Ósk Marinós- dóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir. ÉG VEIT AРTANEYEV VAR LENGI VEL LÍTIРSPILAÐUR ÞVÍ HANN ÞÓTTI SVO ERFIÐUR. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 2 8 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 E 6 -A 7 A 0 2 3 E 6 -A 6 6 4 2 3 E 6 -A 5 2 8 2 3 E 6 -A 3 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 2 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.