Fjölmiðlun og menning - 01.08.1999, Blaðsíða 26
24
Fjölmiðlun og menning 1999
var stofnað árið 1884. Safnið var sérstök dei ld í Þj óðminjasafn i
þar til 1961 er það varð sjálfstæð stofnun. Safnið fékk eigið
húsnæði til umráða árið 1988. Þriðja elsta safn landsins telst
vera Náttúrugripasafn íslands, að stofni til síðan 1889.
Safnið sem heyrir undir Náttúrufræðistofnun íslands var
formlega stofnað árið 1947.30
I kaflanum er m.a. greint frá söfnum og görðum eftir
tegund og landshlutum frá 1900, gestafjölda og sýningar- og
starfsmannahaldi á seinustu árum.
XXII. Félög fjölmiðlafólks og listamanna. Hér er m.a.
að fmna upplýsingar um fjölda félagsmanna hinna ýmsu
félagaijölmiðlafólksoglistamannaeftirkyni.aukupplýsinga
um stofnár viðkomandi félaga.
XXIII. Siðanefnd blaðamanna. Hér eru tilgreindir
úrskurðir SiðanefndarBlaðamannafélags íslands 1985-1998
eftir tegund brots og tegund ljölmiðla er hlut áttu að máli.
Kærur sem nefndin hefur vísað frá eru ekki meðtaldar.
XXIV. Menningarsjóðir. í kaflanum er gerð grein fyrir
Ijárframlögum, styrkveitingum, umsóknum og styrkþegum
hinna ýmsu menningarsjóða á undangegnum árum.31
XXV. Fjölþjóðlegursamanburður. Talnaefni kaflanser
dregið víða að, úr útgefnum skýrslum og gagnagrunnum.
Undanfarin ár hefurmikið áunnist við stöðlun og samræmingu
á alþjóðlegri skýrslugerð um ljölmiðla og menningarmál.
Ýmsum erfiðleikum er þó enn bundið að afla áreiðanlegra og
samanburðarhæfra upplýsinga um ljölmiðla og menningar-
starfsemi milli landa. Eru lesendur beðnir um að hafa það
hugfast við allan samanburð á tölum milli landa.
Viðauki:
Grunntölur. I þessum kafla er að finna ýmsar tölulegar
upplýsingar um mannijölda, lands- og þjóðarframleiðslu,
sölugengi nokkurrahelstu gjaldmiðla ogneysluverðsvísitölu.
Ýmislegt talnaefni um ijölmiðla og menningarmál er að
finna í fyrri útgáfum Hagstofunnar sem ekki er tekið upp í
þessari útgáfu. Skal einkum bent á Hagtíðindi 1969-1981
(Skýrslur um menningarmál) og 1985-1996 (efni um
íslenskrar kvikmyndir, kvikmyndahátíðir og sérsýningar),
Tölfrœðihandbók 1967, 1974 og 1984 (ýmislegt efni),
Landshagi 1991 o.áfr. (útgáfu bóka, tímarita og blaða og
dreifikerfi útvarps og sjónvarps) og Hagskinnu. Sögulegar
hagtölur um Island, 1997 (ýmislegt eldra efni um útgefnar
bækur og tímarit og efni þeirra).
Einnig er að finna talsvert efni um íslenska fjölmiðla og
menningarmál sem ekki hefur ratað inn í útgáfuefni
Hagstofunnar í Norrcenu tölfrœðiárbókinni, og tölfræði-
árbókum European Audiovisual Observatory, Statistical
Yearbook, EUROSTAT, Audio-Visual Statistics: Report
1995, MEDIA Salles, European Cinema Yearbook og
UNESCO, Statistical Yearbook, sem og ritum NORDICOM
um norræna fjölmiðla.
Við samantekt þessa rits hefur Hagstofan þegið góð ráð og
notið aðstoðar fjölmargra aðila við útvegun efnis. Aður en
30 Einar Laxness, íslandssaga a-ö. 2. útg. (Reykjavík, 1993) og Þór
Magnússon, tilv. rit.
31 Yfirlit um hlutverk og starfsemi menningarsjóða er að finna í
Menntamálaráðuneytinu, Tölfrœðihandbók um menntun og
menningu (Reykjavík, 1996) og sami, Cultural Affairs in Iceland:
A Short Survey (Reykjavík, 1997).
hafist var handa að fúllu við gagnasöfnunina voru yfir sjötíu
aðilar - stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar, sem teljast
mega gagnkunnugir á sviði fjölmiðlunar og menningar -
inntir eftir því hvaða upplýsingar þeir vildu sjá í riti sem
þessu. Eftir föngum hefur verið reynt að taka tillit til óska og
ábendinga um efni og efnistök eftir því sem tök hafa verið á.
Á hinum ýmsu vinnslustigum þessa verks hafa margir verið
reiðubúnir að veita góð ráð, verða við óskum um frekari
upplýsingar og benda á ýmislegt sem betur mátti fara. Þar
skulu nefhd þau:
Auður Eydal, Kvikmyndaskoðun,
Ágúst Tómasson, Ríkisútvarpinu - Textavarp,
Björg Ellingsen, Menntamálaráðuneyti,
Bjöm Sigurðsson, Félagi kvikmyndahúsaeigenda,
Breki Karlsson, Kvikmyndasjóði Islands
Böðvar Bjarki Pétursson, Kvikmyndasafni Islands,
Catharina Bucht og
Eva Harrie, NORDICOM - Sverige, Gautaborg,
Gunnar Guðmundsson, Samtökum hljómplötu-
framleiðenda - SHF,
Halldór V. Kristjánsson, Ríkisútvarpinu,
Hallfríður Baldursdóttir, Landsbókasafni íslands -
Háskólabókasafni,
Helen Davis, Screen Digest, London,
Hilmar Thor Bjamason, Félagsvísindadeild Háskóla
Islands,
Hrafnhildur Þorgeirsdóttir, Upplýsingamiðstöð
myndlistar - UMM,
Karin Heigoy, NORDICOM - Norge, Björgvin,
Karsten-Peter Gmmmitt og
Katharine Couling, Dodona Research, Leicester,
Kjartan Ólafsson, fyrrv. ritstjóri Þjóðviljans,
Lilja Ámadóttir, Þjóðminjasafni Islands,
Sólveig Ólafsdóttir, Sambandi íslenskra auglýsingastofa
- SÍA,
Stefán Unnarsson, Myndmarki,
Svavar Gestsson, fyrrv. menntamálaráðherra,
Sveinn Einarsson, Menntamálaráðuneyti,
Sæmundur Bjamason, Islenska útvarpsfélaginu,
Tuomo Sauri, Hagstofu Finnlands, Helsinki,
Vilborg Valgarðsdóttir, Bandalagi íslenskra leikfélaga,
Þorbjöm Broddason, Félagsvísindadeild Háskóla
íslands,
Þorfinnur Ómarsson, Kvikmyndasjóði Islands,
Þórarinn Eyfjörð, Bandalagi sjálfstæðra atvinnuleikhúsa
- BAAL
og
Öm Jóhannsson, Morgunblaðinu.
Hagstofa íslands færir öllum þeim einstaklingum,
stofnunum, fyrirtækjum og félagasamtökum sem lagt hafa
verkinu lið bestu þakkir fyrir góða aðstoð.