Skessuhorn - 22.04.2015, Side 9
9MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Þessar vikurnar er fjórtánda Ár-
bók Akurnesinga að verða til og
áætlað að hún komi um miðj-
an júnímánuð glóðvolg úr prent-
smiðju í hendur áskrifenda. Sem
fyrr eru það Kristján Kristjáns-
son og Margrét Þorvaldsdóttir
sem standa að útgáfu bókarinn-
ar og nú er Kristján einnig sest-
ur á ný í ritstjórastólinn. Síð-
ustu fjögur árin sáu aðrir um það
í umboði Kristjáns, fyrst Harald-
ur Bjarnason sem ritstýrði tveim-
ur árbókum og við tvær þær síð-
ustu var svo Sigurður Sverrisson
ritstjóri, en báðir eru þeir gamlir
fréttahaukar af Skaganum. Krist-
ján sagði þegar hann var að afla
myndefnis á ritstjórn Skessuhorns
á dögunum að þegar hann byrjaði
útgáfu árbókarinnar á sínum tíma
hafi hann ekkert vitað hvað hann
var að fara út í. „Það var mik-
il vinna að koma þessu á koppinn
en kom mér skemmtilega á óvart
hvað góður áskrifendahópur varð
fljótt til. Ég sagði í einhverju brí-
aríi þegar ég byrjaði að ég ætlaði
að ritstýra árbókinni í hundrað ár,
þar af yrðu fjörutíu í þessari jarð-
Styttist í fjórtándu
Árbók Akurnesinga
Bætast í hóp
kennara á Bifröst
Tvær konur hafa bæst í hóp kennara
við viðskiptasvið Háskólans á Bif-
röst. Þetta eru þær Dr. Sigrún Lilja
Einarsdóttir og Geirlaug Jóhanns-
dóttir.
Sigrún Lilja lauk doktorsprófi í
félagsfræði frá Háskólanum í Ex-
eter í september 2012. Helstu rann-
sóknarsvið Sigrúnar Lilju eru á sviði
tónlistar og stjórnunar, sem og inn-
an menningarstjórnunar. Sigrún
Lilja er einnig með BA próf í al-
mennri bókmenntafræði frá Há-
skóla Íslands. Hún hefur einnig lok-
ið kennsluréttindanámi frá Háskól-
anum á Akureyri árið 2001 og MA
í menningarstjórnun frá Háskólan-
um á Bifröst árið 2009. Sigrún Lilja
kom til starfa við Háskólann á Bif-
röst árið 2008 og réði sig í akadem-
ískt starf í janúar 2012, en hafði
meðal annars starfað sem stunda-
kennari og sérfræðingur við Rann-
sóknamiðstöð Háskólans á Bifröst
um tveggja ára skeið. Sigrún hef-
ur kennt námskeið á sviði menn-
ingarfélagsfræði á meistarastigi og
sinnt aðferðafræðikennslu í grunn-
og meistaranámi ásamt því að leið-
beina og aðstoða nemendur við skrif
meistararitgerða. Sigrún Lilja hefur
undanfarin ár verið lektor á félags-
vísindasviði skólans og verður þar
áfram samhliða lektorsstöðu á við-
skiptasviði.
Geirlaug útskrifaðist með BS í
rekstrarfræðum frá Samvinnuhá-
skólanum á Bifröst árið 1999 og
MBA gráðu með áherslu á mann-
auðsstjórnun frá Háskólanum í
Reykjavík árið 2006. Geirlaug kenn-
ir mannauðsstjórnun og vinnusál-
fræði í grunnnámi ásamt aðkomu að
fleiri námskeiðum, m.a. í viðskipta-
fræði með áherslu á ferðaþjónustu
og við símenntun Háskólans á Bif-
röst. Geirlaug hefur undanfarin ár
starfað við Háskólann á Bifröst og
lengst af gegnt stöðu forstöðumanns
símenntunar. Síðustu misseri starf-
aði hún sem verkefnastjóri tilrauna-
verkefnis um hækkað menntunarstig
í Norðvesturkjördæmi og um tíma
sem sviðsstjóri þjónustu og starfs-
mannamála við skólann. Á árunum
1999-2005 starfaði Geirlaug sem
fræðslustjóri Alcan á Íslandi. Geir-
laug hefur reynslu af sveitarstjórnar-
störfum og hefur setið í sveitarstjórn
Borgarbyggðar frá 2010 ásamt setu í
ýmsum stjórnum og nefndum. Sam-
hliða stöðu aðjúnkts starfar Geir-
laug sem ráðgjafi hjá Hagvangi við
ráðningar og mannauðsráðgjöf.
-fréttatilkynning
vist en síðan myndi ég ganga aft-
ur til að fylla öldina. Sannleikur-
inn er samt sá að ég hafði ákveðn-
ar efasemdir um að ég myndi fylla
þennan fyrsta áratug með árbók-
inni. Þetta varð svo byrjunin á
minni bókaútgáfu en það er önn-
ur saga,“ segir Kristján.
Hann segir að í væntanlegri ár-
bók verði aðalviðtalið við séra
Eðvarð Ingólfsson, enda kominn
tími til að bóka það viðtal. Rifjuð
sé upp saga kútters Sigurfara sem
nú er um 130 ára gamall og stend-
ur á tímamótum. Þá verður kafli í
árbókinni úr væntanlegri bók eft-
ir Önnu Láru Steindal, sem hún er
að skrifa um hælisleitanda frá Lý-
bíu og tengist Akranesi. Í árbók-
inni eru einnig eins og vanalega
frétta- og íþróttaannáll, sem og að
genginna Akurnesinga er minnst.
Árbók Akurnesinga verður eins
og jafnan á þriðja hundrað blað-
síður. „Við höfum alltaf lagt miklu
árherslu á myndefni og gerum
það líka að þessu sinni. Við öflun
myndefnis sem og ýmissa upplýs-
inga við skrifin höfum við notið
góð af samstarfi við Skessuhorn.
Án þess væri í raun ógerlegt að
gefa árbókina út,“ segir Kristján
Kristjánsson.
þá
Kristján að afla myndefnis fyrir Árbókina í myndasafni Skessuhorns.
Opinn kynningarfundur um umhverfismál og framleiðslu á Grundartanga
Á fundinum verða kynntar niðurstöður umhverfisvöktunar fyrir iðnaðar-
svæðið á Grundartanga árið 2014. Fulltrúar Kratus, GMR, Norðuráls
og Elkem flytja erindi um starfsemi og mengunarvarnir fyrirtækjanna.
Höfundar sérfræðiskýrslna verða einnig til svara á fundinum.
Fundurinn verður haldinn hjá Norðuráli
fimmtudaginn 30. apríl 2015 klukkan 14:30
og er opinn öllu áhugafólki um umhverfið
í nágrenni Grundartanga.
UMHVERFI OG IÐNAÐUR