Skessuhorn - 22.04.2015, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Í síðustu viku kom flutningaskipið
Wilson Brake, sem skráð er í Va-
letta á Möltu í Miðjarðarhafi, með
áburð til Akraness. Eins og á síðustu
árum er öllum áburði sem notaður
er á Vesturlandi skipað upp á Skag-
anum. Alls voru það 2.900 tonn
sem Wilson Brake kom með til
Akraness. Skipið kom frá Eistlandi.
Uppskipun á áburði færist í vöxt á
Akranesi. Þannig er Wilson Brake
fjórða skipið sem kemur þangað
með áburð það sem af er árinu. Alls
er búið að skipa upp 5.100 tonn-
um af áburði á Akranesi það sem
af er árinu og skapa þessi umsvif
nokkra vinnu við höfnina. Akranes
mun vera orðin næst stærsta upp-
skipunarhöfn fyrir áburð á Íslandi,
næst á eftir Þorlákshöfn. Það voru
Áburðarverksmiðjan og Sláturfélag
Suðurlands sem fluttu inn áburðinn
að þessu sinni. Eitthvað af girðing-
arefni kom sömuleiðis með Wil-
son Brake í þessari verið. Bændur á
Vesturlandi ættu því að hafa í nægu
að snúast á næstunni við bera á tún
sín og girða þau af. mþh
Þorskstofninn við Ísland hefur
aldrei mælst sterkari frá því Haf-
rannsóknastofnun hóf stofnmæl-
ingar sínar með hinu svokallaða
togararalli árið 1985. Mikið er af
stórum þorski, margir árgangar
mælast sterkir og nýjasti árgang-
ur 2014 mælist sterkur. Útbreiðsla
þorsksins er mikil og meðalþyngd
fimm ára og eldri þorsks er yfir
meðaltali áranna 1985 - 2015.
Ýsustofninn gefur einnig fyrir-
heit um að vera í mikilli sókn. Ýsan
er vel haldin og ákveðnar vísbend-
ingar um að 2014 árgangurinn sé
sterkur. Mikið virðist af fullorðnum
gullkarfa. Í heildina er ekki annað
að sjá en að ástand helstu botnfisk-
stofna hafi lagast mikið og hljóti nú
að teljast allgott.
Allt er þetta meðal niðurstaðna
úr stofnmælingum Hafrannsókna-
stofnunar í vetur sem skoða má á
heimasíðu Hafrannsóknastofnunar.
Ráðgjöf vísindamanna um leyfileg-
an heildarafla í einstökum tegund-
um mun liggja fyrir í byrjun júní-
mánaðar. mþh
Eigendur útgerðarfyrirtækis-
ins Runólfs Hallfreðssonar ehf. á
Akranesi hafa ráðist í að endurnýja
Bjarna Ólafsson AK 70. Það gera
þeir með því að selja gamla skip-
ið til Rússlands og kaupa í stað-
inn nýlegra skip, norska uppsjáv-
arveiðiskipið Fiskeskjer frá út-
gerðarfyrirtækinu Strand-Rederi
í Álasundi. Fiskeskjer er nú á kol-
munnaveiðum sunnan við Færeyj-
ar og hluti áhafnar Bjarna Ólafs-
sonar er þar um borð. Áætlað er að
nýr Bjarni Ólafsson AK verði kom-
inn til heimahafnar á Akranesi fyr-
ir sjómannadag. „Skipið er eins
og nýtt og fullkomið veiðiskip og
kemur frá einni bestu útgerðinni í
Noregi. Það er með 7500 hestafla
vél og er mjög gott sjóskip,“ segir
Runólfur Runólfsson annar skip-
stjóra á Bjarna Ólafssyni í samtali
við Skessuhorn.
Fiskeskjer var smíðaður í Noregi
1999 eins og Bjarni Ólafsson, sem
er 21 ári eldra skip, en var keypt-
ur 20 ára gamall til Akraness árið
1998. Gamli Bjarni Ólafsson er
því kominn hátt á fertugsaldurinn.
Nýja skipið er tæpum sex metrum
styttra en það eldra eða 67,40 metra
að lengd en um einum og hálfum
metra breiðara, 13 metra breitt. Í
áhöfn nýja skipsins verða aðeins
færri í hverri veiðiferð, einum eða
tveimur færri, en engar manna-
breytingar verða þó í mannahaldi
að sögn forsvarsmanna útgerðar
skipsins, Runólfs Hallfreðssonar
ehf. Bræðurnir Gísli og Runólfur
Runólfsson eru skipstjórar en móð-
ir þeirra Ragnheiður Gísladóttir
er framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Útgerð Bjarna Ólafssonar og skip-
ið hefur reynst traust um tíðina og
flestir skipverjarnir verið um borð í
15-35 ár. Fjölskylda Runólfs Hall-
freðssonar á 62% í fyrirtækinu og
Síldarvinnslan á Neskaupstað 38%.
þá
Gjald á strandveiðar smábáta sem
rennur til hafna nam 176,4 millj-
ónum króna frá því það var fyrst
sett á árið 2010 til og með síðasta
árs 2014. Þar af runnu 30 millj-
ónir króna til hafna á Vesturlandi.
Mest fékk Ólafsvíkurhöfn, eða alls
rétt tæpar sjö milljónir króna. Með
gjaldinu var hverri útgerð gert að
greiða 50 þúsund krónur sem renna
skyldu til hafna landsins í hlutfalli
við landaðan afla af strandveiðum
á hverri vertíð. Upphæð gjaldanna
kemur fram í svari sjávarútvegsráð-
herra við fyrirspurn þingmannsins
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Skoða
má fyrirspurnina í heild á vef Al-
þingis.
mþh
Smábátasjómenn eru víða komnir í
veiðihug fyrir sumarið. Það á ekki
síst við um strandveiðisjómennina
sem veiða með handfærum. Í síð-
ustu viku sendu stjórnvöld frá sér
reglugerð um strandveiðar þessa árs
sem mega hefjast mánudaginn 4.
maí. Eins og fyrr skiptast veiðarn-
ar á fjögur svæði. Fyrir Vesturlandi
er svæðið tvískipt sem fyrr, annars
vegar í strandlengjuna frá Horna-
firði vestur um til Borgarbyggð-
ar (svæði D) og síðan frá Eyja- og
Miklaholtshreppi til Súðavíkur-
hrepps (svæði A). Í strandveiðar
ársins er alls úthlutað 8.600 tonn-
um af óslægðum botnfiski.
Skipting á strandveiðisvæðin sem
Vesturland fellur undir skiptast
þannig að í maí má á svæði A veiða
715 tonn, í júní 858 tonn, í júlí 858
tonn og í ágúst 429 tonn. Á svæði
D má í maí veiða 600 tonn, í júní
525 tonn, í júlí 225 tonn og í ágúst
150 tonn.
Gert klárt fyrir sumarið
í Rifi
Ingvi Hrafn Aðalsteinsson er einn
þeirra sem stunda strandveiðar frá
Vesturlandi í sumar. Hann var að
undirbúa strandveiðibát sinn Smyr-
il SH 703 í Rifi á föstudaginn. Ingvi
er fæddur og uppalinn á Hellissandi
og býr þar. „Ég hef stundað strand-
veiðarnar á sumrin. Ég keypti mér
þennan bát og var með hann fyrsta
árið í fyrra. Það gekk ágætlega að
fiska síðasta sumar. Þetta er ágætur
bátur. Það voru þónokkrir strand-
veiðibátar sem réru héðan frá
Rifi síðasta sumar. Nú eru vænt-
ingar um að aflabrögð geti orðið
góð á vertíðinni sem er framund-
an,“ sagði hann. Ingvi Hrafn starf-
ar annars sem beitningamaður yfir
vetrartímann. „Ég vinn hjá Nesveri
hér í Rifi sem gerir út Tryggva Eð-
varðs SH. Það er fínt að vera þar.“
mþh
Þjótur, dráttarbátur Faxaflóahafna, fylgir Wilson Brake úr Akraneshöfn og út á
Faxaflóa eftir að flutningaskipið hafði skilað af sér tæplega þrjú þúsund tonnum
af áburði á Skaganum. Fjær sést í áburðarstæðuna.
Akranes er næststærsta
áburðarhöfn Íslands
Aron Karl Bergþórsson á strandveiðum. Ljósm. af.
Strandveiðar hafa skilað 30 milljónum
króna til hafna á Vesturlandi
Höfn: Strandveiðigjald 2010 - 2014
Akranes 3.149.187
Arnarstapi 3.293.840
Rif 5.191.741
Ólafsvík 6.924.658
Grundarfjörður 6.796.403
Stykkishólmur 3.870.254
Reykhólar 11.537
Brjánslækur 507.676
Davíð Óli Axelsson, sjómaður í Snæfellsbæ, réri í fyrrasumar á Krístínu Hálfdánar
ÍS. Myndin var tekin við lok strandveiðitímabilsins á A svæði í júlí 2014. Ljósm. af.
Strandveiðarnar mega hefjast 4. maí
Ingvi Hrafn Aðalsteinsson við bát sinn
Smyril SH í Rifi.
Norska uppsjávarveiðiskipið Fiskeskjer verður nýr Bjarni Ólafsson AK.
Nýr Bjarni Ólafsson AK
keyptur til landsins
Þorskurinn er í sókn og jákvæð tíðindi berast einnig af öðrum bolfiskstofnum
við landið. Hér hampar Eiður Ólafsson skipstjóri á Akranesi vænum þorski úr
Faxaflóa.
Aldrei meiri þorskur
frá upphafi netaralls