Skessuhorn - 22.04.2015, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
„Ég er búinn að heyra af nýju veiði-
leyfagjaldi sjávarútvegsráðherra og
mér sýnist að í farvatninu sé einhver
50% hækkun á útgerð eins og okkar.
Ég hef verið að heyra í mönnum sem
hafa verið að reikna þetta og þeir tala
um þessa tölu. Það verður að koma
í ljós hvaða áhrif þetta hefur. Mað-
ur hefur haldið sjó í kreppunni og
ætli það stefni ekki þrengingar aftur
núna. Kannski vilja menn bara fá það
ástand eins og var í gamla daga þegar
önnur hver útgerð var að fara á haus-
inn,“ segir Jóhann Rúnar Kristins-
son. Hann gerir úr línutrilluna Sæ-
rif frá Rifi.
Telur gjöldin ganga
nærri rekstrinum
Nýtt frumvarp Sigurðar Inga Jó-
hannssonar sjávarútvegsráðherra
liggur nú í meðferð Alþingis. Jóhann
er ekki sáttur við það né auðlinda-
gjöld yfir höfuð. „Þessi gjöld eru
bara tilræði við sjávarútveginn. Ég
skil ekki af hverju það þarf að leggja
sértækan skatt á þessa atvinnugrein.
Aðrir sem nýta náttúruauðlindir hér
á landi þurfa ekki að borga svona
skatta. Nú er staðan sú að einhverjir
þingmenn geta eyðilagt greinina þó
þeir viti ekki einu sinni hvað sjávar-
útvegur er. Ég neita því svo sem ekk-
ert að það er búið að ganga ágætlega
síðustu árin en það hefur gerst með
mikilli vinnu, útsjónarsemi og stöð-
ugu aðhaldi. Við höfum ekkert þorað
að gera. Ekki farið í neinar fjárfest-
ingar í kvótum eða öðru fyrr en þá
kannski núna. Maður hefur ekki þor-
að að taka þá áhættu. Núna erum við
að reyna þetta en væntanleg hækkun
á veiðigjöldum dregur úr manni. Svo
er nýjasta útfærslan á sjálfri gjaldtök-
unni út úr öllu korti,“ segir Jóhann.
Gagnrýnir staðgreiðslu
veiðigjalda
Með því síðastnefnda á Jóhann við að
nú standi til að láta menn staðgreiða
auðlindagjaldið þegar komið er með
fiskaflann að landi. „Eftir nýju lög-
unum skilst mér að það eigi að rukka
menn um auðlindagjöld á bryggj-
unni. Sá sem veiðir á að borga. Þetta
þýðir að þeir sem leigja til sín kvóta
þurfa að borga auðlindagjöld af afl-
anum þó þeir eigi ekkert í kvótanum.
Sá sem á kvótann sleppur við veiði-
gjöldin. Hingað til hafa kvótaeigend-
urnir greitt veiðigjöldin, ekki sá sem
leigir til sín kvótann. Hvar er rétt-
lætið í því að leiguliðar borgi veiði-
gjaldið? Hér er enn og aftur verið að
hlaða púðum undir þá sem leigja frá
sér kvóta. Byrðunum er aflétt af þeim
en meiri klyfjum hlaðið á okkur sem
þurfum að leigja til okkar aflaheim-
ildir. Verð á leigukvótum mun samt
örugglega ekki lækka með þessu. Við
sem leigjum til okkar sitjum bara eft-
ir með enn minna en áður.“
Vonast helst eftir
auknum ýsukvóta
Talið berst að stöðu aflaheimilda í
ljósi þess að mjög jákvæðar fréttir
hafa borist af stofnstærðarmæling-
um Hafrannsóknastofnunar. „Sjálf-
sagt verður eitthvað bætti við þorsk-
kvótann í haust. Ég vona þó helst að
það verði aukning á ýsukvótanum. Í
haust var staðan þannig að balabát-
arnir á línu urðu að forðast ýsuna.
Þeir gátu ekki verið á slóðum þar
sem stærri þorskurinn var vegna þess
að ýsan var þar líka og enginn átti
kvóta og ómögulegt að finna hann.
Þá fóru þeir í smáþorsk bara til að fá
eitthvað að gera án þess að draga ýsur
með. Það var ávísun á að við vor-
um með veiðieftirlitið á hælunum.
Þeir voru að passa upp á að við vær-
um ekki með of mikið af undirmáls-
fiski. Ýsan hefur hins vegar ekki ver-
ið vandamál núna seinni hluta vetr-
ar. Ástandið batnaði líka mikið þeg-
ar opnað var á að litlu krókabátarn-
ir gætu skipt frá sér ufsakvóta upp til
stóru skipanna og fengið ýsukvóta frá
þeim í staðinn. Þetta var gert í vet-
ur, var alveg bylting fyrir okkur og
bjargaði vetrinum. Það hefur alltaf
brunnið inni ufsakvóti í öll ár í smá-
bátakerfinu en ýsukvótinn þar er allt-
of lítill. Það hentar miklu betur að
veiða ufsann á togurunum enda hef-
ur þá frekar vantað ufsakvóta heldur
en hitt.“ mþh
Horfir áhyggjufullur fram á
mikla hækkun veiðigjalda
Línutrillan Særif SH kemur hér fullhlaðin af fiski að bryggju á Arnarstapa í
fyrravetur.
Jóhann Rúnar Kristinsson í atvinnuhúsnæði útgerðar sinnar í Rifi þar sem við
hittum hann í vikunni sem leið.
Framkvæmdir ganga vel við nýtt
gistiheimili kaþólsku kirkjunn-
ar á Íslandi sem stofnsett verður í
Stykkishólmi í sumar. Það mun fá
heitið „Fransiskus. Ráðstefnu- og
gistiheimili kaþólsku kirkjunnar á
Íslandi.“ Þegar verkinu verður að
fullu lokið í lok ársins 2015 verða
alls 25 herbergi og rúm fyrir 50
manns. Auk þess verður veitinga-
aðstaða og tveir fundasalir. Þess
verður sérlega gætt að öll aðstaða
fyrir fatlaða verði sem best, bæði
í aðgengi að gistiheimilinu og að
flestum herbergjum. Tvö eldhús
verða á Fransiskus-gistiheimilinu.
Eitt þeirra verður fyrir matreiðslu-
fólkið sem mun starfa þar og ann-
að sem gestir geta notað vilji þeir
matbúa sjálfir.
Nafn með skírskotun
í sögu
Herra Pétur Bürcher, kaþólski
biskupinn á Íslandi, heimsótti
Stykkishólm síðastliðinn föstudag.
Erindið var að skoða þær endur-
bætur sem staðið hafa yfir á húsa-
kosti kaþólsku kirkjunnar þar.
Eins og Skessuhorn greindi frá
fyrr í vetur þá er búið að endur-
nýja íbúðir presta og nú er verið að
breyta húsnæði gamla barnaheim-
ilisins í gistiheimili. Systur Verbo
Incarnato-reglunnar munu flytja
úr sínum vistarverum í lítið hús
sem þær hafa fest kaup á í næsta
nágrenni. Húsnæðið þar sem þær
búa í dag verður síðan nýtt sem
gistiheimili. Blaðamaður Skessu-
horns hitti herra Pétur Bürcher
að máli í Stykkishólmi. „Það er
vel við hæfi að þessu nýja gisti-
heimili verði gefið nafnið Fransis-
kus. Með því skapast góð tenging
milli sögunnar og nútímans. Það
var regla St. Franciskusystra sem
reisti hér sjúkrahús, klaustur, leik-
skóla og kapellu. Í dag ber páfinn
nafnið Frans á íslensku eða Franc-
iscus á latínu. Með nafninu skapast
góð tenging milli sögunnar og nú-
tímans,“ segir biskup.
Gistihús opið öllum
Bürcher biskup útskýrir að kaþ-
ólska kirkjan á Íslandi hafi feng-
ið hluta húsnæðisins frá reglu
St. Franciskussystra. Síðan hafi
sú bygging sem áður hýsti leik-
skóla verið keypt af íslenska rík-
inu. Hið opinbera á Íslandi hafði
áður yfirtekið þann húsakost frá
systrunum. Þegar þetta allt lá fyrir
var ráðist í að endurbyggja húsið.
„Gamlar innréttingar og þess hátt-
ar var fjarlægt og byggingin verður
nú endurnýjuð. Hugmyndin er sú
að skapa gistiheimili hér í Stykk-
ishólmi fyrir ferðafólk hvaðan-
æva úr heiminum þar sem einnig
verður aðstaða fyrir ráðstefnur og
fundi og þráðlaus nettenging í öllu
húsinu. Húsið verður öllum opið.
Sú regla fellur vel að grunngildum
kaþólsku kirkjunnar. Fólk þarf alls
ekki að vera kaþólskrar trúar til að
gista hér. Það eina sem við förum
fram á er að fólk virði andann í
húsinu,“ segir Pétur Bürcher bisk-
up og brosir við.
Rekstur hefst í júní
Aðgengi verður frá gistiheimilinu
í kapelluna sem hefur um árabil
tilheyrt St. Francisku-reglunni.
„Hér verður að minnsta kosti einn
kaþólskur prestur auk systranna
sem búa áfram í Stykkishólmi.
Það verður messað daglega í kap-
ellunni. Hún mun að sjálfsögðu
standa öllum opin eins og alltaf.“
Biskup segir að gistiheimilið
verði rekið af kaþólsku kirkjunni
á Íslandi. „Samvinnan bæði við
sveitarstjórnaryfirvöld hér í Stykk-
ishólmi, verktaka og aðra hefur
verið afar góð. Allt hefur geng-
ið samkvæmt áætlun. Gistiheimil-
ið verður sennilega tilbúið að taka
á móti gestum í byrjun júnímán-
aðar,“ segir herra Pétur Bürcher
biskup kaþólsku kirkjunnar á Ís-
landi.
mþh
Nýtt gistiheimili í Stykkishólmi
fær nafnið Fransiskus
Á fundi skipulags- og umhverfis-
nefndar Grundarfjarðar 9. apríl
síðastliðinn var tekin fyrir um-
sókn um lóðir við Grundargötu
33 og Hamrahlíð 6. Þessar lóð-
ir eru í miðjum bænum og eru
gegnt Samkaup Úrval versluninni
og Sögumiðstöðinni, sem er bóka-
safn og upplýsingamiðstöð bæjar-
ins. Það er Mikligarður ehf. sem
sækir um lóðirnar í þeim tilgangi
að byggja húsnæði fyrir lágvöru-
verðsverslun. Mikligarður ehf. er
fyrirtæki í eigu Ragnars Ragnars-
sonar byggingafræðings í Stykk-
ishólmi. Skipulags- og umhverf-
isnefnd Grundarfjarðar samþykkti
að taka lóðirnar frá í þrjá mánuði
en óskaði jafnframt eftir viðræðum
um byggingaráform Miklagarðs á
svæðinu, áður en ákvörðun verður
tekin um úthlutun. Á lóðinni við
Hamrahlíð 6 er eingöngu gras-
flöt en á lóðinni við Grundargötu
33 stendur nýlegt víkingaþorp og
þá hefur pylsuvagn verið þar yfir
sumartímann. tfk
Mikligarður sækir um lóð fyrir
lágvöruverslun í Grundarfirði
Horft yfir svæðið sem Mikligarður sækir um að fá að byggja lágvöruverðsverslun á.
Það er trésmiðjan Þ.B. Borg í Stykkishólmi sem er aðalverktaki við endurbætur
á húsakostinum í Stykkishólmi. Hér fara þeir Þorbergur Bæringsson húsasmíða-
meistari og herra Pétur Bürcher biskup yfir stöðu framkvæmda.
Herra Pétur Bürcher biskup kaþólsku
kirkjunnar á Íslandi.