Skessuhorn - 22.04.2015, Qupperneq 23
23MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Skorradalshreppur óskar íbúum Skorradals
og Vestlendingum öllum gleðilegs sumars
Eyja- og Miklaholtshreppur óskar
sveitungum sínumog öðrum
Vestlendingum gleðilegs sumars.
Sveitarstjórn Dalabyggðar óskar Dalamönnum
og Vestlendingum öllum gleðilegs sumars
Hvalfjarðarsveit óskar íbúum Hvalfjarðarsveitar
og Vestlendingum gleðilegs sumars.
Verkefnastjóri óskast til að
annast undirbúning og umsjón
með Írskum dögum
Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða verkefnastjóra til að
annast undirbúning og umsjón með framkvæmd Írskra daga
á Akranesi. Um er að ræða tímabundið starf frá 20. maí til 10. júlí.
Starfið felur í sér viðburðastjórnun, þ.m.t. skipulag og samskipti
við fyrirtæki og einstaklinga. Gerðar eru kröfur um reynslu af
viðburðastjórnun, skipulagshæfileika og samskiptahæfni.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar á þar
til gerðu eyðublaði. Umsóknarfrestur er til og með 6. maí.
Nánari upplýsingar veitir Sædís Alexía Sigurmundsdóttir á
bæjarskrifstofum Akraneskaupstaðar í síma 433-1000 eða
á netfangið sædis.sigurmundsdottir@akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Hvanneyringurinn Kristín Jóns-
dóttir ætlar að halda barnavöru-
markað í Hjálmaklett laugardaginn
2. maí. milli klukkan 12 og 16. „Ég
veit ekkert hvað ég er að fara útí,“
segir Kristín og hlær. „Þetta verð-
ur minni útgáfa af Stóra barna-
vörumarkaðinum sem hefur verið
haldinn í Salaskóla ársfjórðungs-
lega undanfarin ár. Það er ánægju-
legt hvað það eru margir söluaðilar
tilbúnir að koma í Borgarnesið og
vera með. Mér datt í hug að halda
þennan markað því þetta er gert
í Reykjavík en við sem búum úti
á landi komumst ekki alltaf þegar
eitthvað er planað í bænum. Ég er
ánægð með skráninguna, nú þegar
eru ellefu aðilar sem eru með vef-
verslanir og smærri framleiðslu að
koma. En ef það er fólk í Borg-
arfirði eða á Vesturlandi að gera
barnavörur og vill vera með, þá er
alveg nóg pláss í Hjálmakletti og
hægt að bæta fleirum við.“
Meðal aðila sem verða á mark-
aðnum er vefverslunin Hönd
í hönd sem verður meðal ann-
ars með Bumgenius taubleyjur og
burðarpoka og JóGu búð kem-
ur með mikið úrval af taubleyj-
um. „Einnig verður hún Álfheiður
Sverrisdóttir, sem var að byrja að
sauma Hnoðra taubleyjurnar, með
á markaðinum. Halldóra Kristjáns-
dóttir Larsen frá Hvanneyri hef-
ur verið að sauma ungbarnahreið-
ur og er búin að bæta við buxum
sem henta vel fyrir taubleyjubossa.
Það er mikil aukning í að foreldr-
ar velji að vera með börnin sín á
taubleyjum og endurspeglast það
í auknum fjölda söluaðila og fram-
leiðenda. Ég verð líka með notað-
ar taubleyjur til sölu og get boðið
upp á fræðslu um notkun og um-
hirðu taubleyja ef einhver vill for-
vitnast. Eins eru söluaðilar hafsjór
fróðleiks og hægt að leita til þeirra
allra til að fá upplýsingar.“
Það verða þó ekki einungis tau-
bleyjur til sölu á Barnavörumark-
aðinum í Hjálmakletti. Verslunin
Hans og Gréta frá Akranesi verð-
ur á staðnum og öryggisvörur frá
Bílstólar.is. Vefverslunin „I am
happy“ sem flytur inn barnaföt og
barnaleikföng verður með sölubás
og Bergdal verður með slefsmekki,
svo einhverjir séu nefndir. „Hægt
er að sjá lista yfir alla söluaðilana á
Facebook síðu viðburðarins. Gam-
an væri ef Barnavörumarkaðurinn
í Borgarnesi getur orðið að árleg-
um viðburði en auðvitað snýst allt
um það að fólk mæti og nýti sér
að þessir söluaðilar safnist saman
á Vesturlandi. Þannig að ég hvet
alla áhugasama um að mæta,“ segir
Kristín glaðlega að endingu.
eha
Heldur barnavörumarkað í
Hjálmakletti í Borgarnesi
Kristín Jónsdóttir skipuleggjandi
Barnavörumarkaðarins í Hjálmakletti.
Ljósm. eha.
Taubleyjur njóta vaxandi vinsælda og eru sérstaklega
vinsælar í barnamyndatökum. Hér er Ástrós Helga Guðjóns-
dóttir með Tots Bots bleyju.
Ljósm. Jóhanna Ösp Guðmundsdóttir.
Sonur Kristínar, Þorsteinn Sölvi Guðjónsson, er með litríka
JóGu taubleyju með „splatter“ mynstri.
Ljósm. Arna Rúnarsdóttir.
Söngfélagið Sálubót úr Suður-Þingeyjarsýslu
verður með tónleika í Reykholtskirkju
föstudaginn 24. apríl nk. kl 20:30
Á efnisskránni eru lög úr ýmsum áttum
Söngstjóri: Jaan Alavere
Einsöngvari: Jónas Reynir Helgason
Aðgangseyrir kr. 2.000.- (ekki posi)
Allir velkomnir
Tónleikar í Reykholti
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5