Skessuhorn - 22.04.2015, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Ég, undirritaður, skrifaði grein í 15.
tölublað Skessuhorns 2015 um mína
upplifun af vinnubrögðum Granda-
manna á Akranesi frá því að þeir yf-
irtóku HB. Síðan þá hefur fjöldi fólks
haft samband við mig og lýst sömu
skoðun og þakkað mér fyrir að skrifa
um þessi mál.
Í næsta blaði Skessuhorns segist
Guðmundur Sigurbjörnsson (sem
hér eftir verður nefndur GS) vera
að svara grein minni. Ég var ekk-
ert að óska eftir svari frá honum, þó
hann telji sig einhvern málsvara íbúa
á Neðri Skaga. Miðað við allan þann
fjölda íbúa á Neðri Skaga sem hafa
talað við mig og lýst öndverðri skoð-
un getur hann varla talist það.
Fyrirhuguð nýbygging Granda fyr-
ir hausaþurrkunina getur varla talist í
miðri íbúðabyggð þar sem yfir 300
metrar eru í næsta íbúðarhús. Mér og
ansi mörgum öðrum finnst að útgerð
og fiskvinnsla eigi best heima sem
næst höfn en ekki uppi í sveit.
Og miðað við trú GS á að ekki sé
hægt koma í veg fyrir lyktarmengun
frá hausaþurrkuninni þá átta ég mig
ekki á af hverju henni er betur kom-
ið nálægt Efri Skaganum en á núver-
andi stað? Ég get líka alveg ímynd-
að mér að hann láti ekki staðar num-
ið í baráttunni gegn hausaþurrkun
Granda. Hann hefur barist gegn því
að skip séu máluð í slippnum þann-
ig að maður spyr sig hvað kemur svo
næst? Starfsemi Norðanfisks, Vignis,
Akraborgar, lífræn áburðardreifing
bænda eða hvað?
Svo eru nokkrar sögulegar stað-
reyndir.
• Laugafiskur kem-
ur á Akranes 1987
eða 1988 og verður
hluti af Haferninum
sem HB kaupir líklega árið 1999.
• HB verður síðar hluti af út-
gerðarsamsteypu Eimskips og svo
Brims.
• Grandi kaupir síðan HB hlutan
út úr Eimskipum án Laugafisks.
• Grandi kaupir svo Laugafisk
árið 2013.
• Benedikt Jónmundsson situr í
bæjarstjórn Akranes frá 1986-1994
og jafnvel ég kaus hann til góðra
verka, en ég skil ekki martrað-
ir hans yfir að hafa verið í bæjar-
stjórn Akraness.
• GS byggir hús við Bakkatún 4 í
kringum 2000.
Nú ætla ég láta mínum skrifum
lokið um þetta málefni því ég vil
ekki taka þátt í áframhaldandi of-
stækisrausi. Ég vil þó að lokum
biðja menn að blanda mér ekki
í deilur vinnuveitanda míns við
Orkuveitu Reykjavíkur en ég skil
vel að hann vilji ekki skítinn frá
hverjum sem er, nefni engin nöfn.
Valgeir Valgeirsson, sem er ennþá
fylgjandi atvinnuuppbyggingu á
Akranesi.
PS: Bæjarfulltrúar á Akranesi sem
geta ekki stutt atvinnuuppbygg-
ingu í bæjarfélaginu ættu að segja
af sér strax svo dugmeira fólk geti
tekið við.
Enn af atvinnuuppbyggingu
Ég er þessi bráðláta týpa
Fyrir nokkrum árum bjó ég í litlu
þorpi úti á landi. Kaupstaðurinn
var skammt undan og blómleg-
ir sveitabæir í augsýn til allra átta.
Sjarmerandi byggð þar sem litróf
mannlífsins spannaði allt frá venju-
legu fólki til Lunddælinga. Ég starf-
aði í litlum sveitaskóla, fjársjóðskistu
þekkingar og reynslu, þar sem verð-
mætasti fjársjóðurinn var lífsglöð
börn sem fengu að njóta sín og rækta
hæfileika sína í sínu umhverfi.
Yfir kaffibolla einhvern morgun-
inn fékk ég þá grillu í höfuðið að ég
þyrfti að upplifa fleiri ævintýri í líf-
inu. Prófa eitthvað nýtt. Fara út fyrir
þægindaramman eins og var svo mik-
ið inn á þeim tíma. Það skipti engum
togum að fáeinum vikum síðar var
ég á leið til Noregs með fjölskylduna
mína og einn fólksbíl af farangri.
Nú bý ég í lítilli byggð úti á landi
í Noregi. Kaupstaðurinn er skammt
undan og blómlegir sveitabæir í aug-
sýn til allra átta. Sjarmerandi byggð
þar sem litróf mannlífsins spann-
ar allt frá venjulegu fólki til Skarsey-
inga. Ég starfa í litlum sveitaskóla
með 14 nemendum.
Ekki er allt í minni norsku sveit
eins og í þeirri íslensku. Til dæmis
jókst fjöldi bráðlátra í mínu sveitar-
félagi úr núll í einn við komu mína.
Bráðlátir Norðmenn eru vandfundn-
ir. Jafnvel ekki til. Góður nágranni
ýjaði einhvern tímann að því með
norskum semingi að það væri kannski
engin tilviljun. Fyrir allmörgum ár-
hundruðum fundust víst bráðlátir
Norðmenn líka. Í bráðlæti sínu ruku
þeir flestir í víking að vanhugsuðu
máli og þeir sem komust lífs af end-
uðu margir hverjir á eyju norðvest-
ur í hafi. Þeir sem ekki sigldu gerðu
gjarnan eitthvað af sér í bráðlæti sínu
og voru sendir í útlegð á sömu eyju.
Ég kann því ákaflega vel að kynn-
ast nýju landi með nýjum venjum. Ég
kann því líka ákaflega vel að rekast af
og til á eitthvað sem minnir á heima-
byggð. Ekki öllu jafn vel samt.
Ég var ekki búin að starfa lengi
í mínum 14 barna skóla þegar ný
stjórn tók við sveitafélaginu. Vin-
gjarnleg grúppa sem hafði skömmu
áður farið brosandi um vinnustaði
og kynnt sig með óvenju syngjandi
röddum. Á upphafsdögum stjórn-
artíðar þeirra lögðust yfir vesalings
fólkið þrúgandi áhyggjuhrukkur fjár-
mála sveitafélagana. Á þeim hrukk-
um vinna engin krem. Eina ráðið við
þeim er að loka skólum.
Nú kunna einhverjir að spyrja sig
hvort Norðmenn séu ekki meðal rík-
ustu þjóða heims? Það er vissulega
rétt en skólarnir eru reknir af sveitar-
félögum og lítil sveitarfélög á Norð-
ur-Mæri mala víst ekki gull.
Ég kann því ákaflega vel þegar ég
upplifi það af og til hér í órafjarlægð
að heiman hvað heimurinn er í raun
lítill. Ekki alltaf jafn vel samt.
Í upphafi sparnaðarferlisins; „Út-
tekt á skólastrúktúr“ rakst ég á þá
merkilegu staðreynd að sveitastjórn-
armenn hér í sveit höfðu sennilega
setið sama námskeið og íslenskir
kollegar þeirra undir yfirskriftinni;
Verkferlar í „úttektum á skólastrúkt-
úr“. Yfirvofandi breytingar voru því
kynntar almenningi seint og á tíma-
punkti þar sem flestir voru upptekn-
ir af öðrum samfélagsmálum. Í upp-
hafi var tveimur skólum, og þar með
tveimur byggðarhlutum, att sam-
an og látið að því liggja að ekki væri
búið að ákveða hvorum skólanum
bæri að loka. Þetta gerði það að verk-
um að umræðurnar snerust meira um
hvor þessara skóla væri betri, minni,
eldri og faglegri. Minna um hvern-
ig í ósköpunum þeim hrukkóttu datt
í hug þessi vitleysa að fara að leggja
niður skóla. Síðast en ekki síst var
boðað til íbúafundar með hógværum
hætti og stuttum fyrirvara.
Nágrannakona mín ein og stjórn-
málakona kannaðist vel við nám-
skeiðið en mundi ekki í svipinn eftir
Íslendingum þar. Bráðláta ég, reynsl-
unni ríkari, fékk fyrirvaraverki um
leið og fyrsta fjármálahrukkan blasti
við. Ég fór að huga mér til hreyf-
ings. Það ku víst vera mjög huggu-
legt að búa í Lúxemburg. Heldur
hlýrra loftslag og frábærir skólar víst.
Já, það er nefnilega þannig, á skjön
við það sem kennt er á áðurnefndum
sveitastjórnarnámskeiðum, að fólk
flytur gjarnan búferlum eftir lands-
lagi skólamála. Ungt fólk (já og mið-
aldra). Grunnstoðir samfélagsins.
Fundurinn var haldinn áður en ég
náði að hlaða búslóðinni í fólksbílinn
svo ég sat hann bara svona af forvitni.
Prúðbúnir Norðmenn flykktust inn í
vinalegt félagsheimilið. Þarna voru
foreldrar núverandi nemendanna
fjórtán. Þarna voru foreldrar barna
sem áður höfðu stundað skólann.
Þarna voru ungir foreldrar unga-
barna og leikskólabarna sem höfðu
ætlað sér að nýta skólann fyrir sín
börn seinna meir. Þarna voru ömmur
og afar barna sem þau vildu gjarnan
hafa áfram í sinni heimabyggð. Þarna
voru líka íbúar þéttbýlisins í sveitar-
félaginu, notendur nágrannaskól-
ans sem ekki var lengur undir hnífn-
um og íbúar nágrannasveitarfélag-
anna. Sveitarstjórnarmenn sátu fyrir
svörum í smekkfullu félagsheimili og
vöffluilmurinn lá í loftinu.
Vinalegur eldri maður kvað sér
fyrstur hljóðs. „Hvað í „all verden“
eruð þið nú að hugsa?
Ætlið þið „virkelig“
að slíta hjartað úr
samfélaginu okkar?“
Í kjölfarið kom svo spurningaflóð.
„Haldið þið að það sé hægt að henda
bara í ruslið heilum skóla, með allri
reynslunni og sögunni sem í honum
býr? Hafið þið skoðað hversu vandað
starf er unnið hér? Hafið þið velt því
fyrir ykkur hvers vegna fagfólk sæk-
ist eftir því að vinna hér? Eruð þið
búin að gleyma því hvað gerðist síð-
ast þegar lagður var niður skóli hér?
Hvaða neikvæðu áhrif það hafði á
byggðina okkar?“ Einn úr þéttbýlinu
tók undir þetta. „Já, og ef þið hald-
ið að þessi neikvæðu áhrif einskorð-
ist við hverfið kringum skólann eruð
þið eitthvað að misskilja. Sveitarfélag
þar sem deilur um svona viðkvæmt
mál hafa átt sér stað verður allt fyrir
áhrifum. Neikvæður andi svífur yfir
vötnum lengi á eftir og fælir fólk frá.
Já og hvar er sparnaðurinn sem átti
verða við síðustu skólalokun? Hef-
ur einhver séð hann eða varð hann
kannski enginn?“ Spurningarnar
dundu áfram. „Hvers vegna er verið
að skera niður hér þegar fjölskyldu-
fólk velur að setjast hér að, meðal
annars af því hér er góður skóli? Er
ætlunin að börnin okkar eigi frá 6 ára
aldri að sitja í rútu langar leiðir undir
takmörkuðu eftirliti í alls konar veðr-
um?“ Alls konar veðrum, hugsaði ég
og kímdi, en hélt því bara fyrir mig
þar sem nágrönnum mínum líkar
ekki þegar ég hæðist að því sem þeir
kalla vont veður.
Fundurinn dróst fram eftir kvöldi,
vöfflujárnin kólnuðu en svörin létu
á sér standa. Síðasta innlegg kvölds-
ins var í lauslegri þýðingu eitthvað á
þessa leið: „Snáfiði nú heim og finnið
sparnað í einhverju sem kemur ekki
niður á börnunum okkar.“
Næstu daga færðust hlutirnir
smám saman í fyrra horf. Fátt spurð-
ist til þeirra hrukkóttu og umræðan á
kaffistofunni fór aftur að snúast um
fjallgöngur næstu helgar. Bráðláta
ég fór fljótlega að inna fólk eftir nið-
urstöðu í málinu. Hvernig var þetta
með skólamálin? Ullarpeysuklæddur
samkennari minn varð fyrir svörum
og sagði með norskum semingi: „Du
Astridur,“ eins og ég kann nú annars
ágætlega við íslenska mátan að gera
hlutina, þá er lokun skóla ekki eitt-
hvað sem maður veður í að vanhugs-
uðu máli með skammtímahagsmuni
að leiðarljósi.“
Yfirvegaða ég dólaði mér heim og
týndi búslóðina aftur inn úr bílnum.
Alveg í rólegheitunum.
Ástríður Einarsdóttir
Pennagrein
Pennagrein
Í síðustu viku hækkaði hitastig-
ið um margar gráður frá því sem
við eigum að venjast. Starfsmenn
Olís í Borgarnesi drifu þá kúst-
ana út á þvottaplan. Sama gerðu
reyndar starfsmenn bensínstöðva
í öðrum byggðarlögum á Vestur-
landi. Þetta er hins vegar fyrsta
vorið í mörg herrans ár sem Borg-
nesingar geta nýtt sér þvottaplan
í heimabyggð. Er það vel enda
veitir ekki af vorhreingerningu á
bílaflotanum.
eha
Vorið er komið og þvottaplönin
hafa verið opnuð