Skessuhorn - 08.07.2015, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 20156
Stækkun
steypustöðvar
samþykkt
GRUNDARFJ: Friðrik
Tryggvason hefur fyrir hönd
Almennu Umhverfisþjónust-
unnar ehf, sótt um til Grund-
arfjarðarbæjar að endurbyggja
og stækka steypustöð fyrirtæk-
isins í Grundarfirði. Almenna
Umhverfisþjónustan á nú í
málaferlum við Snæfellsbæ.
Krafist er 80 milljóna króna
skaðabóta þar sem brotið hafi
verið á samkeppnisstöðu fyrir-
tækisins með því að meina því
aðgang að malarnámu á svo-
kallaðri Breið rétt vestan við
Ólafsvíkurenni. Á sama tíma
fengu samkeppnisaðilar fyr-
irtækisins sem staðsettir eru
í Snæfellsbæ að nýta námuna
samkvæmt samningi. Haustið
2013 úrskurðaði Samkeppn-
iseftirlitið að um mismunun
væri að ræða. Segja bæri upp
samningum um nýtingu nám-
unnar sem gerðir voru um
mitt ár 2007 og gefa fleirum
kost á að nýta hana. Skipulags-
og umhverfisnefnd Grund-
arfjarðar samþykkti stækkun
steypustöðvarinnar á fundi
sínum 1. júlí sl. með fyrirvara
um að deiliskipulagsbreyting
fyrir lóð steypustöðvarinnar
verði auglýst.
-mþh
Vilja banna
dróna við lax-
veiðiár
LANDIÐ: Á aðalfundi Lands-
sambands veiðifélaga, sem
haldinn var á Breiðdalsvík í
júní, var samþykkt að vekja at-
hygli veiðifélaga á að svokall-
aðir drónar eru nú að verða al-
gengir á Íslandi. Engar regl-
ur hafa verið settir um notk-
un þessara flýgilda. „Fundur-
inn beinir því til veiðifélaga að
settar verði reglur sem banna
notkun dróna við veiðár á
veiðitíma til að tryggja frið við
árnar.“
–mm
Það er ljóst að fegurð Botns-
dals og fossins Glyms sem þar
er nýtur mikilla vinsælda ferða-
manna, bæði innlendra og er-
lendra. Meðfylgjandi ljósmynd
tók blaðamaður Skessuhorns síð-
degis á sunnudaginn. Þá voru um
60 fólksbílar á og við bílastæð-
ið sem kennt er við Glym. Sjálft
bílastæðið var yfirfullt og bílum
því einnig lagt góðan spöl með-
fram veginum í átt frá bílastæð-
inu. Augljóst er að þessi perla í
Hvalfirði laðar til sín þúsundir
ef ekki tugþúsundir ferðamanna
árlega enda náttúrufegurð mikil
og gönguleiðir frábærar. Flestir
þessara ferðamanna koma sjálf-
sagt af höfuðborgarsvæðinu enda
ekki langur vegur að fara það-
an og inn í Hvalfjörð. Þrátt fyr-
ir þessar miklu vinsældir svæðis-
ins þá er vegurinn að bílastæðinu
í hörmulegu ásigkomulagi. Eng-
in aðstaða er fyrir ferðamenn á
bílastæði Glyms nema nokkur
upplýsingaskilti. Fátt er þann-
ig gert til að laða ferðmenn sem
þarna koma til að líta nánar á
það sem Vesturland hefur upp á
að bjóða.
mþh
Spölur lét setja upp vegslár á ytri ak-
reinum sem ætlaðar eru áskrifend-
um veggjalda við gjaldskýli Hval-
fjarðarganga fyrr í sumar. Að sögn
Marinós Tryggvasonar öryggis-
fulltrúa Spalar er slánum fyrst og
fremst ætlað að draga úr ökuhraða
um gjaldhliðin. „Það hefur sýnt sig
að það er full þörf á þessu. Þetta var
fyrst og fremst hugsað til að ná nið-
ur hraðanum og það hefur gengið
eftir.“ Blikkandi ljós eru á slánum,
þannig að þær eru vel sýnilegar áður
en að þeim er komið. Engu að síður
hafa þær verið keyrðar niður nokkr-
um sinnum á þeim mánuði sem þær
hafa verið í notkun.
„Það hefur verið keyrt á þær fjór-
um sinnum, tvisvar hvorum meg-
in. Slárnar virka hjá öllum sem eru
með veglykil nema þegar rauða ljós-
ið kemur upp. Þá getur fólk komið
í lúguna og hægt er að opna hliðið
handvirkt.“ Marinó segir að einnig
hafi slárnar stöðvað för ökumanna
sem ekki hafa greitt veggjaldið eða
verið á rangri akrein. Vegslár af
þessu tagi eru við gjaldhlið í vega-
kerfinu víða um heim og eru því er-
lendum vegfarendum vel kunnug-
ar. Marinó segir að algengt hafi ver-
ið að vegfarendur hafi ekið í gegn-
um hliðið án þess að greiða fyrir,
með tilheyrandi kostnaði og óþæg-
indum fyrir Spöl. Þetta hafi ekki síst
fylgt fjölgun erlendra ferðamanna á
þjóðvegum landsins. „Flestir ferða-
mennirnir eru vanir því að sams-
konar slár séu í gjaldhliðum í vega-
kerfinu. Þeir þekkja því ekkert ann-
að en hlið og keyrðu bara í gegn í
góðri trú án þess að borga.“
Á vefsíðu Spalar er sagt frá því að
rétt sé að halda góðu bili milli bíla
sem fara um gjaldhliðið, til að slárn-
ar lyftist og falli eins og til er ætlast
án þess að ökumenn eigi á hættu að
aka á þær. Þar er einnig sagt frá því
að það liggi fyrir að á mestu álags-
tímum ársins í umferð um Hval-
fjarðargöng verði starfsmenn Spal-
ar utandyra, líkt og verið hefur, að
innheimta veggjaldið til að flýta fyr-
ir umferð. Á þessum tímum verði
slárnar við gjaldskýlið ekki í notk-
un. Þetta á við um helgar í júní, júlí,
fyrrihluta ágústmánaðar auk hvíta-
sunnu- og páskahelganna. grþ
Um 60 bílar voru á og við bílastæðið
við Glym síðdegis á sunnudag.
Botnsdalur og Glymur
njóta vinsælda ferðamanna
Spölur segir fulla þörf á
vegslám við Hvalfjarðargöng
Vegslár eru nú á ytri akreinum við gjaldskýli Hvalfjarðarganga.