Skessuhorn - 08.07.2015, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 201512
Stykkishólmsbær hefur frá sumr-
inu 2010 látið slá lúpínu í landi sínu
og var fyrsta sveitarfélag landsins
til að hefja aðgerðir gegn ágeng-
um plöntum. Verkefnið er unn-
ið í samvinnu við og með ráðgjöf
Náttúrustofu Vesturlands. Und-
anfari verkefnisins var að haustið
2007 fékk Stykkishólmsbær Nátt-
úrustofu Vesturlands til að gera út-
tekt á ágengum plöntutegundum í
landi sveitarfélagsins. Í ljós kom að
alaskalúpína var allútbreidd á svæð-
inu en skógarkerfill og spánarkerf-
ill mynduðu hér og þar litlar breið-
ur. „Frumkvæðið að þessu verkefni
kemur upprunalega frá íbúunum
sjálfum, sem báðu um að eitthvað
yrði gert í því að eiga við lúpínuna
sem meðal annars var farin að kaf-
færa berjalyng. Bjarnarkló fannst
einnig á þremur stöðum upphaf-
lega en síðar á fleirum. Nú eru
fundarstaðirnir orðnir fimmtán og
hefur plöntunni næstum því verið
útrýmt í sveitarfélaginu. Við sett-
um í framhaldinu fram tillögur um
hvernig mætti eyða þessum ágengu
plöntum úr sveitarfélaginu,“ seg-
ir Róbert A. Stefánsson líffræðing-
ur og forstöðumaður Náttúrustofu
Vesturlands.
Árangurinn góður
Fljótlega eftir að skýrsla Nátt-
úrustofu Vesturlands kom út var
ákveðið að ráðast í aðgerðir gegn
útbreiðslu lúpínunnar í Stykkis-
hólmi. Lítil reynsla var af slíkum
aðgerðum en nú hefur komið í ljós
að árangur aðgerðanna er mikill og
graslendi smám saman að taka við af
lúpínubreiðum. „Lúpínan er ágeng
planta og breytir gróðursamfélög-
um mjög mikið. Hún getur verið
heppileg til að nota á stórum gróð-
urlausum svæðum og hefur þann
góða eiginleika að mynda jarðveg
og gróðurlag, þannig að hún lokar
jarðveginum. En gallinn við hana
er að hún stoppar ekki þar og held-
ur áfram yfir annað gróðurlendi,“
segir Róbert. Hann segir að í raun
sé engin ástæða til að nota lúpínu
til uppgræðslu þar sem annar gróð-
ur er í kring. „Það er hætta á að fá
það í bakið. Það getur virst ódýr
lausn að sá henni en svo verður það
dýrt ef berjast þarf á móti henni aft-
ur. Þegar upp er staðið getur verið
hagkvæmara að nota aðrar aðferðir
við að græða landið. Sumir bændur
hafa til að mynda notað afgangs hey
og dreift yfir mela með góðum ár-
angri.“ Róbert er þeirrar skoðunar
að átak þurfi að gera í landgræðslu
hér á landi en telur lúpínuna ekki
réttu leiðina til þess. „Það er líka
áhyggjuefni að skógarkerfillinn
kemur á eftir henni. Hann tekur
yfir lúpínubreiður og gerir svo bara
ógagn. Hann sækir í næringarríkan
jarðveg þannig að lúpínujarðvegur
hentar honum mjög vel. Þetta sést
til dæmis í Esjuhlíðum. Fólk þarf að
hugsa þetta í samhengi.“
Slegið einu sinni á ári
Lúpínan er slegin einu sinni á
ári, á seinni hluta blómgunartím-
ans - áður en lífvænleg fræ ná að
myndast. Búið er að slá fimm sinn-
um og er sjötti sláttur nýlega haf-
inn. Að sögn Róberts er nauðsyn-
legt að halda aðgerðunum áfram
vegna mikils fræforða í jarðvegin-
um. „Annars er hætt við því að hún
nái sér á strik á nýjan leik. Slátt-
urinn á þessum viðkvæma tíma
drepur stóran hluta af fullorðn-
um plöntum en alls ekki allar. Fræ-
in geta lifað lengi, þannig að þetta
er langtíma verkefni,“ útskýrir Ró-
bert. Hann segir árangur aðgerð-
anna vera mjög góðan. „Við sjáum
mjög mikinn mun. Lúpínan er far-
in að veikjast mikið, þéttleikinn
hefur minnkað og graslendi mynd-
ast í staðinn. Við erum einnig með
tilraunareiti þar sem framvindan er
mæld á magnbundinn og vísinda-
legan hátt í samvinnu við Land-
búnaðarháskólann og Landgræðsl-
una. Gróðurþekjan, þéttleiki, ný-
liðun og hvað er af öðrum gróðri
í þessum reitum er mælt mjög ná-
kvæmlega. Það verður fróðlegt að
sjá hvað kemur út úr því en mun-
urinn er vel sjáanlegur með berum
augum.“ Hann segir að þó að um-
fang lúpínunnar hafi minnkað mik-
ið sé baráttan ekki búin. „Það þarf
að fara á alla þessa staði, ár eftir ár.
Við vitum í sjálfu sér ekki hversu
lengi. Það gengur smám saman á
fræforðann og lúpínan minnkar.
Við sjáum í það minnsta mikinn
mun núna eftir fimm ár.“ grþ
Það hefur færst mikið í vöxt að fólk gangi á topp Hafnarfjalls, en hæð þess er frá 600 til 844 metrar yfir sjó, eftir því hvert
gengið er. Gönguleið á fjallið er sögð prýðileg og útsýnið af toppnum engu líkt. Hjónin Erla Björk Ólafsdóttir og Guðsteinn
Einarsson úr Borgarnesi eru miklir göngugarpar. Þau voru að ganga á fjallið kvöld eitt í liðinni viku þegar þau mættu
mönnum á niðurleið. Einn þeirra var á reiðhjóli sem verður að segjast að sé fremur fátíður ferðamáti á fjöll. mm
Umsjónarmenn í Ólafsdal við Gils-
fjörð í sumar verða hjónin Elfa
Stefánsdóttir tómstundafræðingur
og Haraldur Baldursson tæknifræð-
ingur. Á gamla skólastaðnum verð-
ur opið alla daga frá 1. júlí klukkan
12 til 17 fram til 16. ágúst. Sýning-
ar eru þar um sögu Ólafsdalsskól-
ans, konurnar í Ólafsdal og fleira
en auk þess er skólahúsið sjálft frá
1896 fallegt og skoðunarvert. Í
sumar verður þar boðið upp á kaffi,
rjómavöfflur og ís frá rjómabúinu á
Erpsstöðum í Miðdölum. Einnig
geta gestir fræðst um lífræna rækun
grænmetis í Ólafsdal og keypt það á
staðnum. Fræðslustígur er í Ólafs-
dal og góðar gönguleiðir í falleg-
um umhverfi. Staðurinn er því ein
af þessum perlum á Íslandi sem allir
þurfa að heimsækja. Ólafsdalshátíð
verður að þessu sinni haldin laug-
ardaginn 8. ágúst. „Verður dag-
skráin fjölbreytt og fjölskylduvæn
að vanda; tónlistaratriði, skemmt-
un fyrir börnin, áhugaverð er-
indi, vandaður handverksmarkað-
ur og veitingar. Þá verður lífrænt
vottað Ólafsdalsgrænmeti til sölu
og glæsilegt Ólafsdalshappdrætti,“
segir í tilkynningu frá Ólafsdals-
félaginu.
Eins og lesendur þekkja er Ólafs-
dalur merkur sögu- og minjastað-
ur við sunnanverðan Gilsfjörð, um
6 km frá veginum yfir Gilsfjarðar-
brúna. Þar var fyrsti búnaðarskóli
Íslands stofnaður af frumkvöðlin-
um Torfa Bjarnasyni árið 1880, fyr-
ir 135 árum. Auk þess er nú 100 ára
ártíð Torfa en hann lést 1915.
mm/ Ljósm. rg.
Mæðgurnar Margrét Lára Rögnvaldsdóttir og Helga Björg Stefánsdóttir í
grænmetisgarðinum í Ólafsdal. Þar er hægt að fá keypt lífrænt ræktað grænmeti.
Opið verður í
Ólafsdal til 16. ágúst
Hér er hress hópur lífeindafræðinga á ferð í Ólafsdal.
Horft út Ólafdal í átt til Gilsfjarðar.
Aðgerðir gegn lúpínu í
Stykkishólmi bera árangur
Hér sést að vel hefur tekist til í baráttunni við lúpínu í Stykkishólmi. Myndin fyrir
ofan er tekin á Ytri - Höfða í júní 2010 en sú neðri fimm árum síðar. Ljósm. Nátt-
úrustofa Vesturlands.
Hjólaði á topp Hafnarfjalls