Skessuhorn


Skessuhorn - 08.07.2015, Qupperneq 19

Skessuhorn - 08.07.2015, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2015 19 Ólafsvíkurvaka í blíðskaparveðri Fjölskylduhátíðin Ólafsvíkurvaka var haldinn um helgina í blíðskaparveðri og er óhætt að segja að hátíðin hafi farið fram úr björtustu vonum. Gestir voru mjög margir og fjöldi skemmtiatriða í boði. Þar má til dæmis nefna dorgveiðikeppni Sjósnæ, hoppukastalar voru í boði, ljósmyndasýning var opnuð og mjög vel sóttir tónleikar sönghópsins Sætabrauðs- drengjanna í Ólafsvíkurkirkju krydduðu til- veruna á föstudagskvöldinu. Dagskrá föstu- dags lauk svo með bryggjuballi. Laugardagurinn var einnig þétt skipaður skemmtiefni fyrir alla aldurshópa. Fyrst fór fram Snæfellsjökulshlaupið og síðan voru fjölmörg skemmtiatriði á Þorgrímspalli. Heldri borgarar sýndu kántrídans, Huldubörn tóku nokkur lög af nýrri geislaplötu sinni auk þess sem hljómsveit- in Astron flutti nokkur lög. Söngvaborg Siggu Maríu og gesta var með skemmtiatriði og margt fleira var á boðstólnum. Götugrill voru haldin áður en gengið var úr hverfunum í Sjómannagarðinn þar sem um 600 manns voru saman komnir til þess að skemmta sér og öðrum. Hvert hverfi kom með sitt skemmti- atriði og Ingó veðurguð stjórnaði brekkusöng. Hátíðinni lauk svo með stórdansleik Ingós og Veðurguðanna í Klifi. af Rúmlega 600 manns skemmtu sér konunglega í Sjómannagarðinum. Fólk á öllum aldri skemmti sér á Ólafsvíkurvöku. Þessi börn voru forvitinn að skoða fiskanna. Einbeittur veiðimaður. Sætabrauðsdrengir í Ólafsvíkurkirkju. Topplúgan kom sér vel í hitanum.Ingó veðurguð hélt uppi fjörinu á brekkusöngnum. Götuskreytingarnar voru glæsilegar. Hér má sjá eina slíka sem vakti athygli gesta og gangandi. Gestir voru kátir á hátíðinni. Grillað í blíðunni. Loftboltarnir voru vinsælir meðal barnanna.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.