Skessuhorn - 08.07.2015, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 201524
„Ég hóf störf sem bæjarstjóri hér í
Stykkishólmi þann 16. júní í fyrra.
Áður hafði ég gegnt þessu starfi frá
1974 til 1991 en hætti á sínum tíma
þegar ég tók sæti á Alþingi. Það var
gaman að koma til starfa í þessu
húsi sem í dag er ráðhús Stykkis-
hólms. Eitt af mínum síðustu verk-
um sem bæjarstjóri fyrir 24 árum
hafði verið að ganga frá kaup-
um bæjarins á því. Þetta var áður
hús kaupfélagsins. Ég mætti þann-
ig ýmsu sem ég kannaðist við frá
fyrri árum. Undanfarnir tólf mán-
uðir hafa síðan verið mjög áhuga-
verður tími,“ segir Sturla Böðvars-
son. Við hittum Sturlu á dögunum
í skrifstofu hans í ráðhúsinu til að
spjalla við hann um fyrsta ár kjör-
tímabilsins sem bæjarfulltrúi og
bæjarstjóri.
Sneri til baka
í stjórnmálin
Það vakti athygli í aðdraganda síð-
ustu sveitarstjórnarkosninga í fyrra-
vor þegar Sturla Böðvarsson fyrr-
verandi þingmaður, forseti Alþing-
is og ráðherra Sjálfstæðisflokksins
gaf kost á sér í fjórða sæti á H-lista
framfarasinnaðra Hólmara. Hann
var jafnframt kynntur sem bæjar-
stjórnarefni listans. H-listinn fékk
meirihluta eða 56,65% atkvæða og
fjóra menn kjörna. Sturla varð þar
með bæjarfulltrúi og jafnframt ráð-
inn bæjarstjóri. Fyrrum meirihluti
vinstrimanna fór frá. Sturla hafði
þar með átt endurkomu í stjórn-
málin eftir stutt hlé þar sem flest-
ir höfðu gert ráð fyrir að hann væri
hættur afskiptum af stjornmálum.
Hann vissi þó að við tækju áskor-
anir. Hið nýja starf var vissulega
ákveðinn sigur en það yrði enginn
dans á rósum. „Hér í Stykkishólmi
blöstu við feiknalega erfið við-
fangsefni. Fjárhagur sveitarfélags-
ins var kominn í miklar þrenging-
ar,“ rifjar Sturla upp. Hann segir
að skuldirnar hafi alveg verið við
forboðin mörk samkvæmt lögum.
„Reksturinn hafði svo verið þann-
ig að hin svokallaða jafnvægisregla
í lögum um fjármál sveitarfélaga
hafði verið brotin. Hún gengur út
á að það þurfi að vera hagnaður
samanlagt í rekstri á hverju þriggja
ára tímabili. Þannig má hafa halla
eitt árið eða tvö en þá verður líka
að vera mikill afgangur þriðja árið
sem vegur þennan taprekstur upp.
Þessi regla á að stuðla að jafnvægi
og festu í rekstri sveitarfélaganna.
Henni hafði ekki verið fullnægt hér
í Stykkishólmi og Eftirlitsnefnd
með fjármálum sveitarfélaga gerði
kröfur um úrbætur sem ekki var
vikist undan,“ segir Sturla.
Átök að rétta
reksturinn af
Það varð að fara í miklar til-
tektir. „Við gripum strax til að-
gerða svo stöðva mætti viðvar-
andi halla á rekstri Stykkishólms-
bæjar sem hafði leitt til lausafjár-
skorts. Í embætti bæjarstjóra er það
ekki skemmtilegt viðfangsefni fyr-
ir mann sem hefur áhuga á fram-
kvæmdum og uppbyggingu. Fresta
varð áformum um útgjöld, stokka
upp og breyta mjög mörgu hjá
stofnunum með kröfu um sparn-
að. Allt var þetta óumflýjanlegt.
Vífill Karlsson og Ólafur Sveins-
son frá Atvinnuráðgjöf Vesturlands
veittu okkur dýrmætt liðsinni. Þeir
gerðu úttkekt á fjárhagsstöðu bæj-
arins og báru hana saman við álíka
sveitarfélög. Út úr þeim saman-
burði kom það til dæmis fram að
kostnaður á hvern nemanda í skól-
unum og íþróttastarfsemi er hærri
hér en víðast annars staðar. Ofan
á þetta bættist svo að tekjurn-
ar höfðu lækkað. Við fórum mjög
fast ofan í þessa þætti. Síðan feng-
um við ráðgjafafyrirtækið R3 til að
skoða betur rekstur stofnana bæj-
arins í þeim tilgangi að gera breyt-
ingar til sparnaðar og er unnið að
uppstokkun í samræmi við tillögur.
Þetta vandasama verk var unnið í
fyrra haust og í vetur í góðu sam-
starfi við forstöðumenn stofnana
og við erum enn að.“
Sturla segir að fjárhagsáætlun
bæjarins fyrir árið 2013 hafi verið
stokkuð upp og áætlun fyrir þetta
ár sem var hluti af þriggja ára áætl-
un fyrri meirihluta var endurskoð-
uð og henni breytt. Nú horfir bet-
ur í efnahag Stykkishólms. „Í ár
mun fjárhagsáætlun gera ráð fyr-
ir að þessum jöfnuði í rekstri verði
náð. Tekjur hafa aukist, eignir seld-
ar og okkur hefur tekist að lækka
rekstrarkostnað. Það skapast því
tekjuafgangur til að byrja að síga
inn í undirbúning að framkvæmd-
um. Við erum komin af stað aftur
í uppbyggingu og erum að leitast
við að skapa andrúmsloft bjartsýni
og framtaks.“
Framkvæmdir að
hefjast á ný
Sturla segir að þrátt fyrir niðurskurð
og mikið aðhald hafi ekki verið hjá
því komist að fara í framkvæmdir
við höfnina þegar nýr Baldur kom í
vetur. Þegar ár er liðið af kjörtíma-
bilinu er þetta eina stóra fjárfest-
ingin sem hinn nýi meirihluti hef-
ur lokið við fyrir utan lagfæring-
ar í tónlistarskólanum, vinnu við
deiliskipulag og hönnun fráveitu-
kerfis sem er kostnaðarsamt. „Við
þurftum að lagfæra ferjubryggjuna
og endurnýja ökubrúna um borð
í skipið. Það var töluverð aðgerð
sem er unnin í samstarfi við ríkis-
valdið. Bærinn þurfti að fjármagna
það í bili.“ Nú eru þó fleiri fram-
kvæmdir í undirbúningi. „Í sumar
eru það gatnagerðarframkvæmdir,
svo sem endurbætur á slitlagi Að-
algötu. Svo þegar umferðin fer að
minnka síðsumars ætlum við svo að
laga gatnamótin við Bónus, áfeng-
isverslunina, sýsluskrifstofuna og
Skipavíkurverslunina. Það verður
gert í samstarfi við Vegagerðina.“
Sturla kemur í framhaldi af
þessu inná verkefni sem olli nokkr-
um deilum í bæjarfélaginu snemma
í vor og er sjálfsagt umdeilt enn.
„Þetta er mjög skemmtilegt við-
fangsefni. Bæjarstjórnin ákvað strax
í fyrrasumar að selja eignir til þess
að fjármagna endurbætur á grunn-
skólanum með viðbyggingu. Hann
þarf fleiri kennslurými. Tónlistar-
skólinn er í því húsnæði sem áður
var grunnskóli og íþróttahús. Það
er óþarflega stór bygging, of dýr
í rekstri og viðhaldi. Við hyggj-
umst færa tónlistarskólann und-
ir sama þak og grunnskólann. Síð-
an var ákveðið að færa bókasöfn-
in saman. Bæjarfélag sem telur
1.100 manns hefur ekki efni á því
að reka tvö bókasöfn eins og er í
dag. Skólabókasafnið er mjög viða-
mikið hjá okkur sem betur fer og
síðan Amtsbókasafnið sem hefur
að geyma ljósmyndasafn,“ útskýr-
ir bæjarstjórinn.
Menningarstofnun með
merka sögu
Sturla bendir á að Amtsbókasafnið
verði 170 ára eftir tvö ár og telur
það merkilegt safn með mikla sögu.
„Eftir að Vesturamtið var stofnað á
sínum tíma þá lagði Bjarni Thor-
steinsson amtmaður til að Stykk-
ishólmur yrði stjórnsýslumiðja
svæðisins þó að hér byggju fáir sem
þjónuðu sveitunum og þeim sem
bjuggu í eyjunum. Til þess yrði
að koma á fót stofnunum í Stykk-
ishólmi í þeim tilgangi að þétt-
býli myndaðist. Ein þeirra stofn-
ana væri bókasafn. Hann sann-
færði Kaupmannahafnarvaldið um
að hér ætti að verða Amtsbókasafn.
Hér urðu svokölluð prentskil sem
fólust í því að hingað streymdu all-
ar bækur sem gefnar voru út á Ís-
landi þannig að safnið stækkaði
hratt. Hér í Hólminum var líka
ákveðið að hafa lækni, apótekara og
sýslumann. Hingað kom kaupskip-
ið og því var byggð höfn. Þetta er
hluti af fortíð sem við Snæfelling-
ar eigum og erum stolt af. Við vilj-
um því gera Amtsbókasafninu hátt
undir höfði en nýta okkur kosti
þess að það verði við hlið grunn-
skólans í framtíðinni auk þess sem
safnastarfsemi er að breytast með
hinni öflugu upplýsingatækni. Því
færum við bókasafn grunnskólans
inn í Amtsbókasafnið og munum
nýta safnaaðstöðuna fyrir skólann
jafnframt því að sinna hlutverki al-
menningabókasafnsins í samræmi
við lög,“ útskýrir hann.
Þarna segir Sturla að komin sé
veigamikil ástæða fyrir hinum um-
deildu ákvörðunum vetrarins þó
aðrir þættir spili líka inn sem of
langt mál yrði að rekja í viðtali sem
þessu. „Af þessum sökum auglýst-
um við tvö hús hér í gamla mið-
bæjarhlutanum til sölu í vetur og
varð umdeilt. Þetta er annars veg-
ar gamla grunnskólahúsið sem er
tónlistarhúsið í dag og stendur á
mögnuðum útsýnisstað. Við feng-
um reyndar bara eitt tilboð í það
síðarnefnda sem nú er til skoðun-
ar. En það var beinlínis rifist um
að fá að kaupa Amtsbókasafnshús-
ið. Safnið er í gömlu kaupfélags-
skemmunni sem kölluð var en þar
var fyrrum byggingavöruversl-
un og skemma kaupfélagsins. Við
seldum þetta hús. Fyrst fengum við
tilboð á bilinu 17 til 33 milljónir en
það endaði í því að húsið var selt
fyrir fimm tugi milljóna. Þessa fjár-
muni notum við svo til að byggja
nýtt Amtsbókasafn og skólabóka-
safn eins og fyrr er getið um.“
Margt að gerast
í skipulagsmálum
Sturla telur mikilvægt að Amts-
bókasafnið fái húsnæði við sitt
hæfi. „Safnið á í dag heilmikið
af góðum og dýrmætum bókum.
Þar er líka ljósmyndasafn. Jóhann
Rafnsson sem var kjörinn heiðurs-
borgari safnaði ljósmyndum ára-
tugum saman og gaf bænum safn-
ið. Árni Helgason sem einnig var
heiðursborgari Stykkishólms tók
fréttamyndir um áratugaskeið og
skildi eftir sig mikla myndaflóru
sem er hluti af safninu. Þetta mikla
myndasafn er ljósmyndasafnið,
sumt skráð og annað ekki en er
ekki aðgengilegt í dag. Við stefnum
að því að bæta úr þessu öllu þann-
ig að við fáum gott safn sem hægt
verði að njóta og nýta. Það er unn-
ið að hönnun safnahúss og stefnt
að því að ljúka þeirri byggingu
árið 2017. Gamla Amtsbókasafns-
húsið verður rifið og reist tvö hús
á þeirri lóð sem mun verða mikil
lyftistöng þegar þær framkvæmd-
ir hefjast. Það á hins vegar eftir að
teikna húsin og umhverfi þeirra
og skipuleggja það. En skipulag er
mannanna verk, það er mjög mik-
ilvægt að vanda til verka á þessum
viðkvæma stað. Við tókum á sín-
um tíma ákvörðun um að varðveita
gömlu húsin í Stykkishólmi en við
höfum aldrei ákveðið að varðveita
kaupfélagsskemmuna svokölluðu
þar sem Amtsbókasafnið er í dag.
Hún er eins og illa gerður hlutur í
þessu umhverfi. Nú þurfum við að
vanda okkur í skipulagsvinnunni
sem bíður okkar á þessum reit.“
Auk þessa er fleira á döfinni í
skipulagsmálum. „Við erum að láta
deiliskipuleggja nýtt íbúðar hverfi
við innkeyrsluna í bæinn nærri
golfvellinum og tjaldstæðinu. Síð-
an erum við að deiliskipuleggja
hafnarsvæðið við skipasmíðastöð
Skipavíkur,“ nefnir Sturla.
Tóku við erfiðu búi en nú horfir til betri vegar
- rabbað við Sturlu Böðvarsson bæjarstjóra í Stykkishólmi
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í Stykkishólmi.
Horft yfir Stykkishólm úr Súgandisey.