Skessuhorn - 12.08.2015, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2015 11
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
Valgerður Jónsdóttir tónmennta-
kennari er að fara af stað með tón-
listarnámskeiðið „Tónlist og hreyf-
ing“ fyrir börn á aldrinum 3-5 ára.
Tónlist hefur verið stór partur af
lífi Valgerðar, bæði hljóðfæraspil og
söngur. Hún útskrifaðist sem tón-
menntakennari árið 2000 og hef-
ur síðan unnið mikið við tónlist-
arkennslu. Fyrstu fjögur árin eftir
útskrift kenndi hún tónlist á leik-
skólanum Grænuborg í Reykjavík.
„Ég hef líka unnið með tónlist fyrir
ungabörn og hélt ég t.d. námskeið í
ungbarnatónlist hér á Akranesi fyrst
eftir að ég flutti hingað árið 2011.
Ég kynntist þess háttar námskeið-
um þegar ég bjó í Danmörku fyrir
nokkrum árum og fyrstu námskeið-
in sem ég hélt voru haldin í Jóns-
húsi í Kaupmannahöfn. Ég hef líka
starfað mikið við kórstjórn, stjórn-
aði t.d. tveimur kórum úti í Dan-
mörku og er nú kórstjóri Karla-
kórsins Svana hér á Akranesi, sem
og Skólakórs Grundaskóla þar sem
ég er starfandi tónmenntakenn-
ari,“ segir Valgerður í samtali við
Skessuhorn.
Þegar hún er spurð hvernig tón-
listarnámskeið fyrir þennan ald-
urshóp, 3-5 ára, séu segir hún þau
mjög skemmtileg og frábæra sam-
verustund foreldra og barna. „Ég
set þetta þannig upp að það er mik-
ið sungið, farið í hreyfileiki tengda
tónlist og einnig æfum við okkur að
spila á einföld hljóðfæri. Foreldrar
eru að hluta til virkir þátttakend-
ur og áhersla er lögð á að tímarn-
ir séu skemmtileg upplifun og sam-
vera fyrir barn og foreldra.“
Valgerður heldur úti síðu á Face-
book sem heitir Tónar á ferð - tón-
listarnámskeið á Akranesi. „Við-
brögðin hafa verið mjög góð og er
ég næstum búin að fylla í einn hóp.
Fólk má þó endilega hafa samband
því ég mun mögulega bæta við öðr-
um hópi eða halda annað svona
námskeið þegar líður á haustið.
Það er greinilega mikill áhugi á
tónlistarstarfi fyrir þennan aldurs-
hóp hérna á Akranesi. Tónlist hef-
ur enda mikinn áhrifamátt og börn
bregðast oft mjög sterkt við tónlist,
strax á fyrstu mánuðum lífs síns.“
Ásamt því að halda námskeið
fyrir börn mun Valgerður, ásamt
Þórði Sævarssyni eiginmanni sín-
um, halda gítarnámskeið fyrir full-
orðna byrjendur og eins gítarsam-
spil fyrir þá sem kunna að spila
á gítar. „Það eru svo margir sem
kunna eitthvað smávegis að spila
á gítar og langar að spila meira og
æfa sig að spila með söng. Það er
líka aðeins meiri stemning að spila
og syngja í hópi heldur en einn í
stofunni heima hjá sér,“ segir Val-
gerður að lokum. Áhugasamir eru
hvattir til að finna síðuna Tónar á
ferð á Facebook eða hafa samband
við Valgerði í síma 841-7688.
arg
Tónlistarnámskeið á Akranesi
fyrir börn á aldrinum 3-5 ára
Valgerður Jónsdóttir tónmenntakennari á Akranesi.
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Smart föt, fyrir smart konur
Netverslun á tiskuhus.is