Skessuhorn


Skessuhorn - 12.08.2015, Page 18

Skessuhorn - 12.08.2015, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 201518 Ævintýraleg heimferð Heimferðin gekk þó ekki jafn áfalla- laust fyrir sig eins og ferðin út hafði gert. Áætlað var að Mummi myndi verða á Grænlandi í fjórar vikur og snúa heim aftur 22. júlí. „Mér var sagt að ég myndi fara heim með „Maybe airline.“ Það var ekki raun- verulegt nafn á flugfélaginu en sagt var að flugvélin kæmi alltaf bara „maybe“ eða kannski og kannski ekki. Það var raunin. Vélin kom ekkert þennan dag sem ég átti að fara heim með henni og heimferð- in frestaðist því. Hún frestaðist svo alltaf aftur og aftur. Loks kom vélin 29. júlí, ekki nema viku á eftir áætl- un. Vélin bilaði svo þannið að flug- inu var frestað aftur. Það frestað- ist svo enn aftur vegna hugsanlegr- ar þoku á svæðinu. Við fréttum að einkaþota dönsku drottningarinn- ar væri að koma til okkar og ætlaði að fljúga þaðan til Akureyrar. Við vorum tveir sem vorum að bíða eft- ir að komast til Íslands og náðist að toga í einhverja spotta fyrir okkur og við fengum að fara með þotunni til Akureyrar. Við fórum því eiginlega bara á puttanum heim til Íslands,“ segir Mummi og hlær við. Það geta eflaust ekki margir sagst hafa flog- ið með einkaþotu Margrétar Þór- hildar Danadrottningar. Aðspurð- ur segir Mummi að vélin hafi ver- ið ósköp venjuleg að innan. „Það eru allar innréttingar teknar út þeg- ar drottningin er ekki með svo við sátum nú bara í venjulegum flugsæt- um. Þegar drottningin ferðast eru þarna mun betri sæti og öskubakkar um alla vél.“ Hafði setið fastur í ellefu mánuði Ævintýrinu var ekki lokið þrátt fyr- ir að Mummi hafi náð að húkka sér far með þotu til Íslands. „Á leið- inni heim þurfti áhöfn vélarinnar að „kíkja við“ á einum stað, eða fljúga lágflug og aðeins hægar yfir eitt til- tekið svæði. Ástæðan var maður á skipi sem setið hafði fast í ís úti á miðjum sjó dálítið fyrir utan Græn- land. Maðurinn er búinn að vera þarna í ellefu mánuði fastur og það kemst engin til hans og hann þarf því bara að bíða. Ég geri ráð fyrir að við höfum verið að kíkja á hann því það hafði enginn heyrt í honum í ein- hvern tíma eða eitthvað slíkt, þó veit ég það ekki. Maðurinn stökk út úr skipinu og sýndi okkur að hann væri nú á lífi,“ segir Mummi og brosir. „Þarna sáum við haug af vistum úti á ísnum en þeim hafði bara verið hent úr flugvélum og maðurinn svo safn- að þeim þarna saman á ísnum.“ Á Öxnadalsheiði en ekki Álaborg Bjargey Steinarsdóttir, eiginkona Mumma, frétti síðast af Mumma þegar hann átti að fljúga með „Maybe airline“ til Danmerkur þar sem hann átti pantaði gistingu í Ála- borg yfir nótt. Hann átti svo að fara þaðan til Kaupmannahafnar dag- inn eftir og loks til Íslands. „Hún hafði enga hugmynd um að ég væri að koma á puttanum með einkaþotu drottningarinnar og ég ætlaði bara að mæta hingað heim, læðast inn og koma öllum á óvart. Það heppnaðist ekki alveg því þegar Bjargey hélt að ég væri komin til Álaborgar hringdi hún í mig til að spyrja hvar ég væri og svona. „Ég er bara á Öxnadals- heiðinni,“ svaraði ég,“ segir Mummi og hlær. Eftir ævintýralegt ferðalag með einkaþotu drottningarinnar til Akureyrar og bílaleigubíl í Borg- arnes komst Mummi á leiðarenda, ekki nema rétt rúmri viku á eftir áætlun. „Nú er ég bara byrjaður að vinna aftur,“ segir Mummi að lokum en hann starfar hjá Loftorku í Borg- arnesi. arg/ Ljósm. ggs. Á tímum samskiptamiðla á borð við Facebook, Twitter og Snapchat vit- um við hvað sumir vinir okkar og kunningjar eru að gera öllum stund- um. Á þessum árstíma fer flest vinn- andi fólk í sumarfrí og myndum af fólki í sólbaði á pallinum heima hjá sér eða á ströndinni á Spáni rign- ir inn á samfélagsmiðlana. Íslend- ingar eru duglegir að nýta hvern sólargeisla og elta þá með því að fara úr landi eða á milli landshluta. Hér á Vesturlandi hefur veðrið ver- ið prýðilegt í sumar og Íslendingar streymt hingað með tjaldvagnana, fellihýsin og annan lúxus útilegu- búnað, í þeim tilgangi að elta sólar- geislana að sjálfsögðu og svo er því deilt með öllum á samfélagsmiðlun- um. Guðmundur G. Símonarson, oftast kallaður Mummi, var þó ekki einn af þeim sem nýtti sumarfríið í eltingarleik við geisla sólar. Hann fór ekki til Spánar eða Grikklands eins og hluti þjóðarinnar, heldur varði hann sumarfríinu fjarri öllu netsam- bandi, og þar af leiðandi samfélags- miðlum, á Grænlandi. „Ég var kom- inn í sumarfrí og fór á Olís í Borgar- nesi að fá mér kaffi. Það er gott að fá sér kaffi á Olís. Þar hitti ég Jón múr- ara. Hann sagði mér að hann væri að fara að vinna á Grænlandi og það hafi einn starfsmaður hans forfallast svo það vantaði mann. Mig vantaði eitthvað að gera í fríinu og svo hef- ur mig alltaf langað að fara til Græn- lands,“ segir Mummi þegar blaða- maður kíkti til hans og fékk að heyra ferðasöguna. Bjart allan sólarhringinn á sumrin Mummi var staðsettur á Norður - Grænlandi í herstöð sem er einung- is 933 kílómetra frá Norðurpólnum. Ferðalagið til Grænlands gekk áfalla- laust fyrir sig og flaug hann frá Nor- egi með Herkúles herflugvél. „Ég hélt að ég væri bara að fara að smíða eða eitthvað slíkt en það var ekki raunin. Þegar ég kom út var mér bent á vél sem ég átti að vinna á við lag- færingar á tönkum,“ segir Mummi. Aðspurður um aðstæður á svæðinu segir hann þær hafa verið mjög góð- ar og veðrið gott. Loftið hafi þó ver- ið mjög þurrt, en hiti náði alveg 22 gráðum. „Það sást þó aldrei í neinn sjó því hann var ísilagður, þrátt fyr- ir hita á þessum tíma. Þá voru eng- ar pípulagnir því það þurfti ekki að fara nema svona 70 sentímetra ofan í jörðu til að komast í frost. Við gátum þvegið þvottinn í þvottavél, vatnið var bara í bíl fyrir utan en það var þó ekki vatn í klósettunum heldur pok- ar,“ segir Mummi og brosir. „Þarna var sólin hátt á lofti á þessum árstíma allan sólarhringinn svo það var bara eins og það væri alltaf dagur. Sólin var mun hærra á lofti en hér á Íslandi á sumrin. Þó að hér sé bjart á næt- urnar yfir sumartímann þá var þetta allt öðruvísi og miklu bjartara á næt- urnar. Sólin kemur líka ekkert upp þarna í langan tíma á veturna svo þá er dimmt allan sólarhringinn. Þó býr fólk þarna allt árið svo aðbúnaður er mjög góður.“ Héldu jólahátíð óvænt í júlí Mummi segir að þarna hafi verið fataverslun, matvöruverslun og bar og þar hafi verið opið allan sólar- hringinn. Það var þó engin að af- greiða. „Maður fór bara inn í búð- ina og tók það sem maður þurfti og skrifaði það niður og borgaði seinna. Það sama átti við um barinn. Þarna voru kokkar á staðnum sem elduðu fyrir okkur góðan mat og við borð- uðum saman. Á laugardögum þurftu allir að mæta með bindi í kvöldmat- inn en það voru ekki allir með bindi með sér og bjuggu þau þá bara til. Það var svo einn veggur þarna með heimatilbúnum bindum sem voru búin til úr hinum ýmsu efnum. Það var líka smá fjölbreytni þarna og voru t.d. haldin jól einn daginn. Þá voru bara logandi jólaljós og spiluð jólalög allan daginn,“ segir Mummi og kveðst þó ekki geta sagt til um það hver ástæðan væri fyrir því að jólaljós væru kveikt og jólalög spil- uð svona heilan dag í júlí. „Það var ekkert síma- eða netsamband og bara einn sími á svæðinu sem mað- ur gat notað svona til að láta vita að maður væri á lífi og að fluginu heim hefði seinkað og slíkt,“ bætir hann svo við. Hurðarhúnarnir sneru öfugt Aðspurður hvað það væri við Græn- land sem hafi heillað hann seg- ir Mummi að hann hafi alltaf lang- að að fara þangað að veiða, en seg- ir þó að ekki hafi verið hægt að veiða neitt í þessari ferð. „Það er ekki mikið um dýralíf á þessu svæði, svona fyrir utan máva og einstaka ís- birni og úlfa. Ef dýr koma þangað að sumri til drepast þau einfaldlega því þau komast ekkert til baka, það kemur svo mikill ís þarna í kring.“ Hann segist þó ekki hafa óttast ís- birnina eða úlfana. „Ég leit stundum yfir öxlina á mér þegar maður var á gangi úti en ég var nú ekkert mikið að spá í þessum dýrum. Ég tók eftir því einn daginn að allir voru komn- ir með riffla á bakið og þá var það vegna þess að það fundust úlfaspor skammt frá. Það var líka einu sinni ísbjörn um tíu kílómetrum frá okk- ur en hann kom ekkert. Við vorum samt alveg við því búnir að svona dýr myndu koma og voru byssur til taks við dyrnar í hverju húsi og allir hurðahúnar snéru öfugt svo ísbirnir gætu ekki opnað,“ segir Mummi. Með drottningarflugi til Íslands eftir Grænlandsdvöl Guðmundur G. Símonarson. Svæðið sem Mummi var að vinna á í Grænlandi. Þeir sem ekki komu með bindi þurftu að búa til bindi fyrir laugardagskvöldverð- ina. Heimatilbúnu bindin voru svo látin hanga á þessum vegg. Bæjarráð Stykkishólms sam- þykkti nýverið ályktun sem send var Sambandi íslenskra sveitarfé- laga til efnislegrar meðhöndlun- ar. Fjallað er um þá miklu aukn- ingu sem er að verða í ferðaþjón- ustu en jafnfram nauðsyn þess að smærri sveitarfélögum sé veitt að- stoð til að byggja upp fjölfarna viðkomustaði ferðafólks. Álykt- unin í heild sinni er eftirfarandi: „Bæjarráð Stykkishólms fagnar þeim mikla vexti sem er í ferða- þjónustu í bænum. Fjölgun veit- ingastaða, aukið gistirými og vax- andi viðskipti við ferðamenn skapa ný atvinnutækifæri sem vonandi verður heilsárs atvinnustarfsemi en ekki einungis sett upp til þess að fleyta rjómann af þeim viðskipt- um sem ferðamenn skapa. Þá er því fagnað sérstaklega að skemmti- ferðaskip hafa sett Stykkishólms- höfn sem viðkomuhöfn á siglinga- leið sinni við landið. Skemmti- ferðaskipin setja glæsilegan svip á hafnarstarfsemina og lífga bæjar- lífið. Um leið og vakin er athygli á þessari jákvæðu þróun er skor- að á þá sem sinna ferðaþjónust- unni í bænum að taka höndum saman um öfluga kynningu á bæn- um sem ákjósanlegum áfangastað ferðamanna og um leið leggja sitt að mörkum við að fegra bæinn og búa sem best um þá þjónustu sem í boði er. Þá vill bæjarráð hvetja Al- þingi, ráðherra ferðamála og önn- ur stjórnvöld ferðamála í land- inu til þess að leggja aukna fjár- muni til uppbyggingar fjölfarinna ferðamannastaða. Auðvelda verð- ur minni sveitarfélögum að byggja upp þá innviði sem eru ætlaðir til þess að taka á móti góðum gest- um okkar innlendum sem erlend- um. Þar má einkum nefna sem mikilvæg verkefni; göngustíga inn- an byggðar, útsýnisstaði, snyrtiað- stöðu og tjaldsvæði. Bæjarráð hvetur Samband ís- lenskra sveitarfélaga til þess að taka þessi málefni sérstaklega upp í við- ræðum við ríkisvaldið og efna til ráðstefnu þar sem einungis ver- ið fjallað um uppbyggingu ferða- þjónustu og aðkomu sveitarfélaga og ríkisvaldsins í æskilegri þróun þessa mikilvæga atvinnuvegar sem ferðaþjónustan er.“ Bókunina sam- þykkti bæjarráð samhljóða. mm Vilja að stuðlað verði að jákvæðri þróun í ferðaþjónustu

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.