Skessuhorn


Skessuhorn - 12.08.2015, Page 19

Skessuhorn - 12.08.2015, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2015 19 Júlía Guðjónsdóttir tók nýver- ið við starfi skólastjóra Grunn- skólans í Borgarnesi. Hún út- skrifaðist sem grunnskólakenn- ari árið 2002 og er að ljúka meist- aranámi í stjórnun og stefnumót- um við viðskiptafræðideild Há- skóla Íslands. Hún býr eins og er í Hafnarfirði en mun flytja ásamt tveimur yngri börnum sínum í Borgarnes síðar í þessum mán- uði. „17 ára dóttir mín er að byrja sinn annan vetur í Verslunarskól- anum og mun því ekki flytja með mér hingað. Hún er líka með bíl- próf svo ætli hún verði ekki með annan fótinn hér líka,“ segir Júlía og brosir. „Strákurinn minn er að fara í þriðja bekk og hann er mjög spenntur að flytja í Borg- arnes. Það eina sem hann er ekki sáttur með er að þurfa að færa sig úr FH yfir í Skallagrím, það get- ur verið erfitt að þurfa að skipta um lið á þessum aldri,“ bætir hún við og hlær. „Litla stelpan mín er svo lítil að þetta hefur lítil áhrif á hana. Hún fer bara í nýja leik- skólann sinn hér og verður eflaust bara alsæl, ég hef engar áhyggjur af öðru.“ Með rætur af landsbyggðinni Þrátt fyrir að vera búsett í Hafn- arfirði þekkir Júlía landsbyggðar- lífið vel, enda alin upp í Hvera- gerði og Dölum. „Við bjuggum á Laugum í Sælingsdal þar til ég var 9 ára. Pabbi minn var skóla- stjóri þar. Þaðan fluttum við í Hveragerði og ég ólst að mestu upp þar. Ég fór þó aftur í Dalina í níunda bekk og bjó hjá þáver- andi skólastjóra á Laugum, Krist- jáni Gíslasyni og hans fjölskyldu, en það vill einmitt þannig til að hann var skólastjóri hér í Borg- arnesi á undan Signýju sem er að láta af störfum núna,“ segir Júlía. Skólastjórastarfið er ekki heldur nýtt fyrir Júlíu en hún var skóla- stjóri Grunnskólans á Reykhól- um í fjögur ár. „Ég var nú eigin- lega plötuð í það starf af vinkonu minni sem er ættuð frá Reyk- hólum í báðar ættir. Hún var að taka við starfi forstjóra hjúkrun- arheimilisins á Reykhólum og benti mér á að það vantaði einnig skólastjóra. Hún hvatti mig til að sækja um, eða plataði mig kannski til þess,“ segir Júlía og hlær. „Ég fékk starfið og flutti vestur, sem var alveg yndislegt. Það var svo gott að kúpla sig úr Reykja- vík og fara í algjörlega allt ann- að umhverfi. Mér líður mjög vel á landsbyggðinni og á Reykhólum er líka einstaklega fallegt og mik- ið fuglalíf, bara dásamlegt,“ bæt- ir hún við. Tilhlökkun að flytja í Borgarnes Aðspurð hvers vegna Borgarnes hafi orðið fyrir valinu segir Júlía það í raun ekkert hafa verið plan- að. „Fyrst þegar auglýst var eft- ir skólastjóra hér fór auglýsingin alveg fram hjá mér, ég var á kafi í ritgerðinni minni og var með vinnu og önnur plön fyrir haust- ið. Mér var svo bent á þessa aug- lýsingu og hvött til að sækja um. Ég ákvað að skoða hvernig sveita- félag þetta væri og varð mjög hrif- in. Hér er mjög fallegt og margt jákvætt í gangi, t.d. í íþróttastarfi. Það er líka ekki alveg sami lands- byggðar „fílingurinn“ hér eins og á Reykhólum og það hefur sína kosti. Hér er öll þjónusta og allt til alls, hvort sem það er hér í Borgarnesi eða á Akranesi, það er ekki langt að fara þangað. Eins er líka stutt að keyra til Reykja- víkur,“ segir Júlía glöð og bætir við að hún sé full tilhlökkunar að flytja í Borgarnes. Júlía er að ljúka við skrif mast- ersritgerðar um þessar mundir og er hún búin að vera í fullu námi frá haustinu 2013. Um áramót- in tók hún að sér starf umsjón- arkennara 7. bekkjar í Öldutúns- skóla í Hafnarfirði. „Ég byrjaði á ritgerðinni minni um áramót- in og ákvað að vinna samhliða skrifunum. Ég tók því að mér af- leysingakennslu í Öldutúnsskóla. Það er búið að vera mikið álag að skrifa 30 eininga ritgerð, sem telst sem full önn í háskólanum, sam- hliða 100% vinnu. Ég náði ekki að klára ritgerðina í vor en stefni á að klára hana í september og út- skrifast í desember,“ segir Júlía og bætir við að nú sé ritgerðin þó sett til hliðar á meðan hún kemur sér inn í nýja starfið, enda sé rit- gerðin komin á lokastig. Nýjr hugmyndir fylgja nýju fólki Aðspurð segist Júlía ekki hafa hugsað sér að mæta til starfa með stórar hugmyndir um breytingar. „Ég kem inn í starf sem hefur ver- ið unnið vel hingað til svo það er ekki þörf á neinum stórum breyt- ingum eins og er. Það er þó allt- af þannig að með nýju fólki koma nýjar hugmyndir, svo það má al- veg búast við einhverjum breyt- ingum. Ég mun þreifa fyrir því hvað kennarar og annað sam- starfsfólk hefur í huga, ég ætla að reyna að vera opin fyrir öll- um hugmyndum. Það stendur þó ekki til að ráðast í neitt nema í samvinnu við kennara og annað samstarfsfólk, það er mikilvægt að vinna vel með öðru starfsfólki Júlía Guðjónsdóttir er nýr skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi skólans,“ segir Júlía. „Ég er mjög þakklát fyrir að fá að taka við því góða starfi sem Signý hefur unnið hér á undan mér,“ bætir hún við. Sem nýr skólastjóri í Borgar- nesi bar það að sjálfsögðu á góma hvað Júlíu þætti um grunnskóla- málin í Borgarbyggð og hugsan- legar lokanir skóla. „Ég hef mjög lítið sett mig inn í þetta mál en ég hef þó kynnt mér það örlít- ið. Ég skil báðar hliðar málsins mjög vel og get ekki tekið neina afstöðu eins og er, ég hef ekki sett mig nægilega vel inn í málin. Ef svo fer að grunnskóladeildinni á Hvanneyri verði lokað og börn- in þaðan koma hingað til okkar verður að sjálfsögðu tekið mjög vel á móti þeim hér,“ segir Júlía að lokum. argJúlía Guðjónsdóttir er nýr skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.