Skessuhorn - 12.08.2015, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2015 23
Upphaf haustannar 2015
Fjölbrautaskóli Vesturlands verður
settur þriðjudaginn 18. ágúst.
Móttaka fyrir nýnema verður á sal skólans kl. 10.
Eftir skólasetningu hitta nýnemar umsjónarkennara sína.
Gert er ráð fyrir dagskrá með nýnemum til kl. 14 þennan dag.
Kennsla samkvæmt stundatöflu
hefst miðvikudaginn 19. ágúst.
Föstudaginn 21. ágúst verður kynningarfundur á
sal skólans um nám með vinnu kl. 17.
Skólameistari
Fjölbrautaskóli Vesturlands
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Skólabyrjun í
Menntaskóla Borgarfjarðar
Nýnemar mæta 18. ágúst kl. 09:00 og fá þá stundatöflur
afhentar og fleiri upplýsingar varðandi skólastarfið.
Dagurinn hefst með sameiginlegum
morgunverði nýnema og starfsfólks.
Opnað verður fyrir stundaskrá
eldri nema inn á Innu sama dag.
Kennsla hefst miðvikudaginn 19. ágúst
samkvæmt stundatöflu.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
Allt í gleri
ÚTI OG INNI
M
ynd: Josefine Unterhauser
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Undanfarna daga hefur verið unn-
ið að því að endurhlaða gömlu rétt-
ina í Ólafsvík. Að verkefninu kem-
ur áhugahópur um réttina og svæð-
ið í kring um hana en þarna eru
gamlar og merkar minjar sem mik-
ilvægt þykir að varðveita. Fengn-
ir voru vanir hleðslumenn í verk-
ið með hópnum og ætlunin að nota
aftur grjót af staðnum. Verkið er þó
rétt hafið og lýkur ekki í sumar. Ein-
göngu var unnið fyrir þá upphæð
sem búið var að safna. Það ríkti mik-
il vinnugleði og ánægja hjá hópnum
við hleðsluna. Undirbúningur hef-
ur staðið yfir í dálítinn tíma en að-
standendur verkefnisins eru mjög
ánægðir með það sem gerst hefur í
sumar og hlakka til framhaldsins.
Framundan hjá hópnum er að
safna fyrir næsta hluta verkefnisins
og geta áhugasamir lagt verkefninu
lið með því að leggja inn á reikning
í Landsbankanum 190-26-600 kt:
040140-4769 og er Marínó Mor-
tensen hjá Deloitte vörslumaður
reikningsins. þa
Endurhlaða gömlu réttina í Ólafsvík
Nokkrir hressir smalar mættu mánu-
daginn 10. ágúst til að smala kind-
um í Slögu í Akrafjalli og koma þeim
út fyrir skógræktarsvæðið. Að sögn
Jens B Baldurssonar gekk smala-
mennskan vel og kindurnar hlupu
flestar út um gat á girðingunni neðst
í Slögunni. Nokkrar röltu þó yfir
rimlahliðið sem mannskepnan trúði
fram að þessu að héldi aftur af þess-
um skepnum, en veit nú betur. Að
sögn skógræktarfólks hefur gengið
hægt að fá girðinguna og hliðið lag-
fært þannig að trjáræktin verði laus
við ágang sauðkindarinnar. mm
Smalað í Slögu við Akrafjall
Hér má sjá glaðlega smala að verki loknu. Hlið sem þessi verða að hafa djúpa holu undir til að gera
tilsett gagn. Þessar kindur röltu bara í rólegheitunum yfir.
Freisting vikunnar
Íslendingar draga margir fram
grillin yfir sumartímann og grilla
allt sem hugsast getur. Nú er ör-
lítið farið að líða á ágúst og marg-
ir eflaust farnir að verða þreyttir á
grillmat eftir grilltörn sumarsins.
Þá er upplagt að elda eitthvað allt
annað og jafnvel að prófa eitthvað
alveg nýtt. Freistingin á þessu
sinni er af indverskum uppruna
og rífur smá í bragðlaukana.
Tikka Masala kjúklingur
Innihald:
4-5 kjúklingabringur
6 hvítlauksgeirar
1 tsk chili paste
1 tsk engifer paste
4 tsk turmeric
2 tsk garam masala
1 tsk cumin
1 tsk kóriander
1 dós hreint jógúrt (180 gr)
2 laukar
½ tsk ground mustard
1 dós tómatar
1 dós tómatmauk
3 dl rjómi
búnt ferskur kóríander
salt
olía eða smjör
Aðferð:
Skerið kjúklinginn í bita og steikið
létt á pönnu, best er að nota djúpa
pönnu. Blandið saman kryddinu,
paste-anu og jógúrtinu og setjið
kjúklinginn saman við og blandið
vel. Steikið laukinn og hvítlaukinn
upp úr smá olíu eða smjöri þar til
mjúkt. Bætið tómötunum og tóm-
atmaukinu við á pönnuna og látið
malla, merjið tómatana á meðan
með sleif. Bætið að lokum rjóman-
um og kjúklingablöndunni saman
við og látið malla þar til kjúkling-
urinn er full eldaður. Berið fram
með naan brauði og hrísgrjónum.
Tikka Masala kjúklingur