Skessuhorn - 12.08.2015, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 201530
Hvað verður í kvöldmatinn?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi síðdegis
á mánudaginn)
Níels Ó. Jónsson
„Það verður nautalund með pip-
arsósu, bökuðum kartöflum og
smjörsteiktu grænmeti.“
Márus Líndal Hjartarson
„Kjúklingasúpa.“
Steinunn Gestsdóttir og Christi-
an Bjarmi
„Það verður snarl.“
Makki van den Berg
„Ekki ákveðið, er á leiðinni inn
í Bónus.“
Jórunn Friðriksdóttir
„Glæný soðin ýsa.“
Einhverjir gesta Akranesvallar hafa
ef til vill lagt leið sína upp tröpp-
ur íþróttamannvirkjanna á Jaðars-
bökkum í sumar og notið dýrindis
kaffiveitinga í salnum á Jaðarsbökk-
um. Kræsingarnar bera sig ekki
sjálfar á borð heldur er það Heima-
leikjahópur ÍA, skipaður nokkrum
velunnurum knattspyrnufélagsins,
sem hefur veg og vanda af og það á
hverjum einasta heimaleik meistara-
flokks karla og kvenna. „Við sjáum
sem sagt um undirbúning og utan-
umhald á þessu öllu saman,“ segir
Jóhanna Hallsdóttir, en hún mynd-
ar það sem kalla mætti kjarna hóps-
ins ásamt Dýrfinnu Torfadóttur og
Rannveigu Benediktsdóttur. „Svo
höfum við fengið mikið af fólki til að
aðstoða okkur. Sigríður Valdimars-
dóttir og Helena Steinsdóttir hafa
til dæmis verið okkur mikið innan
handar, einnig hefur Katrín Leifs-
dóttir komið sterk inn“ bætir Dýr-
finna við.
„Hópurinn var stofnaður í fyrra.
Magnús formaður bað okkur þrjár
að halda utan um heimaleiki meist-
araflokks kvenna og við tókum það
að okkur. Liðið lék þá í úrvals-
deildinni og markmiðið var að gera
kvennaboltann sýnilegri,“ segir Jó-
hanna.
Sem liður í því var bryddað upp
á því að færa manni leiksins að mati
stuðningsmanna ÍA gjöf. Það voru
fyrirtæki og listamenn aðallega hér
frá Akranesi sem gáfu verk sín þeim
leikmanni sem hlotnaðist sá heiður. Í
fyrra vorum við einnig með svokall-
að kaffi-happdrætti í hálfleik og þeir
sem komu í kaffi til okkar keyptu
sér happdrættismiða um leið og
þeir greiddu fyrir kaffið. Dýrfinna
gaf skartgrip eftir sjálfa sig í öllum
heimaleikjunum í happdrættisvinn-
ing. „Nú er Dýrfinna orðin vara-
maður í stjórn KFÍA og var falið að
sjá um heimaleikina. Hún fékk okkur
Púslu [Rannveigu, innsk. blm.] til
liðs við sig,“ segir Jóhanna. „Af því
að við erum svo skemmtilegar,“ seg-
ir Rannveig og brosir.
Dýrfinna heldur sem fyrr utan
um að safna verðlaunum fyrir mann
leiksins í öllum heimaleikjum sum-
arsins auk aðgangsmiðahappdrætt-
isins í hálfleik. „Listaverkin handa
manni leiksins eru öll eftir fólk hér
af Skaganum. Nú þegar hafa 19
listamenn gefið verk og enn fjöl-
margir sem ég á eftir að hafa sam-
band við. Við erum ótrúlega rík af
listafólki hér á Akranesi,“ segir Dýr-
finna.
Akraneskaupstaður hefur gefið
vinninga í aðgöngumiðahappdrætt-
inu í sumar, heimsókn í Akranesvita
fyrir 10 manns, með leiðsögn Hilm-
ars Sigvaldasonar vitavarðar. Vita-
sokkarnir vinsælu fylgja að sjálf-
sögðu með heimsókninni.
Hafa ánægju
af framtakinu
Aðspurðar hvort framtakið mælist
ekki vel fyrir segjast þær nú minnst
vita um það sjálfar, en þær geti ekki
séð annað en að fólk sé ánægt. Að
minnsta kosti hefur enginn kvartað
ennþá. Verður þá ekki framhald á?
„Dýrfinna er strax farin að tala um
næsta sumar,“ segja þær Jóhanna og
Rannveig og hlæja. „Þetta sumar
er náttúrulega prófraun. Við sjáum
hvað betur má fara og getum skipu-
lagt næsta sumar betur,“ segir Dýr-
finna.
„Við viljum gjarnan fá fleira fólk
í lið með okkur, karla og konur sem
vilja koma og vinna í skemmtilegum
félagsskap. Við höfum að minnsta
kosti alveg svakalega gaman af þessu.
Þetta er svona gaman-saman,“ segja
þær léttar í bragði. „Okkur lang-
ar að vekja upp gamla ungmenna-
félagsandann sem okkur þykir hafa
átt dálítið undir högg að sækja und-
anfarið,“ segir Jóhanna að lokum og
Rannveig og Dýrfinna taka í sama
streng. kgk
Sveitakeppni Golfsambands Íslands
var spiluð vítt og breitt um landið
um liðna helgi. Í fyrstu deild fögn-
uðu konur í Golfklúbbi Reykja-
víkur sigri en karlar úr Golfklúbbi
Mosfellsbæjar báru sigur úr býtum,
en karlakeppnin var spiluð á Ham-
arsvelli í Borgarnesi. Heimamenn
úr Golfklúbbi Borgarness urðu í
fimmta sæti í deildinni og verða því
áfram í hópi þeirra sterkustu á land-
inu. Af Vesturlandsliðunum er það
annars að frétta að karlarnir í Golf-
klúbbnum Jökli í Ólafsvík gerðu sér
lítið fyrir og sigruðu í annarri deild
og leika því í deild þeirra sterkustu
ásamt Borgnesingum að ári. Meðal
annarra úrslita hjá körlum má nefna
að Leynismenn frá Akranesi urðu í
þriðja sæti í annarri deild, einung-
is hársbreidd frá því að fara upp
um deild. Það varð hlutskipti Vest-
arr manna úr Grundarfirði að falla
í fjórðu deild þrátt fyrir að keppn-
in í þriðju deildinni væri spiluð á
Bárarvelli, heimavelli þeirra. Að
móti loknu á Bárarvelli bauð stjórn
GVG öllum til grillveislu í tilefni
að Golfklúbburinn fagnaði 20 ára
afmæli sínu þann 27. júlí síðastlið-
inn. Mostri í Stykkishólmi varð í 3.
sæti í fjórðu deildinni og því nálægt
því að hafa sætaskipti við Grund-
firðinga, en leika þess í stað með
þeim í deild að ári. Í kvennaflokki
röðuðu konur úr Golfklúbbnum
Leyni, Vestarr í Grundarfirði og
Jökli í Ólafsvík sér í 3. til 5. sæti
annarrar deildar. mm
Þessar fallegu stúlkur héldu ný-
verið tombólur og færðu RKÍ á
Akranesi afraksturinn til ráðstöf-
unar. Rauði krossinn á Akranesi
þakkar þeim kærlega fyrir þeirra
framlag.
F.v. Dýrfinna Torfadóttir, Jóhanna Hallsdóttir og Rannveig Benediktsdóttir mynda það sem kalla mætti kjarna Heimaleik-
jahóps ÍA. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Heimaleikjahópur ÍA tekur vel á móti öllum
Tombólur
fyrir RKÍ
Kolfinna Eir og Högna Maren héldu
tombólu og söfnuðu 1.143 kr. sem
þær komu með til Rauða krossins.
Sóley Birta og Líf héldu tombólu og
söfnuðu 1.663 kr. sem þær komu
með til Rauða krossins.
Skin og skúrir og hjá
vestlenskum golfspilurum
Liðsmenn GJÓ gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í 2. deild og spila því í efstu deild að ári. Ljósm. golf.is