Skessuhorn - 21.10.2015, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 43. tbl. 18. árg. 21. október 2015 - kr. 750 í lausasölu
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Coldfri munnúði
Fluconazol
ratiopharm
- við kvefi og hálsbólgu
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Vökudagar
á Akranesi
29. okt. – 7. nóv.
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Nú í haust hefur áhöfnin á Hannesi Andréssyni SH stundað tilraunaveiðar á hörpudiski í Breiðafirði, en eins og kunnugt er
þá hrundi stofninn upp úr aldamótum, en er nú óðum að braggast. Veiðarnar eru stundaðar í samvinnu við Hafrannsókna-
stofnun og aflanum landað til vinnslu hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Agustson ehf. í Stykkishólmi. Veiðarnar ganga vel og sem
meðafli er m.a. grjótkrabbi sem veiðist í auknum mæli í Hvammsfirði. Þetta og margt fleira um tilraunaveiðarnar má lesa um
á bls. 12. Ljósm. mþh.
Englaforeldrar afhentu í gær Heil-
brigðisstofnun Vesturlands á Akra-
nesi kælibúnað í ungbarnavöggu.
Safnað hafði verið fyrir búnaðinum
í sumar en með tilkomu slíks kæli-
búnaðar gefst foreldrum andvana
fæddra barna sem og barna sem lát-
ast skömmu eftir fæðingu kostur á
að verja lengri tíma með börnun-
um, eða allt að 48 klukkustundum
eftir andlát. „Reynslan hefur sýnt
að það er mikilvægt fyrir foreldra að
fá sem lengstan tíma með börnun-
um sínum áður en að kveðjustund
kemur. Hingað til hafa foreldr-
ar haft lítinn tíma til að kveðja en
þessi kælibúnaður lengir þann tíma
til muna,“ segir Guðbjörg Þórunn
Sveinsdóttir fyrir hönd Englafor-
eldra á Akranesi. Slíkur kælibúnað-
ur er nú þegar til á Landspítalanum
og á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Ýmsir aðilar tóku þátt og styrktu
söfnunina í sumar. Andrea Þór-
unn Björnsdóttir englaamma stóð
fyrir sælgætissölu á mörkuðum í
sumar og Slysavarnadeildin Líf
og Styrktarfélagið Gleym mér ei
styrktu verkefnið einnig myndar-
lega. Landspítalinn gaf sérsaum-
að áklæði á vögguna og Lín Design
gaf fallegan sængurfatnað. Þá stóðu
Englaforeldrar á Akranesi fyrir
styrktarsýningu á brúðusýningunni
Pétri og úlfinum 6. september sl.
og vilja Englaforeldrar þakka Guð-
mundi B. Hannah, Prent- og fjöl-
ritunarþjónustunni í Borgarnesi,
Brúðuloftinu, Ísólfi Haraldssyni
og Vinum hallarinnar, Prentmeti
og Skessuhorni fyrir þeirra fram-
lag til sýningarinnar. „Það gekk vel
að safna fyrir búnaðinum og mætt-
um við alls staðar jákvæðni og hlý-
hug. Fyrir þann afgang sem við eig-
um eftir að búnaðurinn var keyptur
munum við svo styrkja þá foreldra
sem missa börnin sín hérna á svæð-
inu með fastri upphæð sem fer upp
í útfararkostnað,“ segir Guðbjörg
Þórunn í samtali við Skessuhorn.
grþ
Flutningaskipið Winter Bay flutti
í sumar um tvö þúsund tonn af
frystum hvalaafurðum frá hvalstöð
Hvals hf. í Hvalfirði frá Hafnarfirði
til Osaka í Japan. Sú sigling vakti
mikla athygli á alþjóða vísu þar sem
þetta var í fyrsta sinn sem siglt var
með frosnar sjávarafurðir um norð-
austurleiðina svokölluðu en svo
nefnist siglingaleiðin úr Norður
Atlantshafi norður fyrir Rússland
og inn í norðanvert Kyrrahaf.
Nú hefur áhöfn Winter Bay end-
urtekið leikinn því skipið er nú rétt
ókomið til St. Pétursborgar í Rúss-
landi. Eftir að hafa skilað hvalkjöts-
farminum á áfangastað í lok ágúst
var haldið til Kamsjatka-skaga í
Austur Rússlandi. Þar var farmi
af frosnum fiski skipað um borð.
Winter Bay sigldi síðan aftur norð-
ur fyrir Rússland um norðaustur-
leiðina en í þetta sinn í vesturátt.
„Ég náði loksins í útgerðarmann
Winter Bay. Hann sagði að skipið
væri væntanlegt til St. Pétursborg-
ar í Rússlandi um næstu helgi, með
farm af fiski frá Kamsjatka,“ stað-
festi Kristján Loftsson forstjóri
Hvals hf. við Skessuhorn í gær.
Siglingin um norðausturleið-
ina frá Íslandi til Asíuhafna styttir
sjóflutningaleiðina um nálega tvö
þúsund kílómetra samanborið við
hefðbundnar leiðir um suðurhvel
jarðar. Norðausturleiðin er aðeins
opin yfir sumartímann og fram
eftir hausti til loka október. Hlý-
indi undanfarinna ára hafa leitt til
þess að mjög hefur dregið úr hafís á
þessari leið um sumartímann og því
horfa margir vonaraugum til þess
að hægt verði að nota norðaust-
urleiðina í meiri mæli til flutninga
en hægt hefur verið til þessa. Leiða
má líkum að því að velgengni Win-
ter Bay í nú í sumar og haust marki
þáttaskil í þeim efnum.
mþh
Skopmynd Bjarna Þórs listamanns af
tilraun Kristjáns og félaga frá í sumar.
Winter Bay á
leið til baka
um Íshafið
Færðu HVE kælivöggu
Við afhendingu vöggunnar með kælibúnaðinum í gær. Á myndinni eru Andrea
Þórunn Björnsdóttir og fulltrúar Englaforeldra, HVE á Akranesi, Slysavarna-
deildarinnar Lífar og Styrktarfélagsins Gleym mér ei.