Skessuhorn - 21.10.2015, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 201510
„Það þýðir ekki að einblína bara
á viðgerðir. Við erum bilanaverk-
stæði, landbúnaðarverkstæði,
smurstöð, dráttarbílaþjónusta,
móttökustöð fyrir Endurvinnsluna
og Vörumiðlun er með vöruaf-
greiðsluna hjá okkur. Á haustin og
vorin koma tarnir í dekkjunum og
við leigjum Frumherja pláss til bif-
reiðaskoðunar tvo daga í mánuði,“
segir Karl Ingi Karlsson í KM
þjónustunni í Búðardal um held-
ur betur fjölþætta starfsemi fyrir-
tækisins.
Undanfarin ár hafa umsvif í
þjónustu við ferðamanninn stór-
aukist í KM þjónustunni. „Það
hefur verið töluvert mikið um það
síðustu ár að við sinnum ferða-
mönnum, að því leyti sem rúmast
innan starfseminnar. Hingað koma
stöðugt fleiri ferðalangar, t.d. ef
bílaleigubíllinn bilar eða ef það
springur dekk. Eins er talsvert að
gera í dráttarbílaþjónustu ef menn
hafa lent í útafakstri eða öðrum
óhöppum úti á vegum. Það var
fullt að gera í því í sumar, nánast
allar helgar. Ég myndi samt ekki
segja að við séum í ferðaþjónustu,“
segir hann léttur í bragði og bætir
því við að honum þyki fjölbreyti-
leikinn góður. „Ég er aksjónmað-
ur,“ segir hann og brosir. „Starfs-
mönnunum þykir líka gott að hafa
tilbreytingu þannig að dagarnir séu
ekki allir eins. Þeir eru boðnir og
búnir að taka ýmis verkefni að sér,
eins og til dæmis að hjálpa ferða-
mönnum. Ég er ákaflega heppinn
að vera með jákvætt starfsfólk sem
vill þjónusta.“
Velta fyrir sér stækkun
verslunarinnar
Karl er einn þeirra sem kom KM
þjónustunni á fót árið 2000 og hef-
ur starfað að rekstri hennar síðan.
Fyrirtækið er nú í eigu Karls og
Steinunnar Matthíasdóttur, eig-
inkonu hans. „Ég var svo hepp-
inn að hún ákvað að koma í versl-
unina þegar við keyptum hina eig-
endurna út. Nú erum við hér sam-
an hjónin,“ segir hann.
Við fyrirtækið starfa átta manns
og segir hann starfsmannafjölda
hafa haldist undanfarin ár. Stór-
tækar breytingar eru að sögn Karls
ekki á áætlun. „Við ætlum bara
að halda okkar striki. Það er ekki
grundvöllur fyrir því að stækka við
reksturinn, húsnæðið er fullnýtt í
dag. Hins vegar stefnum við á að
breyta versluninni lítillega, auka
vöruúrvalið og jafnvel stækka hana
aðeins.“
Þrátt fyrir að fjölþætt starfsemi
KM þjónustunnar teygi sig frá
Suður-Dölum, út á Skógarströnd
og á sunnaverða Vestfirði segir
Karl að fyrirtækið þjónusti fyrst og
fremst bændur í Dölum og Reyk-
hólasveit, það séu þeirra helstu við-
skiptavinir. „Við eigum hér góðan
kúnnahóp,“ segir hann.
kgk
Um síðustu áramót varð Lögreglan
á Vesturlandi til þegar lögreglulið-
in á Akranesi, Borgarfirði, í Dölum
og á Snæfellsnesi sameinuðust í eitt
lögreglulið. Nú eru liðnir rúmir tíu
mánuðir frá sameiningunni og sett-
ist blaðamaður Skessuhorns niður
með Úlfari Lúðvíkssyni, lögreglu-
stjóra á Vesturlandi, sem fór yfir
stöðuna.
„Góð breyting varð á löggæslu-
málum í umdæminu um síð-
ustu áramót þegar lögregluvakt-
ir á Akranesi og í Borgarnesi voru
sameinaðar og teknar upp sólar-
hringsvaktir. Í Borgarnesi hafði
fram til síðustu áramóta verið bak-
vaktarkerfi. Með nýju fyrirkomu-
lagi varð lögregla bæði sýnilegri
og öflugri,“ segir Úlfar. Hann segir
ákvörðunina um að fækka og sam-
eina embætti og skilja að starfsemi
lögreglu og sýslumanna hafa ver-
ið pólitíska en hafi heppnast vel
hjá lögreglu. „Við vildum sýna já-
kvæða breytingu strax eftir þessa
sameiningu. Slagkraftur liðsins
er mun meiri eftir sameiningu og
þetta er klárlega betra fyrirkomu-
lag á löggæslu en var fyrir breyt-
ingu. Það gefur betra viðbragð að
vera með lögreglumenn á vakt allan
sólarhringinn en á bakvakt sofandi
heima. Þeir verða sýnilegri og eft-
irlit eykst til muna. Margir vilja vita
af lögreglu í sínu nærumhverfi, þó
svo að við viljum kannski ekki sjá
hana statt og stöðugt.“
Efla þarf löggæslu á
Snæfellsnesi og
Dalabyggð
Alls starfar 31 lögreglumaður í lög-
regluliði Vesturlands, þar af eru þrír
í rannsóknadeildinni sem staðsett
er á Akranesi. „Við erum með fjóra
á vakt í almennri deild í Borgarnesi
og á Akranesi, tvo á hvorum stað og
því áhafnir tveggja bíla sem sinna
útköllum allan sólarhringinn. Ég
myndi samt vilja sjá fleiri í liðinu,“
segir Úlfar. Liðið er vel mannað
að sögn Úlfars og er mannskapur-
inn góður og vel menntaður. „Það
hafa litlar mannabreytingar verið
á þessu tæpa ári og við höfum því
ekki lent í vandræðum með mönn-
un starfa. Reyndar hættir lögreglu-
maður í Búðardal um næstu ára-
mót en við höfum auglýst eftir nýj-
um manni. Ég vildi helst sjá þar tvo
lögreglumenn.“ Hann segir þrjá
lögreglumenn vera á vakt á Snæ-
fellsnesi alla daga. Einn af þeim er
staðsettur í Stykkishólmi og tveir
á lögreglustöð í Ólafsvík. „Lög-
reglumenn í Ólafsvík sinna stóru
svæði og það má því segja að álag
þar sé meira en í Stykkishólmi. Við
þurfum að efla löggæslu á Snæ-
fellsnesi en við höfum ekki fjár-
magn til að halda úti mannaðri
lögreglustöð í Grundarfirði. Af því
hef ég áhyggjur enda skiptir öllu
að geta tryggt öryggi íbúa. Lög-
regla fer reglulega til Grundar-
fjarðar en fyrirkomulag löggæslu
þar er ekki eins og best verður á
kosið. Það er nauðsynlegt að efla
löggæslu í Grundarfirði eins og
áður segir, eins og í Stykkishólmi
þar sem einn lögreglumaður er á
vakt á hverjum tíma,“ segir hann.
Hundinum
Nökkva sagt upp
En þrátt fyrir vel heppnaðar breyt-
ingar í löggæslumálum hefur emb-
ættið þurft að hagræða í rekstri.
Nýverið var hundateymi lögregl-
unnar lagt niður og fíkniefnahund-
inum Nökkva sagt upp störfum, ef
svo má að orði komast. „Ástæð-
an fyrir þessari breytingu er fyrst
og fremst sú að fá þjálfara og um-
sjónarmann hundsins óskiptan inn
á lögregluvakt. Ég þarf á kröftum
lögreglumannsins að halda við al-
menn löggæslustörf. Hundurinn
er í eigu embættisins en ekki leng-
ur notaður af liðinu við fíkniefna-
leit,“ útskýrir Úlfar. Hann segir að
það hafi verið kostur að hafa fíkni-
efnaleitarhund en það skipti þó ekki
sköpum. „Við getum alltaf leitað til
annarra embætta ef til þess kem-
ur að okkur vanti hund í verkefni.“
Úlfar segir Nökkva hafa staðið sig
vel í starfi þrátt fyrir að hann hafi
þurft að fara í áðurnefndar breyt-
ingar. Þá hafi nýting hundsins ekki
verið sem skyldi að mati Úlfars.
Rekstrarhalli sem
þarf að vinna niður
Að sögn Úlfars mun að öllu
óbreyttu fækka enn frekar í lið-
inu á næsta ári. „Tveir menn í lið-
inu komast á aldur á næsta ári og að
öllu óbreyttu kem ég ekki til með
að ráða í þessar stöður. Þetta eru
dagmenn sem vinna fimm daga vik-
unnar, annar þeirra starfar á Akra-
nesi og hinn í Borgarnesi,“ segir
Úlfar. „Við tókum við 16,2 milljóna
halla þegar við hófum störf hérna
um áramótin. Það blasir við að við
eigum í erfiðleikum með að saxa
niður þann halla. Rekstur embætt-
isins er í járnum en ég vil sjá öfl-
ugri löggæslu, helst vildi ég sjá lög-
reglumönnum fjölga um átta,“ út-
skýrir Úlfar. Hann segir einungis
tvær leiðir færar í sparnaði. „Það er
annað hvort að fækka mönnum eða
að draga úr akstri lögreglubíla. En
þetta eru mínar skyldur, það set-
ur manni rammann. Ég hef ekki
heimild til að fara fram úr fjárheim-
ildum en það þarf nauðsynlegt fjár-
magn til að reka lögreglulið sóma-
samlega.“
grþ
Fyrrverandi fíkniefnaleitarhundurinn
Nökkvi ásamt Laufeyju Gísladóttur
þjálfara og umsjónarmanni.
Ljósm. Lögreglan á Vesturlandi.
Niðurskurður framundan hjá Lögreglunni á Vesturlandi
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri segir einungis tvær leiðir færar í sparnaði hjá lög-
reglunni; að fækka mönnum eða draga úr akstri lögreglubíla.
Hjá KM þjónustunni starfa átta manns og Karl og Steinunn höfðu orð á því hve heppin þau eru með starfsfólk. F.v. í aftari röð: Kristinn, Vilhjálmur, Þuríður, Ágúst. Fremri
röð: Steinunn, Karl, Hjörtur ásamt dóttur, Brynjólfur. Ljósm. Steinunn Matthíasdóttir.
KM þjónustan sinnir sífellt fleiri ferðamönnum
Karl Ingi Karlsson á verkstæðinu í Búðardal.