Skessuhorn - 21.10.2015, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2015 29
Alþjóðlega stuttmyndahátíðin
Northern Wave fór fram í Grund-
arfirði um liðna helgi. Hátíðin hófst
með tveggja daga vinnusmiðju á
vegum Wift Nordic á fimmtudeg-
inum og er þetta í fyrsta sinn sem
hátíðin hefst með slíkri vinnu-
smiðju. Að sögn Daggar Móses-
dóttur stjórnanda Northern Wave
er stefnt á að vinnusmiðjur fyr-
ir kvikmyndagerðarfólk verði fast-
ur hluti af hátíðinni héðan í frá.
Sem fyrr mætti margt fólk á svæð-
ið til að njóta fjölda stuttmynda og
tónlistarmyndbanda sem sýndar
voru en alls voru tæplega 50 stutt-
myndir valdar til sýningar. „Veðrið
lék þó ekki við hátíðargesti í sunn-
anáttinni en þrátt fyrir það var há-
tíðin vel sótt af heimamönnum, að-
komufólki og erlendum gestum.
Aldrei hafa fleiri erlendir aðilar
starfað við hátíðina, eða 15 manns
frá tólf löndum,“ segir Dögg.
Í tengslum við hátíðina fór fram
hin árlega fiskiréttakeppni á laug-
ardagskvöldinu. Hljómsveitin Just
another Snake Cult spilaði þar fyr-
ir gesti og listamaðurinn Frímann
Kjerúlf lék á ljósleiðarahljóðfæri í
takt við tónlistina. Úr varð magnað
sjónarspil sem minnti helst á norð-
urljósasýningu innanhúss. Lands-
liðskokkurinn Hrefna Rósa Sætr-
an og Jon Favio Munoz yfirkokkur
Hótel Búða dæmdu besta fiskrétt-
inn þar sem Aðalsteinn Þorvalds-
son sóknarprestur á Grundarfirði
bar sigur úr býtum en hann hef-
ur áður unnið keppnina með fiski-
súpu.
Í lok hátíðarinnar á sunnudag-
inn voru veitt verðlaun. Í flokki al-
þjóðlegra stuttmynda fékk króat-
íska stuttmyndin The Chicken eftir
Unu Gunjak fyrstu verðlaun. Þú og
ég eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur
fékk fyrstu verðlaun í flokki íslenskra
stuttmynda og Dim the lights með
Creep ásamt Sia#EmbraceYourself
eftir Kitty Von-Somtime var valið
besta tónlistarmyndbandið. Verð-
launagripir Northern Wave voru
gerðir úr hrauni og leðri og hann-
aðir af grundfirska listamanninum
Lavaland.
grþ / Ljósm. sk.
Freisting vikunnar
Fiskréttakeppnin mikla fór fram í
Grundarfirði um síðastliðna helgi
í tengslum við kvikmyndahátíð-
ina Northern Wave og menning-
arhátíðina Rökkurdaga sem haldn-
ir voru í Grundarfirði í síðustu
viku. Fjöldi fólks lagði leið sína í
fiskiveisluna, þar sem Grundfirð-
ingar kepptu um besta fiskrétt-
inn úr grundfirsku hráefni. Lands-
liðskokkurinn Hrefna Rósa Sætr-
an og Jon Favio Munoz yfirkokk-
ur á Hótel Búðum voru dómarar í
keppninni og völdu þau fiskisúpu
hjónanna Aðalsteins Þorvaldsson-
ar og Línu Hrannar Þorkelsdóttur
sem besta fiskréttinn í ár. Hjónin
voru tilbúin að deila uppskriftinni
góðu með lesendum Skessuhorns
og við gefum þeim orðið.
Fiskisúpa (fyrir 10-12 manns)
1 púrrulaukur
3 vorlaukar
1 laukur
350 gr. gulrætur
15 hvítlauksgeirar
2 rauðir chili-piprar
2 rauðar paprikur
Sólblómaolía
3 dósir tómatar (400 ml)
4 msk. fersk basilíka
600 ml. vatn
1 st. grænmetisteningur
2 st. fiskiteningur
1 líter matreiðslurjómi
2 st. piparostur
2 st. rjómasmurostur (125 gr. askja)
með kryddblöndu.
3-4 dl. hvítvín (sætt)
4 msk. púrtvín
1 dós kurlaður ananas (ásamt safa)
1 tsk. cayanne pipar
2 tsk. papriku duft
salt eftir smekk
1 kg þorskur
1 kg rækjur
Aðferð:
Allur laukur, gulrætur, hvítlauk-
ur, chili og paprika smátt skor-
ið og mýkt í potti í sólblómaolíu.
Piparostur skorinn smátt og látinn
bráðna í hálfum líter af matreiðslu-
rjóma í litlum potti. Vatni og ten-
ingum, tómötum (maukaðir með
töfrasprota), bráðnum piparosti og
öllu matreiðslurjóma bætt við. Látið
suðu koma upp. Bætið við rjómaosti,
hvítvíni, púrtvíni, kurluðum ananas,
smátt skorinni basilíku, ásamt öðru
kryddi. Látið malla í 20-25 mínútur.
Þorskur skorinn í munnbita og lát-
inn malla í 4 mínútur, pottur tekinn
af hellu, bætið við rækju, lokið yfir
og látið bíða 5-8 mínútur.
Súpugrunnurinn má gjarnan standa
og kólna. Okkar súpa fékk að standa
í um tvo tíma, kólna og var hituð
upp aftur og fiskmeti bætt við áður
en hún var framreidd á hátíðinni.
Verði ykkur að góðu!
Höfundar:
Lína Hrönn Þorkelsdóttir, yfirkokkur.
Aðalsteinn Þorvaldsson, yfirbrytjari.
Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir, yfir-
smakkari.
Besti fiskréttur Grundarfjarðar
Góð fiskisúpa yljar vel þegar veturinn nálgast.
Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir yfirsmakkari súpunnar ásamt föður sínum, Aðal-
steini Þorvaldssyni yfirbrytjara.
Kvikmyndahátíðin Northern Wave vel sótt af heimamönnum og öðrum
Háir jafnt sem lágir gæddu sér á gómsætum fiskréttum á laugardagskvöldið. Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri Grundarfjarðar færði Dögg Mósesdóttur blómvönd
í tilefni opnunar Northern Wave.
Dögg Mósesdóttir stjórnandi hátíðarinnar, Iris Brey dómnefndarmeðlimur frá
Semaine de la critic í Cannes, Ása Helga Hjörleifsdóttir leikstjóri „Þú og ég“ og Ísold
Uggadóttir meðlimur dómnefndar. Á myndina vantar Baldvin Z. sem einnig var í
dómnefnd.
Leikið fyrir gesti á fiskréttakeppninni miklu.
Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson var sigurvegari fiskréttakeppninnar í ár ásamt fjölskyldu
sinni.