Skessuhorn - 21.10.2015, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 20156
Útvarp
Akraness
AKRANES: „Fyrstu helgina
í aðventu, dagana 27. til 29.
nóvember, verður hið árlega
Útvarp Akraness í loftinu fyrir
Akurnesinga og nærsveitunga.
Dagskráin verður fjölbreytt
að venju en með Útvarpi
Akraness hefst undirbúning-
ur jólanna af fullum krafti
hjá mörgum Skagamönnum.
Útvarpsnefndin hefur hafið
störf við skipulagningu dag-
skrárinnar. Ef einhverjir vilja
hafa þátt þá hafi samband við
Sundfélag Akraness á net-
fangið sundfelag@sundfelag.
is,“ segir í tilkynningu frá SA:
„Spurningakeppni fyrirtækja
og stofnana sló í gegn í fyrra
og verður að sjálfsögðu aft-
ur á dagskrá. Þeir sem vilja
taka þátt í spurningarþætti út-
varpsins láti sömuleiðis vita á
ofangreint netfang.“
-mm
Frekar róleg
vika hjá lögreglu
VESTURLAND: Vikan sem
leið var að sögn Theódórs
Þórðarsonar fremur róleg hjá
lögreglunni á Vesturlandi.
Aðeins urðu tvö umferðaró-
höpp í umdæminu í vikunni
og enginn var tekinn fyrir ölv-
un við akstur eða akstur undir
áhrifum fíkniefna. Útafakstur
og bílvelta varð í strekkings-
vindi og ísingu á Vestfjarða-
vegi við Breiðabólsstað í Döl-
um. Ökumaðurinn, sem var
einn í bílnum, hlaut minni-
háttar ákverka sem gert var að
á heilsugæslustöðinni í Búðar-
dal. Bíllinn er talinn ónýtur.
-mm
Áfram í
gæsluvarðhaldi
AKRANES: Hæstirétt-
ur staðfesti á mánudag-
inn gæsluvarðhaldsúrskurð
Héraðsdóms Vesturlands
yfir karlmanni sem grunað-
ur er um morð á Akranesi í
byrjun þessa mánaðar. Skal
maðurinn sitja í gæsluvarð-
haldi til 11. nóvember 2015.
Í dómnum kemur fram að
hinn ákærði hefur játað við
skýrslugjöf hjá lögreglu að
hafa sett hendur um háls
brotaþola og hert að. Einn-
ig hefur hann játað að hafa
sett reim um háls mannsins
og hert að. Sá sem fyrir árás-
inni varð lést fimm dögum
síðar en hann komst aldrei til
meðvitundar eftir árásina.
-mm
Hlutfallslega
fáir að gera sín
fyrstu kaup
VESTURLAND: Þjóðskrá
Íslands hefur tekið saman
upplýsingar um fjölda þing-
lýstra kaupsamninga á lands-
vísu þar sem kaupendur hafa
fengið afslátt af stimpilgjöld-
um vegna fyrstu kaupa á hús-
næði. Rannsókn á því hvort
um fyrstu kaup var að ræða
fór fram við móttöku skjala
til þinglýsingar hjá sýslu-
mönnum. Á þriðja ársfjórð-
ungi þessa árs voru 152 söl-
ur fasteigna á Vesturlandi. Af
þeim voru 24 kaup einstak-
linga sem voru að kaupa hús-
næði í fyrsta skipti, eða 16%
heildarviðskiptanna. Athygli
vekur að þetta er langlægsta
hlutfallið á landsvísu. Á Suð-
urnesjum er hlutfall fyrstu
kaupa viðskipta 30%, en á
höfuðborgarsvæðinu 22%. Í
öðrum landshlutum er hlut-
fallið 20-27%.
-mm
Ritun tefst en
útgáfa á áætlun
BORGARNES: Í síðasta
Skessuhorni var rætt stutt-
lega við Heiðar Lind Hans-
son sagnfræðing sem nú er
á lokametrunum við ritun
á Sögu Borgarness. Heið-
ar Lind vill koma á fram-
færi leiðréttingu sem byggir
á misskilningi milli hans og
blaðamanns. „Það er ekki rétt
eftir haft varðandi skil hand-
rits í árslok. Í fréttinni seg-
ir: „...eins og staðan er í dag
bendi ekkert til annars en að
þær áætlanir standist.“ Hið
rétta er að ég hef greint rit-
nefnd og sveitarstjórn frá því
að ég þurfi nokkra mánuði
til viðbótar eftir áramót til
að ljúka við handritið, vinnu
við myndaöflun og annað til-
heyrandi fyrir prentun. Hitt
er hins vegar rétt haft eftir,
að miðað við stöðuna í dag
er ekkert annað sem bend-
ir til þess en að upphaflegar
áætlanir um útgáfu verksins
á 150 ára afmæli Borgarness
árið 2017 standist.“ Þetta
leiðréttist hér með og beðist
afsökunar.
–mm
Talsvert mikið er umleikis í starfi
Björgunarfélags Akraness, nýlið-
ar í þjálfun og öflugt starf í gangi.
Unnið er við að gera sjóklárt nýtt
björgunarskip, sem keypt var not-
að frá Bretlandi á síðasta ári. Það
verkefni er stórt og umfangsmikið
fyrir ekki stærri björgunarsveit. Nú
styttist í að hægt verði að sjósetja
nýja skipið og er það heppilegt í
ljósi þess að óhapp varð nýverið um
borð í gamla björgunarbáti félags-
ins og er hann ósjófær. „Við urð-
um fyrir óhappi og er gamli bátur-
inn, Margét Guðbrandsdóttir, tals-
vert skemmdur. Tryggingafélag
okkar er að meta hvort gert verð-
ur við bátinn eða ekki. Þetta óhapp
varð skömmu eftir sjósetningu í
höfninni á Akranesi fyrr í þessum
mánuði. Við vorum að fara á milli
bryggja, vorum að sækja nýliða og
ætluðum með þá í sjóferð. Svo virð-
ist sem bensíngufa hafi myndast í
holrúmi í botni bátsins, neisti kom-
ist að og úr varð talsverð sprenging.
Sem betur fer voru bara tveir okkar
manna um borð og sakaði þá ekki.
Ómögulegt er hins vegar að segja
hvað hefði getað gerst ef spreng-
ingin hefði orðið úti á sjó og fleiri
verið um borð,“ segir Gísli Þráins-
son varaformaður Björgunarfélags-
ins í samtali við Skessuhorn.
Gísli segir að standsetning nýja
björgunarskipsins taki mestan þann
tíma sem félagar hafa aflögu, auk
æfinga og útkalla. Nýverið bárust
fréttir af því að Björgunarfélagið
hafi selt HB Granda lóðir sem fé-
lagið átti á Breiðinni á Akranesi.
„HB Grandi keypti bæði húseignir
og nokkrar lóðir í þessum viðskipt-
um. Við vorum ekki að selja nein
hús og því er okkar hlutur úr þess-
um viðskiptum HB Granda einung-
is lítið hlutfall af heildarkaupverð-
inu. Þetta voru lóðir sem við feng-
um þegar minningarsjóði hjónanna
frá Sýruparti var slitið og komu þær
þá í okkar hlut og slysavarnadeild-
arinnar Lífar. Vissulega léttir þessi
lóðasala á fjárhag félagsins, en það
er öðru nær að við náum að greiða
upp allar skuldir. Einungis kaupin
á nýja björgunarskipinu eru kostn-
aðarsamari en andvirði lóðasölunn-
ar. Salan hjálpar hinsvegar félaginu
fjárhagslega og erum við þakklát
fyrir það. Áfram munum við því
verða að stunda okkar fjáraflan-
ir eins og verið hefur til að standa
straum af kostnaði við rekstur öfl-
ugs björgunarfélags,“ segir Gísli.
mm
Gísli Þráinsson varaformaður Björg-
unarfélags Akraness.
Standsetning nýs björgunarskips stærsta
verkefni Björgunarfélags Akraness
Hluti úr krossviðsbotni björgunarbátsins sprakk í óhappinu sem sagt er frá í frétt-
inni.
Þeir eru stórhuga bændurnir á Mýrum og Hálsi rétt vest-
an við Grundarfjörð en þar er nýbúið að fjárfesta í fjórum
geitum. Geiturnar voru keyptar frá Fjallalækjarseli í Þistil-
firði. Þetta eru einn hafur og þrjár huðnur en bændurnir eiga
geitastofninn saman. Þær voru hressar þær Anna Júlía Skúla-
dóttir frá Mýrum og Þórunn Kristinsdóttir frá Hálsi þegar
ljósmyndari Skessuhorns leit við hjá þeim. Þær stöllur full-
yrða að þetta séu fyrstu geiturnar í Eyrarsveit og Grundar-
firði frá upphafi byggðar í þeirri ágætu sveit. tfk
Hefja geitarækt
í Grundarfirði