Skessuhorn - 21.10.2015, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2015 11
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Við leitum að metnaðarfullum leiðtoga í nýtt starf forstöðumanns menningar- og safnamála á Akranesi. Við erum
fyrst og fremst að leita eftir kraftmiklum einstaklingi sem hefur mikinn metnað og hefur sýnt árangur í starfi.
Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa til starfa. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í
vaxandi bæjarfélagi. Leitað er að öflugum einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi.
Upplýsingar veitir:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf þar
sem umsækjandi gerir grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningi
fyrir hæfni í starfið.
Umsóknarfrestur er til og
með 9. nóvember nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Forstöðumaður menningar- og safnamála á Akranesi
Byggingarfulltrúi á Akranesi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun
á sviði stjórnunar æskileg
• Stjórnunarreynsla, þ.m.t. reynsla af stefnumótun og
breytingastjórnun
• Mikil samskipta- og samstarfshæfni
• Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
• Góð þekking og reynsla af fjárhagsáætlunargerð
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv.
25. gr. mannvirkjalaga nr.160/2010
• Æskilegt er að viðkomandi sé með réttindi í skipulagsmálum
sbr. 7. gr. skipulagslaga nr.123/2010
• Æskilegt er að viðkomandi hafi góða þekkingu og reynslu á
sviði byggingarmála
• Góð tölvukunnátta, sérstaklega í Microstation eða AutoCAD
• Mikil samskipta- og samstarfshæfni ásamt frumkvæði og
öguðum vinnubrögðum í starfi
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Fagleg forysta í menningar- og safnamálum
• Yfirstjórn stofnana sem tilheyra málaflokknum
• Markaðs- og kynningarstarf menningar- og safnamála
• Yfirumsjón með gerð starfs- og fjárhagsáætlunar
• Yfirumsjón með viðburðum og hátíðarhöldum
• Undirbúningur funda menningar- og safnanefndar og eftirfylgni
Helstu verkefni:
• Byggingareftirlit og umsjón með byggingarmálum bæjarins
• Ráðgjöf er varðar byggingarmál ásamt móttöku og afgreiðslu
á byggingarleyfisumsóknum
• Framkvæmd úttekta og útgáfa leyfa ásamt staðfestingu
eignaskiptayfirlýsinga
• Samskipti við hagsmunaaðila
• Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af sviðsstjóra
skipulags- og umhverfissviðs, þá helst verkefni er lúta að
skipulagsmálum
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
SPEGLAR SKORNIR AÐ
ÞÍNUM ÓSKUM
LED LÝSING - SANDBLÁSUM
ispan@ispan.is • ispan.is
30%
afsláttur af speglum
Bílaréttingar - Bílasprautun
Framrúðuskipti - Bílaleiga - Tjónaskoðun
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Þjónustum öll tryggingafélög
KPMG býður á næstu dögum upp
á námskeið í Borgarnesi, á Akra-
nesi og í Stykkishólmi um virðis-
aukaskatt í ferðaþjónustu. „Ef þú
ert með fyrirtæki í ferðaþjónustu
þá ert þú að fara í vaskinn strax í
janúar 2016,“ segir í tilkynningu.
„Við ætlum að kynna þér virðis-
aukaskattsumhverfið þar sem kafað
verður ofan í helstu reglur um virð-
isaukaskatt. Gerð verður grein fyr-
ir breytingum sem gera þarf til að
uppfylla lagaskilyrði og þeim áhrif-
um sem þær munu hafa á fyrirtæki í
ferðaþjónustu. Farið verður yfir at-
riði eins og: Hvaða þjónusta verður
virðisaukaskattsskyld, hvernig ber
að haga uppbyggingu og skipulagi
bókhalds í virðisaukaskatti, heim-
ildir til nýtingar innskatts af rekstr-
arkostnaði; hvaða rekstrarkostn-
að er heimilt að innskatta og hvaða
ekki, reglur um mögulegar endur-
greiðslur virðisaukaskatts vegna
fjárfestinga fyrir 1. janúar 2016 og
kröfur um form og innihald útgef-
inna reikninga og hvernig ber að
gera grein fyrir sölu á þjónustu í
mismunandi virðisaukaskattsþrep-
um á útgefnum reikningum. Kenn-
arar eru þaulreyndir sérfræðingar í
virðisaukaskatti.
Í Borgarnesi verður námskeið-
ið haldið í Símenntunarmiðstöð
Vesturlands í dag, miðvikudag frá
kl. 14-17. Á Akranesi verður nám-
skeiðið haldið í Símenntunarmið-
stöðinni Suðurgötu 57 föstudaginn
16. október frá kl. 9-12 og í Stykk-
ishólmi verður námskeiðið hald-
ið á Hótel Fransiskus miðvikudag-
inn 21. október frá kl. 13-16. Nám-
skeiðið eru öllum opið og nám-
skeiðsgjald er 12.500 kr.
mm
Fyrirtæki í ferðaþjónustu
eru að fara í vaskinn
Laugardaginn 14. nóvember
næstkomandi heldur Ungmenna-
félag Reykdæla sinn árlega Gleði-
fund í Logalandi. Að þessu sinni
verða rifjaðir upp harmonikku-
dansleikir fortíðar með dyggri að-
stoð Gunnars Kvaran og HGH
tríós. Húsið verður opnað klukk-
an 20:00 og hefst borðhald hálf-
tíma síðar, en boðið verður upp
á kalt veisluborð og stórkost-
leg skemmtiatriði að hætti Reyk-
dæla, segir í tilkynningu. „Nú er
því kjörið tækifæri að draga fram
vasapelann og dansskóna og rifja
upp danssporin. Miðinn kost-
ar litlar 5.000 krónur og tekið er
við pöntunum í síma 899-4468
(Kristleifur) og í tölvupósti tota@
vesturland.is“
mm
Harmonikkudansleikur fortíðar
þema Gleðifundar