Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2016 9
Skógræktarfélag Akraness hefur sótt
um stækkun skógræktarsvæðisins í
Slögu við Akrafjall síðan árið 2009,
en hægt hefur miðað að fá svör við
þeirri málaleitan. Jens B Baldursson
formaður félagsins segir að svæðið
heyri undir Hvalfjarðarsveit þó það
sé í eigu Akraneskaupstaðar. „Því
þarf að sækja um breytingu á skipu-
lagi til fyrrnefnda sveitarfélagsins.
Við höfum fundið fyrir velvilja hjá
báðum sveitarfélögunum en nú hef-
ur komið óvænt bakslag. Sauðfjár-
bóndi sem á land að skógræktar-
svæðunum hefur gert athugasemd-
ir við landamörkin þarna en Akra-
neskaupstaður keypti þetta land af
Ósi árið 1929. Fyrir venjulegt fólk
er óskiljanlegt að nú fyrst sé gerð-
ur ágreiningur um þetta en úr þessu
verður að greiða áður en við getum
hafið skógrækt þarna,“ skrifar Jens
í grein sem birtist í síðasta Skessu-
horni.
Jens segir jafnframt í grein sinni:
„Sauðkindin tekur því ansi mikinn
tíma og orku frá okkur skógrækt-
arfólki. Þras um landamörk bæt-
ist við eltingarleik við rollur sem
herja á okkar skógræktarsvæði mest-
allt sumarið. Við þurfum að eyða
næstum því eins miklum tíma í ves-
en sem tengist sauðkindinni eins
og í skógræktina sjálfa. Því miður
er ekkert bann við lausagöngu bú-
fjár og því getur sauðkindin étið all-
an nýgræðing okkar. Það er vanda-
mál okkar skógræktarfólks (og bæj-
arfélagsins) að girða skógræktina af,
sauðfjárbóndinn þarf ekki að hafa
fyrir neinu. Kannski ættum við að
fá veglegan ríkisstuðning við okk-
ar skógrækt eins og bændur við sinn
sauðfjárbúskap? Við hefum ekkert á
móti því að bæta aðstöðu almenn-
ings í skógræktinni með lagningu
stíga og umhirðu þeirra og stuðning
við að koma upp annarri aðstöðu
eins og bekkjum og íþróttaáhöldum.
Slíkar framkvæmdir myndu fegra
umhverfið, bæta útivistaraðstöðu
fólks (göngu- og hjólreiðastígar) og
kannski draga að ferðamenn,“ skrif-
ar Jens B Baldursson. mm
Verja svipuðum tíma í skógræktarstörf og rollurag
Kindur í skógræktinni við Slögu.
Útsjónarsöm kind fer yfir rimlahlið eins og ekkert sé.
•
•
• •
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Björk Jóhannsdóttir fékk rós vik-
unnar í Vetrar-kærleik Blómaset-
ursins – Kaffi kyrrðar í Borgarnesi.
Rósina fékk hún fyrir, eins og seg-
ir í tilnefningunni: „Góðmennsku,
hjálpsemi og fyrir að vera fylgin sér
í orði og verki og einblína á björtu
hliðarnar.“ mm
Björk er rósahafi vikunnar
Stjórnarkjör 2016
Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa
allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þetta ár ber að
kjósa í stjórn sem hér segir:
Til 2ja ára: varaformann, vararitara og 2. meðstjórnanda.
Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands árið
2016, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber
að skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands, Sæunnargötu
2a, Borgarnesi, beint til formanns kjörstjórnar, Guðrúnar Helgu
Andrésdóttur, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 22. mars. 2016.
Hvert það framboð er gilt sem fram kemur innan þess tíma og
hefur skriflegt samþykki þeirra sem framboðslistann skipa.
Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að leggja fram
eftirfarandi lista vegna stjórnarkjörs 2016 - komi ekki fram fleiri
listar teljast þeir sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir:
Varaform.: Sigrún Reynisdóttir, Kveldúlfsgötu 20,
310 Borgarnesi, til 2ja ára
Vararitari: Kristján Jóhannsson, Gunnarsbraut 5,
370 Búðardal, til 2ja ára
2. meðstj.: Eiríkur Þór Theódórsson,
Skúlagötu 9 a, 310 Borgarnesi, til 2ja ára
Borgarnesi, 3. mars 2016
Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands