Skessuhorn - 09.03.2016, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 201610
Nýverð kom hingað til lands Gil-
les Chen, franskur mastersnemi við
Paris-Saclay háskólann. Hann mun
á næstunni starfa á Rannsóknasetri
HÍ í Stykkishólmi. Gilles fékk nú í
febrúar styrk frá háskóla sínum til
ferðarinnar hingað til lands og mun
starfa með þeim Jóni Einari og Árna
út ágúst. Að sögn Jóns Einars er Gil-
les nemi í fagi sem kalla má á íslensku
mannfræðilega vistfræði, þ.e. hann
safnar þekkingu á náttúrufari með
aðferðum mannfræði. Hann mun
skrá og greina hefðbundna þekk-
ingu æðarbænda á náttúru, umhverfi
og staðháttum, svo nýta megi hana í
vistfræðirannsóknir eða í nemenda-
verkefni. „Á síðustu árum hefur orð-
ið vakning innan félagsvísinda til að
skrá staðbundna, vistfræðilega þekk-
ingu til að búa til vistfræðileg gögn.
Viðtöl við æðarbændur munu skrá
þekkingu þeirra, upplifanir og að-
ferðir,“ segir Jón Einar. mm
Skráir þekkingu á náttúrufari
með aðferðum mannfræði
Gilles verður með bækistöð í Rannsóknasetri HÍ í Stykkishólmi en hann heimsækir
æðarvörp víðar en við Breiðafjörð, svo sem á Norðurlandi og Vestfjörðum. Hann
dvaldi hér landi sumarið 2013 og vann við ýmis störf og hefur mikinn áhuga á
Íslandi.
Hönnun á nýju Amtsbókasafni í
Stykkishólmi er lokið. Byggingin
kemur til með að hýsa Amtsbókasafn-
ið, skólabókasafnið og Ljósmynda-
safn Stykkishólms og verða söfnin
rekin í tengslum við grunnskólann.
Að sögn Sturlu Böðvarssonar bæjar-
stjóra í Stykkishólmi er um að ræða
550 fermetra byggingu sem sam-
byggð verður við grunnskólann að
vestanverðu og verður framkvæmdin
boðin út fljótlega. Áður hefur verið
gert ráð fyrir stækkun grunnskólans
að austanverðu en sá stækkunaráfangi
var fullhannaður árið 2010 en fram-
kvæmdinni þá frestað. Þar er fyrir-
huguð stækkun grunnskólans, hús-
næði fyrir tónlistarskólann og sam-
komusalur. Sá áfangi hefur ekki ver-
ið tímasettur.
„Hann er í end-
urskoðun að
teknu tilliti til
þess að skóla-
safnið er sam-
einað Amts-
bókasafninu í
fyrsta áfanga og
því verður síðari
áfanginn vænt-
anlega ekki svo
stór sem gert var ráð fyrir, sem var
1.546 fermetrar,“ segir Sturla.
Hönnun beggja áfanganna var í
höndum OG Arkitekta Reykjavík.
Að sögn Sturlu liggur kostnaður við
byggingu nýs Amtsbókasafns ekki
fyrir að svo stöddu en söluverð hús-
næðis Amtsbókasafnsins við Hafn-
argötu 7 mun ganga upp í kostnað
við byggingu þess nýja. „Það er ekki
endanlega búið að kostnaðarmeta
og verður ekki gefið upp því verk-
ið er í útboðsferli. En fermetraverð
slíkra bygginga er þekkt,“ segir Sturla
Böðvarsson. grþ
Hönnun lokið á nýju Amtsbókasafni
Teikning sem sýnir hvernig skólahúsið mun líta út með viðbyggingum.
Skólahúsið eins og það er í dag.
„Það eru vægast sagt ævintýraleg afla-
brögð síðustu daga hér,“ segir Þórð-
ur Björnsson hafnarvörður í Ólafsvík
í samtali við Skessuhorn undir lok
síðustu viku. Hann segir þetta eiga
við öll veiðarfæri. Dragnótarbátar
hafi mokfiskað og tekið aðeins fá höl.
Þórður nefnir sem dæmi að Svein-
björn Jakobsson SH hafi aðeins tekið
eitt hal og fengið sannkallað risahal
sem gaf um 40 tonn og voru skips-
verjar á reki í fimm tíma til þess að
hífa allan þennan afla um borð og
gera að honum. Steinunn SH var
með 51 tonn í þremur hölum og aðr-
ir dragnótarbátar hafa einnig mok-
fiskað. Þórður segir að frá áramót-
um hafi verið mun betra veður en á
sama tíma í fyrra og því hafi menn
róið meira og því aflabrögðin verið
eftir því.
Netabátar hafa einnig mokfisk-
að og hefur Bárður SH síðustu daga
tvílandað. Hafa skipverjar á Bárði
komið með allt að 32 tonn að landi.
Mest hefur Bárður landað 20 tonn-
um í einni löndun sem fengust í að-
eins tvær trossur. Línubátar hafa
einnig verið með góðan afla, segir
Þórður og bætir við að meðalþyngd
á þorskinum sé þetta 10-12 kíló. Nú
séu bátar farnir að hægja á sér vegna
versnandi kvótastöðu og lægra fisk-
verðs á mörkuðum.
Óskar Meldal sölustjóri hjá Fisk-
markaði Íslands segir í samtali við
Skessuhorn að aflabrögð hafi verið
mjög góð og blíðuveður hafi verið
síðustu daga til sjósóknar. Þar af leið-
andi hafi verð á þorski lækkað og seg-
ir Óskar að verð á dragnótafiski hafi
lækkað um 13% síðustu tvær vikurn-
ar. Þá hafi verð á línufiski lækkað um
8% á sama tíma. „Það er vonandi
að botninum hafi verið náð,“ seg-
ir Óskar og bætir við að síðustu þrjá
daga hafi verið landað 290 tonnum í
Ólafsvík og Rifi hjá Fiskmarkaði Ís-
lands. af
Ævintýraleg aflabrögð báta í Snæfellsbæ
Pétur Pétursson skipstjóri á Bárði SH hefur mokfiskað að undanförnu.
Pétur Pétursson yngri er kampakátur þessa dagana.
Matthías SH kemur með 20 tonn að landi eftir eitt kast á miðunum.
Davíð Óli Axelsson vélstjóri a Esjari SH við löndum.Þráinn Egilsson stýrimaður á dragnótarbátnum Esjari SH frá Rifi.