Skessuhorn


Skessuhorn - 09.03.2016, Side 19

Skessuhorn - 09.03.2016, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2016 19 Breyting á deiliskipulagi Melahverfi 2. áfangi, Hvalfjarðarsveit Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti þann 9. febrúar 2016 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Melahverfis 2. áfanga frá 2010 samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér breytingu á fjölda íbúða í fjölbýlishúsum sem hafa heitið F1, F2, F3 og F4. Forsenda breytingar er að auka sveigjanleika hvað varðar íbúðafjölda fjölbýlishúsa. Skilmálabreytingin felst í því að texta og hluta töflu 1 í greinargerð er breytt. Tillaga liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3. Tillöguna má einni sjá á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hvalfjardarsveit.is frá 7. mars til og með 29. apríl 2016. Athugasemdir við tillögu breytingar deiliskipulags skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 29. apríl 2016 á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is. Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar SK ES SU H O R N 2 01 6 Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness Páskaúthlutun félagsins fer fram mánudaginn 21. mars frá klukkan 13-17 í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25a, en mæðrastyrksnefnd er með aðstöðu þar núna. Tekið er á móti umsóknum í símum 859-3000 (María) og 859-3200 (Svanborg) alla virka daga til og með 16. mars á milli klukkan 11 og 13. Þeir sem skiluðu inn gögnum fyrir jól þurfa ekki að skila inn aftur núna. Það þurfa allir umsækjendur að koma og fylla út skriflega umsókn fimmtudaginn 17. mars á milli klukkan 16 og 18. Vinsamlegast sækið um á auglýstum tíma. Mæðrastyrksnefnd Akraness SK ES SU H O R N 2 01 6 Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is MEÐ ALLT Á HREINU NÝ LÍNA FRÁ ELECTROLUX Þriðjudaginn 22. mars flytur Kór Akraneskirkju St John Passion (Jó- hannesarpassíu) eftir enska kór- tónskáldið Bob Chilcott. Tón- verkið hefur ekki verið flutt áður á Íslandi og er því um stóran við- burð að ræða. Bob Chilcott byrj- aði sinn feril sem atvinnusöngv- ari og um tólf ára skeið söng hann með hinum heimsfræga söng- hópi, King’s Singers. Undanfar- in ár hefur hann unnið með kór- um og sönghópum og samið fjölda kórverka. St John Passion samdi hann árið 2013 og er textinn tekin beint upp úr Jóhannesarguðspjalli og fjallar um handtöku og kross- festingu Jesú Krists. Sagan er sögð af guðspjallamanni sem sunginn er af tenór og hlutverk Jesú og Píl- atusar eru sungin af barítónum. Inn í verkið fléttar hann glæsileg- um kórköflum þar sem sungnir eru sálmar og ljóð sem tengjast þess- um dramatísku atburðum. Tónleikarnir verða haldnir á Kalmansvöllum á Akranesi en þar hefur Kór Akraneskirkju hald- ið marga tónleika á undanförnum árum. Íslenskum texta og myndum verður varpað á tjald svo tónleika- gestir geta fylgst vel með. Sjónræn upplifun verður samhliða tónlist- inni. Þetta er gríðarlega áhrifamik- ið mikið verk og er farið að njóta mikilla vinsælda um allan heim. Vel samið fyrir kór og einsöngv- ara. Gissur Páll Gissurarson tenór syngur hlutverk guðspjallamanns- ins, Hafsteinn Þórólfsson túlkar Jesú og Örn Arnarson syngur hlut- verk Pílatusar. Auk þeirra syngur Elfa Margrét Ingvadóttir tvær fal- legar sópran aríur ásamt kórnum. Aðalheiður Þorsteinsdóttir leik- ur á orgel og aðrir hljóðfæraleik- arar eru þau Örnólfur Kristjánsson sellóleikari, Elín Björk Jónasdóttir lágfiðluleikari og trompetleikarar verða þeir Vilhjálmur Ingi Sigurð- arson og Steinar Matthías Krist- jánsson. Stjórnandi er Sveinn Arn- ar Sæmundsson. Forsala aðgöngumiða hefst í versluninni Bjargi við Stillholt, föstudaginn 11. mars. -fréttatilkynning Stórtónleikar í Dymbilviku á Akranesi Háskóladagurinn var með kynningu í Fjölbrautaskóla Vesturlands og Fjöl- brautaskóla Snæfellinga í gær, þriðju- dag. Allir háskólar landsins kynntu þar námsleiðir sínar, sem eru yfir 500 talsins, og náms- og starfsráðgjafar mættu til að ræða við væntanlega há- skólanema. Kynningin var prýðlega sótt í báðum skólunum. mm Háskólalestin brunaði um Vesturland Svipmynd frá kynningunni í FVA. Ljósm. arg. Rætt var við gesti í FSN síðdegis. Ljósm. tfk. Blessað barnalán Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson Allar sýningar hefjast kl. 20:30 Fimmtudagur .................... 10. mars, frumsýning Föstudagur ....................... 11. mars, 2. sýning Laugardagur ..................... 12. mars, 3. sýning Miðvikudagur .................... 16. mars, 4. sýning Föstudagur ....................... 18. mars, 5. sýning Laugardagur ..................... 19. mars, 6. sýning Miðaverð er 2.500 kr. SK ES SU H O R N 2 01 6

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.