Skessuhorn - 09.03.2016, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Vélsmiðja BA
Nýsmíði • Vélaviðgerðir
Breytingar • Viðhald
Vélsmiðja BA • Sólbakka 25 • Borgarnesi • bhk@vortex.is
Björn Kristjánsson 894 – 3336
Arnar Björnsson 849 – 9341
Nú ganga páskarnir senn í garð
með öllu „súkkulaði brjálæðinu“
sem heltekur Íslendinga ár hvert.
Verslanir fyllast af vel innpökkuð-
um eggjum sem standa upp á end-
ann á fæti með fagurskreyttum,
loðnum unga úr gerviefni ofan á.
En það má vel líta framhjá þeim
og búa til egg heima, úr uppáhalds
súkkulaðinu - fyllt með eftirlætis
sælgætinu. Fjölskyldan getur sam-
einast um eggjagerðina en svo má
koma á óvart með heimatilbún-
um eggjum með frumlegum máls-
háttum, góðu sælgæti eða jafn-
vel litlum gjöfum. Sköpunargleð-
in fær að njóta sín. Allt sem þarf
er hugmyndagleðin, súkkulaði og
þar til gerð páskaeggjaform sem
fást víða, til að mynda í verslun-
inni Allt í köku og víðar.
Páskaeggjagerð
1. Bræddu súkkulaðið yfir vatns-
baði. Kælið örlítið.
2. Helltu súkkulaðinu í formið
og snúðu því þannig að súkkulað-
ið leki vel yfir allt formið. Þegar
ein umferð er komin skaltu kæla
formið inni í ísskáp. Mikilvægt er
að skafa súkkulaði af brúnunum
með hníf eða spaða í hvert sinn
sem formin fara í ísskáp.
3. Endurtaktu leikinn þrisvar til
fimm sinnum. Athugið að betra er
að hafa súkkulaðið vel þunnt svo
það leki vel og myndi síður kekki.
Gott er að setja súkkulaði bara á
kantana í síðustu umferðinni þann-
ig að eggið verði örugglega nógu
þykkt á köntunum.
4. Látið súkkulaðieggið harðna vel
í frysti. Losið um eggið með því að
klappa á það og slá aðeins í mótið,
þá ætti það að losna fljótt. Ef það
gengur illa, þá er gott að frysta þau
aðeins aftur og prófa aftur. Geym-
ið eggið áfram í forminu.
5. Fyllið eggið af sælgæti eða gjöf-
um. Sniðugt er til dæmis að lauma
bíómiða í eggið eða litlum smá-
hlutum sem vekja gleði. Ekki
gleyma málshættinum!
6. Smyrjið aðra brúnina með
súkkulaði rétt áður en þið eruð til-
búin að líma eggið saman. Smell-
ið báðum hliðum eggsins saman
og kælið í nokkrar mínútur. Tak-
ið út úr frysti og úr formunum. Þá
er súkkulaði smurt varlega á kant-
ana og eggin eru límd endanlega
saman.
7. Pakkið egginu inn í sellófan,
plast eða lítil box.
Freisting vikunnar
Heimagerð páskaegg
Um liðna helgi var Nettómótið
í körfuknattleik haldið í Reykja-
nesbæ. Þar öttu kappi drengir og
stúlkur 10 ára og yngri. Um 1200
krakkar tóku þátt í mótinu í ár í 248
liðum frá 26 körfuknattleiksfélög-
um. Vesturlandsfélögin sendu að
sjálfsögðu unga og efnilega körfu-
knattleiksmenn til keppni. Alls
voru 25 lið frá Vesturlandi því ÍA
og Skallagrímur sendu níu lið til
keppni hvort félag og Snæfell tefldi
fram sjö liðum. „Öll liðin stóðu
sig mjög vel, voru Vesturlandi til
sóma og gaman að sjá hversu mik-
ill fjöldi körfuboltakrakka fæddir á
árunum frá 2005-2009 eru að æfa
og spila körfubolta. Augljóst er að
körfuboltinn á Íslandi er í mikilli
sókn þessi misserin. Greinilegt er
að félögin okkar á Vesturlandi eru
að skila góðu starfi í yngri flokk-
unum. Framtíðin er björt í körf-
unni og verður spennandi að fylgj-
ast með þessum leikmönnum fram-
tíðarinnar á komandi árum,“ segir
í tilkynningu frá Körfuknattleiks-
félagi Akraness.
kgk/ Ljósm. jho.
Um helgina fór Íslandsmót ung-
linga í keilu fram í keilusalnum í
Egilshöll. Þar kepptu 44 spilarar úr
öllum keilufélögum landsins í 1.-5.
flokki pilta og stúlkna. Auk þess var
keppt í opnum flokki. Keiluspilar-
ar frá ÍA tóku þátt í mótinu og þrír
þeirra hömpuðu Íslandsmeistara-
titlinum. Jóhanna Guðjónsdótt-
ir varð tvöfaldur Íslandsmeistari, í
1. flokki stúlkna og opnum flokki
stúlkna. Gunnar Ingi Guðjónsson
sigraði í 1. flokki pilta og Róbert
Leó Gíslason varð Íslandsmeistari
í 5. flokki pilta.
Bronsverðlaun hlutu Jóhann
Ársæll Atlason í 2. flokki og opn-
um flokki pilta, María Ragnhild-
ur Ragnarsdóttir í 2. flokki stúlkna,
Hlynur Atlason í 4. flokki pilta,
Harpa Ósk Svansdóttir í 4. flokki
stúlkna og Ísak Freyr Konráðsson
í 5. flokki pilta.
kgk
Keiluspilarar ÍA gerðu það
gott á Íslandsmóti unglinga
Hluti keppenda sem fagnaði Íslandsmeistaratitlum unglinga í keilu um liðna
helgi. Gunnar Ingi Guðjónsson er annar frá hægri í aftari röð og Jóhanna Guð-
jónsdóttir er til hægri í fremri röð. Á myndina vantar Róbert Leó Gíslason.
Ljósm. KLÍ.
Efnilegir körfuknattleiksmenn
tóku þátt í Nettómótinu
Níu lið kepptu undir merkjum ÍA. Krakkarnir báru allir fána og voru áberandi á
setningarathöfninni.
Skallagrímur tefldi fram níu liðum á Nettómótinu.
Ungir og efnilegir krakkar úr Snæfelli
ganga inn á völlinn við setningu
mótsins. Snæfell sendi sjö lið til þátt-
töku.
Mótið hafið. Ungur körfuknattleiks-
maður úr ÍA rekur boltann.