Skessuhorn - 08.06.2016, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 20162
Margir Íslendingar hafa beðið spenntir eftir
Evrópumótinu í knattspyrnu sem fram fer í
Frakklandi í sumar. Mótið hefst föstudaginn
10. júní þegar gestgjafar Frakklands mæta
liði Rúmeníu í A-riðli mótsins. Íslending-
ar keppa síðan fyrsta leik sinn í mótinu við
Portúgali þriðjudaginn 14. júní.
Á morgun og föstudag er spáð austlægri átt
og dálítilli rigningu öðru hverju. Hiti 12 til 19
stig. Á laugardag er spáð norðaustlægri átt
og skýjað verður með köflum. Kólnar í veðri.
Á sunnudag á að verða austanátt, skýjað
með köflum og úrkomulítið. Hiti á bilinu 12
– 19 stig. Á mánudag er útlit fyrir austlæga
eða breytilega átt, skýjað að mestu og líkur
á skúrum. Hiti 8 – 16 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvaða forsetaframbjóðanda líst þér best
á?“ Guðni Th. Jóhannesson fékk 48% at-
kvæða, Davíð Oddson 25%, Halla Tómas-
dóttir 10%, Andri Snær Magnason 8%,
Sturla Jónsson 5%, en þau Ástþór Magnús-
son, Elísabet Jökulsdóttir, Guðrún Margrét
Pálsdóttir og Hildur Þórðardóttir fengu öll
1% hvert þeirra.
Í næstu viku er spurt:
Hversu langt kemst Ísland á EM karla?
Þeir fjölmörgu námsmenn sem hafa verið
að gera það gott að undanförnu eru Vest-
lendingar vikunnar. Í blaðinu þessa vik-
una er rætt við nokkra þeirra sem stóðu sig
mjög vel á liðnum árum.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Banaslys í
umferðinni
HVALFJ.GÖNG: Fullorð-
in kona lést og fjórir slösuðust í
hörðum árekstri fólksbíls og jeppa
í Hvalfjarðargöngum skömmu
fyrir klukkan 14 á sunnudaginn.
Konan sem lést hét Ingrún Ing-
ólfsdóttir, 67 ára hjúkrunarfræð-
ingur búsett í Hafnarfirði. Ingr-
ún lætur eftir sig eiginmann og
þrjú uppkomin börn. Mikill við-
búnaður var vegna slyssins, fjöldi
sjúkrabifreiða frá Reykjavík og
Akranesi var sendur á vettvang,
tækjabílar slökkviliðs, lögregla og
þyrla Landhelgisgæslunnar. Hval-
fjarðargöngum var lokað í kjöl-
farið næstu þrjá tíma og umferð
beint um þjóðveginn fyrir Hval-
fjörð. Þetta er alvarlegasta slysið
og fyrsta banaslysið í Hvalfjarð-
argöngum frá því þau voru opn-
uð 11. júlí 1998. Samkvæmt upp-
lýsingum sjónarvotta skullu fólks-
bifreiðin og jeppinn saman þegar
þeim síðarnefnda var ekið yfir á
rangan vegarhelming. Tveir voru
í jeppanum en þrír í fólksbílnum,
allt fullorðið fólk. Þeir sem slös-
uðust hafa allir verið útskrifaðir af
gjörgæsludeild. -mm
Skógræktin er
sameinuð ný
stofnun
LANDIÐ: Frumvarp um nýja
skógræktarstofnun var afgreitt á
Alþingi á fimmtudaginn með öll-
um greiddum atkvæðum þing-
manna. Með samþykkt laganna
renna saman í eina stofnun Skóg-
rækt ríkisins og landshlutaverk-
efni í skógrækt. Verkefnin eru
Vesturlandsskógar, Skjólskógar á
Vestfjörðum, Norðurlandsskóg-
ar, Héraðs- og Austurlandsskóg-
ar og Suðurlandsskógar ásamt
því að umsjón með Hekluskóg-
um flyst með inn í nýja stofnun
einnig. Kveðið er á um það í lög-
unum að hin nýja stofnun skuli
heita Skógræktin. Á næstu vikum
verður unnið að því að hanna út-
lit nýrrar stofnunar með vefsíðu,
nýju merki og þess háttar. Fljót-
lega verður skipurit stofnunarinn-
ar kynnt ráðherra ásamt stefnu-
skjölum og markmiðum. Einn-
ig verða lausar stjórnunarstöður
auglýstar til umsóknar. -mm
Föstudagur: B.O.S.S., Biggi og Orri úr hljómsveitinni Bland sjá um stuðið frá klukkan 23-3. Frítt inn.
Laugardagur: Stuðboltinn Hlynur Ben skemmtir af sinni alkunnu snilld frá klukkan 23-3. Frítt inn.
EM í beinni á Vitakaffi. Evrópukeppnin verður í beinni á Vitakaffi.
Stillholti 16-18 | Akranesi | Sími 431-1401
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Opnum klukkan 11
Frítt
Risahelgi á Vitakaffi
Tilboð í mat og drykk á meðan keppnin stendur yfir. Fylgist með okkur á Facebook.
Tilboð helgarinnar er tveir fyrir einn af Carlsberg (léttöl) á meðan leikir standa yfir.
Við bendum gestum Norðurálsmótsins að hægt er að fá hamborgara, samlokur og smárétti hjá okkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur
kvað síðastliðinn fimmtudag
upp dóm í máli Kræsinga ehf.
í Borgarnesi gegn Matvæla-
stofnun. Með dómnum er við-
urkennd skaðabótaskylda Mat-
vælastofnunar vegna tilkynn-
ingar sem birt var á heima-
síðu stofnunarinnar 27. febrú-
ar 2013 varðandi framleiðslu
Gæðakokka, fyrirtækis sem
var undanfari Kræsinga ehf. Í
fréttinni á vef MAST var þess
getið að rannsókn hefði sýnt fram á
að ekkert kjöt hefði fundist í nauta-
böku frá fyrirtækinu Gæðakokkum í
Borgarnesi, en nautabakan átti sam-
kvæmt innihaldslýsingu að innihalda
30% nautahakk í fyllingu. Þrátt fyrir
að dómstóllinn hafi komist að þeirri
niðurstöðu að fyrirtækið hefði borið
ábyrgð á því að þær nautabökur sem
voru rannsakaðar hefðu ekki inni-
haldið nautakjöt í samræmi við inni-
haldslýsingu, var að mati dómstólsins
enginn vafi talinn á því að tilkynning-
in hefði með beinum hætti haft al-
varlegar afleiðingar fyrir fyrirtækið
og að það hefði lögvarða hagsmuni
að fá bótaskyldu Matvælastofnunar
viðurkennda. Vegna fréttar (MAST)
og umfjöllunar fjölmiðla í kjölfar-
ið hrundu viðskipti Gæðakokka sem
verið höfðu vaxandi samkvæmt reifun
dómsins um 34% á ári og numið 132
milljónum króna árið 2012. Fyrirtæk-
inu var í kjölfarið gefið nýtt nafn en
rekið áfram á sömu kennitölu. Vænta
má þess að skaðabótakrafa Kræsinga
ehf. geti numið verulegri upphæð nú
þegar skaðabótaskyldan hefur verið
staðfest fyrir dómi.
Á síðasta ári komst Héraðsdómur
Vesturlands að þeirri niðurstöðu að
rannsókn Matvælastofnunar á meintu
kjötleysi í nautaböku hefði verið
ábótavant. Aðeins eitt sýni hafi ver-
ið tekið og því ekki sýnt fram á hvort
um óviljaverk eða ásetning hafi ver-
ið að ræða. Þetta eina sýni var rann-
sakað upp til agna og því ekki hægt
að sannreyna hvort niðurstöður úr
þeirri rannsókn hafi verið ábótavant.
Áfellisdómur yfir
eftirlitskerfinu
Í forsendum héraðsdóms Reykja-
víkur í síðustu viku er vikið að því
að Matvælastofnun hafi brostið vald
til að taka ákvörðun í málinu og að
hún hafi gengið inn á verksvið Heil-
brigðisnefndar Vesturlands. Ætlast
hefði mátt til að frekari rannsókn-
ir yrðu framkvæmdar áður en far-
ið hafi verið í birtingu fréttarinnar
á heimasíðu MAST, þar sem fyrir-
sjáanlegt hefði verið að birt-
ingin myndi hafa alvarleg-
ar afleiðingar fyrir Gæða-
kokka. Sömuleiðis er fund-
ið að því að fréttin hafi ekki
verið efnislega rétt, þar sem
fullyrðing um að innköllun
hefði verið framkvæmd hafi
ekki staðist. Þá taldi dóm-
stóllinn að Matvælastofnun
hefði borið að kynna nið-
urstöður rannsóknanna fyr-
ir fyrirtækinu áður en þær
voru birtar opinberlega og gefa því
tækifæri til að koma á framfæri at-
hugasemdum sínum.
Í dómsorðum Héraðsdóms Reykja-
víkur kemur fram að viðurkennd er
skaðabótaskylda Matvælastofnun-
ar vegna tjóns sem Kræsingar ehf
varð fyrir vegna tilkynningar sem birt
var á heimasíðu (MAST) 27. febrúar
2013. Þá var Matvælastofnun gert að
greiða Kræsingum 900 þúsund krón-
ur í málskostnað. Í tilkynningu frá
Matvælastofnun eftir uppkvaðningu
dómsins kemur fram að ekki hafi ver-
ið ákveðið hvort dómnum verður
áfrýjað til Hæstaréttar.
Bíður nú átekta
Magnús Níelsson eigandi Kræsinga
ehf. segist í samtali við Skessuhorn
sem minnst vilja tjá sig um málið á
þessu stigi. Hann fagni þó vissulega
áfangasigri í sínu máli, en bíði nú eft-
ir hver ákvörðun Matvælastofnunar
verður áður en áfrýjunarréttur stofn-
unarinnar rennur út. mm
Dómur viðurkennir skaðabótaskyldu
Matvælastofnunar gegn Kræsingum
Hin árlega eldsmíðahátíð var hald-
in á Safnasvæðinu að Görðum
um helgina. Hátíðin stóð yfir frá
fimmtudegi til sunnudags og nóg
var um að vera. Haldin voru ör- og
framhaldsnámskeið fyrir almenn-
ing ásamt því sem erlendir eldsmið-
ir, frá bæði Svíþjóð og Eistlandi,
héldu sýnikennslu. „Hátíðin lukkað-
ist vel og það var mikið líf og fjör.
Hún var vel sótt og það hafa líklega
yfir 30 eldsmiðir verið á hátíðinni.
Við vorum með fjóra erlenda gesti.
Ivar Feldmann frá Eistlandi var einn
þeirra. Hann smíðaði skúlptúr sem
hann hefur ákveðið að gefa okkur
í þakklætisskyni fyrir það að Ísland
var fyrsta þjóðin til þess að viður-
kenna endurreist sjálfstæði Eistlands
árið 1991. Við erum ánægð með
gjöfina og skúlptúrinn verður reist-
ur hér á safnasvæðinu,“ segir Guð-
mundur Sigurðsson einn af eldsmið-
unum í samtali við Skessuhorn. Það
var þó ekki bara smíðað á hátíðinni
því einnig voru haldnir tónleikar fyr-
ir gesti og gangandi á föstudeginum.
Það var blúshljómsveitin Kveinstafir
sem spilaði á þeim tónleikum.
Beate Stormo
Íslandsmeistari
Rúsínan í pylsuendanum var, eins og
fyrri ár, Íslandsmeistaramótið í eld-
smíði sem fram fór á sunnudaginn.
Þar tóku 13 keppendur þátt í eld-
smíði. Það var Beate Stormo, bóndi
á Kristnesi í Eyjafirði, sem stóð uppi
sem Íslandsmeistari í ár. Beate hef-
ur náð góðum árangri í eldsmíði
og vann m.a. Norðurlandameist-
aramótið í eldsmíði sem haldið var
í Finnlandi í ágúst í fyrra. Úrslitin
komu því ekki mjög á óvart. Í öðru
sæti lenti Ingvar Matthíasson og í
því þriðja Þórarinn Svavarsson.
bþb
Eldsmíðahátíð var haldin á Akranesi um helgina
Frá eldsmíðahátíðinni um helgina.
Ljósm. Brynja Valdimarsdóttir.
Beate Stormo kom sá og sigraði í eitt skiptið enn.
Ljósm. mm.