Skessuhorn


Skessuhorn - 08.06.2016, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 08.06.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 201628 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is facebook.com/hilmirbehf Bifreiðaþjónusta Harðar ehf. Smur og dekkjaþjónusta Sala á dekkjum og olíuvörum Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi 437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30 Sími 437-2030 - v.v@simnet.is DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK LAUSNIN HÖFÐASELI Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga Vélabær ehf. Bæ í Bæjarsveit Alhliða viðgerðarþjónusta á bílum, dráttarvélum og vélum tengdum landbúnaði Smur og hjólbarðaþjónusta velabaer@vesturland.is S K E S S U H O R N 2 01 3 SK ES SU H O R N 2 01 6 ÖLL ALMENN GARÐVINNA • Fjarlægjum tré og kurlum • Útvegum sand, mold og möl • Sláum garða Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Pennagrein Landbótahópur Grétars Einars- sonar heimsótti okkur í Skógrækt- arfélagi Akraness fimmtudaginn 2. júní. Það er árleg venja að þessir góðu gestir úr henni Reykjavík að- stoði okkur í skógræktinni. Mestur tíminn núna fór í grisjun í Slögu, nóg er þar af illa förnum víðitrjám sem hafa gefið eftir í veðurhamn- um undanfarin ár. Einnig voru asp- arstiklingar settir niður og dyttað að göngustígum. Margt er að frétta úr starfi skóg- ræktarfélagsins. Fljótlega verður sett upp nýtt hlið við efri inngang Slögu en skógræktarfélagið tók að sér að sjá um það fyrir Akranesbæ. Þá þarf að endurnýja neðra hliðið og laga aðkomuna þar. Búið er að panta tvö ræsi yfir skurðinn fyrir neðan Slögu til að bæta aðkomuna að neðsta hluta Slögu en við feng- um styrk frá Landgræðslusjóði til þess verks. Vegarslóðinn fyrir neð- an Slögu hefur verið lagaður svo nú er aðkoman að mörgum fallegum lundum neðst í Slögu miklu betri en verið hefur. Þá er verið að vinna í göngustígum þarna, merkja þá og gera þægilega fyrir gangandi fólk. Þegar þetta svæði verður aðgengi- legt þá bætast margir unaðslund- ir og göngustígar við þetta ágæta útivistarsvæði en neðst í Slögu eru elstu og hæstu tréin á skógræktar- svæðinu. Verið er að vinna að því að fá gám fyrir neðan bílastæðið í Slögu. Og fljótlega fáum við rúm- lega 11 þúsund plöntur frá Land- græðslusjóði. Það er því nóg að gera og rétt að minna á vinnudagana, mánudaga kl. 17 -19, en þá eru allir velkomn- ir til að vinna með okkur. Það þarf að gera margt fleira en hér hefur verið talið upp, halda við húsum og tækjum og t.d. þarf að laga bekkina sem félagið kom upp í Slögu 2014. Efri bekkurinn (sem var af ódýr- ustu gerð) er meira og minna sund- urlaminn eftir veðurhaminn sem oft geysar við fjallið. Og auðvitað hvetjum við alla til að ganga í fé- lagið og styðja við starf okkar. Sauðkindin skemmir enn og aftur Því miður eru rolluskjáturnar að ergja okkur, eyðileggja nýræktina og taka frá okkur dýrmætan tíma. Á meðfylgjandi mynd má sjá roll- ur í aðstöðu okkar við Einbúann við þjóðveginn á dögunum. Það fer afskaplega mikill tími í að elt- ast við rollurnar og þó sérstaklega að fá eigendur þeirra til að halda þeim fjarri skógræktinni. Það er brýnt að sjá til þess með lögum og reglum að búfjáreigendur beri ábyrgð á búpeningi sínum. Ástand- ið virðist fara versnandi. Við höfum ekki áður þurft að eltast við rollur við þjóðveginn sem er nánast ofan í byggðinni á Akranesi. Og sjá má rolluskít í Slögu þar sem rollurn- ar hafa valdið okkur mestu tjóni undanfarin ár. Eru búfjáreigendur svo sjálfsöruggir og hirðulausir um annarra hag að þeir telja sig ekki þurfa að taka tillit til annarra, geti látið blessaðar skepnurnar bíta þar sem þeim sýnist, það sé vandamál allra hinna að girða sig af? Þegar þetta er skrifað seint á sunnudagskvöldi barst mér tölvu- póstur frá bæjarbúa sem ekki er í skógræktarfélaginu. Hann var, ásamt konu sinni og hundi, í Slögu og rakst þar á ca. 40 kindur. Hann sagðist sem gamall sveitamaður hafa ákveðið að smala girðinguna og koma fénu út. Það tókst eftir nokk- urt basl. Svona aðstoð fáum við skógræktarfólkið sem betur fer oft frá bæjarbúum, nógur tími fer nú samt í rollureksturinn. Það er fyr- ir löngu kominn tími til að banna lausagöngu búfjár og gera búfjár- eigendur ábyrga fyrir skepnum sín- um. Það gengur ekki lengur að einn hópur fólks í samfélaginu geti eyði- lagt fyrir öðrum án þess að þurfa að sæta ábyrgð gerða sinna. Og það er óskiljanlegt að Akranesbær sé að leyfa hobbýbændum sem ekki geta eða nenna að sjá um kindur sín- ar að hafa þær á landi bæjarins. Það er kvíðvænlegt fyrir okkur bæjarbúa að nýi búvörusamningurinn virð- ist stuðla að eflingu sauðfjárrækt- ar þrátt fyrir slæm áhrif þeirra bú- skaparhátta á gróðurfar landsins, ábyrgðarleysi sauðfjáreigenda gagn- vart öðru fólki og gífurlega styrki sem við þéttbýlisbúar þurfum að greiða með þessum atvinnurekstri. Ávaxta- og berjatré í Slögu? Skoðunarferð 20. júní Jón Guðmundsson garðyrkjufræð- ingur hélt erindi á fundi skógrækt- arfélagsins í mars og fjallaði þar um berja- og ávaxtatré á skógræktar- svæðum. Það er skemmst frá því að segja að Skógræktarfélag Akraness fékk styrk frá Landgræðslusjóði til að útfæra þessa hugmynd Jóns. Nú á næstunni munum við velja stað með Jóni þar sem berja- og ávaxta- trjám verður plantað. Stefnt er að skoðunarferð um Slögu með Jóni mánudaginn 20. júní kl. 20. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta. Jóni virðist lagið að rækta hvers konar tré við ólíklegustu aðstæð- ur sbr. eplatré hans sem dafna við sjóinn á Skaganum. Það er því for- vitnilegt fyrir fólk að kynnast hug- myndum og aðferðum Jóns í skóg- rækt. Jens B. Baldursson, jensbb@inter- net.is Höf. er formaður Skógræktarfélags Akraness http://www.skog.is/akranes/ Á hópmyndinni má sjá landbótahóp Grétars ásamt fjórum af sex úr Skagahópn- um. Veðrið var óvenju gott þessa kvöldstund, sól og hiti. Sauðkindur við Einbúann að kvöldi dags í síðustu viku. Skógræktin á Skaganum - nóg að gera

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.