Skessuhorn


Skessuhorn - 08.06.2016, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 08.06.2016, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2016 13 Æfingar eru á mánudögum og fimmtudögum í sumar. Fyrir yngri krakka sem eru fæddir 2004 og síðar eru æfingar kl. 17:00 – 17:50 fyrir eldri krakka sem eru fæddir 1998 – 2003 eru æfingar kl. 18:30 – 19:20. Engin æfingargjöld. Kylfur á staðnum fyrir þau sem ekki eiga golfkylfur. Kennari er Kristvin Bjarnason menntaður PGA golfkennari. Ef einhverjar spurningar eru þá hringið eða hafið samband við Ebbu s. 860-2667 eða finnuring@simnet.is Golfæfingar eru hafnar hjá Golfklúbbi Borgarnes fyrir börn og unglinga Allir velkomnir að prófa, strákar og stelpur. SK ES SU H O R N 2 01 6 Skagakonan Anna Kristín Ólafs- dóttir dúxaði nú á dögunum þeg- ar hún útskrifaðist frá Tækniskól- anum. Hún lærði grafíska miðl- un við skólann og útskrifaðist með einkunnina 9,85. Anna Krist- ín er þrítug að aldri og útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrauta- skóla Vesturlands 2006. Að því búnu lærði hún þjóðfræði við Há- skóla Íslands og tók síðan meistara- gráðu í hagnýtri menningarmiðl- un við sama skóla. Hún segir bæði fögin hafa verið mjög áhugaverð. „Í menningarmiðlun snerist nám- ið mikið um hvernig hægt væri að koma sínu efni á framfæri, svo sem í formi sýninga, heimildamynda eða á netinu. Þetta fannst mér mjög skemmtilegt og í kjölfarið kvikn- aði áhugi á að öðlast meiri færni í að miðla efni á ýmsa vegu og lang- aði mig þá sérstaklega að bæta við þekkingu varðandi tæknilegu hlið- ina,“ segir Anna Kristín í samtali við Skessuhorn. Hún segir í fram- haldinu hafa ákveðið að læra graf- íska miðlun við Upplýsingatækni- skólann, þar sem hún gæti öðlast þá viðbótarkunnáttu sem hún var að leita eftir. Á góða að Anna Kristín segir að henni hafi allt- af gengið vel í námi og hún er vön því að fá góðar einkunnir. „Þó aldrei jafn góðar og núna, ætli þetta sé ekki þroskinn?“ Hún viðurkennir þó að það krefjist töluverðar skipulagn- ingar að ná svona góðum árangri í námi. „Ég þurfti að skipuleggja mig sérstaklega vel þar sem ég bý á Akra- nesi og því fór alltaf einhver tími í keyrslu á milli. Svo á ég líka tveggja ára dóttur og reyndi því að nýta tím- ann í skólanum sem best til að vera komin heim á sama tíma og hún kláraði daginn hjá dagforeldrunum sínum.“ Anna Kristín segir það þó hafa komið fyrir að hún hafi verið í skólanum fram á kvöld fyrir stór verkefnaskil. „Ég nýtti hádegishléið líka ansi oft í lærdóm þó ég mæli nú ekki endilega með því. Þetta var skemmtilegur en strembinn vetur og mér hefði ekki gengið svona vel ef ég ætti ekki svona góða að.“ Í sumar ætlar dúxinn að verja tím- anum með fjölskyldunni. Hún stefn- ir þó einnig á að ljúka ýmsum verk- efnum og undirbúa næstu skref. „Í haust vonast ég til þess að komast á námssamning í grafískri miðlun eða að fá vinnu sem tengist mínu námi,“ segir Anna Kristín Ólafsdóttir að endingu. grþ Móðir á Akranesi dúxaði í Tækniskólanum Frá útskriftinni. F.v. Þór Pálsson aðstoðarskólameistari, Anna Kristín Ólafsdóttir og Jón B Stefánsson skólameistari. Kristinn Bragi Garðarsson lauk stúdentsprófi af náttúrfræðibraut Fjölbrautaskóla Vesturlands í lok síðasta mánaðar. Hann hlaut við- urkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2016 og fyrir ágætan árangur í stærðfræði. Kristinn Bragi segir í samtali við Skessuhorn að sér hafi alltaf geng- ið sæmilega í námi og að hann hafi í raun aldrei þurft að hafa fyrir því að læra mikið. Það kom honum í opna skjöldu að hafa náð þeim ár- angri að verða dúx skólans. „Þetta kom mér svolítið á óvart. Við at- höfnina var ég bara að horfa nið- ur, örugglega að hugsa eitthvað um fæturna á mér. Svo heyrði ég allt í einu nafnið mitt nefnt,“ segir hann. Kristinn segir þó alveg eins hafa átt von á því að fá viðurkenn- ingu fyrir góðan árangur í stærð- fræði enda hafi hann alltaf átt gott með að læra hana. „Ég setti mér það markmið að fá minnst 8 í öllu og mér fannst það gott markmið. Það er ekki of hátt og það skapar ekki óþarfa stress að reyna að ná þessari einkunn.“ Stefnir á tónlistarnám Í vetur hafði Kristinn nóg að gera samhliða náminu í FVA enda var hann í þremur vinnum ásamt tón- listarnámi. „Ég var að vinna í Bón- us annan hvern sunnudag og á Gamla Kaupfélaginu annað hvert kvöld. Svo kenndi ég þremur ein- staklingum á gítar.“ Sjálfur hefur hann bæði verið í gítar- og söng- námi við Tónlistarskóla Akraness undanfarin ár og hefur lokið mið- prófi í söng. „Ég byrjaði tólf ára að læra á rythmískan gítar og fór að syngja þegar ég var um fimmtán Það kom á óvart að dúxa frá FVA Kristinn Bragi Garðarsson hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2016. ára.“ Kristinn segir það hafa ver- ið svolítið krefjandi á köflum að vera bæði í fjölbraut og tónlistar- skólanum samtímis. „Ég hef þurft að læra svolítið mikið fyrir prófin. Ég tók stúdentinn á þremur árum og var líka að taka próf í tónlistar- skólanum á hverju ári,“ segir hann. Næsta haust mun Kristinn Bragi hefja nám við FÍH og stefnir hann á að vinna með skólanum. „Þetta er alveg eins fyrirkomulag og í Tónlistarskólanum á Akranesi. Það er alveg hægt að vera í þessu með vinnu því að bóklegu tímarnir eru eftir klukkan fimm á daginn og svo fær maður úthlutuðum tímum hjá einkakennara.“ Kristinn stefnir á að vinna í eitt ár áður en hann fer í áframhaldandi nám. „Ég stefni á að fara í tónlistarnám í Berkley há- skóla í Boston. Það er dýrt nám og ég þarf aðeins að safna fyrir þessu. Það er líka gott að fá meiri reynslu úr FÍH, þá á maður meiri séns á styrkjum,“ segir hann að endingu. grþ Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.