Skessuhorn


Skessuhorn - 08.06.2016, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 08.06.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 201616 Frambjóðendur til forseta svara spurningum Skessuhorns Andri Snær Magnason 1. Hverjir eru fjölskylduhagir þínir? Konan mín heitir Margrét Sjöfn Torp og hún er hjúkrunarfræðingur á Landspítala. Við búum í Karfavogi og höfum verið saman í 25 ár. Við eigum fjögur börn á aldrinum 8 - 19 ára. 2. Hvernig skilgreinir þú hlutverk Forseta Ís- lands? Forseti Íslands er eini þjóðkjörni einstakling- urinn og honum ber að beita sér í þágu þjóð- arinnar og þjóðarhagsmuna. Forseti Íslands hefur framtíðarsýn og getur skapað vettvang fyrir ólíka hópa. Hann á að að halda ákveðn- um gildum á lofti sem lýsa hvernig sem viðr- ar og hvernig sem vindar geisa í pólitík. Hann á ekki að beita sér gegn ákveðnum hópum eða flokkum en hann á að gera sitt besta til að finna sameiginlega sýn fyrir landsmenn. Hann á að standa vörð um tungumálið, lýðræði og hann á að beita sér fyrir náttúruvernd. 3. Hvernig á forsetinn að haga synjunarvald- inu? Ef hann á að taka mark á áskorunum, hversu hátt hlutfall kosningabærra Íslendinga þarf þá að skora á hann? (Ef hann á að taka mark á áskorunum, hversu hátt hlutfall kosningabærra Íslendinga þarf þá að skora á hann?:) Í drögum að nýrri stjórnar- skrá hefur verið rætt um 10 - 15% landsmanna og ég hallast að þeirri tölu sjálfur. Þetta er skýr krafa fólksins. 4. Finnst þér þurfa að breyta Stjórnarskrá Ís- lands. Ef já, hverju vildir þú helst breyta? Hlutverk forseta Íslands er óskýrt og vald hans er of eftir túlkanlegt. Ýmsum greinum í stjórn- arskrá hefur aldrei verið beitt. Valdsækinn eða stjórnlyndur forseti getur veikt þingræðið með núverandi stjórnarskrá að vopni. Í drögum að nýrri stjórnarskrá er lýðræðið styrkt með því að veita almenningi rétt til að kjósa um mikilvæg mál. 5. Ertu trúuð/aður? Ég er í Þjóðkirkjunni og hef áhuga á trúmál- um. Leita til æðri máttarvalda þegar mikið ligg- ur við. 6. Trúir þú á líf eftir dauðann? Ég hef grun en ég er ekki viss. 7. Hversu sýnilegur á forsetinn að vera á al- þjóðavettvangi? Forseti Ísland er fulltrúi þjóðarinnar og rödd Íslands á alþjóðavettvangi. Hann á að rækta vinabönd við aðrar þjóðir, hann á að efla tengsl- anet Íslendinga, kynna Ísland og málstað Ís- lendinga. 8. Ef þú kemst til valda, munt þú beita þér í embættinu til að tala fyrir einhverjum ákveðn- um málum. (T.d. utanríkismálum, mannrétt- indamálum, velferðarmálum eða öðru?) Forseti á ekki að skipta sér af daglegri pólitík en forsetinn á að hafa skýra sýn í stærri málum. Ég sé fyrir mér áherslur hvað varðar tungumál- ið, náttúruvernd og eflingu lýðræðis og mann- réttinda. Við þurfum vitundarvakningu hvað varðar framtíð íslenskrar tungu. Of stór hluti drengja getur ekki lesið sér til gagns að loknu grunnskólaprófi. Það er ávísun á minnkandi menntastig. Tungumálið, bókmenntahefð- in og bókmenntaarfurinn eru þættir sem for- seti þarf að rækta. Umhverfismál eru og verða stærsta mál 21. aldar hvort sem litið er innan- lands eða utan. Lýðræðið þarf að efla og rækta og ég myndi taka þátt í umræðu um framtíð lýðræðis og upplýsingar. 9. Er eitthvað sem Ísland hefur sem önnur lönd hafa ekki? Þurfa Íslendingar að breyta markaðssetningu landsins á einhvern hátt? Ef já, hvar eigum við að leggja áherslurnar? Við eigum handritin, Konungsbók Eddu- kvæða, Möðruvallabók, frábær og yndis- leg handrit. Konungsbók Eddukvæða er einn merkast gripur norður Evrópu. Handritin eru og hafa verið ósýnileg í allt of mörg ár. Fólk velkist um Reynisfjöru í febrúar þegar það gæti eytt deginum í að fræðast um handritin í Árna- stofnun og fara þaðan í Reykholt til að fá dýpri innsýn. 10. Hverjir eru þínir helstu kostir? Ég fæ margar hugmyndir og fylgi þeim eftir. 11. Hverjir eru þínir helstu veikleikar? Ég fær stundum of margar hugmyndir. 12. Hvers vegna vilt þú verða forseti Íslands? Mig langar til að bjóða fram ákveðna framtíð- arsýn. Fyrri kynslóðir tókust á við stór verk- efni, þau stofnuðu lýðveldi, færðu út landhelg- ina og kusu konu sem forseta. Ég velti fyrir mér hvað við viljum gera? Við þurfum stórátak til að efla læsi og tungumálið okkar. Það þarf ekki nema eina sofandi kynslóð til að slíta þráðinn. Við getum staðið vörð um víðernin okkar uppi á hálendi og við getum tekið þátt í að efla lýð- ræðið með því að ljúka stjórnarskrárferlinu. 13. Hvenær tókst þú ákvörðun um að bjóða þig fram? Ég tók endanlega ákvörðun í mars en undir- búningur hófst í janúar á þessu ári. 14. Hvert yrði þitt fyrsta verk ef þú yrðir kos- in/n forseti? Ég myndi fara hringinn kringum landið og hitta fólk um leið og ég ræði um læsisátak á landsvísu. 15. Munt þú breyta áherslum í orðuveiting- um forseta? Það má ræða breytingar en þeir sem hafa feng- ið orður eru flestir stoltir og ég hef samglaðst þeim. 16. Hvaða forseti á lýðveldistímanum finnst þér hafa skarað fram úr? Vigdís Finnbogadóttir. 17. Hvað er það sem þú ert stoltust/stoltastur af að hafa gert á ævinni? Börnin fjögur. 18. Hver eru þín helstu áhugamál? Skíðamennska, gönguferðir, samfélagsmál og bókmenntir. 19. Hefur þú einhverja tengingu við Vestur- land? Ég er ættaður frá Stykkishólmi. Blái hnött- urinn var teiknaður og hannaður í Melasveit- inni af Áslaugu Jónsdóttur og bændur á Brún í Borgarfirði settu upp leikritið fyrir nokkrum árum. Ég er afkomandi Egils Skallagrímsson- ar. 20. Hvaða staður á Vesturlandi finnst þér fal- legastur? Þar er af nógu að taka. Ég er alltaf skotinn í Snæfellsnesinu og Snæfellsjökli. Ég gekk endi- legan fjallgarðinn síðasta sumar og upp á Hel- grindur í mögnuðu veðri með góðum vinum. Sturla Jónsson 1. Hverjir eru fjölskylduhagir þínir? Ég giftur Aldísi Ernu Helgadóttur og við eigum þrjá syni saman. 2. Hvernig skilgreinir þú hlutverk Forseta Ís- lands? Forsetinn á að gæta hagsmuna almennings gagnvart löggjafarvaldinu. 3. Hvernig á forsetinn að haga synjunarvald- inu? Ef hann á að taka mark á áskorunum, hversu hátt hlutfall kosningabærra Íslendinga þarf þá að skora á hann? Berist forseta 25.000 undirskriftir frá kjörbær- um Íslendingum þá fer málið í þjóðaratkvæða- greiðslu óumdeilt. 4. Finnst þér þurfa að breyta Stjórnarskrá Ís- lands. Ef já, hverju vildir þú helst breyta? Já. Ég vil breyta tveimur ákvæðum í stjórnar- skránni. Annars vegar 26. greininni þannig að ef 12-15% kosningabærra manna krefjist þjóðar- atkvæðagreiðslu þá verði að setja lögin í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Hins vegar 51. greininni. Hún fjallar um að þingmenn geti verið ráðherrar. Ég vil breyta henni þannig að þingmenn megi ekki gegna ráðherrastöðu. 5. Ertu trúuð/aður? Ég trúi því að Guð hjálpi þeim sem hjálpa sér sjálfir. Annað veit ég ekki þar sem ég er ekki lát- inn ennþá. 6. Trúir þú á líf eftir dauðann? Ég trúi á það að því sem þú sáir muni lifa eft- ir þinn dag. 7. Hversu sýnilegur á forsetinn að vera á al- þjóðavettvangi? Forsetinn á að sinna sínu lögbundna hlutverki, bæði innanlands sem og á alþjóðavísu. Hann á að vera forseti allra Íslendinga og beita sér af fullum krafti við að bæta og vernda almanna- hag, fyrst og fremst innanlands og tala síðan því máli, ef svo ber undir, á erlendum vettvangi. 8. Ef þú kemst til valda, munt þú beita þér í embættinu til að tala fyrir einhverjum ákveðn- um málum. (T.d. utanríkismálum, mannrétt- indamálum, velferðarmálum eða öðru?) Já ég mun beita mér fyrir því að mannréttindi verði virt á Íslandi í einu og öllu, í velferðar- málum, utanríkismálum og þar fram eftir göt- unum. 9. Er eitthvað sem Ísland hefur sem önnur lönd hafa ekki? Þurfa Íslendingar að breyta markaðssetningu landsins á einhvern hátt? Ef já, hvar eigum við að leggja áherslurnar? Já t.d. eigum við hlutfallslega meiri auðæfi á hvern einstakling. Áherslur: Ég vil skera niður um minnst 50% í útlögðum kostnaði til rekstrar sendiráða um allan heim sem skipta milljörðum og nota afganginn til að greiða ákveðnum kon- súlum fyrir sína vinnu, eins til að auglýsa Ísland í alþjóðamiðlum og á alþjóðlegum vettvangi. Ég vil stuðla aukinni innanlandsframleiðslu til útflutnings, hækka orkuverð til útflutnings og lækka orkuverð innanlands til framleiðslu, t.d. til innlendrar matvælaframleiðslu. 10. Hverjir eru þínir helstu kostir? Ég er staðfastur, tryggur, vinnusamur og heið- arlegur. 11. Hverjir eru þínir helstu veikleikar? Veikleikar mínir eru eflaust nokkrir en það er annara að dæma held ég. Ég er mannlegur fyrst og fremst. Ef mér er bent á veikleika í mínu fari þá reyni ég að snúa honum upp í styrkleika af fremsta megni. 12. Hvers vegna vilt þú verða forseti Íslands? Fyrst og fremst til að gæta almannahagsmuna. 13. Hvenær tókst þú ákvörðun um að bjóða þig fram? Í febrúar 2016. 14. Hvert yrði þitt fyrsta verk ef þú yrðir kos- in/n forseti? Að óska eftir fundi með forseta Rússlands. 15. Munt þú breyta áherslum í orðuveiting- um forseta? Það er ekki í valdi forseta að breyta áherslum en hins vegar getur hann talað fyrir breytingum. 16. Hvaða forseti á lýðveldistímanum finnst þér hafa skarað fram úr? Ásgeir Ásgeirsson. Hann notaði 26. greinina óspart þegar hann ræddi umdeild frumvörp í heitu pottunum í ríkisráði sínu (sjá Stjórnarskrá 16. grein). 17. Hvað er það sem þú ert stoltust/stoltastur af að hafa gert á ævinni? Ég er stoltur af því að hafa verið svo lánsamur að eignast góða fjölskyldu, yndislega eiginkonu, gott heimili og þrjú heilbrigð börn. Ég er stolt- ur af því að hafa tekið þátt í baráttunni frá árinu 2007 fyrir betra og réttlátara samfélagi, að hafa fengið að kynnast sönnu baráttufólki, fólki sem hefur trú á mér og þeim hugsjónum sem ég hef barist fyrir. 18. Hver eru þín helstu áhugamál? Mótorsport, mannréttindi og lagasafn Íslands. 19. Hefur þú einhverja tengingu við Vestur- land? Eiríkur Kristófersson skipherra var bróðir lang- afa míns, Sturlu Kristóferssonar, að Brekku- velli í Vestur-Barðastrandarsýslu, þeir voru syn- ir hjónanna Kristófers Sturlusonar, bónda þar, og konu hans, Margrétar Hákonardóttur. Móð- ir mín er úr Deildartunguættinni í Borgarfirði. 20. Hvaða staður á Vesturlandi finnst þér fal- legastur? Hraunfossar. 21. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum? Að lokum vil ég hvetja kjósendur til að skoða fa- cebooksíðuna mína sem er opin öllum: „Sturla Jónsson“ eins eru allir velkomnir að gerast með- limir í stuðningsmannahópi mínum „Sturla Jónsson – Forsetaframboð“. Guðrún Margrét Pálsdóttir 1. Hverjir eru fjölskylduhagir þínir? Ég hef verið gift í 29 ár og á fjögur börn á aldr- inum 14 til 28 ára. 2. Hvernig skilgreinir þú hlutverk Forseta Ís- lands? Fyrir utan hefðbundin störf forseta sem snúa að því að undirrita lög frá Alþingi og sjá til þess að það sé starfhæf stjórn í landinu er hann fyrst og fremst þjónn þjóðarinnar og á að láta sér annt um velferð hennar og taka þátt í viðburðum sem skipta máli. Ég sé forseta sem leiðtoga sem kall- ar þjóðina hærra, sem heldur á lofti og stend- ur vörð um grunngildi og stoðir samfélagsins. Hann er öryggisventill, hluti af ímynd Íslands og rödd hans skipir máli á alþjóðavettvangi. 3. Hvernig á forsetinn að haga synjunar- valdinu? Ef hann á að taka mark á áskor- unum, hversu hátt hlutfall kosningabærra Íslendinga þarf þá að skora á hann? Ég tel forseta ekki eiga að beita synjunarvald- inu nema í undantekningartilfellum s.s. þegar lög um mjög umdeild mál hafa verið samþykkt Frambjóðendur til forseta svara spurningum Skessuhorns Forsetakosningarnar fara fram laugardaginn 25. júní næstkomandi. Af því tilefni sendi Skessuhorn spurningalista á alla níu forsetafram- bjóðendurna þar sem þeir voru allir spurðir sömu spurninga. Eru þeim færðar þakkir fyrir svörin. Það skal tekið fram að allir frambjóðendur svöruðu samviskusamlega, utan Ástþór Magnússon, þrátt fyrir ítrek- anir blaðamanns.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.