Skessuhorn


Skessuhorn - 08.06.2016, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 08.06.2016, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2016 29 Starfsmaður óskast Íslenska gámafélagið óskar eftir starfsmanni á gámastöðina á Akranesi. Starfið felst í að að- stoða viðskiptavini, móttöku og flokkun. Hafið samband við Ólaf Inga verkstjóra, s. 840-5709, oli- ingi@igf.is eða Einar, s. 840-5780, einarp@igf.is. Óska eftir tilboð í útimálun íbúahúss Óska eftir tilboð í málun (þ.a.l. lagfæringu ef þess þarf, hreinsun, sílanbera, mála, allur kostnaður innifalinn) raðhúss (3 hús). Get sent myndir af húsinu í tölvu- pósti ásamt fermetrafjölda. Stað- sett í 301. Vinsamlegast sendið tölvupóst. 67dagny@gmail.com Helgarstarfsmaður óskast á Akranesi Helgarstarfsmaður, 18 ára eða eldri, óskast á kaffihúsið Skökk- ina á Akranesi. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða tímabundnar fastar vaktir aðra hvora helgi, laugardag og sunnu- dag. Vinnutími að jafnaði frá kl. 10 - 17 eða 9 - 18.30. Fyrirspurnir og umsóknir berist á póstfangið skagaferdir@gmail.com Óska eftir herbergi/stúdíóíbúð til leigu Óska eftir herbergi eða lítilli íbúð í Borgarnesi til að vera í yfir næstu önn í skóla, frá miðjum ágúst til miðjan desember. Endilega hafið samband í síma 857-5946. Óska eftir íbúð til leigu í Borgarnesi Vantar íbúð í langtímaleigu, þarf að hafa 3 svefnherbergi. Öruggum greiðslum heitið og góðri umgengni. Sími:780-7989, Guðný Gísladóttir. 2ja-3ja herb. íbúð óskast í Borgarnesi Við erum þrjú að leita að 2ja-3- ja herb. íbúð fyrir næsta skólaár í Borgarnesi. Við erum par, vinkona okkar og hundurinn hennar. Við erum sallaróleg og göngum vel um. Endilega sendu póst á nem.sth5@lbhi.is ef þú hefur eitthvað handa okkur eða hefur áhuga á að vita meira. Lítil íbúð óskast Óska eftir íbúð fyrir einstakling í Borgarnesi strax, skilvísum greiðslum og góðri umgengni heitið. Sími: 699-7569 Ella eða Unnur s.864-2194. Akranes - Herbergi óskast til leigu Íslenska gámafélagið óskar eftir herbergi til leigu fyrir starfsmann sinn. Það þarf að vera með að- gangi að baðherbergi og eldhúsi. Upplýsingar: einarp@igf.is Par óskar eftir herb./íbúð til leigu í Borgarnesi Par óskar eftir herb./íbúð til leigu næsta skólaár í Borgarnesi frá og með september. Við erum reyk- laust rólegheita fólk og lofum skilvísum greiðslum. Kv. Sunna og Gunārs. Kaffihús á Akranesi til sölu - tækifæri í ferðaþjónustu Rekstur kaffihússins Skökkin café, á besta stað við Akratorg, er til sölu. Um er að ræða sjarmerandi kaffihús í góðu leiguhúsnæði. Vaxandi ferðamannastraumur og mikill annatími framundan. skagaferdir@gmail.com Snæfellsbær - miðvikudagur 8. júní 1. deild kvenna, A riðill: Víkingur Ó. mætir KH á Ólafsvíkurvelli kl. 20. Akranes - fimmtudagur 9. júní Borgunarbikar karla: ÍA mætir Breiðablik á Norðurálsvellinum kl. 19:15. Borgarbyggð - laugardagur 11. júní Ljósmyndasýningin „Eyðibýli í Skorradal allt árið“ verður opnuð við hátíðlega athöfn kl. 17 við Stálpastaði í Skorradal og mun hún standa fram í ágúst. Sýningin er samvinnuverkefni Kristínar Jónsdóttir ljósmyndara á Hálsum og Huldu Guðmunds- dóttir á Fitjum. Myndirnar eru allar teknar í Skorradal og er áhersla lögð á þau eyðibýli sem eru í dalnum og árstíðirnar sem geta verið mjög breytilegar hér á Íslandi. Gott er mæta í þokkalegum gönguskóm, svæðið getur verið misblautt. Hægt er að hafa samband í síma 866-5137(Kristín) ef eitthvað er. Nýfæddir Vestlendingar Á döfinni Markaðstorg Vesturlands Markaðstorg Vesturlands Skráðu SMáauglýSinguna á www.SkeSSuhorn.iS fyrir klukkan 12.00 á þriðjudöguM ATVINNA Í BOÐI LEIGUMARKAÐUR TIL SÖLU 1. júní. Stúlka. Þyngd 4.815 gr. Lengd 55 sm. Foreldrar: Sara Dagný Stefánsdóttir og Aron Gauti Mahaney, Mosfellsbæ. Ljósmóðir: G. Erna Valentínusdóttir. 3. júní. Drengur. Þyngd 4.265 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Helga Jóna Björgvinsdóttir og Sigurður Þór Runólfsson, Hvalfjarðarsveit. Ljósmóðir. Elísabet Harles. 5. júní. Drengur. Þyngd 3.325 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Elín Rós Ólafsdóttir og Hreinn Pétursson, Vestmannaeyjum. Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir. Ljósmyndasýningin Steypa var opnuð formlega í Sjávarsafninu í Ólafsvík 1. júní síðastliðinn og mun sýningin standa til ágústloka. Er þetta í fyrsta sinn sem sýning- in er sett upp í Ólafsvík en síðustu þrjú ár var Steypa sett upp á Djúpa- vík á Ströndum. Claus Sterneck stendur fyrir sýningunni og segir hann í samtali við Skessuhorn að ljósmyndirnar séu óhefðbundnar og sýni þverskurð af Íslandi. „Alls eru níu ljósmyndarar, bæði íslensk- ir jafnt sem erlendir, sem eiga verk á þessari sýningu,“ segir Claus og bætir við að það séu bæði atvinnu- ljósmyndarar og áhugamenn um ljósmyndun sem eigi myndir á sýn- ingunni. af Á 35. fundi Umhverfis,– skipulags– og landbúnaðarnefndar Borgar- byggðar sem haldinn var mánudag- inn 6. júní var samþykkt að skotæf- ingasvæði verði staðsett við fólk- vanginn Einkunnir. Það verður: 150 m frá riffilbraut að fólk- vangsmörkum. Rúm 1200 m loftlína frá riffil- braut að næstu íbúabyggð. 600 m loftlína frá riffilbraut að göngustíg sem liggur á milli Álatj- arnar og Háfsvatns. 1200 m loftlína frá riffilbraut að nýlögðum göngustíg á milli Borgar og Einkunna. Um 2000 m loftlína frá riffilbraut að útsýnisskífu á Syðri-Einkunn. Um 1000 m loftlína frá riffilbraut að skátaskálanum Flugu. 800 m frá riffilbraut að fjölförn- um reiðvegi/akvegi/gönguleið sem liggur í Einkunnir. 800 m frá riffilbraut að Álatjörn. Á meðan skipulag skotæfinga- svæðisins var í auglýsingaferli og það kynnt fyrir íbúum þá komu mjög sterk viðbrögð gegn þessari fyrirætlan Borgarbyggðar. 58 ein- staklingar skiluðu inn mótmæl- um við slíkri framkvæmd á þessum stað, tveir undirskriftalistar bár- ust sveitarstjórn og félagasamtök sem nýta sér fólkvanginn til úti- vistar, sum meira en 60 ára, lýstu andstöðu sinni þ.e. Skógræktar- félag Borgarfjarðar, Hestamanna- félagið Skuggi og Umsjónarnefnd Einkunna. Íbúar í Lækjarkoti lýstu yfir andstöðu sinni, en í Lækjarkoti er rekin öflug ferðaþjónusta, lista- gallerí og járnsmiðja sem skapa 20 manns vinnu. Íbúar Lækjarkots lýstu því yfir að staðsetning skotæf- ingasvæðins kippti fótunum undan rekstri þeirra, ef af þessari ákvörð- un yrði þyrftu þau að bregða búi og flytja sig um set. Mótmæli íbúa Borgarbyggðar voru af ýmsum toga. Íbúar bentu á að tillagan samræmdist ekki aðal- skipulagi Borgarbyggðar, uppbygg- ingu á fólkvanginum, öryggisþátt- um og starfsemi sem er innan og við fólkvanginn. Einnig var vitn- að til hljóðmengunar, öryggismála, náttúruupplifunar, stærðar sveit- arfélagsins, til náttúru fólkvangs- ins og bent á hve stutt er í æsku- lýðstarf, mannvirki og náttúrufyr- irbrigði. Jafnframt bárust athuga- semdir vegna nálægðar við atvinnu- starf, þ.e. ferðamálaþjónustu og listagallerí. Rétt er að benda á vax- andi ferðamannastraum bæði inn- lendra og erlendra í fólkvanginn. Nýr meirihluti Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks tók við völdum fyrir skemmstu. Í samstarfssáttmála hans kemur fram að það verði: „...kappkostað að innleiða í ríkara mæli langtímahugsun með skýrum markmiðum og framtíðarsýn. Til þess að slík vinna öðlist gildi þarf að leita eftir frumkvæði og þátttöku íbúa í stefnumót- un sveitarfélags- ins. Því verða gildi á borð við samvinnu, auðmýkt og traust höfð að leiðarljósi.“ Fögur og göfug orð en á ekki að vinna eftir þeim? Hvað með sam- vinnuna, auðmýktina og traust- ið? Hvernig birtist það í þessari ákvörðun. Á að hlusta á fólk eða þau félagasamtök sem hafa nýtt svæðið til fjölda ára? Í samstarfssáttmálanum kemur líka fram að: „Borgarbyggð stefni í fremstu röð í umhverfis- og sorp- málum, mikilvægt er að vinna að því með íbúum og auka þar með virkni hvað varðar umhverfisvitund alla. Unnið verði að uppbyggingu ferðamannastaða í samvinnu við landeigendur og aðra hagsmuna- aðila sem og ríkisvaldið. Ramma- skipulag varðandi nýtingu á Kára- staðalandi og Hamarslandi verði unnið á næstu 2 árum.“ Ég hvet sveitastjórnarmenn í Borgarbyggð til að hafa sam- vinnu, auðmýkt og traust að leiðar- ljósi þegar það tekur ákvörðun sína á fimmtudaginn og taka tillit til þeirra félagasamtaka og íbúa sem hafa nýtt fólkvanginn til útivistar í tugi ára. Hilmar Már Arason. Höf. er formaður umsjónarnefndar Einkunna, útivistarperlu við Borgarnes. Samvinna, auðmýkt og traust haft að leiðarljósi Pennagrein Ljósmyndasýningin Steypa opnuð í Ólafsvík Claus Sterneck fyrir utan Sjávarsafnið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.