Skessuhorn - 08.06.2016, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 20164
Samhliða vaxandi umferð erlendra
ferðamanna um landið eykst þörf-
in fyrir að gerð verði útskot og
bílastæði við þjóðvegina þar sem
fólk getur stoppað. Bílar í veg-
köntum, eða jafnvel kyrrstæðir
á miðjum vegum, skapa augljósa
hættu. Nokkrir staðir skera sig úr
hvað þetta snertir. Í Laufásbrekku á
Mýrum ofan við Sjávarfossinn eru
bílar oft kyrrstæðir og fólk að skoða
fossinn og fegurðina þar sem Langá
rennur síðasta spölinn til sjávar.
Þetta er aðalleiðin til Snæfellsness
og því geisimikil umferð. Skömmu
sunnar er blindhæð og bílar því oft
á fullmikilli ferð miðað við aðstæð-
ur. Vegrið er sjávarmegin á vegin-
um og við það er einmitt algengt
að fólk stoppi. Heimamenn í Kvis-
tási og Laufási hafa miklar áhyggjur
af þeirri hættu sem þarna er ítrek-
að að skapast. Telja þeir fullvíst að
þarna muni verða árekstur eða slys
á fólki verði ekkert að gert. Skora
þeir á ríkisvaldið og Vegagerðina
að þarna verði komið fyrir útskoti
þannig að fólk geti stoppað bíla
sína án teljandi hættu. Landeigend-
ur á Litlu-Brekku hafa þegar boðið
Vegagerðinni land undir bílastæði,
aðeins neðar í brekkunni. Útskot
þar myndi leysa þetta vandamál.
mm
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.700 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.340. Rafræn áskrift kostar 2.120 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.960 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rós Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Björn Þór Björnsson bjorn@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Að fjárfesta í framtíðinni
Um síðustu helgi brá ég mér í hlutverk ferðamanns í tvo daga. Ekið var af stað
á föstudegi í einmunablíðu með fellihýsi í eftirdragi og úllendúllað hvert yrði
best að fara miðað við veðurspá. Að vísu var spáð einmuna blíðu um allt land-
ið. Í Húsafelli myndast oft hitapollur milli fjalla við þessar veðuraðstæður og
ekki brást staðarvalið. Allt orðið grænt og fallegt og hitinn var engu minni en
á Spáni um hásumar. Bara fallegra. Við ókum dálítinn hring í uppsveitunum í
þessari ferð og virtum fyrir okkur þær framkvæmdir sem eru í gangi við upp-
byggingu ferðamannastaða. Það verður að segjast að þær eru ekki smáræði og
talsvert víða.
Þær breytingar sem eru að verða á atvinnuháttum í dreifbýlinu eru líklega
hlutfallslega hraðari en þær hafa orðið á síðustu öldum. Þegar ég var að alast
upp, fyrir örfáum árum, var búskapur með kindur eða kýr það sem allt sner-
ist um. Góðlátlegt grín var gert að þeim sem voru svo bjartsýnir að halda að
þeir gætu lifað af því að þjóna ferðafólki. Meira að segja voru þá margir sem
héldu um tíma að miklu skárra væri að stofna loðdýrabú. Og ýmsir gerðu það
og hérumbil allir fóru flatt á því. Hægt og sígandi hefur þó ferðaþjónustan
vaxið og nú allt í einu er hún bókstaflega að springa út. Þarna í uppsveitum
Borgarfjarðar, þar sem umhverfið er jafnfallegra en víða annarsstaðar, er ver-
ið að byggja upp ýmsa þjónustu á öðrum hverjum bæ. Hefðbundinn búskap-
ur er á undanhaldi því menn sjá tækifæri í ýmsu öðru. Á til þess að gera litlu
svæði er nú búið að grafa ísgöng í Langjökul, verið að opna greiðfæra göngu-
leið inn í hinn undurfagra Víðgelmi, verið að stækka nýlegt hótel í Húsafelli
og reisa hús fyrir listasafn Páls, langt komið er með breytingar á félagsheim-
ilinu Brúarási sem þjóna mun ferðamönnum í mat og upplifun, uppbygging
er mikil á Kirkjubóli, í Deildartungu eru að rísa náttúrulaugar, stækka á hótel-
ið í Reykholti og áfram mætti lengi telja. Öll þessi uppbygging kallar á fjölg-
un starfa svo tugum skiptir og nýja hugsun. Það verður eftirspurn eftir vinnu-
afli og þeir sem starfað hafa við ýmislegt annað fara nú að telja í veskinu og
komast hugsanlega að því að þeir gætu haft það betra við þau nýju störf sem
eru að bjóðast.
En það er eitt sem breytist lítið eða réttara sagt ekki neitt. Þá er ég að sjálf-
sögðu að tala um það sem snýr að hinu opinbera. Nefni vegi og bílaplön, staði
sem fólk getur lagt bílum sínum til að njóta útsýnis, hreinlætisaðstöðu við fjöl-
farna áningarstaði og sitthvað fleira í þeim dúr. Ekkert tillit er tekið til þess í
gildandi vegaáætlun eins langt og augað eygir, að bæta eigi vegakerfið. Marg-
falt fleiri bílar aka nú um sömu vegina og voru lagðir fyrir tuttugu eða fjöru-
tíu árum. Þessir vegir hafa í besta fallið versnað lítið og eru í raun algjör tíma-
skekkja. Þrátt fyrir að allar spár hafi sýnt fram á stóraukna fjölgun ferðafólks,
með tilheyrandi tekjuaukningu ríkisins í formi skatta, virðist sem vandræða-
gangurinn í ákvarðanatöku sé algjör. Af hverju er ekki fyrir löngu farið að
skipuleggja endurbyggingu þjóðavegakerfisins? Hvað eru þingmenn eiginlega
að hugsa, nú eða ráðherra samgöngumála og raunar ríkisstjórnin öll? Þetta
fólk hefur setið við völd undanfarin þrjú ár og hefur haft fullt af tækifærum
til að koma þessu sjálfsagða máli á rekspöl. Nei, það var þvargað um náttúru-
passa í tvö, þrjú ár, án þess að nokkuð gerðist. Hingað kemur líklega hálf önn-
ur milljón ferðamanna á þessu ári og það er ekkert gjald tekið af þessu fólki til
að leggja í eðlilega uppbyggingu þeirra innviða sem þurfa að vera í lagi til að
þessi nýja atvinnugrein fái að vaxa og dafna. Því miður er ekki hægt að gefa
þessum ráðamönnum háa einkunn fyrir framsýni né dug þegar kemur að upp-
byggingu ferðaþjónustu. Í besta falli sjáum við áætlanir um að gera eigi áætlan-
ir og eyða tugum milljóna í skýrslugerð. Þeir sem standa fyrir uppbyggingunni
í sveitum landsins ættu hins vegar að fá alveg sérstök verðlaun fyrir það áræði
sem þeir sýna með að leggja í miklar fjárfestingar án þess að geta með nokkru
móti tryggt að ferðamenn framtíðarinnar komist yfirleitt til þeirra landleiðina.
Það ber að þakka og vona að úr leysist með stjórnmálamönnum sem þora að
fjárfesta í framtíðinni.
Magnús Magnússon.
Leiðari
Á fundi í umhverfis-, skipulags- og
landbúnaðarnefndar Borgarbyggð-
ar síðastliðinn mánudag voru tvö
mál tekin til afgreiðslu og sam-
þykkt af meirihluta nefndarmanna
sem breyting á gildandi aðalskipu-
lagi. Annars vegar var til umræðu
fyrirhugað skotæfingasvæði og hins
vegar mótorkrossbraut. Tillögurn-
ar fara nú til formlegrar afgreiðslu í
sveitarstjórn.
Nefndin samþykkti að fela skipu-
lagsfulltrúa að ganga frá svörum við
athugasemdum sem bárust vegna
breytinga á aðalskipulagi vegna
skotæfingasvæðis ofan við Borgar-
nes. Í fundargerð segir að niður-
staða hávaðamælinga úr rannsókn
Trivium hafi verið sú að hávaði
vegna fyrirhugaðs skotæfingasvæðis
sé undir hávaðamörkum nema þeg-
ar fimm eða fleiri rifflar eru not-
aðir í einu. Því leggur nefndin til
að auglýst verði deiliskipulag fyrir
skotæfingasvæði. Settar verði kröf-
ur um byggingu skothúss og hljóð-
manir verði hannaðar eftir ítrustu
kröfum til að dempa hljóð. Einnig
verði opnunartíma settar skorður
og hvað margar byssur megi nota í
einu. Meirihluti nefndarinnar sam-
þykkti tillöguna en Björk Jóhanns-
dóttir var á móti.
Þá var á sama fundi kynnt niður-
staða hávaðamælinga úr rannsókn
Trivium vegna staðsetningar mótor-
krossbrautar. Niðurstaða mælinga
hafi leitt í ljós að hávaði vegna fyr-
irhugaðrar mótorkrossbrautar sé
undir hávaðamörkum nema þeg-
ar keppnir þar sem fleiri hjól en 12
eru í brautinni. „Lagt er til að far-
ið verði í aðal- og deiliskipulags-
vinnu við svæðið en sett verði inn í
deiliskipulag að hámarksfjöldi hjóla
í braut geti mest verið 12 og eins
verði opnunartíma settar skorð-
ur. Lagt er til að verkefnið verði til
reynslu og endurmetið eftir 3-5 ár.
Haldinn verði samráðsfundur með
hagsmunaaðilum,“ segir í fund-
argerð umhverfis,- skipulags- og
landbúnaðarnefndar. Líkt og með
tillögu um skotæfingasvæðið voru
allir nefndarmenn utan einn sem
greiddu tillögunni atkvæði. Björk
Jóhannsdóttir lét bóka mótmæli við
staðsetningu Mótorkrossbrautar-
innar. mm
Meirihluti samþykkti skotæfingasvæði og
mótorkrossbraut
Greinilega slysahætta á fjölförnum útsýnisstað
Þarna við afleggjarann að Kvistási og Laufási hafa íbúar talið allt upp í sjö bíla
sem lagt hafa verið á veginn með augljósri slysahættu. Ljósm. bs.
Strandveiðibáturinn Sindri RE
46 varð vélarvana þar sem hann
var við veiðar á Breiðafirði síðast-
liðinn mánudag. Björgunarsveit-
irnar Klakkur í Grundarfirði og
Lífsbjörg í Snæfellsbæ voru kall-
aðar á vettvang og náðu til báts-
ins fljótlega. Veður var gott og
því lítil hætta á ferðum. Klakks-
menn hófu að draga bátinn áleið-
is til Grundarfjarðar en báturinn
Björg frá Lífsbjörg kom fljótlega
á vettvang og tók við drættinum
og skilaði Sindra í örugga höfn í
Grundarfirði. Í ljós kom að öxull
hafði dregist út og gert bátinn vél-
arvana.
Björg var ekki fyrr búin að draga
Sindra til hafnar í Grundarfirði
og rétt lögð af stað heim til Rifs
þegar annað útkall barst. Það var
Smyrill SH sem beðið hafði um
aðstoð. Var hann staðsettur út af
Gufuskálum. Hafði losnað trissu-
hjól af vélinni og þurfti að draga
hann í land. Atlanticbátur Lífs-
bjargar; Sæbjörg II koma fyrst að
Smyrli og dró hann á móti Björg-
inni. Kom Björg með Smyril að
landi í Rifi laust eftir klukkan níu
um kvöldið. Tóku þessi tvö útköll
því á sjötta tíma. Gengu þau bæði
mjög vel enda blíðskapar veður.
tfk/þa
Vélarvana bátar dregnir til hafnar
Komið með Sindra í togi til Grundarfjarðar. Ljósm. tfk.
Síðar um kvöldið var komið með Smyril SH til lands í Rifi. Ljósm. þa.