Skessuhorn - 08.06.2016, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 20166
Kynna væntan-
legt landsmót
UMFÍ
BORGARNES: Eins og
kunnugt er verður Ung-
lingalandsmót UMFÍ hald-
ið í Borgarnesi um versl-
unarmannahelgina, dagana
28. júlí – 1. ágúst. Vegna
þess er boðað til íbúafundar
í Hjálmakletti fimmtudag-
inn 23. júní kl. 20. „Íbúa-
fundinum er ætlað að upp-
lýsa íbúana um þá þætti
unglingalandsmótsins sem
munu koma til með að hafa
áhrif á daglegt líf íbúanna
meðan á móti stendur. Sein-
ast var Unglingalandsmót
í Borgarnesi 2010 og voru
keppendur þá 1.700 og með
aðstandendum voru um
13.000 manns voru í Borg-
arnesi mótsdagana. Er því
um mikla lyftistöng að ræða
fyrir samfélagið allt og mik-
ilvægt að íbúar séu vel upp-
lýstir til að mótið geti geng-
ið sem best fyrir sig,“ seg-
ir Eva Hlín Alfreðsdóttir
verkefnisstjóri UMFÍ vegna
landsmótsins.
-mm
Óku útaf með
leiðsögn gps
tækja
VESTURLAND: Alls
urðu níu umferðaró-
höpp í umdæmi lögregl-
unnar á Vesturlandi í lið-
inni viku. Erlendur öku-
maður sem ók eftir leið-
sögn gps tækis vestur Snæ-
fellsnesveg var á of mikl-
um hraða og náði því ekki
hægri beygju við Vegamót
inn á Vatnaleiðina, þeg-
ar tækið sagði honum að
beygja. Ökumaður og far-
þegar sluppu ómeiddir að
mestu en bíllinn var mik-
ið skemmdur og óökuhæf-
ur. Hliðstætt mál varð ný-
lega við Heydalsvegamótin
en þar endaði ökuferð út-
lendinga ofan í vegskurði
þegar beygt var skyndilega
samkvæmt leiðbeiningum
gps tækis, án þess að gætt
væri að ökuhraðanum. Í
því óhappi endaði einn far-
þeginn á sjúkrahúsi. Ung-
ur ökumaður velti bíl sín-
um á Útnesvegi við Arnar-
stapa er hann var að mæta
öðrum bíl. Ökumaður-
inn hlaut höfuðhögg og
var fluttur á sjúkrahúsið á
Akranesi til aðhlynningar.
Þá missti ungur ökumaður
í innanbæjarakstri á Akra-
nesi, stjórn á bíl sínum og
ók á ljósastaur. Ástæðan fyr-
ir óhappinu var sú að hann
var að leita að gsm síman-
um sínum. Var ökumaður-
inn á lítilli ferð og í bílbelti
og slapp hann við meiðsli.
Bíllinn skemmdist tölu-
vert og var dreginn burt
af kranabíl. Alls voru fimm
ökumenn teknir grunaðir
um ölvun við akstur í vik-
unni. Einn þeirra grunuðu
var ökumaður bíls sem fór
útaf og valt. Þar að auki
voru fimm ökumenn tekn-
ir grunaðir um akstur undir
áhrifum fíkniefna. Erlendir
ferðamenn sem lögreglan
hafði afskipti af á Snæfells-
nesi í síðustu viku, reyndust
vera með nokkur grömm
af kannabisefnum í fórum
sínum sem lögreglan lagði
hald á. Þeir sögðust hafa
keypt fíkniefnin í Reykja-
vík. Gengið var frá málinu
með sektargerð. Loks má
geta þess að hraðamynda-
vélarnar mynduðu um 400
ökumenn á of miklum
hraða víðs vegar um landið
í síðustu viku. Þar af voru
um 100 ökumenn mynd-
aðir við Fiskilæk sunn-
an Hafnarfjalls. Lögreglu-
menn mældu og tóku um
40 ökumenn fyrir of hrað-
an akstur í eftirliti sínu um
umdæmið í vikunni.
-mm/tkþ
Nafn
nýstúdents
féll út
SNÆFELLSBÆR: Í
frétt í síðasta tölublaði um
brautskráningu stúdenta
úr Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga í Grundarfirði féll
út eitt nafn nýstúdents af
félagsfræðibraut. Hún heit-
ir Sandra Rut Steinarsdótt-
ir. Beðist er velvirðingar á
þessu.
-mm
Sláttur hófst á tveimur jörðum í
Hvalfjarðarsveit mánudaginn 6.
júní. Á bæjunum Vestra-Reyni und-
ir Akrafjalli og Belgsholti í Mela-
sveit. Gaman er að segja frá því að
á báðum bæjum voru það vinnu-
mennirnir sem tóku þá ákvörð-
un að hefja slátt þegar bændurn-
ir sjálfir höfðu brugðið sér bæjar-
leið. Haraldur bóndi á Reyn fór á
landsleik í fótbolta með syni sínum
en nafni hans Haraldur í Belgsholti
þurfti að skeppa með spaða úr vind-
myllu sinni til viðgerðar á Akureyri.
„Strákarnir hafa vafalítið verið búnir
að hafa Bubba í eyrunum allan dag-
inn og sá gamli komið þeim í þetta
stuð,“ sögðu þeir Haraldar báð-
ir þegar Skessuhorn ræddi við þá í
gærmorgun, ánægðir með framtaks-
semi vinnumanna sinna.
Eins og fram kom í fréttum varð
Bubbi Morthens stórsöngvari 60
ára þennan dag og hljómuðu lög
hans á öllum útvarpsrásum liðlang-
an daginn. Á báðum þessum jörð-
um í Hvalfjarðarsveitinni er búið
með kýr og því dýrmætt að ná góð-
um heyjum þetta snemma. Spretta
hefur verið mikil undanfarna daga
um gjörvalt Vesturland enda hlýtt
í veðri og jörð sæmilega rök. Búast
bændur sem Skessuhorn ræddi við
að almennt hefji menn slátt um eða
upp úr miðjum júní, í það minnsta
þar sem tún eru friðuð. Góð veð-
urspá er fyrir komandi daga.
mm
Vinnumennirnir hófu slátt meðan
bændur brugðu sér af bæ
Þokkalega var sprottið eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem samsett er úr
báðum slægjunum (Belgsholt til vinstri og Vestri-Reynir til hægri).
Síðastliðinn föstudag kom flutn-
ingaskipið Wilson Elbe til hafnar í
Rifi. Farmur skipsins var stálþil sem
fara á í norðurkantinn í Rifshöfn.
Flutti skipið þúsund tonn af stálþili
til Íslands, en þar af fóru 410 tonn
á land í Rifi en hin 590 tonnin til
Grindavíkur. Miklar framkvæmdir
eru fyrirhugaður í Rifshöfn á næstu
þremur árum. Þar á að framkvæma
fyrir um það bil 500 milljónir króna
samkvæmt áætlun. Verkinu verður
skipt upp í þrjá áfanga á jafn mörg-
um árum.
Stálþilið sem skipta á um er kom-
ið til ára sinna enda orðið 53 ára
gamalt. Einnig á að skipta um 4000
fermetra þekju en í hana fara 900
rúmmetrar af steypu. Nýja þilið
verður rekið niður meter frá gamla
stálþilinu og verður það gamla lát-
ið standa fyrir innan. Sett verða ný
masturshús og öll lýsing á hafn-
arsvæðinu endurnýjuð. Við kant-
inn verður dýpkað þannig að dýp-
ið verði sjö metrar á 130 metra kafla
og fimm metrar á 70 metra kaflan-
um fyrir ofan. Áður en framkvæmd-
ir geta hafist þarf að flytja löndun-
arkranana burtu til geymslu þar til
búið verður að reka niður stálþil-
ið og steypa þekjuna. Í fyrsta áfanga
verður rekið niður um það bil 130
metrar af stálþilinu. Verður byrjað
að reka það niður þar sem löndunar-
kranarnir standa nú og haldið áfram
í austur. Niðurrekstur á þilinu verð-
ur boðinn út seinni partinn í júní
og búist við að vinna við verkið geti
hafist í haust. þa
Miklar framkvæmdir framundan í Rifshöfn