Skessuhorn - 08.06.2016, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 201612
Hin sautján ára Anna Þór-
hildur Gunnarsdóttir frá
Brekku í Norðurárdal er dúx
Menntaskóla Borgarfjarð-
ar. Hún lauk stúdentsprófi
af náttúrufræðibraut með
9,79 í meðaleinkunn. Hún
hlaut einnig viðurkenning-
ar fyrir góðan námsárang-
ur í dönsku, íslensku, tungu-
málum, náttúruvísindum og
stærðfræði. Þá fékk hún við-
urkenningu fyrir afburða ár-
angur á lokaverkefni, ásamt
fjórum öðrum nemendum.
Önnu Þórhildi hefur alla
tíð gengið vel í námi. „Ég
hef alltaf reynt mitt besta
og uppskorið eftir því. Ég
sleppti tíunda bekk og fór
beint í menntaskóla eftir ní-
unda bekk. Það stóð þann-
ig á námslega séð. Ég var
búin að taka nokkra áfanga í
menntaskólanum og fékk að
fara beint þangað í stað þess
að vera í nokkrum fögum
í báðum skólunum,“ segir
Anna Þórhildur sem áður var nem-
andi í Grunnskóla Borgarfjarðar á
Varmalandi.
Engar skítareddingar
Anna Þórhildur útskrifaðist ekki
einungis úr Menntaskólanum á
dögunum. Hún lauk einnig fram-
haldsstigi í píanóleik hjá Tónlist-
arskóla Borgarfjarðar á sama tíma.
Hún hóf nám við tónlistarskólann
fyrir tíu árum og hefur stundað
það nám samhliða námi í grunn-
og menntaskóla. Hún segir tónlist-
arnámið hafa hjálpað sér í gegnum
tíðina enda hafi hún lært að skipu-
leggja sig vel í gegnum það. „Ég
hef eytt meiri tíma í að æfa mig en
að læra. Reyndar fer það líka eftir
því hvaða áfanga maður er að taka
hvernig maður lærir en píanónám-
ið er öðruvísi. Það er einstaklings-
miðað og þar uppsker maður eins
og maður sáir, það fer eftir manni
skjálfum hvernig gengur. Þar er
ekkert hægt að vera með nein-
ar skítareddingar eins og hægt er
að gera fyrir próf, þú lærir ekkert
allt kvöldið áður. Það heyrist vel ef
maður er óæfður,“ segir Anna Þór-
hildur. „Það heillar mig hvað þetta
er krefjandi,“ bætir hún við. Í bók-
lega náminu heillaði stærðfræðin
Önnu mest. „Mér fannst reynd-
ar gaman í flestum áföngunum. Ef
maður hefur þannig hugarfar, þá
finnst manni skemmtilegra að læra.
Lífið er stutt og maður verður að
hafa gaman að því. Sumir áfang-
arnir í menntaskóla eru skyldu-
áfangar og fyrst maður er ekkert
að breyta kerfinu þá er eins gott að
sætta sig við það og hafa gaman af
því,“ segir hún jákvæð.
Rökhugsun og hlutföll
bak nótnanna
Þrátt fyrir miklar annir í skólan-
um og tónlistinni hefur Anna Þór-
hildur ýmis önnur áhugamál. Hún
hugar meðal annars að því að rækta
líkama og sál og stundar kraftlyft-
ingar af kappi. „Manni líður allt-
af svo miklu betur ef maður er í
góðu formi. Þá getur maður stað-
ið betur undir álagi og er í betra
andlegu jafnvægi. Mamma
mín, Íris Gröndfeld íþrótta-
fræðingur og gömul frjáls-
íþróttakempa, hefur hjálpað
mér mikið á því sviði,“ segir
hún. Í sumar starfar Anna í
Safnahúsi Borgarfjarðar þar
sem hún leiðbeinir á sýning-
um og vinnur ýmis verkefni
fyrir Skjalasafn Borgarfjarð-
ar. Í haust mun hún fara á
nýjar slóðir og flytja til höf-
uðborgarinnar þar sem hún
mun leigja íbúð með eldri
bróður sínum. „Ég er að fara
í áframhaldandi píanónám
við Listaháskóla Íslands und-
ir leiðsögn Peters Maté. Ég
hlakka mikið til að færa mig
alveg í píanóið, í stað þess að
halda jafnvægi milli annars
vegar venjulegs bóknáms og
hins vegar píanónáms. Hins
vegar bætast við fleiri bókleg
fög í tónlistarnáminu, t.d.
hljómfræði og tónlistarsaga.
Hljómfræði er að vísu ekk-
ert það frábrugðin stærð-
fræði, maður þarf að sjá hlutina í
þrívídd, finna form og leggja regl-
ur á minnið. Þegar maður vinnur
hljómfræðiverkefni er því eins og
maður sé að leysa púsluspil út frá
öllum kúnstarinnar reglum. Ég hef
líka mjög svo gaman af stærðfræði
og finnst gaman að brjóta heilann
yfir svona „ráðgátum“ og sjá rök-
hugsunina og hlutföllin að baki
nótnanna,“ segir Anna. Hún seg-
ist hins vegar ekki vita hvað tekur
við eftir BMus gráðuna. „Það eru
svo ótrúlega margir vegir opnir ef
maður hefur þannig hugarfar. Ég
hlakka til næsta vetur að kynnast
nýjum leiðum til að stunda tónlist,
bæði er varðar flutning og e.t.v
einhverju listrænu frumkvöðla-
starfi. En hver svo sem sérhæfing
framtíðarinnar verður, þá verður
hún allavega í tónlistinni. Ef mað-
ur leggur nógu hart að sér og hefur
endalausa ástríðu, þá getur maður
gert nærri hvað sem er,“ segir dúx-
inn Anna Þórhildur Gunnarsdóttir
frá Brekku.
grþ
Dúxaði sautján ára gömul frá MB
Anna Þórhildur Gunnarsdóttir dúx Menntaskóla
Borgarfjarðar ætlar að sérhæfa sig í tónlist í fram-
tíðinni.
Brautskráning frá Fjölbrautaskóla
Snæfellinga var 27. maí síðastlið-
inn. Meðal þeirra sem lauk stúd-
entsprófi frá skólanum var Vikt-
oría Ellenardóttir, með einkunnina
9,74, hæstu meðaleinkunn í sögu
skólans. Viktoría lauk náminu á
þremur árum og hlaut einnig við-
urkenningar fyrir góðan árangur
í stærðfræði, tungumálum, raun-
greinum, íslensku, spænsku og
ensku. Að sögn Viktoríu var það
alls ekki markmið hennar að dúxa
en hún er mjög ánægð með árang-
urinn. „Ég var alls ekki að búast
við þessu og öllum þessum verð-
launum sem ég fékk á útskriftar-
daginn,“ segir hún kát. Viktoría
segir það hafa krafist góðrar skipu-
lagningar að ná þessum árangri í
skólanum. „Ég hef verið að vinna
með skólanum síðan ég var þrettán
ára og hef því þurft að skipuleggja
mig í kringum það. Ég var líka að
æfa fótbolta en hætti fyrir ári síð-
an. Núna fer ég bara í ræktina og
reyni að komast átta sinnum í viku
þar sem ég fylgi prógrammi frá
þjálfara.“ Viktoría sinnti náminu
vel og lærði heima daglega. „Ég
hefði kannski ekki þurft þess en ég
viðurkenni það alveg sjálf að ég er
með smá fullkomnunaráráttu og
vildi gera mitt besta,“ segir hún.
Ferðalög framundan
Viktoría er frá Ólafsvík og í sumar
ætlar hún að vinna í Söluskála ÓK
ásamt því að starfa á dvalarheimilinu
Jaðri í Snæfellsbæ. „Í júní fer ég á
tónleika með Beyonce í Glasgow og
svo fer ég með vinkonu minni í 25
daga reisu í ágúst, þar sem við ætl-
um að fara til Dubai, Tælands og svo
í brimbrettaskóla á Balí. Við endum
á því að fara til Doha í Qatar og ætl-
um að skoða okkur um þar,“ útskýr-
ir Viktoría. Hún er því spennt fyrir
sumrinu en það eru ekki einu ævin-
týrin sem framundan eru. Hún hef-
ur einnig sótt um inngöngu í þrjá há-
skóla í Danmörku og bíður nú eftir
svari. „Ég hef alla tíð stefnt á að læra
læknisfræði. Það hefur heillað mig
og mig langar að verða skurðlæknir.
Mig hefur líka alltaf langað að flytja
út og prófa eitthvað nýtt. Það er allt-
af hægt að koma aftur heim ef það
gengur ekki. Ég sótti því um inn-
göngu í skóla bæði í Kaupmanna-
höfn, Árósum og Álaborg. Ef ég
kemst ekki inn þá ætla ég að reyna að
sækja um aftur í janúar,“ segir Vikt-
oría hress að endingu. grþ
Útskrifaðist með hæstu
einkunn í sögu skólans
Viktoría Ellenardóttir lauk
stúdentsprófi frá FSN með hæstu
meðaleinkunn í sögu skólans. Hér er
hún hlaðin verðlaunum á
útskriftardaginn.
Norðurálsmótið í fótbolta fer fram
um næstu helgi, dagana 10. – 12.
júní. Mótið er eins og fyrri ár fyrir
drengi á aldrinum sex til átta ára.
Sú breyting er á að mótið í ár er
haldið aðra vikuna í júní en ekki
þá þriðju eins og venjan hefur ver-
ið. „Ástæðan fyrir því að við höld-
um mótið núna viku fyrr en vana-
lega er sú að eftir EM-dráttinn í
lok síðasta árs fóru mörg félög að
þrýsta á okkur að breyta tímasetn-
ingu mótsins þar sem Norðuráls-
mótið myndi skarast við EM. Við
ákváðum því að færa mótið um
viku en þetta er bara undantekn-
ing í ár,“ segir Haraldur Ingólfsson
framkvæmdarstjóri Knattspyrnu-
félags ÍA í samtali við Skessuhorn.
Mikil undirbúningsvinna ligg-
ur að baki mótinu og koma hátt í
1000 manns að því með einum eða
öðrum hætti. „Undirbúningurinn
fyrir mótið hefur gengið vel og allt
samkvæmt áætlun. Það er kom-
in svo mikil reynsla á mótið að við
erum orðin öllu vön í undirbún-
ingnum,“ segir Haraldur en mótið
hefur verið haldið frá árinu 1985. Í
ár eru um 1500 keppendur skráðir
sem er svipuð tala og í fyrra. Áætl-
að er að fimm til sex þúsund manns
sæki Akranes heim í tenglsum við
mótið. „Við stækkuðum mótið í
fyrra og höldum þeirri stærð í ár.
Það eru 176 lið skráð til leiks frá
33 félögum.
Lið frá Nuuk á mótinu
Frá því mótið var fyrst haldið árið
1985 hafa einungis innlend lið
keppt á því en nú verður breyting.
„Það kemur eitt félag frá Nuuk í
Grænlandi, B67, á mótið og mun
því verða fyrsta erlenda félagið til
þess að leika á mótinu. Upphaflega
stóð til að það kæmu tvö félög en
annað félagið hætti við. Við höfum
í raun ekki markaðssett mótið er-
lendis enda ekki þörf á því en B67
kemur hingað til lands í gegnum
samstarf sem er á milli Grænlands,
Færeyja og Íslands. Það verður
gaman að fá þessa góður gesti á
Skagann,“ segir Haraldur að lok-
um.
bþb
Norðurálsmótið viku
fyrr en vanalega
Norðurálsmótið fer fram helgina 10.-12. júní. Ljósm. úr safni.
Heiðarsóley, umhverfisblað Heið-
arskóla, kom inn á heimili í Hval-
fjarðarsveit í síðustu viku. Með
blaðinu fylgdu fjölnota burðarpok-
ar, einn poki á hvert heimili í sveit-
arfélaginu. Pokarnir eru gjöf frá
börnunum í leik- og grunnskóla
Hvalfjarðarsveitar en börnin vilja
hvetja fólk til að draga úr plast-
pokanotkun og nota frekar fjölnota
poka. Á pokunum eru tvær myndir,
önnur var teiknuð af barni í Heiðar-
skóla og hin af barni á Skýjaborg.
arg
Öll heimili fengu
fjölnota burðarpoka