Skessuhorn - 08.06.2016, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2016 17
Frambjóðendur til forseta svara spurningum Skessuhorns
á Alþingi sem valda óafturkræfum breyting-
um á högum lands eða þjóðar. Ég tel að Al-
þingi þurfi að fá að vinna sína vinnu án afskipta
forseta sem allra mest. Að sjálfsögðu á forseti að
taka mark á áskorunum en ég tel ekki að ákveð-
ið hlutfall kosningabærra Íslendinga sem skorar
á hann eigi að vera bindandi. 15% viðmiðið sem
er í frumvarpi stjórnarskrárnefndar til stjórn-
skipunarlaga um hlutfall kosningabærra manna
sem getur krafist þjóðaratkvæðagreiðslu án að-
komu forseta finnst mér hæfilegt og þá er eðli-
legt að forseti skoði það vandlega hvort und-
irrita skuli lög þegar svo hátt hlutfall skorar á
hann að gera það ekki.
4. Finnst þér þurfa að breyta Stjórnarskrá Ís-
lands. Ef já, hverju vildir þú helst breyta?
Já, mér finnst þurfa að skilgreina hlutverk for-
seta betur og einnig þarf að bæta við greinum
í hana t.d. um að þjóðin geti krafist þjóðarat-
kvæðagreiðslu án aðkomu forseta, um eignar-
rétt og nýtingu á auðlindum og náttúruvernd.
Ég styð þá vinnu stjórnarskrárnefndar á endur-
skoðun stjórnarskrárinnar sem er í gangi.
5. Ertu trúuð/aður?
Já, ég er trúuð og finnst skipta miklu máli að
varðveita kristna þjóðararfinn okkar.
6. Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já, ég trúi á líf eftir dauðann eins og kristin trú
kennir.
7. Hversu sýnilegur á forsetinn að vera á al-
þjóðavettvangi?
Forseti Íslands er fyrst og fremst forseti þjóðar-
innar og á að vera sýnilegur hér heima en einnig
er mjög mikilvægt að hann sé sýnilegur sem góð
fyrirmynd og talsmaður góðra gilda og hug-
sjóna á alþjóðavettvangi og hafa þannig áhrif til
góðs í þessum heimi. Hann hefur margvíslegum
skyldum að gegna á erlendri grund, bæði sem
jákvæð landkynning og til að mynda tengsl við
aðra þjóðhöfðingja og þjóðir.
8. Ef þú kemst til valda, munt þú beita þér í
embættinu til að tala fyrir einhverjum ákveðn-
um málum. (T.d. utanríkismálum, mannrétt-
indamálum, velferðarmálum eða öðru?)
Mannréttinda- og velferðarmál eru mér hug-
leikin og ég hef sl. áratugi beitt mér sem hug-
sjónamanneskja og frumkvöðull fyrir bætt-
um kjörum fólks í fátækum löndum. Menntun
og velferð barna og læsi fullorðinna hafa ver-
ið mín baráttumál sem ég sé tækifæri til að láta
enn frekar til mín taka í hlutverki forseta. Þá eru
loftslagsmálin mér hugleikin og að við sem þjóð
leggjum okkar af mörkum í þeim efnum s.s. með
skógrækt. Ég mun einnig leggja áherslu á að
við hlúum að rótum okkar, s.s. íslenskri tungu,
kristinni trú, sögu, menningu og gildum.
9. Er eitthvað sem Ísland hefur sem önnur
lönd hafa ekki? Þurfa Íslendingar að breyta
markaðssetningu landsins á einhvern hátt? Ef
já, hvar eigum við að leggja áherslurnar?
Ísland hefur t.d. hreina loftið og vatnið, stór-
kostlega náttúru, endurnýjanlega orkugjafa,
jarðhita, jökla, eldfjöll, hafið allt um kring, fjöll,
fossa, fámennið og norðurljósin. Ég tel að Ís-
land hafi verið markaðssett nokkuð vel og Eyja-
fjallajökull hjálpaði klárlega til við markaðssetn-
inguna. Með því að sýna ferðamönnum gest-
risni og elskulegheit þá breiðum við út kosti
landsins ennfremur. Að við sýnum að hér býr
elskuleg þjóð í stórbrotnu og yndislegu landi.
Einnig er mjög mikilvægt að flýta uppbyggingu
á nauðsynlegri aðstöðu á ferðamannastöðum
s.s. fullnægjandi salernisaðstöðu og göngustíga-
gerð ásamt bættum slysavörnum.
10. Hverjir eru þínir helstu kostir?
Ég er hugsjónamanneskja sem hef stórt hjarta
fyrir þeim sem minna mega sín. Ég er hugrökk,
hugmyndarík, heiðarleg, þrautseig og gefst ekki
svo auðveldlega upp. Ég er alin upp við góð
gildi, s.s. hjálpsemi, gestrisni, að tala vel um fólk
og sýna öðrum virðingu, að sannleikurinn sé
sagna bestur og að sælla sé að gefa en að þiggja.
11. Hverjir eru þínir helstu veikleikar?
Ég er ekki vön að koma opinberlega fram og
er ekki mælskasta manneskja sem fyrirfinnst.
Þess vegna var það áskorun fyrir mig að bjóða
mig fram til forseta en ég trúi því að það sem ég
stend fyrir skipti meira máli og þetta venjist og
ég þjálfist með hverri nýrri áskorun.
12. Hvers vegna vilt þú verða forseti Íslands?
Ég hef brennandi áhuga á velferð þessarar þjóð-
ar og að við getum orðið öðrum þjóðum til
blessunar. Ég vil sjá þessa þjóð ná að blómstra,
ekki bara suma heldur alla. Hjarta mitt er hjá
þeim sem þjást af kvíða, þunglyndi og annarri
vanlíðan og eru fastir í fjötrum fíkna. Ég trúi að
ég verði forseti sem getur bent á lausn því að ég
veit að Guð er raunverulegur og þar er lausn að
fá. Ég vil koma á árlegri góðgerðarviku þjóð-
arinnar og stofna öflugan góðgerðarsjóð sem
ég hef hugsað mér að helmingur forsetalauna
minna renni í og ég vil hvetja þá sem eru aflögu-
færir að gera það sama.
13. Hvenær tókst þú ákvörðun um að bjóða þig
fram?
7. janúar á þessu ári.
14. Hvert yrði þitt fyrsta verk ef þú yrðir kos-
in/n forseti?
Ég myndi þakka traustið og svo myndi ég opna
Bessastaðakirkju og koma á reglulegum bæna-
stundum fyrir þjóðina.
15. Munt þú breyta áherslum í orðuveiting-
um forseta?
Ég hef sjálf verið sæmd riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu fyrir líknarstörf á alþjóðavett-
vangi. Ég held að það skipti máli að forseti veiti
viðurkenningar af þessu tagi þar sem tekið er
eftir einstaklingum sem hafa skarað fram úr
með því að leggja mikið á sig mönnum eða mál-
efnum til góðs. Þetta er góð tenging við fólkið í
landinu og ætti að vera hvati til góðra verka. Ég
hyggst því ekki breyta þessari hefð.
16.Hvaða forseti á lýðveldistímanum finnst
þér hafa skarað fram úr?
Ég var stoltust af Vigdísi Finnbogadóttur en
mér finnst Ólafur Ragnar hafa sýnt mikið hug-
rekki á ögurstundum í lífi þjóðarinnar og er
þakklát þeim báðum fyrir góð störf.
17. Hvað er það sem þú ert stoltust/stoltastur
af að hafa gert á ævinni?
Farið ein í árs langa hnattferð fyrir 30 árum og
verið síðan ein af stofnendum ABC barnahjálp-
ar og hafa með miklum fórnum og þrautseigju
byggt upp það starf, sem hefur breytt lífi tug-
þúsunda barna til hins betra með menntun.
18. Hver eru þín helstu áhugamál?
Hjólreiðar, ferðalög og fjallgöngur voru mín
áhugamál. Sökum anna undanfarna áratugi hef-
ur þó ekki gefist mikill tími fyrir áhugamál en
ég nýt þess að vera úti í náttúrunni, að tína ber,
sveppi og fjallagrös og í gönguferðum með fjöl-
skyldunni eða hundinum. Mér þykir gaman af
sultugerð og pönnukökubakstri. Ég nýt þess að
lesa Biblíuna og aðrar góðar bækur og hlusta á
góða tónlist. Samfélagið við Guð er mér ómiss-
andi og veit ekkert betra en að finna fyrir nær-
veru hans. Ég nýt þess að gefa til góðra mál-
efna og það veitir mér gleði að geta verið öðrum
að liði. Að lokum er skógrækt okkur hjónunum
hugleikin og fer mikill tími í hana á sumrin, sér-
staklega hjá manninum mínum.
19. Hefur þú einhverja tengingu við Vestur-
land?
Ég vann tvö sumur á sjúkrahúsinu í Stykkis-
hólmi og á góðar tengingar þangað. Ég á góðar
minningar frá Ísafirði og á þar einnig vini sem
og í Borgarnesi. Móðir mín var fædd og uppal-
in í Strandasýslu þannig að ég á rætur að rekja
þaðan.
20. Hvaða staður á Vesturlandi finnst þér fal-
legastur?
Bjartar sumarnætur við Breiðafjörðinn eru
ótrúlega fallegar, séð frá sjúkrahúsinu í Stykk-
ishólmi, einnig Hellnar og Dynjandi við Arn-
arfjörð.
Elísabet Jökulsdóttir
1. Hverjir eru fjölskylduhagir þínir?
Ég er einhleyp en á þrjá uppkomna syni,
tengdadætur og átta ömmustelpur.
2. Hvernig skilgreinir þú hlutverk Forseta
Íslands?
Sem gamalt embætti sem gaman væri að
hleypa nýju blóði í og færa til nútímahorfs,
þingið og forseti þingsins getur í raun und-
irritað lög og forsetinn gæti þá orðið meira í
sambandi við fólk og opnað Bessastaði.
3. Hvernig á forsetinn að haga synjunar-
valdinu? Ef hann á að taka mark á áskor-
unum, hversu hátt hlutfall kosningabærra
Íslendinga þarf þá að skora á hann?
Sjá nýju stjórnarskrána um þetta ég vil að hún
verði tekin í notkun. Þar er talað um mál-
skotsrétt þjóðar, ekki forseta.
4. Finnst þér þurfa að breyta Stjórnarskrá
Íslands. Ef já, hverju vildir þú helst breyta?
Já, nýja er mun betri, nútímaplagg. T.d. 109
gr. um utanríkismál sem kæmi í veg fyrir að
tveir menn gætu undirritað á alþjóðavettvangi
samþykki sitt við Íraksstríðið.
5. Ertu trúuð/aður?
Já ég trúi að eitthvað æðra sé til, eitthvað
gott.
6. Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já einhvers konar líf, einu sinni ætlaði ég í
gegnum dyr, þá var þar einhver eða einhver
orka sem varnaði mér og vini mínum.
7. Hversu sýnilegur á forsetinn að vera á al-
þjóðavettvangi?
Sem mest en hann þyrfti líka stundum að fara
með skipum.
8. Ef þú kemst til valda, munt þú beita þér
í embættinu til að tala fyrir einhverjum
ákveðnum málum. (T.d. utanríkismálum,
mannréttindamálum, velferðarmálum eða
öðru?)
Já sérstaklega mannréttinda og velferðarmál-
um ef ég gæti, utanríkismál eru viðkvæmari.
9. Er eitthvað sem Ísland hefur sem önnur
lönd hafa ekki? Þurfa Íslendingar að breyta
markaðssetningu landsins á einhvern hátt?
Ef já, hvar eigum við að leggja áherslurn-
ar?
Ísland hefur villta náttúru meðan önnur lönd
hafa ræktaða garða. Íslendingar gætu ver-
ið gestrisnari og tekið á móti flóttamönnum.
Markaðssetning er ekki lífsspursmál heldur
að vera samkvæmur sjálfum sér og þá kemur
hitt af sjálfu sér.
10. Hverjir eru þínir helstu kostir?
Hugrekki, vandvirkni, yfirsýn, hlustun.
11. Hverjir eru þínir helstu veikleikar?
Hugleysi, fljótfærni, þröngsýni, einangrun.
12. Hvers vegna vilt þú verða forseti Ís-
lands?
Það væri gott fyrir Ísland að fá venjulega
manneskju eins og mig sem forseta.
13. Hvenær tókst þú ákvörðun um að bjóða
þig fram?
Um áramótin, 2015 og 2016.
14. Hvert yrði þitt fyrsta verk ef þú yrðir
kosin/n forseti?
Held ég myndi íhuga útí náttúrunni af auð-
mýkt og þakklæti. Svo myndi ég setja upp
trampólín eins og ég var búin að lofa börn-
unum.
15. Munt þú breyta áherslum í orðuveiting-
um forseta?
Hef ekki hugsað útí það.
16. Hvaða forseti á lýðveldistímanum finnst
þér hafa skarað fram úr?
Allir góðir á sinn hátt.
17. Hvað er það sem þú ert stoltust/stoltastur
af að hafa gert á ævinni?
Bjargaði fyrrverandi manninum mínum frá
dauða.
18. Hver eru þín helstu áhugamál?
Íslensk náttúra, föt, tískublöð, íslensku hand-
ritin, Völuspá, Karnival, bækur Helgu Kress,
tónlist, dans, leikhús, rapp, barnateikningar,
edrúmennska, hestar, ferðalög.
19. Hefur þú einhverja tengingu við Vest-
urland?
Systir mín Kolbrá býr í Lundarreykjadal,
tengdadóttir mín er frá Snæfellsnesi, ég er
tengd Hellissandi eftir að ég var þar og teikn-
aði myndir í verðlaunabók sem kom út árið
2014, og ég var í sveit í Miklaholtsseli eða Seli
í Miklaholtshreppi og svo setti ég upp leikrit
eftir sjálfa mig í Ólafsvík og bjó þá á Gufu-
skálum.
20. Hvaða staður á Vesturlandi finnst þér
fallegastur?
Sel þar sem ég var í sveit sem barn, það voru
álfar og hrafnar þar.
21. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri
að lokum?
Lifi skáldskapurinn!
Hildur Þórðardóttir
1. Hverjir eru fjölskylduhagir þínir?
Ég er sjálfstæð og á tvo syni.
2. Hvernig skilgreinir þú hlutverk Forseta Ís-
lands?
Forseti er sameiningartákn þjóðarinnar, ör-
yggisventill fólksins gagnvart Alþingi, málsvari
fólksins og lýðræðis, talsmaður friðar í heimin-
um og vinnur með þjóðinni í átt að betra sam-
félagi.
3. Hvernig á forsetinn að haga synjunarvald-
inu? Ef hann á að taka mark á áskorunum,
hversu hátt hlutfall kosningabærra Íslendinga
þarf þá að skora á hann?
Ég hef sagt frá upphafi framboðsins að ég muni
beita málskotsréttinum, 26. gr., fái ég til þess
nægar undirskriftir kosningabærra manna. Ég
vil miða við 10% kjósenda því ég tel að þjóðin
eigi að kjósa um þau mál sem mesti ágreining-
ur ríkir um. Starfi Alþingi hins vegar í takt við
vilja þjóðinni við lagasetningar, mun þetta ekki
verða vandamál.
4. Finnst þér þurfa að breyta Stjórnarskrá Ís-
lands. Ef já, hverju vildir þú helst breyta?
Ég vil að tillögur stjórnlagaráðs verði samþykkt-
ar. Það er of margt að hinni gömlu/núverandi
stjórnarskrá til að hægt sé að lappa upp á hana
meira. Til dæmis má nefna uppbygginguna, hún
var upphaflega konungsstjórnarskrá, þar sem
konungurinn var efstur í valdapýramídanum, þá
ráðherrar og fólkið neðst með engin völd. Nýja
stjórnarskráin, eða tillögurnar, er með lárétta
valdauppbyggingu, þar sem fólkið, þingið, for-
seti og framkvæmdavald eru öll jafn mikilvæg.
Í þeirri nýju sitja ráðherrar ekki á þingi sem er
nauðsynleg bragarbót og persónukjör minnk-
ar vald stjórnmálaflokkanna svo þingmenn geti
Framhald á næstu opnu