Skessuhorn - 08.06.2016, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 201624
Að venju var skipulögð dagskrá
alla helgina þegar sjómannadagur-
inn var haldinn hátíðlegur í Snæ-
fellsbæ, enda dugir ekkert minna
en þrír dagar í slík hátíðarhöld.
Dagskráin var stútfull af skemmti-
efni og ekki spillti gott veður fyrir.
Á föstudag byrjaði dagskráin með
dorgveiðikeppni í umsjón Sjósnæ.
Þar keppti fjöldi barna og var vel
fiskað. Síðar um kvöldið var far-
ið í skemmtisiglingu á þremur
bátum þar sem þröngt var setið
enda margir sem fóru með bátun-
um. Að lokum var haldið grill þar
sem kirkjukór Ólafsvíkur söng létt
sjómannalög og trúbadorinn Eg-
ill söng fyrir gesti, auk þess sem
hoppukastalar voru á svæðinu fyrir
yngstu kynslóðina.
Laugardagurinn var stútfullur af
skemmti- og keppnisgreinum. Há-
tíðin fór fram við höfnina í Rifi og
var þetta í fyrsta sinn sem sameig-
inleg hátíð var haldin í Snæfellsbæ.
Voru flestir sammála um það að
þetta fyrirkomulag væri kom-
ið til að vera enda voru um þús-
und manns samankomnir á hafn-
arsvæðinu þegar mest var. Keppt
var í hefðbundnum greinum og
sá Sirkus Íslands um að skemmta
ungum sem öldnum, auk þess sem
opið hús var í Björgunarsveitar-
húsinu Von. Slysósúpa var í boði
Hraðfrystihúss Hellissands og KG
fiskverkunar þar sem gestir róm-
uðu súpuna og var löng biðröð
efir að fá súpu. Á laugardagkvöld-
ið mættu um 400 manns á sjó-
mannahóf í félagsheimilinu Klifi.
Kári Viðarsson var veislustjóri,
sjómannskonur voru heiðraðar og
hljómsveitin Bandamenn lék fyr-
ir dansi. Í sjómannagörðunum í
Ólafsvík og á Hellissandi var há-
tíðardagskrá á sunnudeginum þar
sem sjómenn voru heiðraðir og
ungmenni spiluðu tónlist.
af
Vel viðraði á sjómannadagshátíðina í Snæfellsbæ
Þorgrímur Benjamínsson og Guðleifur Guðmundsson voru heiðraðir í Ólafsvík fyrir störf sín við sjávarútveg. Hér eru þeir
félagar ásamt eiginkonum sínum.
Ólafur Rögnvaldsson framkvæmdastjóri HH er hér ásamt June Scholtz og Gunnari
Ólafi Sigmarssyni að framreiða súpu.
Pétur Steinar Jóhannsson var heiðraður vegna störf sín fyrir sjávarútveg og vegna
starfa sinna sem formaður sjómannadagsráðs, ásamt því að sjá um Sjómann-
dagsblað Snæfellsbæjar. Hér er hann ásamt konu sinni Guðrúnu Víglundsdóttur.
Sirkus Íslands sá um að skemmta á höfninni í Rifi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar kom og sýndi björgun úr sjó við skemmtisiglinguna.
Sjómannadagurinn var haldinn há-
tíðlegur um allt land síðastliðinn
sunnudag. Í Stykkishólmi var dag-
skrá fram eftir degi. Blóm voru
lögð við minningarreit drukkn-
aðra sjómanna í kirkjugarðinum og
við minnisvarða látinna sjómanna.
Haldin var sjómannamessa þar sem
sjómennirnir Henrý Ólafsson og
Páll Guðmundsson voru heiðrað-
ir. Skrúðganga var farin frá tónlist-
arskólanum niður að höfn þar sem
minnisvarði um Blika var afhjúp-
aður (sjá aðra frétt hér í blaðinu).
Við höfnina voru ýmis hefðbund-
in skemmtiatriði í anda sjómanna-
dagsins, þar sem farið var í koddas-
lag, stakkasund, brettahlaup, kapp-
róður á kajak og fleira.
grþ / Ljósm. sá.
Sjómannadagur í Stykkishólmi
Páll Guðmundsson var heiðraður á
sjómannadaginn.
Henry Ólafsson var heiðraður í Stykkis-
hólmi á Sjómannadaginn.
Ljósm. Jón Einar Jónsson.
Farin var skrúðganga frá tónlistar-
skólanum niður að höfn.
Veðrið lék við gesti og gangandi í Stykkishólmi á sjómannadaginn.
Ýmis skemmtiatriði voru við höfnina í tilefni dagsins, svo sem stakkasund.Einbeittur þátttakandi í brettahlaupi.