Skessuhorn - 24.08.2016, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 20162
Nú fer að halla sumri og hafa margar
og skemmtilegar bæjar- og héraðshá-
tíðir verið haldnar á Vesturlandi í sum-
ar sem tekist hafa vel til. Sumrinu er þó
ekki alveg lokið því ein hátíð er eftir.
Hvalfjarðardagar verða um helgina og
eru þeir sérstaklega merkilegir í ár þar
Hvalfjarðarsveit heldur upp á tíu ára
afmæli sveitarfélagsins.
Á morgun verður fremur hæg norð-
austanátt og bjart með köflum. Viða
síðdegisskúrir, einkum suðvestanlands.
Hiti 8-17 stig. Á föstudag og laugardag
verður norðaustan kaldi. Hiti 8-15 stig.
Á sunnudag og mánudag má búast
við hægviðri og skúrum um allt land.
Hiti 7-14 stig. Á þriðjudag er útlit fyrir
austanátt 8-15 m/s. Hiti 7-12 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns „Á ríkið að auka vegafram-
kvæmdir með sérstakri gjaldtöku?“
Meirihluti lesenda Skessuhorns telja
þá hugmynd ekki vera góða því 62%
svöruðu „Nei, alls ekki“ á meðan 35%
sögðu „Já, tvímælalaust.“ Aðeins 3%
sögðust ekki hafa skoðun á málinu
Í næstu viku er spurt:
Fylgist þú með línulegri
sjónvarpsdagskrá?
Í síðustu viku var starfsfólk skólanna á
Vesturlandi Vestlendingar vikunnar hjá
Skessuhorni þar sem þeir voru í óða-
önn að skipuleggja vetrarstarfið. Því er
ekki úr vegi að Vestlendingar vikunnar
séu námshestarnir á Vesturlandi sem
nú eru sestir á skólabekk eftir sumarfrí.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Jón Rúnar
hættur sem
skólastjóri
H V A L F J .
S V E I T :
Jón Rún-
ar Hilmars-
son hefur lát-
ið af störfum
sem skóla-
stjóri leik- og
grunnskóla
Hvalfjarðarsveitar, Skýjaborg-
ar og Heiðarskóla. Hann lauk
störfum 18. ágúst síðastliðinn.
Þetta staðfestir Skúli Þórðar-
son sveitarstjóri í Hvalfjarðar-
sveit. Skúli segir að ekki verði
auglýst strax eftir nýjum skóla-
stjóra, heldur muni staðgengl-
ar sinna starfinu tímabundið.
„Sviðsstjórar í Heiðarskóla og
Skýjaborg munu annast skóla-
stjórn fram á skólaárið og
staða skólastjóra verður aug-
lýst síðar,“ segir Skúli.
-grþ
Köstuðust úr
bílnum
VESTURLAND: Í dag-
bók Lögreglunnar á Vestur-
landi fyrir liðna viku kem-
ur fram að níu umferðaró-
höpp urðu í umdæminu, þar
af fjögur á mánudaginn. Um-
ferðarslys varð á Laxárdals-
heiði í Dalabyggð síðdegis á
mánudaginn. Erlendir ferða-
menn á bílaleigujeppa misstu
bíl sinn útaf malarveginum á
heiðinni og fór bíllinn nokkr-
ar veltur áður en hann stöðv-
aðist á réttum kili. Fjórir voru
í bílnum, ökumaður og far-
þegi í framsæti voru með ör-
yggisbeltin spennt og sluppu
án meiðsla en tvö 10 og 12 ára
börn, farþegar í aftursæti voru
ekki með beltin spennt og
slösuðust bæði. Annað þeirra
kastaðist út úr jeppanum.
Fólkið var flutt undir læknis-
hendur en kranabíll sótti bíl-
inn. Þá losnaði tvöfaldur hjól-
barði undan dráttarbíl tengi-
vagns með heitu malbiki sem
var á leið vestur Snæfellsnes-
veg og lenti dekkið utan í hlið
átta manna fólksbíls sem kom
úr gagnstæðri átt. Fólksbíllinn
lenti útaf veginum og hafnaði
úti í móa en hélst á réttum kili.
Engin meiðsl urðu á fólki í því
óhappi. Lögreglan tók tvo
ökumenn grunaða um akstur
undir áhrifum fíkniefna í vik-
unni sem leið. Í öðrum bíln-
um fannst lítilræði af ætluðu
amfetamíni. Þá var einn öku-
maður tekinn fyrir meinta ölv-
un við akstur í vikunni.
-mm
Eins og Skessuhorn greindi frá í
sumar var í byrjun júnímánaðar
tekin fyrsta skóflustungan að nýrri
reiðskemmu í Stykkishólmi. Reið-
skemman verður 18x38 metrar að
flatarmáli og er það Hesteigenda-
félag Stykkishólms sem stendur að
byggingu hennar. Til framkvæmd-
arinnar söfnuðu félagsmenn nálægt
sex milljónum króna auk þess sem
félagið fékk styrk frá sveitarfélaginu
að verðmæti tæplega 5,7 milljóna
vegna gatnagerðar- og byggingar-
leyfisgjalda.
Þegar blaðamann bar að garði í
Stykkishólmi í síðustu viku var búið
að slá upp fyrir sökklum og að sögn
Nadine E. Walter, formanns Hest-
eigendafélags Stykkishólms, ganga
framkvæmdir vel. Steypt var síð-
asta föstudag og sökkulmótin tekin
af á mánudaginn. „Það gengur mjög
vel. Það hafa verið nokkur vinnu-
kvöld hjá félögum, alltaf flott mæt-
ing og ég er rosalega stolt af mínu
fólki hvað það er búið að vera dug-
legt að mæta,“ segir Nadine í samtali
við Skessuhorn. „Reyndar er athygl-
isvert að 60-70% þeirra sem hafa
verið að mæta á þessi vinnukvöld eru
konur,“ bætir hún við ánægð.
Nadine segir ekki alveg ljóst hve-
nær lokið verður við skemmuna,
ekki sé alveg víst hvenær félagið
geti fengið límtrésgrind hússins af-
henta frá Límtré-Vírneti. „En stefn-
an er að klára þetta fyrir veturinn,“
segir Nadine. Hún segir að bygg-
ing skemmunnar sé mikið framfara-
skref fyrir starf hesteigendafélags-
ins. „Það verður algjör bylting að
geta æft innanhúss á veturna, hald-
ið námskeið og verið með ýmislegt
annað starf. Þetta er ekki síst gott
fyrir barnastarfið, því börn ríða nátt-
úrulega ekki út í hvaða veðri sem er.
Þannig að þetta mun breyta miklu,“
segir hún. kgk
Bygging reiðskemmu í Stykkishólmi gengur vel
Þegar blaðamann bar að garði síðasta fimmtudag var búið að slá upp sökklum að nýrri reiðskemmu Hesteigendafélags
Stykkishólms. Daginn eftir var steypt og í byrjun vikunnar voru mótin fjarlægð.
Framsóknarflokkurinn í Norðvest-
urkjördæmi hélt aukakjördæmisþing
síðastliðinn laugardag í félagsheim-
ilinu Tjarnarlundi í Saurbæ. Þar
lýsti Ásmundur Einar Daðason ann-
ar þingmaður flokksins í kjördæm-
inu því yfir að hann muni ekki gefa
kost á sér á lista fyrir komandi kosn-
ingar. Nokkru fyrr hafði Jóhanna
María Sigmundsdóttir fjórði þing-
maður flokksins gefið hið sama út.
Á fundinum lýsti hins vegar Gunn-
ar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra og fyrsti þing-
maður Norðvesturkjördæmis því
yfir að hann sæktist eftir að leiða
listann áfram. Elsa Lára Arnardótt-
ir þriðji þingmaður flokksins í kjör-
dæminu sækist nú eftir öðru sætinu.
Á þessu aukakjördæmaþingi var
felld tillaga um að boða til tvö-
falds kjördæmaþings sem fengi það
verkefni að kjósa um framboðslista.
Ástæða þess var sögð sú að ef boð-
að yrði til tvölfalds kjördæmisþings
myndi niðurstaða um framboðslista
ekki liggja fyrir nægjanlega snemma,
en eins og kunnugt er verða alþing-
iskosningar laugardaginn 29. októ-
ber. Þess í stað ákváðu framsókn-
armenn í Norðvesturkjördæmi að
kjósa uppstillingarnefnd sem mun
kynna niðurstöðu sína á kjördæmis-
þingi sem haldið verður á Bifröst í
Borgarfirði 3. og 4. september næst-
komandi.
mm
Tveir af fjórum þingmönnum
gefa ekki kost á sér
Nú á Framsóknarflokkurinn fjóra
þingmenn í NV kjördæmi. F.v. Elsa
Lára, Gunnar Bragi, Ásmundur Einar
og Jóhanna María. Ljósm. rsg.
Tillögur Svavars Gestssonar varð-
andi minningu Sturlu Þórðarsonar
sagnaritara voru teknar fyrir á fundi
sveitarstjórnar Dalabyggðar þriðju-
daginn 16. ágúst síðastliðinn. Lagt
er til að komið verði upp upplýs-
ingaskilti um Sturlu að Staðarhóli
í Saurbæ og að sótt verði um fé til
verksins í Framkvæmdasjóð ferða-
mannastaða. Sveitarstjórn sam-
þykkti með sex atkvæðum að koma
að undirbúningi við uppsetningu
skiltisins, funda með landeigend-
um og undirbúa umsókn í fram-
kvæmdasjóð að fengnu samkomu-
lagi við landeigendur. Sturla Þórð-
arson sagnaritari, lögmaður, lög-
sögumaður og skáld fæddist árið
1214 og bjó að Staðarhóli bróður-
part ævi sinnar. Þangað var hann
fluttur og jarðsettur eftir að hann
lést í Fagurey á Breiðafirði árið
1284.
kgk
Heiðra minningu Sturlu Þórðarsonar
Horft inn Staðarhólsdal í Saurbæ í Dölum. Í forgrunni má sjá minnismerki um
Sturlu Þórðarson, Stein Steinarr og Stefán frá Hvítadal, sem allir bjuggu í Saurbæ,
mislengi þó. Ljósm. Christian Bickel/Wikimedia Commons.