Skessuhorn - 24.08.2016, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 201610
Bæjarráð Akraness ákvað á fundi
í síðustu viku að Akranesviti skuli
verða opinn allt árið, en um til-
raunaverkefni verður að ræða. Vit-
inn mun verða opinn á veturna frá
þriðjudegi til laugardags en á sumr-
in alla daga vikunnar. Hilmar Sig-
valdason mun sem fyrr sjá um vit-
ann. Á vef Akraneskaupstaðar seg-
ir að töluverð aukning hafi orðið
í komu ferðamanna í Akranesvita
undanfarið ár. Í lok júlí síðastliðins
höfðu 7.800 manns lagt þangað leið
sína en til samanburðar komu 9.600
allt árið í fyrra. Þrjú ferðaþjónustu-
fyrirtæki hafa sýnt áhuga á að verða
með fastar ferðir í Akranesvita vet-
urinn 2016-2017.
Talsverð uppbygging og umhverf-
isbætur hafa átt sér stað á Breið-
inni og er þeirri uppbyggingu ekki
að fullu lokið. „Töluverðar fram-
kvæmdir hafa staðið yfir á Breiðinni
á undanförnum árum í samræmi við
nýtt deiliskipulag og hönnun fyrir-
tækisins Landslags ehf. og er þeim
ekki að fullu lokið. Sett verður upp
salernishús í vetur og fleiri verkefni
eru í farvatninu. Tillaga bæjarráðs
gengur einnig út á að sameina upp-
lýsingamiðlun sem hefur verið starf-
rækt í Landsbankahúsinu og í Akra-
nesvita þannig að upplýsingagjöf til
ferðamanna verði á einum stað, í vit-
anum. Hins vegar verði settir upp
standar með bæklingum á nokkr-
um stöðum í bænum auk þess sem
svokallaðir „heitir reitir“ verða sett-
ir upp sem gerir fólki kleift að kom-
ast á netið endurgjaldslaust og sækja
rafrænar upplýsingar um Akranes
og þjónustuna sem er í boði,“ segir í
frétt Akraneskaupstaðar. bþb
Síðastliðinn föstudag var verslunin
Bresabúð opnuð á Akranesi. Bresa-
búð er verslun sem er hugsuð fyr-
ir alla sem eru að byggja eða end-
urnýja hjá sér húsnæði en lögð er
áhersla á að vera með vörur sem
iðnaðarmenn nota. Þar verður selt
raflagnaefni, pípulagnaefni, hrein-
lætistæki, málning og málningar-
vörur en aðalbirgjar verslunarinnar
eru þrír; Reykjafell, Tengi og Slipp-
félagið.
Karvel Karvelsson, annar eig-
andi verslunarinnar, er bjartsýnn á
komandi tíma í Bresabúð og þakk-
látur fyrstu viðbrögðum. „Við höf-
um verið að vinna hörðum höndum
að koma búðinni upp síðustu vik-
ur. Það er allt klárt en við eigum þó
eftir að fínpússa nokkra hluti. Við
erum mjög bjartsýnir á komandi
tíma. Nú reynir á okkur að veita
góða þjónustu og gefa fólki ástæðu
til þess að versla frekar við okkur
en aðra. Við ætlum að leggja mik-
ið upp úr þjónustunni,“ sagði Kar-
vel þegar blaðamaður leit við í nýju
versluninni. bþb
Bjartsýni í Bresabúð
Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggð-
ar þriðjudaginn 16. ágúst síðast-
liðinn voru til umræðu viðmið-
unarlaun sveitarstjórnarmanna. Í
stefnumörkun Sambands íslenskra
sveitarfélaga fyrir árin 2014-2018
er kveðið á um að sambandið skuli
gera úttekt á kjörum og starfsum-
hverfi kjörinna fulltrúa og ástæð-
um mikillar endurnýjunar í þeirra
röðum. Á grundvelli þeirra upp-
lýsinga verði síðan gerðar tillögur
að úrbótum og leiðbeinandi við-
miðum. Viðmiðunartafla um laun
kjörinna fulltrúa liggur nú fyrir. Á
fundi sveitarstjórnar Dalabyggða
kemur fram að núverandi laun al-
mennra fulltrúa í sveitarstjórn er
13-72% lægri en viðmiðunartaflan
segir til um. Sveitarstjórn lagði því
til að byggðarráð tæki málið til um-
fjöllunar samhliða gerð fjárhags-
áætlunar Dalabyggðar fyrir árin
2018-2021. kgk
Laun sveitarstjórnarmanna
undir viðmiðum SÍS
Í vor var boðið út verk við gatna- og
lagnaframkvæmdir í Melahverfinu í
Hvalfjarðarsveit og var það Þróttur
ehf. á Akranesi sem fékk verkið eftir
að hafa gert tilboð upp á 47 milljón-
ir, sem var tæplega 70% af kostnað-
aráætlun. Verkið felur í sér að leggja
götuna Háamel og hluta Brekkumels,
lagningu fráveitu-, vatns-, hitaveitu-
og fjarskiptalagna og jarðvinnu fyr-
ir raflagnir. Auk þess að gera frárein
við afleggjara frá þjóðvegi eitt inn í
Melahverfið. Mælingar voru gerðar á
miðvikudaginn í liðinni viku og fram-
kvæmdir hófust á fimmtudaginn.
„Við sjáum um allt verkið, gatna-
gerð og lagnir. Þetta fer bara allt á fullt
núna. Uppgröfturinn verður notaður
til landmótunar á svæðinu og til að
snyrta,“ segir Helgi Þorsteinsson for-
stjóri hjá Þrótti ehf. „Áætluð verklok
eru í byrjun október og væntanlega
verðum við um fjórir eða fimm starfs-
menn þegar allt kemst á fullt,“ bætir
hann við. Að sögn Helga eru þónokk-
ur misstór verk í gangi þessa dagana
hjá Þrótti ehf. „Við erum t.d. að vinna
að verki hjá Mið-Fossum í Borgarfirði
og í Kjósaskarðsvegi en það eru 7 km
og verk upp á rúmlega 200 milljónir.
Einnig erum við að byrja á verki fyrir
Orkuveituna á Hellisheiðinni. Það er
því nóg að gera, sem er bara jákvætt,“
segir Helgi. arg
Gatnaframkvæmdir
hafnar í Melahverfi
Mokað fyrir nýrri götu í Melahverfinu í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. ki.
Akranesviti verður upplýsinga-
miðstöð og opinn allt árið
Hilmar Sigvaldason vitavörður segir hér hollenskum ferðamanni frá mannlífinu
á Akranesi. Á þessu ári stefnir í að á annan tug þúsunda ferðamanna komi í
Akranesvita.
Fyrirtækið Welcome Apartments
hefur fest kaup á fasteigninni að
Grundarbraut 2 í Ólafsvík, þar
sem nú er rekinn veitingastaðurinn
Hraunið. Þetta staðfestir Stefán
Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri
Welcome Apartments, í samtali
við Skessuhorn. „Þetta er fasteign
sem hafði verið lengi á sölu og við
sáum þarna tækifæri til að fjárfesta.
Við keyptum húsnæðið en erum
búnir að bjóða núverandi rekstr-
araðila húsnæðið áfram til leigu,“
segir Stefán. Hann segir því engar
breytingar á döfinni á rekstrarfyr-
irkomulagi staðarins og mun Jón
Kristinn Ásmundsson áfram reka
Hraunið. Fasteignin að Grundar-
braut er ekki fyrsta eign Welcome
Apartments á svæðinu heldur á fyr-
irtækið einnig Hótel Hellissand,
Hótel Ólafsvík og verslunina Virk-
ið í Rifi, þar sem nú er rekið gisti-
hús. Stefán segir hótelreksturinn
hafa gengið vel það sem af er árinu.
„Þetta hefur gengið ofboðslega vel,
það hefur allt verið fullt hjá okk-
ur og ég býst við að næsta sumar
verði ekki síðra. Við ætlum að hafa
opið í vetur enda er ekki hægt að
lengja ferðamannatímabilið ef allt
er lokað.“ Hann bætir því við að
í Ólafsvík verði reyndar einungis
opið að hluta til. „Við verðum að-
eins með opið í húsinu sem geng-
ur undir nafninu Mafían, því við
erum að fara í endurbætur á hótel-
inu. Það verða þó engar breyting-
ar á húsnæðinu, heldur ætlum við
að sinna viðhaldi, mála allt að innan
og klæða húsið að utan.“ grþ
Welcome Apartments kaupir
Hraunið í Ólafsvík
Veitingastaðurinn Hraunið í Ólafsvík. Ljósm. úr safni.
Á fyrri helmingi þessa árs skil-
aði rekstur Orkuveitu Reykjavík-
ur fimm milljarða króna hagnaði.
Á sama tímabili á síðasta ári var 2,3
milljarða króna hagnaður. „Við-
varandi sparnaður í rekstri og hag-
stæð gengisþróun eiga þátt í bættri
afkomu. Launakostnaður hefur
hækkað í samræmi við nýlega kjara-
samninga,“ segir í tilkynningu frá
fyrirtækinu. Nettó vaxtaberandi
skuldir OR lækkuðu um 9 millj-
arða króna á fyrri hluta ársins og
hefur árshlutareikningur samstæðu
OR verið samþykktur í stjórn. Um
næstu áramót sjá Veitur, dótturfyr-
irtæki OR sem sér um veiturekst-
ur samstæðunnar, fram á að lækka
gjaldskrár fyrir rafmagnsdreifingu
og kalt vatn. „Miklar fjárfestingar í
fráveitum og hitaveitum munu ekki
leyfa lækkun á þeim gjaldskrám.
Veitur sjá um rafmagnsdreifingu frá
miðjum Garðabæ í suðri til Akra-
ness í norðri og þjóna um helmingi
landsmanna. Vatnsveitur Veitna eru
í fimm sveitarfélögum og þjóna um
40% landsmanna,“ segir í tilkynn-
ingunni. mm
Veitur hyggjast lækka verð á
neysluvatni og rafmagni