Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2017, Blaðsíða 3

Skessuhorn - 23.08.2017, Blaðsíða 3
 . Nánar um dagskráliði á www.hvalfjardardagar.is Hvalfjarðardagar 2017#hvalfjarðardagar Hvalfjarðardagar 2017 25. – 27. ágúst Föstudagur 25. ágúst Kl. 10:00-18:00 Ferstikluskáli opinn Kl. 12:00 Ljósmyndasamkeppni hefst og stendur yfir Hvalfjarðardaga Þema: Gleði og náttúra í Hvalfjarðarsveit. Sjá nánar á www.hvalfjardardagar.is. Kl. 14:00-21:00 Sundlaugin að Hlöðum opin Kl. 18:00-23:00 Ferðaþjónustan á Laxárbakka býður heim Lambakjöt á grillinu frá kl. 18:00 og kaldur á kantinum, gestum boðið að skoða íbúðirnar og aðstöðuna. Heiðmar ætlar að sjá um stuðið fram eftir kvöldi frá kl. 20:00 til 23:00 Tilboð: Kjöt, kartöflusalat, sósa og drykkur á 2.000 kr. Kl. 18:00-19:00 BMX-BRÓS á bílastæðinu hjá sundlauginni að Hlöðum Þeir sýna listir sínar á hjólum og leyfa áhorfendum að taka þátt. Grillaðar verða pylsur fyrir sundlaugarpartýið. Kl. 19:00-21:00 Sundlaugarpartý að Hlöðum fyrir 12-18 ára ungmenni Vatnsblöðrur, tónlist og góð stemming. Laugardagur 26. ágúst Kl. 09:00 Gönguferð með leiðsögn úr Grafardal um Síldarmannagötur niður í Hvalfjörð Gangan er 13,5 km, tekur 3,5-4 klst. Þægileg leið sem flestir ættu að ráða við (nauðsynlegt að vera í góðum gönguskóm, klædd eftir veðri og með létt nesti). Hist er við vörðuna í botni Hvalfjarðar kl 9:00 og hópnum skipt niður á bíla. Leiðsögumaður er Petrína Helga Ottesen. Skráning í gönguna er á hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is. Kl. 10:00-18:00 Sundlaugin að Hlöðum opin Kl. 10:00-18:00 Ferstikluskáli opinn Kl. 11:00 Helgusund í samstarfi við Sjóbaðsfélag Akraness Synt verður frá Geirshólma og í land í Helguvík. Fólk mætir kl. 10:30 og sundið byrjar kl. 11:00. Þátttökugjald er 2.500 kr. og fer skráningin fram á hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is. Lágmarksfjöldi 20 manns. Kl. 13:00-17:00 Hestaleigan Draumhestar í Steinsholti Opið hús og boðið upp á kaffi og meðlæti. Teymt verður undir börnum. Kl. 13:00-16:00 Hernámssetrið á Hlöðum Aðgangseyrir 1.000 kr. Dagskrá á Þórisstöðum Kl. 13:00-17:00 Stóri sveitamarkaðurinn á Þórisstöðum Boðið upp á fjölbreytt vöruúrval, gott í gogginn og fallegt handverk, staðsett í fjósinu og fjárhúsinu. Amma Andrea og fallega fólkið hennar. Ekki verða allir með posa á svæðinu. Kl. 13:00-17:00 Kaffihús í Kaffi Koti Mæðgurnar Sigurlaug og Erla töfra fram veitingar Kl. 13:00-13:30 Leikhópurinn Lotta Atriði þar sem nokkrar vel valdar persónur syngja lög og skemmta fólkinu. Atriðið er hlaðið húmor fyrir allan aldur, sprell, söngur og gleði. Allir fá svo að knúsa persónur og taka myndir. Kl. 13:30-14:30 Traktoraþrautabraut Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Kl. 15:00 Sammi tónlistarmaður Spilar vel valin lög. Kl. 15:00-17:00 Vatnsrennibraut með aðstoð Þráins slökkviliðsstjóra Kl. 17:00-18:00 Tónleikar með Fjárlaganefnd í Hallgrímskirkju í Saurbæ Fjárlaganefnd skipa: Sólveig Sigurðardóttir, Ásta Marý Stefánsdóttir, Freydís Þrastardóttir, Valgerður Helgadóttir, Gunnar Guðni Harðarson, Gunnar Thor Örnólfsson, Böðvar Ingi H. Geirfinnsson og Ragnar Pétur Jóhannsson. Allir hjartanlega velkomnir, frítt inn. Sunnudagur 27. ágúst Kl. 10:00-18:00 Sundlaugin að Hlöðum opin Kl. 10:00-18:00 Ferstikluskáli opinn Kl. 14:00-17:00 Álfholtsskógur Opið hús í skógræktahúsinu Furuhlíð, starfsmenn verða á svæðinu til að leiðbeina fólki. Heitt á könnunnni. Allir velkomnir. Kl. 14:00-17:00 Vatnaskógur býður heim Boðið verður upp á hoppukastala, báta og ýmislegt fleira. Farið verður í skoðunarferð um svæðið með leiðsögn kl. 15:00. Kaffisala verður í matskálanum. Kl. 20:30 Stofutónleikar í Skipanesi Ásta Marý Stefánsdóttir mun syngja uppháhalds lögin sín og með henni mun Jónína Erna Arnadóttir leika á píanó. Allir hjartanlega velkomnir að kíkja í bæinn. Kl. 23:00 Ljósmyndasamkeppni lýkur Dagskrá Hvalfjarðardaga 2017 SK ES SU H O R N 2 01 7

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.